Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Villtar jurtir
Nú spretta villtar jurtir vel og eru upp á sitt
besta segir Kristín Gestsdóttir sem nýtir þær
í alls konar matargerð, jafnvel sem kökuskraut.
AÐ MORGNI 17. júní vakti
reykskynjarinn mig snemma,
hann var þó ekki að tilkynna mér
um bruna heldur lét hann mig
vita með hógværu pípi að hann
vildi fá nýja rafhlöðu. Fegin því
að enginn var eldurinn dreif ég
mig á fætur og í regngallan og
hélt út í rigninguna. Þetta var
þá 17. júníveðrið, hellirigning.
En það var milt og lygnt og fugl-
amir sungu í skóginum, þegar
ég gekk niður stíginn. Þama
neðar á holtinu lét krían öllum
illum látum, flaug upp og garg-
aði mikið, þar fiögraði hvít 17.
júníblaðra í logninu og gerði krín-
unum lífíð leitt, kannski var logn-
ið ekki algert. Þegar heim kom
sat bóndi minn með kaffíbollann
og las Morgunblaðið. Hann lang-
aði líka út í lognrigninguna og
við ókum í Vífílsstaðahlíðina. Við
vegkantinn var mikið af hrafna-
klukku, sem drúpti höfði í kærko-
minni rigningu og hafði enga
hugmynd um að það væri 17.
júní og ætti að vera sólskin. í
hlíðinni, þar sem fyrir nokkrum
ámm var vöxtulegur lerkiskógur,
var ljósfjólublátt yfír að líta. Trén
höfðu verið höggvin fyrir 2-3
ámm eftir að þau höfðu eyðilast
af lerkisveppi. Við gengum nær,
þetta vom þá stæðilegar hrafna-
klukkur, sem höfðu helgað sér
land innan um lerkistubbana.
Einstaka blágresi var þar að
gægjast upp auk ýmiss annars
smágróðurs. Við gengum varlega
um til að skemma ekki þessa
fallegu brekku en ég gat þó ekki
stillt mig um að taka nokkrar
hrafnaklukkur tii að skreyta með
17. júnítertuna, sem ég hafði
bakað daginn áður, en hrafna-
klukkan er vel æt en fremur
bragðlítil. Auk hennar skreytti
ég kökuna með lambagrasi, sem
nóg er af hér á holtinu. Það stytti
upp eftir hádegi og sást til sólar.
Við settumst út, borðuðum kök-
una og dmkkum rabarbara-
hvannadrykk með.
Blómstrandi
sumarkaka
125 g smjörlíki
1 dl púðursykur
2'A dl síróp
___________2egg____________
__________6 dl hveiti______
1 'A lyftiduft
1 tsk. kanill
1 tsk. engifer
'h tsk. negull
2 msk. kakó
1 pk. suðusúkkulaði ofan ó
hrafnaklukkur og lambagras
til skreytingar
1. Setjið smjörlíki, púðursykur
og síróp í skál og hrærið vel
saman.
2. Hrærið eitt egg í senn út í.
3. Blandið saman hveiti, lyfti-
dufti, kanil, engifer, negul og
kakói, setjið út í og hrærið laus-
lega saman.
4. Smyrjið springform, um 23
cm í þvermál. Setjið deigið í
mótið.
5. Hitið bakaraofn í 190 C,
blástursofn í 180 C, setjið kök-
una í miðjan ofninn og bakið í
50 mínútur.
6. Kælið örlítið en losið síðan
úr forminu.
7. Opnið bakaraofninn og látið
hann kólna í 70 C, setjið súkk-
ulaðið á eldfastan disk inn í ofn-
inn. Það bráðnar á 7 mínútum.
Skafið súkkulaðið af diskinum
með sleiku og setjið beint á kök-
una.
8. Setjið eitt og eitt lamba-
grasblóm á víð og dreif um kök-
una, leggið nokkrar hrafnaklukk-
ur sem smávönd á einn stað á
kökunni.
Rabarbara-
hvannadrykkur
3 kg rabarbari
30 - 50 g ungir mjóir
hvannaleggir
2 'A lítri vatn
20 g vínsýra
200 g sykur í hvern lítra af safa
1. Þvoið rabarbarann og hvanna-
leggina og skerið smátt, setjið á
skál (ekki úr málmi), hellið vant-
inu yfir. Leysið vínsýruna upp í
1 msk. af heitu vatni og setjið
saman við. Látið skálina standa
á köldum stað í 3 sólarhinga.
Hrærið öðru hverju í þessu.
2. Hellið rabarbaranum og
leginum á hreina grisju. Bindið
fyrir og látið hanga á krók. Hafið
skál undir. Þetta síast á 'A — 1
sólarhring.
3. Setjið sykurinn saman við
safann, hrærið í svo að hann
leysist upp. Það þarf ekki að
gerast um leið. Setja má skálina
í kæliskáp og hræra í öðru
hverju.
