Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 28

Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ1995 29 JRwpiiifrliifetfr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÞJOÐVEGUR TIL EYJA í SUNDUR ÞAÐ BER vott um að kjarabarátta einstakra hópa hafi gengið út í öfgar, þegar stórt bæjarfélag er nánast ein- angrað frá umheiminum í meira en sólarhring vegna verk- fallsaðgerða. Verkfall yfirmanna á kaupskipunum skar á líf- æð Vestmannaeyinga til lands, siglingar Herjólfs, en ófært var til Eyja í lofti vegna þoku. Vestmannaeyingar kalla Heijólf oft þjóðveginn milli lands og eyja og það má til sanns vegar færa. Staða Vestmanna- eyja er nokkuð sérstök á meðal byggðarlaga á eyjum hér við land vegna stærðar bæjarins og nauðsynjar á tíðum ferðum milli lands og eyja. Oft viðrar ekki til flugs og þá treysta Vestmannaeyingar á Heijólf. Rétt eins og ríkisvaldið hefur reynt að tryggja stórum byggðarlögum á landi sem bezta vegi, hefur það lagt fé til að tryggja góðar og þægilegar samgöngur til Eyja, enda eiga íbúar þar sama tilkall og aðr- ir til slíks. í ályktun bæjarráðs Vestmannaeyja, sem var samþykkt á þriðjudag, segir meðal annars: „Það er krafa íbúa í Vest- mannaeyjum að verkföll leiði ekki til meiri röskunar hér en annars staðar á landinu en nú er það háð veðri og vindum hvort íbúarnir njóta öryggis og frelsis á við aðra landsmenn. Það getur ekki og má ekki verða háð kjaradeilu hvort hluti íbúa þessa lands sé settur í farbann." Ástæða er til að taka undir þessi orð fulltrúa Vestmannaey- inga. Það líðst ekki í nútímasamfélagi að taka fyrir nánast allar samgöngur til byggðarlags. Undanþága Farmanna- og fiskimannasambandsins til útgerðar Heijólfs, þess efnis að fara megi tvær ferðir fram að helgi, breytir hér litlu um. Með verkfallsréttinum hefur stéttarfélögum verið fengið umtalsvert vald. Það er sjálfsögð krafa að þau beiti því valdi þannig að það komi ekki harðar niður á sumum landsmönnum en öðrum. HEILINDIOG VIRÐING INNAN KIRKJUNNAR DEILUR á meðal presta þjóðkirkjunnar skyggðu að nokkru leyti á málefni þau, sem voru til umfjöllunar á prestastefnunni, sem lauk í seinustu viku. Deilur þessar virðast ekki sízt snúast um kjara- og ráðningamál og verka- skiptingu innan safnaða. Þær hafa orðið talsvert illskeyttar á undanförnum mánuðum og hefur persóna sumra kirkjunn- ar þjóna þá orðið skotspónninn. Burtséð frá deiluefninu hlýtur það að vera þjónum þjóð- kirkjunnar umhugsunarefni hvernig skeytin hafa gengið á milli sumra þeirra í ijölmiðlum. Draga má í efa að ummæl- in hafi í öllum tilvikum verið í anda siðareglna presta, en þar segir meðal annars að prestum beri að stuðla að „góðu samstarfi og samkennd fremur en samkeppni innan stéttar- innar“. Þar segir jafnframt að prestar sýni hver öðrum „heilindi og virðingu í viðtali sem umtali, ráðum og gjörð- um“ og að prestur gæti þess að „eiga gott samstarf við samstarfsfólk sitt, sóknarnefndir og trúnaðarmenn og leit- ist við að stuðla að eindrægni og sarnhug". Þjóðkirkjan er einn af hornsteinum samfélagsins, kannski mætti fremur segja akkeri í lífsins ólgusjó. Deilur, sem