Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ
26 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 199,5
AÐSENDAR GREIIMAR
Skjöldungsauki eða
joðskortur í lömbum
FYRIR kemur, að lömb fæðist
veik eða vesæl og að ær láti lömb-
um eða fæði dauð lömb á réttu
tali, ýmist fullburða eða dauð fyrir
nokkru. Skortur á joði í fóðri eða
vatni ánna á meðgöngutíma getur
valdið þessu. Skjaldkirtillinn þarf
joð til að mynda mikilvæga horm-
óna. Þegar joð vantar verða þeir
ekki nægir. Þá fer heiladingull að
knýja skjaldkirtil til meiri afkasta.
Standi slíkt ástand lengi verður
úr því vítahringur, sem getur leitt
til stækkunar á skjaldkirtli auk
annarra sjúklegra breytinga.
Auk stækkunar á skjaldkirtli
virðst þrálátur og mikill joðskort-
ur í eldra fé geta valdið óreglu á
gangmálum og að ær festi illa
feng, hrútarnir verði daufir til
lembinga og illa haldi við þeim
vegna galla á sæði. Þá ber á van-
þrifum, lélegum ullvarvexti og
óeðlilega lítilli nyt í ám. Efni í
fóðri, sem hindra nýtingu á joði,
geta haft sömu áhrif, en það er
mun sjaldgæfara. Loks má nefna
ættgengan galla með sömu áhrif
í vissum fjárkynjum erlendis.
Þessa galla hefur ekki orðið vart
í fé hér á landi.
Borið hefur á joðskorti í vetur
Á hverju vori ber á veikindum
í lömbum eins og þeim sem hér
hefur verið lýst á nokkrum bæjum
víða um land. Á liðnu vori var tjón
vegna joðskorts meira og víðar en
oftast áður. Tjónið varð þó ekki
mikið á landsvísu, en
í flestum hlutum
landsins'voru bændur
sem misstu lömb, jafn-
vel tugi lamba af þess-
um sökum. Sum veiku
lambanna dóu
skömmu eftir fæð-
ingu. í joðskorti eru
lífshræringar hægar
og mótstaðan því lítil.
Vegna stækkunar á
skjaldkirtli geta lömb-
in átt erfitt með að
sjúga, kyngja og jafn-
vel anda. Fósturvatn
eða mjólk hrekkur þá
ofan í lungu og lömbin
kafna eða deyja úr
lungnabólgu.
Slétt hár, lafandi eyru,
kúla á hálsi
Menn verða oftast varir við joð-
skort þannig, að nokkur lömb fæð-
ast með undarlega fyrirferðar-
aukningu á hálsinum neðan við
kverkina. Það er skjaldkirtillinn,
öðru nafni skjöldungurinn, sem er
stækkaður. Ef þuklað er á þessum
stað (en það ættu menn þó að
gera með varúð) finnst kirtillinn
greinilega neðan við barkakýlið.
Einn kirtill hvorum megin en þeir
vaxa saman í einn, ef stækkun er
mikil. Stundum er hann á við stór-
an tómat og getur valdið burðar-
erfiðleikum. í öðrum tilfellum er
hann lítt stækkaður, þótt lambið
Sigurður
Sigurðarson
sé veikt eða vesælt af
joðskorti. Eðlilegur
skjaldkirtill finnst ekki
við þuklun. Þessari
stækkun á skjaldkir-
tilinum fylgir breyting
á ullarlagi. Ullin er oft
lítið sprottin, gisin og
lítt hrokkin, allt að því
slétt. Eyrun lafa
vegna vökvabjúgs
undir skinni á höfði.
Þessi lömb geta því
minnt á hvolpa, slétt-
hærð með lafandi
eyru. Auk bjúgsins eru
blæðingar í hinum
stækkaða skjaldkirtli
og víðar um líkamann
t.d. um liðamót. í kviðarholi og í
bijóstholi er óeðlilega mikill vökvi.
Innri líffæri geta verið óeðlileg og
oft er Iifrin meyr og sprungur
koma í hana við minnsta hnjask.
Þess vegna deyja sum lömb vegna
innvortis blæðinga.
Lækning
Erfitt er að bjarga lömbum sem
fæðast með verulegar skemmdir í
líffærum. Ef skemmdir í líffærum
eru litlar, lagast lömbin á nokkrum
tíma án þess að nokkuð sérstakt
sé gert vegna þess að joð er í and-
rúmslofti. Flýtt getur bata, ef joð
er borið á naflastreng, en það síast
þaðan inn í líkamann. Þetta þjónar
þeim tilgangi um leið að hindra
sýkingu um naflastrenginn, sem er
SKJÖLDUNGSAUKI
í unglambi. Eðlilegur
skjaldkirtill neðar.