4. Hellið saftinni á hreinar
flöskur og geymið í kæliskáp.
Einnig má setja safann í klaka-
bakka og frysta.
5. Blandið safann með vatni.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Blettur á
umhverfinu
GUÐRÚN Guðmundsdótt-
ir hringdi og vildi vekja
athygli á því hversu illa
húsinu við Hverfísgötu 28
er haldið við. Það stendur
á fallegum stað á móti
danska sendiráðinu og er
nærliggjandi húsum og
görðum sérstaklega vel við
haldið. Hún furðar sig á
að eigandi hússins skuii
ekki sjá sóma sinn í því
að lappa upp á húsið og
einnig á sinnuleysi borgar-
yfírvalda að þau skuli láta
þetta viðgangast. Þetta er
blettur á umhverfinu.
Fyrripartur
VILLA slæddist inn í fyrri-
part eftir Dýrólínu Jóns-
dóttur, frá Skagafirði, sem
birtur var í blaðinu sl.
þriðjudag svo hann verður
endurbirtur hér:
Mörgum fatast valið vina,
vonskan hvatar sút.
Rifnar gat á geðprýðina,
gusast hratið út.
Þakkir til
Plús-Film
KONA hringdi og vildi lýsa
ánægju sinni yfir land-
búnaðarþáttum hjá Sjón-
varpinu og einnig hesta
þættinum sem sýndur var
17. júní og hét „Að fjalla-
baki“. Spurning er hvort
ekki ætti að sýna þann
þátt aftur því eflaust hafa
margir misst af honum.
Sérstakar þakkir fær
Sveinn í Plús-Film fyrir
frábæra myndatöku í
þáttunum.
Forn „antikkur“
í B-BLAÐI Morgunblað-
sins 25. júní, bls. 4 er rætt
um hvenær hlutur sé forn
„antikkur". Ég sá svarið
við þessu í dönsku blaði
fyrir mörgum árum síðan
og var þar miðað við 100
ár, eða að hlutur hafi verið
í eign sömu ættar í þrjá
ættliði. Ymsir smíðishlutir
eru ellimáðir (patineraðir)
til þess að gera þá ellilegri.
Haraldur Agústsson.
Þörungakveðjur
MÉR FÓR eins og Bimi
Bjamasyni sem hringdi út
af „harmlausu þörang-
unum“ sem sagt var frá í
sjónvarpinu 19. þ.m., að ég
fór að velta því fyrir mér
hvað þetta gæti þýtt.
Samkvæmt venjulegri
orðmyndun hlýtur þetta að
merkja að þörangurinn hafí
verið „án harma“, eins og
sá er skólaus sem hefur
enga skó og sá
þekkingarlaus sem hefur
enga þekkingu. Að vísu
hélt ég ekki að þörangar
hefðu neitt tilfinningalíf
(væra tilfínningalífslausir),
en það getur auðvitað verið
að nútímavfsindi hafí leitt
eitthvað annað í ljós og
væri gaman að fá eitthvað
að heyra um það.
Nú hef ég hugsað mér
þennan endurfædda
þörung þannig að hann
syndi glaður og reifur um
Breiðafjörðinn og rauli
eitthvað á þessa leið fyrir
munni sér, því auðvitað
getur hann haft munn ekki
síður en tilfinningalíf:
í útsænum harmar mig hrjá,
þar hrynja mér tárin af brá.
En hér inni í flóa
ég huggun fæ nóga
og harmlaus þar lifa ég má.
Með þörungakveðju.
Torfi Ólafsson.
Tapað/fundið
Fjallahjól
tapaðist
MONTANA 18 gíra
fíallahjól tapaðist frá
Hálsaseli 47, Reykjavík sl.
fimmtudagskvöld. Það er
svart á litinn með allskonar
litum yrjym.
Fundarlaunum er heitið og
er skilvís fínnandi
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 557-7035.
Skotthúfuhólkur
GAMALL sléttur skott-
húfuhólur með munstri að
ofan og neðan fannst á
Frakkastíg í fyrstu vikunni
í júní. Upplýsingar í síma
551-6366.
Gæludýr
Læða tapaðist
ÞRÍLIT sex ára gömul
læða, svört að lit með
brúnum yrjum og ljós á
kvið tapaðist frá heimili
sínu Flétturima 12,
Reykjavík 26. júní sl. Hún
er frekar stór og þybbin,
gæf og mannelsk og var
með rauða ól, sem gæti
hafa dottið af. Geti einhver
gefíð upplýsingar um hana
vinsamlega hringið í síma
587-5636 eða hafa sam-
band við Kattholt í s.
567-2909.