oft snúast um persónur fremur en málefni og aukaatriði frem- ur en aðalatriði, eru algengar á opinberum vettvangi. Hins vegar hlýtur að vera til þess ætlazt að stofnun á borð við Þjócjkirkjuna standi utan slíkra deilna. Innri deilur af því tagi rýra aðeins traust fólks á henni sem stofnun, rétt eins og það myndi rýra traust á t.d. Hæstarétti, ef dómarar ættu í innbyrðis illdeilum og gættu ekki virðingar stofnunarinn- ar út á við. Oft hefur verið deilt innan kirkjunnar, til að mynda um guðfræðileg málefni. Slíkar deilur hafa sýnt fram á þróun í hugmyndalegum og trúarlegum skilningi og eðlilegt er að tekizt sé á um stefnur. Svo er hins vegar ekki nú. Kirkj- unnar þjónar mega heldur ekki rugla því, að kirkjan þarf vissulega að nýta sér fjölmiðla og upplýsingatækni nútím- ans til að koma boðskap sínum á framfæri, saman við að innri deilur um önnur mál eigi ef til vill heima á þeim vett- vangi. Varast ber að gera of mikið úr þeim ágreiningi, sem uppi er innan kirkjunnar. Kannanir hafa sýnt að traust og hollusta íslendinga við Þjóðkirkjuna, sem flestir landsmenn teljast til, er mikil. Heilindi og virðing innan kirkjunnar eru hins vegar fremur til þess fallin að viðhalda því trausti en opinberar deilur um veraldleg mál. EVRÓPUMÁL ENN í DEIGLUNNI í NOREGI SVARIÐ var NEI þegar Norðmenn gengu til atkvæða um aðildina að Evrópusambandinu. Nú eru hins vegar farnar að renna á þá tvær grímur. Vegna aðildarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu þurfa þeir að laga sig að reglum ESB, en þar sem þeir standa utan þess hafa þeir engin áhrif á setningu þessara reglna. Línudans- inn á milli ESB o g EES Norðmönnum gengur allt í haginn í efnahags- málum, þrátt fyrir böl- spár stuðningsmanna ESB-aðildar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsl- una í haust. En Evr- ópuumræðan er mikil, ekki síst sakir aðlögunar að ESB vegna EES- samningsins. ESB er í mótun og óvíst að það líði önnur 22 ár áður en Norðmenn verða næst spurðir um ESB-aðild. Sigrán Davíðsdóttir var á ferð í Noregi fyrir skömmu og hugaði að aðstæðum þar. ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI Norðmanna 17. maí síð- astliðinn var langur pist- ill um Noreg og vel- gengnina þar í fréttatíma sænska útvarpsins. Bent var á að öfugt við Svía léki lánið við þessa næstu ná- granna. Þeir hefðu rakað að sér gullverðlaunum á vetrarólympíu- leikunum og meira að segja unnið evrópsku söngvakeppnina, fyrir ut- an það að efnahagurinn stæði með blóma. Hið síðastnefnda þó að Nor- egur væri utan Evrópusambandsins og Svíþjóð innan. Það er þó hæpið að rökrétt samband sé þarna á milli. Sex mánaða vera Svía í ESB lækn- ar ekki uppsafnaðan vanda þeirra, né segir vist Norðmanna utan ESB hver staða þeirra verði eftir áratug. En í Noregi virðast vera teikn á lofti um að norskir stjórnmálamenn muni ekki endilega láta líða önnur 22 ár þar til þeir reyna aftur að fá þjóðina með sér í ESB. Það munar um olíuna Allar norskar hagtölur eru eins og best getur verið, þegar til skamms tíma er litið og margar bölspár stuðningsmanna ESB fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa