Morgunblaðið - 23.07.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1995 25 ^
MINIMINGAR
RANNVEIG
EYJÓLFSDÓTTIR
Að lokum viljum við þakka ömmu
allar góðu stundirnar. Guð blessi
minningu hennar.
Jónas, Bjarni,
Sigurlaug og Rannveig.
+ Rannveig Ey-
jólfsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 21.
september 1908.
Hún lést á Borgar-
spítalanum 16. júlí
síðastliðinn. Rann-
veig var dóttir hjón-
anna Eyjólfs
Bjarnasonar, f. 1872
í Þykkvabæ í Land-
broti, og Þórdísar
Sigurðardóttur, f.
1882, Bakka á Mýr-
um. Systkini Rann-
veigar voru:
hjálmur, f.
Þorgrímur, f. 1905, Jóhanna
Andrea f, 1906, Ásgerður Ólöf,
f. 1911, og Bjarni f. 1913. Árið
1930 giftist Rannveig Sigurði
J. Jónassyni pípulagninga-
meistara, f. 10. sept. 1896, d.
28.3. 1987. Böm þeirra eru:
Jónas, f. 22.2. 1930, d. í mars
1931, Sigríður Þórdís, f. 1931,
gift Hjálmari Pálssyni, f. 1929,
og eiga þau fjögur börn, Eyjólf-
ur Jónas, f. 1933, kvæntur Sig-
ríði ísafold, f. 1935, og eiga þau
fjögur böm, og Agða Sigrún,
f. 1945, gift Gesti Guðmunds-
syni, f. 1931, og eiga þau fjögur
böm.
Útför Rannveigar fer fram
frá Dómkirkjunni á morgun,
mánudaginn 24. júlí, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
VIÐ SYSTKININ viljum minnast
ömmu okkar á Ásvallagötu sem er
látin.
Amma var fædd og uppalin í
Reykjavík, fjórða í röðinni af sex
systkinum sem nú öll eru látin.
Foreldrar þeirra voru Eyjólfur
Bjarnason og Þórdís Sigurðardóttir
og voru þau ættuð úr Skaftafells-
sýslu, en fluttust snemma til
Reykjavikur og bjuggu hér upp frá
því. Á þeim árum sem amma var
að alast upp var mikil fátækt og
atvinnuleysi hér í Reykjavík og
hafði amma það oft á orði við okk-
ur yngra fólkið að við hefðum aldr-
ei kynnst fátækt. Sjö ára var hún
send sumarlangt í vist suður með
sjó til að vinna fyrir sér því að kost-
imir í föðurhúsunum buðu ekki upp
á annað.
Tvítug giftist amma afa okkar
°g bjuggu þau lengst af sinn bú-
skap á Ásvallagötu 53 og var hún
hans styrkur og stoð. Segja má um
ömmu að hún hafi ávallt hugsað
fyrst um aðra.
Amma hafði mjög gaman af því
að segja okkur sögur frá liðinni tíð
og hafði hún einstakt minni og gat
rifjað upp löngu liðna atburði í
smáatriðum svo unun var á að
hlusta. Margt rifjast upp þegar við
látum hugann reika til æskuáranna
og minnumst við systkinin sérstak-
lega jólaboðanna hjá ömmu og afa
á Ásvallagötunni sem vom óijúfan-
legur þáttur í jólahaldi æskuára
okkar. Amma var sér-
lega barngóð og nut-
um við systkinin þess
og okkar börn. Hún
var ætíð að hugsa um
okkur bamabörnin og
síðar barnabarnaböm-
in og voru ófáar flík-
urnar saumaðar á hóp-
inn og virtist allt leika
í höndunum á henni.
Ef eitthvað bilaði á
heimilinu varð henni
ekki skotaskuld úr því
að gera við það og
gátum við komið til
hennar með spmngið
dekk á hjólunum okkar og var hún
þá fljót að gera við það.
Helsta áhugamál ömmu var
íþróttir og tók hún þátt í fijálsum
íþróttum á yngri árum en seinni
árin fylgdist hún af áhuga með öll-
um íþróttum og gaman var að fylgj-
ast með áhuga hennar á ensku
knattspymunni.
Við systkinin eigum eftir að
sakna þess að geta ekki lengur
komið til ömmu á Ásvallagötu og
hlustað á fróðleikssögur um uppeld-
isár hennar og lífið í Reykjavík í
byijun aldarinnar.
Margt er það og margt er það
sem minningarnar vekur,
þær eru það eina
sem enginn frá mér tekur.
(Davíð Stefánsson.)