Kleópötru vantar
heimili
KLEÓPATRA sem er 10
mánaða gömul tík af
Sankti Bernharðskyni þarf
nauðsynlega að eignast
stórt og gott heimili og
góða eigendur. Upp-
lýsingar í síma 587-9552
eftir hádegi.
Páfagaukur í
óskilum
PÁFAGAUKUR sem er
blár á brjóstinu og hvítgrár
á baki flaug inn í íbúð við
Skipholt sl. laugardags
kvöld og er eigandinn beð-
inn að hafa samband í síma
553-8374 eða 552-4100.
Meo morgunkaffinu
A '
Ast er...
að gefa henni
jarðarber.
TM Rofl u.S P*r Off —«11 rtgnts mvvd
• 1993 Lo$ Angeles Tim«s Syndicaie
GJÖFIN frá mömmu
er tækifæri fyrir þig
til að byrja að fylgj-
ast með tímanum.
SKÁK
Umsjón Mnrgcir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp í síðustu
umferðinni á helgarskák-
móti Taflfélags Reykjavíkur
um daginn. Sævar Bjarna-
son (2.295), alþjóðlegur
meistari, var með hvítt en
Jón Viktor Gunnarsson
(2.145) hafði svart og átti
leik. Hvítur lék síðast 30.
e3-e4 í mjög erfiðri
stöðu.
30. - Rd3! (Hótar 31. -
Rf2+ 32. Kgl — Bc5 og
hefur þá sett upp svika-
myllu) 31. Dxd3 — Del +
32. Bfl - Hxfl+ 33.
Kg2 - Hgl+ 34. Kf3 -
Dh4! og hvítur gafst upp
því hann getur ekki var-
ist fjölmörgum hótunum
svarts. Jón Viktor vann
allar skákir sínar á mót-
inu og fylgdi þar með eftir
góðum árangri sínum á
fyrsta borði á Ólympíumóti
barna og unglinga í maí.
Víkveiji skrifar...
••
ORYGGI í viðskiptum með til
dæmis ávísanir hefur löng-
um verið höfuðverkur banka-
manna, lögreglu og að sjálfsögðu
neytandans. Aður en kortin komu
til sögunnar var misnotkun með
ávísanir mikið vandamál, en með
tilkomu þeirra hefur dregið úr
notkun á ávísunum. Ekki fyrir
löngu komu debetkortin til sög-
unnar og þá með mynd af kort-
hafa. Þau eru nú þegar orðin mjög
útbreidd hér á landi og hafa aukið
öryggi í viðskiptum.
Skrifari var staddur á bensín-
stöð fyrir skömmu og næst á und-
an honum að fá afgreiðslu var
kona nokkur, sem borgaði með
greiðslukorti. Afgreiðslumaðurinn
tók við kortinu, stimplaði upphæð-
ina inn og rétti konunni síðan
kvittunina til undirskriftar. Hann
hélt hins vegar sjálfur á greiðslu-
kortinu og beið eftir að konan
skrifaði nafn sitt.
Konan hafði orð á því hvers
vegna hún fengi ekki kortið um
leið og kvittunina og svaraði
maðurinn því til, að hann bæri
alltaf nákvæmlega saman undir-
skriftir á korti og kvittun. Kon-
unni þótti greinilega við þetta.
Hafði á orði að það væri naumast
traustið á viðskiptavininum og
hvarf síðan á braut með þjósti.
Skrifara fannst þvert á móti ár-
vekni mannsins til fyrirmyndar
og að konan hefði átt að þakka
manninum frekar en að þykja við
hann.
xxx
KVÖLDSTUND fyrir nokkru
eyddi skrifari við Reynisvatn
rétt fyrir ofan Reykjavík. Reyndar
var það fyrir algjöra tilviljun að
Víkveiji rataði á staðinn sem er
rétt ofan við hitaveitugeymana í
Grafarholti. Til þess að gera ianga
sögu stutta kom staðurinn þarna
í holtinu mjög á óvart.
Þarna eru grasi gróin tún frá
gamalli tíð og við vatnið iðaði allt
af lífi. Fiskur vakti í vatninu, veiði-
menn stóðu með stangir sínar á
bakkanum og köstuðu í gríð og
erg og við skálann, sem þarna
hefur verið reistur, voru börn og
hundar að leik. Olafur Skúlason í
Laxalóni hefur sett fisk í vatnið
og geta menn keypt sér veiðileyfi
og kvóta eins og nú er alsiða í
fiskveiðunum. Fyrirkomulagið' er
á margan hátt svipað og var hjá
Ólafi í Hvammsvík, en nýi staður-
inn er í raun inni í borginni meðan
hálftíma tók að keyra í Hvamms-
vík.
Virtust menn una hag sínum
vel þarna við Reynisvatn og fleiri
en skrifari höfðu á orði að þeir
hefðu ekki haft hugmynd um
þennan skemmtilega útivistarstað
fyrr en þeir lentu þar fyrir tilviljun.