öld- ungis ekki ræst. Þeir sögðu fyrir vaxtahækkun, en reyndin hefur orð- ið þveröfug, því þegar sýnt var að norska stjórnin myndi viðhalda strangri hagstjórn lækkuðu vextir og eru nú aðeins hálfu prósenti hærri en þýskir vextir. Spáð var minnkandi fjárfestingum, en fjár- festingar í iðnaði ótengdum olíu- framleiðslu hefur aukist um þriðj- ung. Á þessu ári og næsta er reikn- að með um 4% hagvexti, meðan reiknað er með norrænu meðaltali um 2,75% í ár og 3% það næsta. Reikn- að er með að iðnaður ótengdur olíu vaxi um 3% í ár. Gott efnahagsástand mun líka hafa áhrif á atvinnuleysið, sem verður að öllum líkindum 5% í ár, meðan norræna meðaltalið er tæp 11%. Reiknað er með 3,5% atvinnuleysi um aldamót- in, sem er með því lægsta sem ger- ist í Evrópu, þar sem meðaltalið er 12%. Og svo munar um olíuna, því í ár kemst Noregur líklega í annað sæti olíuframleiðenda í heiminum, næst á eftir Sádí-Arabíu. Á næsta ári tekst væntanlega að greiða allar erlendar skuldir og Noregur er eina landið í Evrópu, fyrir utan Lúxem- borg, sem uppfyllir nú þegar allar kröfur um aðild að evrópska mynt- sambandinu. Þetta eru góðu hagvísarnir, en til lengri tíma litið eru blikur á lofti. Óvissan er einkum tengd olíufram- leiðslunni. Olían gæti verið á þrotum eftir 1-2 áratugi og ef Noregi tekst ekki á þeim tíma að styrkja aðra atvinnuvegi blasir við hrun í norsk- um efnahag. Það er því áhyggjuefni að iðnaðarframleiðslan nemur að- eins 15% af þjóðarframleiðslu og hefur farið minnkandi sem hlutfall af þjóðarframleiðslu undanfarin ár. Samkvæmt skilgreiningu OECD er land iðnríki, ef verðmæti iðnaðar- framleiðslu þess nema 20% af þjóð- 'arframleiðslu. Noregur er vart í þeim hópi, ef litið er á iðnað ótengd- an olíunni. Og það eru einnig áhöld um hvort langtíma fjárfestingar í þeim iðnaði haldi áfram meðan Noregur er utan ESB, en þær eru forsenda þess að annar iðnaður en olíuiðnaður nái að eflast eins og til þarf og taka við af olíuiðnaðinum, þegar þar að kemur. Staða Noregs sem olíuframleiðanda í Evrópu er sérstök og það er því einnig áhyggjuefni fyrir Norðmenn að ver- an utan ESB gerir þeim ókleift að hafa nokkur áhrif á orkustefnu sambandsins. Norðmenn hafa þegar samþykkt það sem þeir höfnuðu 1972 Hið pólitíska andrúmsloft í Nor- egi eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna markast af undarlegum þversögn- um. Annars vegar af sterkri stöðu stjórnarinnar, þrátt fyrir að þjóðin hafi ekki viljað fylgja henni inn í ESB og hins vegar af klofnum and- stöðuhópi gegn ESB, sem tókst að sannfæra meirihluta þjóðarinnar um sinn málstað. Andstöðuhópurinn var samhentur gagnvart spurning- unni um inngöngu, en klofningur hans nú, eftir að ESB-aðiId var hafnað, verður æ augljósari. Á aðal- fundi samtakanna gegn ESB, sem haldinn var síðustu helgina í maí, kom klofningurinn greinilega í Ijós. Kjörnefndin, sem átti að undirbúa kjör nýs formanns, sprakk. Eftir nokkurt uppnám náðist þó samstaða um nýjan formann, Stein Ömhöi, fyrrum þingmann Sósíalíska vinstri- flokksins og leikhússtjóra. Meginágreiningur ESB-and- stæðinga stendur um afstöðuna til samningsins