Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ( WEKM6 STENDUt. A þu/ AB> . þt£> FU jÚGIÐAUTAf í i / KRJN6UM ASU6 ? ' Grettir Tommi og Jenni THIS IS HOU) U)E PLAV MARBLES,RERUN..FIRST, Ode DRAU) A 016 CIRCLE OR RIN6... ^ THEN WE EACH PUT SOME MAR5LES IN THE RIN6.. NOU), 0ECAUSE YOU'RE A 0E6INNER,WE WON'T PLAY FOR KEBF5.ÆÍL JUST PLAY F0R FUN.._ - ■ - '• • Þetta eru leikfanga-marm- Svo setjum við, Nú, vegna þess að þú ert Skilurðu hvað það þýðir? Ef ég vinn, arakúlurnar mfnar, hvor um sig, byijandi, spilum við ekki þá er það gaman ... ef ég vinn ekki, Rabbi... fyrst drögum við nokkrar marm- í alvöru ... við spilum þá er það ekkert gaman ... stóran hring ... arakúlur inn í bara okkur til skemmtun- hringinn... ar... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ævintýralegt rugl 1 íslenskri knattspyrnu Frá Asmundi Helgasyni: TILEFNI þessara skrifa er knatt- spyma og tvöfalt rugl og klúður knattspymuhreyfingarinnar. Keppnin um tvö efstu sætin í 2. deild Islandsmótsins hefur sjaldan verið eins hörð eins og nú í sumar. Ein fímm eða sex lið eygja möguleika á fyrstudeildarsæti að ári og leggja alit í sölumar til þess að ná þeim áfanga að spila í hópi tíu bestu liða landsins. Eitt lið, Stjaman í Garðabæ, virðist þó leggja meira í sölumar en önnur lið. Þeir hafa nefnilega lagt undir mannorð sitt og hafa sýnt að íþróttamennska og drengileg keppni eru atriði sem vert er að fóma fyrir sæti í fyrstu deild. Efnismál eru þau að Ágúst Hauks- son þjálfari Þróttara var dæmdur í leikbann sem leikmaður og átti að taka út bannið sem slíkur í umrædd- um leik Þróttar og Stjömunnar. Það gerði hann en að höfðu samráði við KSÍ var hann á skýrslu sem þjálfari. Kemur þar að fyrri hluta þessarar fáheyrðu vitleysu. Þannig var að Stjaman tapaði fyrir Þrótti á heima- velli sínum í Garðabæ með marka- tölunni 2-4 í umræddum leik. Eftir leikinn kom í ljós hversu tapsárir Stjömumenn eru því þeir kærðu Þrótt fyrir að hafa ólöglegan mann á skýrslu. Ekki höfðu þeir fyrir því að benda á það fyrir leikinn, kannski vegna þess að þeir reiknuðu einfald- lega ekki með því að þeir gætu tap- að. Því fór það svo að þeir kærðu Þrótt fyrir að hafa Ágúst á skýrslu sem þjálfara. Eitt fordæmi er um slíkt atvik þar sem ákærandi tapaði málinu í héraði, áfrýjaði til dómstóls KSÍ, sem svo vísaði málinu frá vegna formgalla og féll málið niður við það. Enda fór það svo að Stjaman tapaði málinu í héraði. Ekki létu þeir Stjömumenn staðar numið við það heldur áfrýjuðu til dómstóls KSÍ. Enn sættu þeir sig ekki við að hafa tapað leiknum á knattspyrnuvellinum og héldu því áfram eins og ódrengilegum íþrótta- mönnum sæmir. Reyndar kæmi það á óvart ef leikmennimir sjálfír hafa staðið að þessu en líklegya er að að baki þessu hafí staðið stjómarmenn sem sjást hvergi fyrir í að koma sínu liði upp í fyrstu deild. Ef leikmenn hafa staðið til jafns á bak við kæruna ber það dapurt vitni að uppeldi Stjöm- unnar á íþróttamönnum sínum. Þegar málið var svo tekið fyrir hjá dómstóli KSI heldur mglið áfram og klúðrið byijar. Dómstóllinn dæmir Stjömunni í vil þrátt fyrir að Þróttur hafí fengið umsögn og leiðþeiningar frá skrifstofu KSI um að Ágúst mætti vera á leikskýrslu leiksins. Þetta hlýtur að þýða það að þeir þrír starfsmenn KSÍ sem veittu Þrótti álit KSÍ eru algerlega óhæfír til að gegna starfi sínu og hljóta því að segja af sér í kjölfar þessa dóms. Eins getur þessi úrskurður þýtt að ekki sé sama hvort sé verið að tala um Jón eða séra Jón, og