Morgunblaðið - 16.07.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995 31
________BRÉF TIL BLAÐSIIMS__
Éttu það sem úti frýs
EIGMMIÐLUMN %
✓
- Abyrg þjónusta í áratugi.
Sími: 588 9090 Síðimmla 21
Frá Sævari Pálssyni:
HVER er sinnar gæfu smiður. Við
íslendingar eigum fjölda svona
spakmæla, fundin upp og notuð af
mismunandi vitrum mönnum. En
það eru oft ljón í veginum eða ef
til vill Jón í vegin-
um. Ljónin ráðast
ekki á neinn
nema þeim sé
ógnað eða þegar
þau eru svöng.
En hver er þá
þessi Jón. Hann
getur verið hver
sem er. Munur-
inn á honum og
ljóninu er að hann segist geta hugs-
að og tekið ákvarðanir í lífi sínu
en ljónið notar eðlishvötina til þess
að fara í „vinnuna".
Einnig er annar munur á þessum
dýrum. Maðurinn getur verið
grimmasta dýr jarðarinnar en notar
„greind" sína til þess að réttlæta
grimmdarverk sín og horfa fram
hjá afleiðingum þeirra.
Ein aðalaðferð mannsins til að
fullnægja framapoti sínu og græðgi
er að ryðja öðrum úr vegi, ef þeir
eru fyrir á leiðinni að markmiðum
hans. Afleiðingar fyrir hinn aðilann
skipta ekki máli. Aðalatriðið er að
ná markmiðinu. Sumir kalla þetta
að fremja glæp, aðrir ekki. Þá er
sagt að menn séu klókir og sniðug-
ir í að koma sér áfram.
í íslensku þjóðfélagi eru mörg
dæmi um þennan yfírgang og fjöl-
breytileikinn er mikill. En afleiðing-
arnar hafa oft á tíðum verið hörmu-
legar og meira að segja valdið mikl-
um veikindum og jafnvel dauða.
„Siðfræði“ er eitt af undirstöðu-
atriðum í menningu mannsins til
uppbyggingar í samfélagi hans.
Það er alveg sama hversu frum-
stætt samfélagið er, það eru alltaf
reglur sem menn viðhafa í sam-
skiptum hver við annan, annars
vegar eru skyldur einstaklingsins
og hins vegar réttur hans í samfé-
laginu.
Siðfræðin hefur skolast til
í okkar litla samfélagi virðist
„siðfræðin“ eitthvað hafa skolast
til. Hér þekkja allir alla, eru frænd-
ur, vinir eða kunningjar. Hér virð-
ist sú regla vera, að ef þú hefur
einhvern sem vill þér vel og er þér
hjálplegur, en hann getur hugsan-
lega skyggt á þig, þá skal ganga
yfir hann og troða á honum í tíma
og til öryggis. Ef hann er ekki
stilltur og hlýðinn og heldur sig í
skugganum hlýtur hann verra af.
Ef þú ert skapmikill, duglegur
og metnaðarfullur fyrir þina hönd
og þeirra sem þú starfar fyrir, en
ert ekki af rétta fólkinu og ekki
með réttu samböndin, þá skal gæta
þess að þú náir ekki of langt og
verðir vinsæll og virtur af dugnaði
þínum og árangri. Þá kemur upp
„siðfræði" þessara „klóku og snið-
ugu“ manna sem hafa völd og koma
verr fram við þig heldur en tölvuna
sína. Starf þitt er hirt af þér og
afhent vinum sem fá heiðurinn af
frama þínum og dugnaði. Hvort líf
þitt og mannorð verði lagt í rúst
kemur þessum mönnum ekki við.
Heldur koma þeir þreyttir heim til
konu og barna og á meðan konan
nuddar á þeim bakið, segja þeir
hvað dagurinn var erfiður en ár-
angursríkur, óæskilegir menn fjar-
lægðir og klókindi þeirra og snilld
við framkvæmdina útlistuð og lof-
uð. Það þýðir ekkert fyrir fórn-
arlömbin að leita réttar síns vegna
þess að mannréttindi venjulegs ís-
lendings eru satt að segja minni
en engin. Lög og réttur er miðaður
við þá sem peningavaldið hafa og
hinn sauðsvarti almúgi skal bara
gæta sín ogvera ekki fyrir.