um evrópska efna- hagssvæðið, EES, og svokallaða ESB-aðlögun sem stöðugt fer fram í Noregi í kjölfar EES-samnings- ins, rétt eins og á íslandi. Árið 1972 höfnuðu Norðmenn aðild að Efnahagsbandalaginu þáverandi, sem fyrst og fremst var byggt upp í kringum opna markaðinn. Með EES-samningnum hafa Norðmenn fengið aðild að opna markaðnum og hafa því með öðrum orðum gerst aðilar að því, sem þeir höfnuðu þá. Með samningnum fylgir löng runa af kröfum um aðlögun á ýmsum sviðum og að henni er unnið í sí- fellu. Noregur er því stöðugt að aðlaga sig sambandi sem það er ekki meðlimur í og getur ekki haft áhrif á. Þegar sigurvíman eftir atkvæða- greiðsluna 27. nóvember tók að renna af ESB-andstæðingum og raunveruleikinn með ESB-aðlögun upp á hvern einn og einasta dag fór að renna upp fyrir þeim, sneri hluti þeirra sér að EES-andstöðu í staðinn og klofningur hreyfingar- innar kom rækilega í ljós á aðal- fundinum. Umfjöllun norskra blaða eftir fundinn var samhljóma um að hreyfíngin gæti aðeins komið sér saman um að vera á móti nýrri aðildarumsókn, en þar sem hún er klofin í afstöðunni til EES og ESB- aðlögunar er hún lömuð. Stein Örn- höi tók strax af öll tvímæli um af- stöðu sína gagnvart EES og sagðist vera á móti EES, en ekki hafa í hyggju að halda uppi neinu sérstöku EES-andófí, enda hafa ýmsir bent á að beini hún andófinu gegn EES, fengi hún á sig blæ sértrúarsafnaðar, þar sem margir ESB-and- stæðingar eru fylgjandi EES. Eins og sagði í leið- ara Verdens Gang 28. maí dugir ekki eingöngu að halda hreyfingunni á lífi. „Noregur er aðili að evrópska efnahagsbanda- laginu. Efnahagstilskipanir ESB eru einnig norsk lög. Pólitískt séð aðlögum við okkur eins mikið og hægt er, án þess að vera með í ákvarðanatöku ESB. ESB-and- stæðingar hafa tapað öllu, nema baráttunni um norskan ákvörðunar- rétt.“ Hvenær verða Norðmenn spurðir næst? Að sögn Steins Örnhöi er mark- miðið ekki að vinna aðra atkvæða- greiðslu, heldur að ESB-andstöðu- hreyfingin verði pólitískt svo sterk að ekki komi til annarrar atkvæða- greiðslu. I ljósi þess að það liðu 22 ár áður en Norðmenn voru spurðir aftur eftir að þeir höfnuðu aðild 1972 og að andstaðan við aðild hefur vaxið undanfarið sam- kvæmt skoðanakönnunum, mætti kannski álíta að það væri langt í næstu atkvæðagreiðslu. En að- stæður núna eru allar aðrar en þær voru 1972. Upplausn meðal ESB-andstæð- inga birtist meðal annars í kritum ESB-andstæðinga á Stórþinginu, þar sem þeim hefur ekki tekist að benda á neinn annan kost, þegar ESB er hafnað. Þeir eru á móti ESB, án þess að geta bent á aðrar leiðir. Ergelsi út af þessu hefur meðal annars beinst að Erik Sol- heim formanni Sósíalíska vinstri- flokksins. Afstaða hans segir nokk- uð um að það gæti orðið erfiðara að halda uppi ESB-andófi þegar fram í sækir og ESB fer að taka Austur- og Mið-Evrópulönd í sínar raðir. Solheim hefur sagt að þróist ESB í aðra átt en andstæðingarnir hafi gert ráð fyrir og verði allsherj- ar samband, sem taki til allra Evr- ópulanda og ekki bara nokkurra útvalinna, þá þurfi að hugsa málin upp á nýtt. Þar með sér hann væntanlega fyrir að kannski