Þróttur í hlutverki Jóns sé félag sem hægt sé að fóma, enda hafí það ekki sama rétt og önnur félög. Hvort sem er, þá er þessi úr- skurður með öllu óviðunandi og knatt- spymuhreyfíngunni til mikils vansa. Sérstaklega skýtur KSÍ yfír markið með fjarstæðukenndri sekt upp á tæpar 180.000 krónur. Virðist sem KSI vilji fírra sig allri ábyrgð með slíkri og þvílíkri sektarupphæð. Hvert framhald málsins verður er óljóst ef þá eitthvað. Ljóst er hinsveg- ar að enginn er annars bróðir og sum knattspymufélög líta á deildakeppn- ina sem vígvöll þar sem öilu má fóma fyrir sigur, jafnvel drengilegri keppni. Einnig er ljóst að dómur KSI setur KSÍ sjálft í mikinn vanda þar sem starfsmönnum þess er greinilega ekki treystandi fyrir starfí sínu. Þannig er KSÍ nú komið í hring og bítur nú í skottið á sjálfu sér. Hvað Þrótt varðar vona ég að leik- menn og stuðningsmenn þess tvíeflist við mótlætið og nái öðm af þeim tveim sætum sem veita rétt til þátttöku í fyrstu deildinni. Þá vona ég að Stjam- an nái ekki hinu sætinu. En eitt er víst að þó ég sjái ekki einn einasta leik það sem eftir er sumars mun ég ekki láta mig vanta á seinni leik þess- ara tveggja félaga þar sem ég verð vonandi vitni að réttlátum sigri Þrótt- ara. ÁSMUNDUR HELGASON, knattspymuáhugamaður, Nökkvavogi 9, Reykjavík. Benny Hinn og Þjóðkirkjan Frá Sigurði Sigurðarsyni: UNDANFARNA daga hefur mikið borið á fréttum af heimsókn predik- arans Benny Hinn hingað til lands. Núverandi og fyrrverandi leiðtogar Þjóðkirlqunnar hafa nokkuð verið orð- aðir við þessi tíðindi öll. Vegna fyrir- spuma ungs fólks í Þjóðkirkjunni fínn ég mig knúinn til þess að gera þetta álit mitt kunnugt. Atburðir eins og samkomumar í Laugardalshöll eiga sér eins og önnur trúarleg fyrirbæri í samtíð okkar sögulegar forsendur. Þeirra forsendna er í þessu tilfelli að leita til landnáms Evrópumanna í Norður-Ameríku. Landnemamir þar voru sumir gjör- samlega rótlaust fólk, sem horfðist í augu við mikla erfíðleika í nýju landi. Meðal þeirra vöknuðu upp predikarar og kraftaverkamenn, sem áttu ríkan þátt í að hjálpa þessu fólki til þess að móta með sér siðmenningu og reglubundið trúarlíf. Enn er það svo, að í Norður-Ameríku er margt af rótlausu fólki, sem enn á við mikla erfíðleika að stríða. Menning Norður- Ameríku er því enn að hluta til land- nemamenning. Gömlu og góðu pred- ikaramir hafa eignast arftaka í svo- nefndum fjölmiðlaprédikurum og Benny Hinn er einn þeirra, að því er mér virðist. Ekki ætla ég að gera lít- ið úr hlutverki þeirra í því að viðhalda siðmenningu og trúarlífí í Norður- Ameríku allt til þessa dags. Hins vegar verð ég vegna þeirrar umfjöllunar sem orðin er um þessar samkomur að vísa algjörlega á bug öllum vangaveltum um, að það sem gerist á slíkri samkomu sé nokkuð kristilegra eða máttugra en það sem gerist þegar íslenskur þjóðkirkjusöfn- uður kemur saman í kirkju sinni til þess að hlýða á Guðs orð, biðja Guð og mæta upprisnum frelsara sínum við hans eigið borð. Niðurstaða mín hlýtur því líka að vera sú, að slíkur innflutningur sé óþarfur. Hann er auðvitað heimill að okkar lögum en því aðeins meinlaus að allar stéttir kirkju okkar geri sér ljóst hvað hér er á ferðinni eins og ég reyndi að lýsa í upphafí máls míns. Að lokum má geta þess að það verður afskaplega langt þangað til Þjóðkirkjan stendur á nokkum hátt að uppákomum alveg eins og þessari. SIGURÐUR SIGURÐARSON, vígslubiskup í Skálholti. i i i < 1 < I < (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.