Hér fjallar Sigurður
Sigurðarson um joð-
þörf sauðkindarinnar og
áhrif joðskorts.
nokkuð algeng. Einnig er rétt að
bregða bómullarpinna (eymapinna)
eða fingri bættum í þynntu joði
(t.d. spenadýfa) í munn lambsins í
nokkra daga eða bæta nokkrum
dropum í brodd, sem gefínn er með
magaslöngu eða í pela. Joðið sog-
ast vel upp í líkamann um slímhúð
vinstrar og skeifugamar. Það er
snefílefni sem lítið þarf af.
Varnir
Oftast er það joð nægilegt sem
skepnurnar anda að sér og fá í
fóðri og vatni, en þetta dugir ekki
alltaf eins og dæmin sýna. Vegna
þess að joð er mest í sjávarlofti,
ber yfirleitt meira á joðskorti fjarri
sjó og hærra í landi en við strönd-
ina þótt dæmi séu um það líka.
Og meiri hætta er talin á joðs-
korti á sendnu landi og í rigninga-
tíð vegna útskolunar á þessu efni
úr jarðvegi og þar með úr gróðri.
Þegar hey er efnagreint er ekki
mælt joð en alltaf salt eða Natrín
(Na). Þegar sú tala er lág má
ætla að vindar hafi lítt blásið af
sjó á sprettu- og heyskapartíma
eða að rigningar hafi skolað því
úr gróðri áður en hey komst í hlöðu
eða votabandsrúllur. Það þýðir um
leið að lítið joð hefur borist af hafi
á gróðurinn. Við höfum einmitt
fundið lág Na-gildi í heyi samfara
joðskorti á sandjörðum við strönd-
ina. Auðvelt er í flestum tilfellum
að fyrirbyggja þennan kvilla með
því að tryggja ánum nægilegt joð
á meðgöngutíma. Það má gera
með þeim einfalda hætti að hafa
joðglas opið í glugga á ijárhúsinu
þannig að það gufi upp smátt og
smátt eða með því að pensla joði
annað slagið á garðabönd eða stoð-
ir. í salt eða saltsteina er oft bætt
joði, en rétt er að gæta að því
hvort það er tekið fram í vörulýs-
ingu. I þangmjöli er mikið af joði
og þess má geta að pft er nægi-
legt joð i fiskimjöli. Ýmis efni úr
fóðrinu, sem myndast við meltingu
í vömbinni geta hindrað nýtingu
joðs í líkamanum, einkum þó ef
joðmagn er á mörkum þess að
vera nóg. Gegn þeim má yfirleitt
veijast með því að tryggja nóg joð
í fóðrinu. Þessi efni eru í ýmsum
plöntum m.a. í rýgresi og hvít-
smára auk þes í fóðurkáli, öðrum
káltegundum o.fl. Um þessi efni
og verkun þeirra er þó varla nóg
vitað (alkaloid með thiourylen, cya-
nogenetic glycosides, perchlorate,
thiocyanate, nitrate).
Þörf fyrir joð
Dagsþörf sauðkindar fyrir joð (I)
virðist vera um 200 míkrógrömm.
Ef hún fær ekki nóg fer joð í þvagi
niður fyrir 50 míkrógrömm á dag
og joð- í mjólk niður fyrir 8
míkrógrömm í 100 ml. Mæling á
joði í þvagi og mjólk getur þannig
gefið bendingu um stöðuna.
Höfundur er dýralæknir.
Sátt og traust um
skólastarf í Reykjavík
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
ritar grein í Morgunblaðið í gær
þar sem hann rekur afskipti sín
af málefnum Austurbæjarskóla og
lýsir þeirri skoðun að með ráðningu
skólastjóra hafi hann stuðlað að
friði um skólastarfið þar. Ennfrem-
ur segir hann að borgaryfirvöld
hafí engin afskipti haft af þeirri
niðurstöðu sem hann náði fram í
samtölum við fyrrum skólastjóra,
er leiddu til þess að hann lét af
störfum og skólastjórastaðan var
auglýst.
Rétt er að taka fram að málefni
Austurbæjarskóla hafa verið til
umfjöllunar mun lengur en Björn
Bjarnason hefur setið í mennta-
málaráðuneytinu. í fyrrasumar og
AUSTURLENSK TEPPI
OG SKRAUTMUNIR
Hringbraut 121, sími 5"52 3690
Raðgreiðslur til 36 mán.
haust voru málefni
skólans mjög til um-
ijöllunar vegna deilna
sem upp komu um
starfsmannamál og
húsnæðismál í skólan-
um. Þá voru það borg-
aryfirvöld, einkum og
sér í lagi formaður
Skólamálaráðs, Sigrún
Magnúsdóttir, sem
lögðu mikla vinnu í að
finna lausnir sem gætu
reynst heilladijúgar
fyrir skólastarfið í
Áusturbæj arskóla.
Þegar starfsmenn og
foreldrar í skólanum
lýstu því yfir um ára-
mót að ekkert starf hæfist í skólan-
um eftir áramót nema þáverandi
skólastjóri yrði látinn víkja og nýr
ráðinn tóku borgaryfírvöld af skar-
ið og í samstarfi við menntamála-
ráðuneytið var leitað lausna til að
tryggja frið og sátt í skólanum.