verði erfitt að rökstyðja andstöðuna á þeim forsendum að Evrópusam- bandið dragi Evrópuþjóðirnar í dilka. Hver getur verið á móti því að ESB styðji lýðræðis- og mark- aðsþróun fyrrum kommúnistaland- anna með því að taka þau inn . .. og hvernig verður þá hægt að vera á móti ESB? Fyrir þennan mál- flutning hefur hann hlotið harða gagnrýni ýmissa formælenda ESB- andstæðinga. Aðstæður í Noregi og Evrópu allri eru aðrar en 1972. Eftir at- kvæðagreiðsluna datt öll Evrópu- umræða upp fyrir og enginn opn- aði munninn um Efnahagsbanda- lagið. Nú er ESB hins vegar í deigl- unni og um leið eru Evrópumálin ákaft til umræðu, auk þess sem aðlögunin minnir stöðugt á ESB og kallar á sífellda umræðu. Ef svo fer sem horfir að aðaláherslan á ríkjaráðstefnunni næsta ár verði að búa í haginn fyrir inngöngu landa eins og Póllands, Ungverja- lands og Tékklands gæti það einn- ig ýtt á að norskir stjórnmálamenn spyrðu þjóðina eina ferðina enn um ESB-aðild og þá í fyrsta lagi 1997. Það eru líklega helst Norðmenn, sem hafa lifandi áhuga á afstöðu íslendinga til ESB. Einn norskur viðmælandi Morgunblaðsins sagði að það hve íslands væri háð fisk- veiðum skapaði því sérstöðu gagn- vart ESB, en andspænis ESB hefðu Norðmenn hins vegar enga sér- stöðu, heldur væru bara venjuleg Evrópuþjóð. Auðvelt væri að sjá það fyrir sér að í viðskiptum þessara þjóða við ESB yrði fyrst samið við Noreg, þegar eitthvað kæmi upp á og síðan íslendinga og að íslending- ar fengju þá alltaf heldur betri samninga en Norðmenn. Norðmenn vissu þjóða best hve harðir samn- ingamenn íslendingar væru, eins og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra hefði síðast sýnt og sannað. En Norðmenn gætu líka með réttu kviðið því að ef íslending- ar gengju í ESB á undan þeim myndu Islendingar hreiðra þar um sig sem stórveldi á sviði fiskveiða og þá yrði það óneitanlega á kostn- að Noregs. Það verða þó varla bollaleggingar um íslendinga og ESB sem ráða afstöðu Norðmanna til ESB, heldur fyrst og fremst efnahagsþróunin í Noregi og þróun ESB, sem skýrist eftir ríkjaráðstefnuna á næsta ári. Hún gæti gefið Norðmönnum tilefni til að vega og meta ESB-aðild að nýju. IMorðmenn hafa áhuga á íslenskri ESB-aðild ESB-aðild Austur-Evr- ópu deyfir andstöðu Skipulag dýralækn- inga í endurskoðun Núverandi skipulag dýralækninga er statt á • krossgötum að mati margra dýralækna. Auðunn Arnórsson IKJÖLFAR aðildar íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) og EES munu dýra- læknar hafa auknum hlutverk- um að gegna. Strangar reglur um inn- og útflutning landbúnaðaraf- urða, sem lúta alþjóðlegum sam- þykktum, krefjast þess að heilbrigðis- eftirlit með kjötframleiðslu og ekki síður öðrum eldisafurðum, svo sem laxi, sé öflugt. Að mati margra dýralækna þarf þetta eftirlit að vera innt af hendi af óháðum fagmönnum. Umtalsverðar breytingar hafa orð- ið í dýralækningum hér á landi á síð- ustu árum; það hefur fjölgað verulega í stéttinni, og miklar framfarir hafa orðið á tækni í dýralækningum. Sam- fara þessari þróun hefur gagnrýnis- röddum um ríkjandi skipulag fjölgað til muna. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að fyrirkomulagi því sem í gildi er samkvæmt lögum um dýralækna frá 1981. Samkvæmt þeim er landinu skipt upp í héraðsdýralæknisembætti. Yfirmaður þeirra er yfirdýralæknir. Héraðsdýralæknar eru á launum hjá ríkinu og hafa það hlutverk, hver í sínu umdæmi, að hafa opinbert eftir- lit með aðbúnaði dýra og heilbrigði þeirra en jafnframt sjá þeir um al- mennar dýralækningar og fá greitt fyrir hvert unnið verk. Sjálfstætt starfandi dýralæknar byggja hins vegar allar sínar tekjur á þeim verk- efnum sem þeir fá. Öllum dýralæknum er gert að fara eftir gjaldskrá þeirri sem landbúnað- arráðuneytið gefur út. Sjálfstætt starfandi dýralæknar óánægðir Sjálfstætt starfandi dýralæknar krefjast breytinga á ríkjandi kerfi. Þeir telja að núverandi skipulag hindri eðlilega samkeppni í faginu. Um þess- ar mundir hafa Samkeppnisstofnun og umboðsmaður Alþingis hvor sitt málið til umíjöllunar, sem varðar samkeppnishömlur í núverandi fyrir- komulagi dýralækninga. Bæði málin byggjast á athugasemdum sjálfstætt starfandi dýralækna við gildandi lög um dýralækna. Samkeppnisstofnun hefur einu sinni áður fjallað um málefnið, þá að beiðni landbúnaðarráðuneytisins. í marz 1994 lá fyrir umsögn stofnunar- innar „um hvort gjaldskrá dýralækna, sem sett er á grundvelli laga um dýralækna, stangist á við markmið samkeppnislaga nr. 8/1993.“ í um- sögninni kemur skýrt fram, að „gjald- skrá sett af landbúnaðar- -------- ráðuneytinu takmarkar frelsi dýralækna í atvinnu- rckstri" og hún „stríði gegn markmiði sam- keppnislaga“. Ennfremur er vakin at- ——— hygli á því í umsögninni að önnur samkeppnishamlandi ákvæði séu í lögum um dýralækna en þau er lúta að gjaldskrármálum þeirra. Skipting landsins í héraðsdýralæknisumdæmi og réttindi og skyldur héraðsdýra- lækna setji samkeppni á sviði dýra- Iækninga hömlur. En þar sem sam- keppnislögin hafa ekki æðra gildi en sérlög eins og lögin um dýralækna, hefur engu verið breytt síðan þessi umsögn lá fyrir. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins tekur Samkeppnisráð málið, sem nú liggur fyrir Samkeppnisstofn- un, fyrir á næsta fundi sínum og mun hún kveða upp úrskurð sinn seinna í Sigurður Ingi Jóhannsson Árni M. Mathiesen Bryiýólfur Sandholt sumar. Hann er þó ekki bindandi, þannig að eingöngu lagabreyting fengi fyrirkomulaginu breytt. " Samkeppnisstaðan aðalatriði Sigurður Ingi Jóhannsson er tals- maður sjálfstætt starfandi dýra- lækna. Hann segir gildandi fyrir- komulag fela í sér óeðlilega skekkta samkeppnisaðstöðu fyrir þá og því hafi þeir óskað eftir áliti Samkeppnis- stofnunar. Að mati Sigurðar Inga er fyrir- komulag dýralækninga nú statt á krossgötum: Spurningin snúist um það, hvort ríkið eigi að niðurgreiða dýralæknisþjónustu og ákveða jafn- framt ófrávíkjanlega gjaldskrá, eins og nú er, eða hvort alveg nýju kerfi verði komið á, þar sem jöfn sam- keppnisaðstaða verði betur tryggð. Tillögur að breyttu skipulagi Undir þetta mat Sigurðar Inga á núverandi kerfi tók Árni M. Mathies- en, dýralæknir og alþingismaður, for- maður Dýraverndarráðs, þegar Morg- unblaðið innti hann álits á