Þú leitar meira að segja til æðstu
ráðamanna sem rífast við þig eins
og smákrakkar. „Þú skalt sko ekki
halda að þú hafir einhver réttindi
en gleymdu ekki skyldum þínum
litli minn.“ Þessir ráðamenn virðast
þrífast á meðalmennsku almenn-
ings og þjóðaríþrótt íslendinga,
sem er að tala illa um náunga sinn.
Einnig hefur almenningur engan
tíma til að fylgjast með yfírgangin-
um vegna vinnuálags við að ná
einhverju af þeim lífsgæðum sem
þessir „höfðingjar“ skammta þeim.
Að beijast áfram af eigin ramm-
leik í okkar þjóðfélagi er illmögu-
legt. Skap og metnaður, jafnvel þó
hann beinist fyrst og fremst til
hagsbóta fyrir þá sem þú starfar
fyrir, er að engu virtur, heldur litið
á hann sem ógnun við aðra, sér-
staklega þeirra yfirmanna sem eiga
ekki „fyrirtækið“, en stjórna þann-
ig að þeirra eigin hagsmunir sitja
í fyrirrúmi. Ef þú gerir einhver
mistök sem eru engum til skaða
nema sjálfum þér er þér refsað
ótæpilega og jafnvel ævilangt og
stöðugt haldið niðri vegna þess að
„höfðingjarnir“ notfæra sér þessa
aðstöðu ti að kreista þig og kremja.
Jafnvel þó að þessi „mistök“ snerti
þá yfirleitt ekki neitt.
Dugnaður dugar ekki til
Eitt af aðaleinkennum venjulegs
íslendings er dugnaður, en hann
einn dugar ekki í þjóðfélaginu. Það
er unnið af dugnaði fyrir „fyrirtæk-
ið“ þannig að það fer ekki fram
hjá neinum, en síðan þykir yfir-
mönnum nóg um og segja viðkom-
andi út í horn í geymslu. Mikil viska
það og auðvitað hagur „fyrirtækis-
ins“ í fyrirrúmi! Þú færð þér aðra
vinnu og sýnir dugnað og elju, en
þá þarf að koma vinum og kunn-
ingjum að. Þú ert rekinn, en áður
þarftu helst að þjálfa þennan gæð-
ing í þitt starf. Að þessu er unnið
með undirferli og lygum og notaðar
alls konar afsakanir sem hvorki
halda vatni eða vindi. Eftir stendur
maður með fjölskyldu, sem fær
hvergi vinnu, hefur aldrei verið
rekinn úr vinnu áður og er jafnvel
hindraður í að fá vinnu í sinni
stárfsgrein aftur. Eitrinu er sáð í
fjölskylduna og hún hrynur til
grunna og eftir stendur rúst, sam-
sett af börnum, fullorðnu fólki og
gamalmennum. Og það sem verst
er að þessi sár munu aldrei gróa.
Þetta er bara eitt dæmi um yfir-
ganginn, frekjuna og græðgina
sem viðgengst í þessu litla þjóðfé-
lagi. Heiðarleiki og að orð skulu
standa er ekki til lengur. Ef það
er hægt að svíkja og pretta þá er
það gert „Höfðinginn“ segir: „Þú
ert búinn að fá nógu mikið og þeg-
iðu svo.“
Skuldir einstaklinga í þjóðfélag-
inu hafa stóraukist á meðan skuld-
ir fyrirtækja (þ.e. sumra) hafa
stórminnkað. „Til þess að auka
atvinnumöguleikana" er sagt af
hreinum dónaskap, því atvinnu-
möguleikar hafa ekki aukist og
stór hluti af hagnaði fyrirtækja er
til kominn vegna fækkunar starfs-
fólks. Þeir kalla það „hagræðingu“.