Reykjavíkurborg og núverandi
meirihluti hafa því þegar sýnt að
þeim er umhugað um að friður og
Árni Þór
Sigurðsson
Sigrún
Magnúsdóttir
444444444444444444444444444/.
VIRKA
MÖRKINNI 3 (VIÐ SUÐURLANDSBRAUT), SÍMI568 7477
Sumarbustaöaeigendur
Bómullarefní, köflótt og munstruð, í
OPIÐ gardínur, dúka o.fl.
- fös. KL. 10-18 AthagíS úrvalíö og mismunandí verð.
V144444/14444444444444/144444/
sátt ríki um skólastarf í Austurbæj-
arskóla eins og í öllum öðrum skól-
um borgarinnar. Það er því ósæm-
andi og fullkomin vanvirða við það
starf sem borgin hefur lagt af
mörkum í vetur til að tryggja gott
skólastarf í Austurbæjarskóla, þeg-
ar menntamálaráðherra lýsir því
yfir að núverandi meirihluti í borg-
inni hafi ekki haft hag skólans að
leiðarljósi þegar hann tók afstöðu
til skólastjóraráðningar við skól-
ann. Ef menntamálaráðherra
kynnti sér málið, eða ræddi við
Ef menntamálaráðherra
kynnti sér málið, segja
Sigríin Magnúsdóttir
----9----------------
o g Arni Þór Signrðs-
son, myndi hann kom-
ast að því að borgin
hefur haft málefni
Austurbæjarskóla til,
umfjöllunar í allan
vetur o g ávallt haft
hagsmuni skólastarfs-
ins að leiðarljósi.
fyrirrennara sinn og flokksbróðir í
starfi, myndi hann komast að því
að borgin hefur einmitt haft mál-
efni Austurbæjarskóla til umfjöll-
unár í allan vetur og ávallt haft
hagsmuni skólastarfsins að leiðar-
Ijósi.
Það voru þijár meginástæður
fyrir afstöðu meirihluta Skóla-
málaráðs til skólastjóraráðningar.
í fyrsta lagi menntun umsækjenda
og starfsreynsla, í öðru lagi áform
um að fjölga konum í stjórnunar-
stöðum í samræmi við jafnréttis-
markmið og jafnréttislög og í
þriðja lagi að fá utanaðkomandi
aðila inn í skólann í kjölfar alls
þess sem á undan var gengið í
skólanum. Þessi sjónarmið eiga
ekkert skylt við flokkspólitík eins
Rosenthal _ pega' Pú velUT ®8f
• Brúðkaupsgjafir
• Tímamótagjafir
Hönnun oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244.
og menntamálaráðherra gefur í
skyn. Þrátt fyrir þessa afstöðu
meirihlutans ber hann fullt traust
til nýráðins skólastjóra og vonast
eftir góðu samstarfi við hann hér
eftir sem hingað til. Skólamálaráð
hefur við ráðningar í skólastjóra-
stöðu á þessu kjörtímabili tekið
umsækjendur í viðtöl og fengið
aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa í
því efni. Það eru ný vinnubrögð
því áður var það einfaldlega odd-
viti sjálfstæðismanna í skólamál-
um sem réð hveijir hlyti skólastjó-
rastöður án nokkurrar faglegrar
umfjöllunar. Reykjavíkurlistinn
hefur innleitt ný vinnubrögð sem
byggja á faglegu mati en ekki
pólitískum duttlungum.
Eins og kunnugt er, er áformað
að flytja allan rekstur grunnskól-
ans til sveitarfélaga á næsta ári.
Menntamálaráðuneytið hefur sjálft
gefið út þau fyrirmæli að ekki skuli
ráða í nýjar stöður á vegum ríkis-
ins til lengri tíma en fram á mitt
næsta ár en frá þeim tíma munu
ráðningar alfarið verða á hendi
sveitarfélaganna. Það er í því ljósi
sem meirihlutinn í Reykjavík taldi
sérstaklega ástæðu til að ætla að
menntamálaráðherra sýndi honum
traust til að takast á við viðkvæmt
og vandasamt mál Austurbæjar-
skólans og virti vilja meirihlutans.
Annað liggur ekki þar að baki.
Reykjavíkurborg hefur mikinn
metnað fyrir hönd sinna skóla og
vill standa vel að skólamálum. Það
er hins vegar mikilvægt að gagn-
kvæmt traust ríki milli borgarinnar
og menntamálaráðuneytisins þann-
ig að viðkvæmt skólastarfið verði
ekki fyrir hnjaski við flutninginn.
Að því vill Reykjavíkurborg vinna
og telur sig hafa unnið í þeim anda
og vonar að menntamálaræaðherra
taki af allan vafa um að hann
treysti borgaryfirvöldum til að fara
með málefni grunnskólans í stóru
og smáu.
Sigrún Magnúsdóttir er formaður
Skólamálaráðs Rcykjavíkur og
Árni Þór Sigurðsson er
varaformaður Skólamálaráðs
Reykjavíkur.