málinu. Ámi viðraði nokkrar hugmyndir um breytingar á kerfinu. Hann tók fram, að Islendingar gerðu miklar heilbrigðis- og gæða- kröfur varðandi inn- og útflutning landbúnaðarafurða. Gæði framleiðsl- unnar yrðu aðeins tryggð með kerfi, þar sem óháðir fagmenn hefðu reglu- bundið eftirlit með gæðum hennar. ---------- Það væri eðli- ---------- legt, að óháðir dýralæknar sæu um þetta eftirlit. Til að mæta þeim kostnaði, Lög um dýra- lækna stang- ast á við sam- keppnislög sem hið nýja kerfi hefði óhjákvæmi- lega í för með sér, væri skynsamleg- ast að stefna að því að láta núver- andi héraðsdýralæknakerfi víkja. Það sem sparast myndi með afnámi þess yrði notað til að byggja upp nýja eftir- litskerfíð. Það væri eðlileg þróun, sagði Árni, að dýralæknar á landinu kæmu á verkaskiptingu, sem færi eftir sér- hæfingu. I fyrsta lagi væri þar um að ræða dýralækna, sem önnuðust almennar dýralækningar í sínu héraði - og stæðu þar jafnfætis í sam- keppni við aðra. I öðru lagi yrðu nokkrir að sjá um eftirlitið og rann- sóknirnar, sem fram færu á lands- vísu; þeir sem um þær sæju yrðu að vera óháðir einstökum bændum. í' þriðja lagi verða sérgreinadýralækn- ar, sem hafa sérhæft sig á ákveðnu sviði dýralækninga (t.d. sjúkdómum í eldisfiski) að vinna sem slíkir fyrir framleiðendur um allt land. Til þess að jöfn samkeppnisaðstaða allra í stéttinni yrði tryggð þyrfti einnig að gefa gjaldskrána fijálsa. Árni sagði æskilegt að þessar breytingar á kerfinu, sem hann lýsti, yrðu að veruleika sem hægfara ferli, sem sátt yrði um meðal þeirra er málið varðar. Unnið að endurskoðun í landbúnaðarráðuneyti Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir staðfesti í samtali við Morgunblaðið, að núverandi kerfi héraðsdýralækna væri í endurskoðun. Núna væri það svo, að héraðsdýra- iæknar færu með allt opinbert eftirlit með heilbrigði dýra og afurða af þeim. ítrekað hefðu komið fram óskir sjálf- stætt starfandi dýralækna um að þeir fengju einnig að framkvæma hluta þeirra verkefna sem héraðs- dýralæknar sinna nú einir, svo sem bólusetningum o.fl. Til að mæta þessum óskum og fleiri breyttum aðstæðum væri stefnt að því að breyta kerfinu þannig, að kom- ið verði á blönduðu kerfi, þar sem eftirlitshlutverk héraðsdýralækna yrði þeirra aðalstarf; með stækkun ---------- umdæma þeirra væri1 þetta mögulegt. Almennar dýralækningar yrðu þá að mestu leyti á höndum sjálfstætt starfandi dýra- lækna. Nokkur hluti eftirlits og Ýmsar hug- myndir um breytingar eru á lofti ráðgjafar yrði áfram á höndum sér- greinadýralækna, sem starfa á vegum yfirdýralæknis hver á sínu sérsviði dýralækninga. Hvað gjaldskrármálið varðar vísaði yfirdýralæknir til umsagnar Sam- keppnisstofnunar, sem landbúnaðar- ráðuneytið óskaði eftir i júlímánuði 1993 og skýrt var frá hér að ofan. Á grundvelli þess, að samkeppnislög taki ekki yfír sérlög telur yfirdýra- læknir umsögnina ekki hafa neitt bindandi gildi fyrir ráðuneytið og sitt embætti. Enn sem komið er liggur því engin stefnubreyting fyrir hjá ráðuneytinu, en unnið er að endur- skoðun. kannaði málið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.