Þessir menn eru ómerkilegir og
lygnir en góðir að kjafta pg fela
sig síðan á bak við fagið sitt. Til
þess að þetta stóra mein í þjóðfé-
laginu megi minnka þarf að opin-
bera þessa menn og fyrirtækin til
þess að venjulegur Islendingur geti
varað sig og haldið sig í hæfilegri
fjarlægð frá þessu eitri.
Viðskipti eiga að vera hagur
allra en ekki fárra.
SÆVAR PÁLSSON,
tryggingaráðgjafi.
Rekagrandi 2
Opið hús kl. 14-17
Mjög rúmgóð ca 101 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt
stæði í bílskýli. Engar tröppur, gengið beint inn. Tvenn-
ar svalir. Laus fljótlega. Áhv. veðdeild 1,5 millj. íbúð
merkt: 2-2 á bjöllu.
Borgir, fasteignasala sími 588 2030.
KAUPENDUR ATHUGIÐ!!
Aðeins lítið brot úr söluskrá okkar er
auglýstt í blaðinu í dag.
Þingvellir - sumarbústaður.
Vorum að fá í sölu 60 fm fullb. nýlegan sum-
arbústaö sem stendur á ca. 1 hektara landi.
Glæsil. útsýni. V. 5,4 m. 4547
HÆÐIR
Sóleyjargata - hæð. Vorum að
fá í sölu 4ra-5 herb. 106 fm góða íb. á efstu
hæð í þessu fallega húsi. íb. skiptist í 2-3
saml. stofur, 2 herb., eldh., bað, sér þvottah.
o.fl. Fallegur gróinn garður. Glæsil. útsýni yfir
Tjörnina og Tjarnarsvæðið og allt til Keilis. V.
10,9 m. 4644
Uthlíð ■ Til sölu um 120 fm 5 herb. íb. á 1.
hæð. íb. skiptist m.a. í 2 saml. stofur, 3 herb.
o.fl. Sér inng. og hiti. Eftirsóttur staður
skammt frá Miklatúni. Laus fljótlega. 4649
Lynghagi. Mjög rúmg. og björt um
108 fm hæö í fallegu steinh. ásamt 27
fm bílskúr. Fallegar stofur með arni.
Garðskáli, 3 herb. o.fl. Frábært útsýni.
V. 10,9 m. 4646
Hjarðarhagi. vorum að fá í söiu 6
herb. 165 fm efri hæð og ris í 4-býlishúsi á
þessum eftirsótta stað. V. 9,9 m. 4651
3JA i iERB.
» ssvCS <.Vxis"Sx Srs SSfffffffff: <x s s '\s-ss5í<nS' i+xSSi. "<vS>ÍSS!iS.<&í«í
Hringbraut 97, l.h.t.v. -
OPIÐ HÚS. Góð 3ja herb. íb. á 1.
hæð. Laus strax. íb. verður til sýnis í dag
sunnudag milli kl. 13-15. V. 5,3 m. 4545
Urðarbraut - Kóp. Vorum að fá í
sölu góða 75 fm 3ja herb. íb. á jarðh. í 2-býl-
ish. Gróinn garður. Laus fljótlega. V: 5,3 m.
4533
Hamraborg 18, 3C-
OPIÐHUS. Falleg og vel um-
gengin um 77 fm íb. á 3. hæð í tyftuh.
Stórar svalir. Bílageymsla í kj. Húsið er
ný málað. Stutt í alla þjónustu. Laus
strax. (b. verður til sýnís í dag sunnudag
milli kl. 14-17. Lækkaö verð 5,8 m.
3320
Laugarnesvegur. 2ja herb. rúmg.
63 fm kjallaraíb. í fjórbýlish. Nýl. innr. í eldh.
Danfoss. íb. getur losnaö nú þegar. V. 3,7 m.