Elsku amma mín, mig langar til
að kveðja þig með nokkmm línum
og þakka þér fyrir alla góðvildina
í minn garð í gegnum árin. Það var
alltaf gaman að koma til þín og afa
á Ásvallagötuna. Hjá 'ykkur var
alltaf hægt að gista þótt húsnæðið
væri lítið. Allt lék í höndum þér,
venjulegasti matur varð að lostæti
og allar hannyrðir urðu að lista-
verki. Það var alltaf gaman að sitja
og spjalla við þig, þú vissir og
mundir svo mikið. Alltaf fylgdist
þú með okkur og sendir kveðjur og
gjafir til mín og síðar barna minna.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Guð blessi þig, amma mín.
Þórdís.
+
Móðirokkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
INGA ÁRNADÓTTIR,
Starhaga 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju þriðju-
daginn 25. júlí kl. 15.00.
Yrsa Ingibjörg Vilhjálmsdóttir,
Þór Vilhjálmsson,
Ragnhildur Helgadóttir,
Þórður Örn Sigurðsson,
Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SÍMON Þ. SÍMONARSON
vélstjóri,
Gautlandi 9,
Reykjavík,
sem lést 16. júlí, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, miðvikudaginn
26. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á minningarsjóð Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga, Hlíð-
arbæ.
Elísabet Ó. Sigurðardóttir,
Ronald Ö. Simonarson, Anna Stefánsdóttir,
Sfmon Fr. Símonarson, Gunnhildur Valgarðsdóttir,
Sigurður G. Sfmonarson, Halla Pálmadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
1902,
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SÆVAR BLÓMQUIST
GUÐMUNDSSON
frá Arnarhoiti;
Stakkhömrum 1,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. júlí kl. 15.00.
Sætaferðir meö Sæmundi frá
Borgarnesi kl. 13.00.
Sólveig Guðmundsdóttir,
Bjarney Lára Sævarsdóttir, Jónas Gunnþórsson.
+
Útför bróður mfns og mágs,
ÓLAFS ÓLAFSSONAR
frá Hallsteinsnesi,
Fögrukinn 5,
Hafnarfirði,
fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 25. júlí kl. 13.30.
Þorbergur Ólafsson,
Olga Pálsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓSKAR BJÖRNSSON
fyrrv. deildarstjóri á Skattstofunni,
Hvammsgerði 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn í Fossvogskirkju á
morgun, mánudaginn 24. júlí, kl. 15.00.
Gunnþóra Björgvinsdóttir,
Edda Óskarsdóttir, Halldór Hannesson,
Iðunn Óskarsdóttir, Hafsteinn Hafliðason,
Oddný Óskarsdóttir, Helgi Guðmundsson,
Óskar Óskarsson, Ragnheiður Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JENNÝ ÁGÚSTSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður til heimilis á Brunnstíg 4,
sem lést 17. júlí sl., verður jarðsungin
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðju-
daginn 25. júlí kl. 13.30.
Þorsteinn Sigurðsson,
Steinvör Sigurðardóttir,
Ágúst G. Sigurðsson,
Garðar Sigurðsson,
Sigrún Sigurðardóttir,
Reimar Sigurðsson,
Hafsteinn Sigurðsson,
Bergur Sigurðsson,
Gestur Breiðfjörð Sigurðsson,
Sigurður Jens Sigurðsson,
Kolbrún Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
íris Kristjánsdóttir,
Einar Borg Þórðarson,
Guðrón Lárusdóttir,
Erla Jónatansdóttir,
Kristján Þórðarson,
Gíslina Jónsdóttir,
Ágústa Hjálmtýsdóttir,
Elisabet Hauksdóttir,
Jóhanna Ósk Sigfúsdóttir,
Benedikt Steingrfmsson,
Upphækkaðir heilsuklossar.
Teg.: Victoria
Litir: Svart, hvítt, rautt lakk, brún leður.
Teg.: Victoria
Strigaskór lágir.
Litir: svart/hvítt.
Tilboð: 1.000,-.
Upphækkaðir heilsuklossar
Teg.: Bombay
Litir: Svart, hvítt, rautt lakk, brúnt leður.
Tilboð: 3.900,-.
Teg.: Victoria
Strigaskór háir.
Litir: Svart, hvítt.
Tilboð 1.500,-.
Sautján Laugavegi, s.: 511-1717.
Sautján Krínglunni, s.: §68-9017.
Teg.: Trend 1001 Teg.: Lon'o'Don Teg.: 1706 Teg.: Trend 1002
Litir: Beige. Litir: Svart/hvítt lakk. Litir: Svart/hvítt. Litir: Beige.
Tilboð. 1.000,-. Tilboð 3.900,-. Tilboð 3.900,-. Tilboð 1.500,-.
« '