4499
Kiyfjasel 18 - jarðhæð -
OPIÐ HUS. Vorum að fá í sölu “lúx-
us” 81 fm 2ja herb. íb. á jarðh. í glæsil. nýl.
tvíbýlish. Sér garður með verönd. Áhv. tæp-
lega 5,0 m. byggsj. íb. verður til sýnis í dag
sunnudag milli kl. 13-15. 4607
ATVINNUHÚSNÆÐI
Lagerhúsnæði óskast.
Traust fyrirtæki óskar eftir að kaupa eða leigja um 1500-1700 fm lagertiúsnæði á einni
hæð með góðrí lofthæð. Nánari uppl. veita Sverrir og Stefán.
Köllunarklettsvegur - byggingarlóð. Vorum að fá til sölu þessa bygg-
ingarlóð, sem er um 8500 fm, ásamt þeim húsum og mannvirkjum sem á henni standa. Lóðin
er mjög vel staðsett, nálægt Sundahöfn og örstutt frá miklum umferðaræðum. Lóðin hentar vel
til að byggja á henni hús fyrir starfsemi sem þarf gott athafnasvæði. Allar nánari uppl. veita
Sverrir og Stefán. 5273
Lyngbrekka. Til sölu mjög góð sérh. 114 fm. Nýtt á baði, eldhús og svefnh. Fallegur gróinn garður með suðurverönd.Góð lán áhv. Verð kr. 8,9 millj. Leifsgata. Glæsileg sérh. 140 fm + 20 fm bílsk. rétt við Landspítal- ann. Mikið endurn. Nýtt eldh., nýtt á baði. Parket á allri íb. Þvottah. og geymslur í risi. Bólstaðarhlíð. 4ra herb. 111 fm íb. + bílsk. 22 fm. Þak og hús nýl. viðg. Góð íb. á vinsælum stað. Fal- legt útsýni. Verð 8,3 millj. Hofsvallagata - á besta stað í Vesturbænum. Einbýlishús 223 fm á einni hæð. Sérlega fallegur garður. 3 sólpallar. Vönduð eign. Góð lán áhv. Drápuhlíð. Lítil risíb. m. bílskúr 31 fm. Verð 6,2 millj. Góð lán áhv. Neðstaleiti. Glæsileg 6 herb. íb. 140 fm + stæði í bllskúr. Verð 13,9 millj. Vesturberg. Mjög falleg 2ja herb. íb. á 7. hæð. Suðursv. Þvottah. á hæð. Áhv. 2,0 millj. byggsj. Verð 4,7 millj. Húsafell, fasteignasala, Tryggvagötu 4, sími 551-8000. bílasími 854-5599. Jón Kristinsson.
IRarjjtimiblfiíitö - kjami málsius!
Viðarrimi 1-17
Stærð 163fm.
Vorum að fá mjög athyglisverð einbýlishús í sölu á ótrúlega hagstæðu verði. Um er að ræða tvær
stærðir af steinsteyptum einbýlishúsum á einni hæð með innbyggðum bílskúr, 153 fm og 163 fm.
Húsin verða afhent varanlega múruð að utan með marmarasalla á grófjafnaðri lóð. Húsin er hægt
að kaupa á þremur byggingarstigum.
Fokheld að innan fullbúin að utan verð kr. 7.760 / 7.940 þús. stgr.
Tilbúin undir tréverk verð kr. 9.460 / 9.690 þús. stgr.
Fullbúin með öllum innréttingum án gólfefna verðkr. 10.960/11.270 þús.stgr.
Fullbúið hús afhendist með vönduðum innréttingum frá Gásum, Borgartúni, (hægt er að
velja milli nokkurra eldhúsinnréttinga), flísalögðu baðherbergi með baðkari og innrétíingu,
fataskápum í forstofu og svefnherbergjum, vönduðum hreinlætis- og blöndunartækjum
(hitastýrð).
Ýmsir greiðslu- og lánamöguleikarfyrir hendi. Upplýsingar og teikningar á skrifstofu okkar.
HUSAKAUP, Suðurlandsbraut 52, Rvík, sími 568 2800.