Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1995 9 _________________LISTIR Hraði, leikni og- sláandi tækni TÖNLIST Akureyrarkirkja GÍTARHÁTÍÐ Á AKUREYRI Kristinn H. Árnason gítarleikari flutti verk eftir Femando Sor, Jo- hann Sebastian Bach, Augnstin Barrios og Enrique Granados. Akur- eyrarkirkja föstudaginn 21. júlí. Á þRIÐJU tónleikum Gítarhá- tíðar á Akureyri flutti Kristinn H. Árnason það sem við getum kallað hefðbundna gítartónlist. Með því ræðst hann ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, því á efnisskrá hans eru verk sem ekki aðeins eru erfið og kreijandi í flutningi, heldur einnig vel þekkt meðal gítarunnenda sem eru enn vökulli en ella fyrir frammistöðu flytjandans. Fyrsta verkið á efnisskránni var Gran Solo eftir spænska tónskáldið Fernando Sor (1778-1839). Sorvar einn þeirra virtúósa sem vöktu at- hygli almennings á gítarnum sem konserthljóðfæri á fyrri hluta 19.aldar. Tónlist hans er í klassísk- um stíl og að mestu laus við hin þjóðlegu spænsku áhrif sem eru svo áberandi í verkum samlanda hans. Hann samdi fjöldann allan af gítarverkum sem halda nafni hans lifandi en meðal verka hans má einnig finna eina óperu, sinfó- níur, kammertónlist og sönglög. Gran Solo er glæsilegt verk í einum þætti í hefðbundnu sónötuformi sem Kristinn lék af fágun og ör- yggi. Chaconna Bachs úr partítu í d-moll fyrir einleiksfiðlu, umskrifuð fyrir gítar, er algengt verk á efnis- skrám gítarista og hentar hljóðfær- inu mjög vel eins og flest einleiks- verka Bachs fyrir strengjahljóð- færi. Chaconnan er mjög erfitt verk í flutningi, hún krefst mikillar tækni af flytjandanum ekki síður en músikalskrar yfirsýnar. Kristinn hefur hvort tveggja í ríkum mæli, sérstaklega er tækni hans sláandi. Hann ræður yfír hraða og leikni sem er ekki öllum gefin og sýndi það svo sannarlega án þess að missa sjónar af framvindunni, þó var ekki laust við að hann hefði mátt staldra betur við á stöku stað í hinum rólegri hlutum þessa magn- aða verks. Augustin Barrios (1885-1944) er áhugaverð persóna í sögu gítars- ins, þá aðallega fyrir hvemig hann sameinaði evrópska hefð suður- amerískum uppruna sínum. Hann var indjáni frá Paraguay sem samdi tónlist undir áhrifum frá Sor, Pag- anini og Chopin, en rytmískur og hljómrænn bakgmnnur tónlistar hans var þó alltaf tónlist hinna ýmsu þjóða Suður-Ameríku. La Cathetral er dæmigert verk eftir Barrios, það er í þremur stuttum þáttum, tveir fyrstu rómantískir og fallegir og sá þriðji hraður og kraftmikill. Kristinn lék verkið geysilega vel og sýndi að þessi tón- list á ekki síður við hann en klassík- in og barrokkið. Síðast á efnisskránni voru Danza Espanola nr. 5,11,12 og 6 eftir Spánvetjann Enrique Granados, upphaflega eru dansarnir samdir fyrir píanó en seinna umskrifaðir fyrir gítar. Umskriftir sem þessar takast misjafnlega, að mati undir- ritaðs eru dansar 5 og 12 vel heppnaðir en hinir síður. Hvað um það, dansamir voru ágætlega leiknir sérstaklega sá nr.5 sem er nú líklega frægastur þeirra. í kjöl- farið fylgdu tvö aukalög; Lágrima og Mazurka eftir Francisco Tár- rega (1852-1909), enn einn Spán- veijann, sem Kristinn gerði einkar góð skil. Þetta voru góðir tónleikar eins og hinir tvennir fyrri og verð- ur að segjast að val flytjenda á hátíðina hefur heppnast einstak- lega vel bæði hvað snertir gæði og fjölbreytni. Hróðmarl. Sigurbjörnsson Endurreisnar- flokkurinn Galliard ENDURREISNARFLOKKURINN Galliard STOFNAÐUR hefur verið tónlistar- flokkur sem sérhæfir sig í því að syngja og leika tónlist frá endur- reisnartímanum, sér í lagi madrig- ala og lútusöngva. Kallast hann „Endurreisnarflokkurinn Galliard" eftir vinsælum dansi endurreisnar- tímans. Galliard skipa: Birna Helga- dóttir sópran, Guðrún Edda Gunn- arsdóttir mezzó-sópran, Örn Arnar- son tenór, Finnur Bjarnason bassi og Arngeir Heiðar Hauksson lútu- leikari. Mun flokkurinn halda sína fyrstu tónleika á morgun, miðviku- dag, kl. 20.30 í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum. Efnisskráin samanstendur af madrigölum fyrir ijórar og fimm söngraddir, lútusöngvum fyrir írjór- ar raddir og lútu sem og einsöngs- lögum með lútuundirleik eftir ensk tónskáld endurreisnartímans, John Dowland, Thomas Morley og fleiri samtíðarmenn þeirra. John Downland var einn fræg- asti lútuleikari samtíðar sinnar og samdi ijölmörg lútuverk og lútu- söngva. „Þess má til gamans geta að John Dowland var við hirð Krist- jáns IV Danakonungs, sem setti einokunarlögin á íslendinga fyrir hartnær 400 árum síðan,“ segir í KRISTJÁN Jóhannsson söng hlutverk Radamess í óperunni Aidu á árlegri tónlistarhátíð Arena-óperuhússins í Veróna á Italíu síðastliðið fimmtudags- kvöld. í viðtali við blaðið L'Ar- ena segir Kristján að þótt hann hafi sungið hlutverkið margoft og einbeitt sér mjög að tónlist- inni allt síðasta ár, uppgötvi hann stöðugt nýjar hliðar á Aidu. Farið er lofsamlegum orðum um framfarir Kristjáns í söngn- um, framkomu hans og persónu- leika. Blaðamaðurinn, Gianni Villa, segir Kristján einkar vjð- kunnanlcgan og glaðværan mann, sem nú sé kraftmeiri en fréttatilkynningu hópsins. Thomas Morley var þekktur fyrir madrigala sína (sungna án undir- leiks) en einnig samdi hann fræga lútusöngva. Lútusöngvarnir hafa þann eiginleika að hægt er að flytja Kristján kraftmikill í Veróna nokkru sinni fyrr. Kristján söng ekkert í Arena- óperuhúsinu á síðasta starfsári og segir í viðtalinu að honum hafi verið boðið hlutverk í Carmen á næsta ári, en liann kjósi heldur að syngja í Aidu. Hann segist munu syngja í Co- þá fjölradda eða einradda, með eða án lútuundirleiks^ en samkvæmt heimildum hefur Islendingum ekki áður gefist kostur á að heyra lútu- söngva sungna ijölradda með lútu- undirleik á tónleikum. vent Garden innan tíðar og einn- ig korni hann til með að debút- era í óperunni Óþello í Bologna á Italíu á næsta ári. Eiginkonu Kristjáns, Sigur- jónu Sverrisdóttur, er lýsi sem hinni gullfallegu, ljóshærðu Jónu, og Kristján spurður hvort honum þyki ekki erfitt að dvelja langdvölum að heiman vegna ferðalaga sem óhjákvæmilega fylgja starfinu. Hann svarar því til að þau hjónin hafi gert sam- komulag um það fyrir tíu árum, að vera aldrei aðskilin lengur en hálfan mánuð í einu. „Að þeim tíma liðnum kem ég heini, eða þau koina þangað sem ég er sladdur." Morgunblaðið/Rúnar Þór Alþjóðlegu gítarhátíð- inni lýkur í kvöld FJÓRÐU alþjóðlegu gítarhátíð- inni á Akureyri lýkur á sunnu- dagskvöld, en hún var sett í Akureyrarkirkju á miðvikudags- kvöld. Tónleikar hafa verið í Akur- eyrarkirkju eða Deiglunni öll kvöld. Auk tónleika eru nám- skeið í boði, en aðalleiðbeinand- inn á opnu námskeiði fyrir lengra komna gítarnemendur, einleikara og kennara sem hald- ið er í Tónlistarskólanum á Akur- eyri, er Timo Korhonen. Jafn- framt gefst þátttakendum kostur á að sækja einkatíma hjá flam- eneoleikaranum Eric Vaarzon Morel meðan á hátíðinni stendur. HeitgaluaniseraQar þakskrúfur Bgum (yrlrllgglandi mlklO úrval al heit- og ratgalvanlseruðum skrútum, ryOlríum skrútum og álskrútum í öllum stærðum. Bnnlg sjálfborandi skrúlur og plasthettur i mörgum litum. Þetta eru viðurkenndar þýskar og Iranskar þakskrúfur. Algrelðum sérpantanir með stuttum fyrirvara. Er leka- vandamál? Bgum (yrirliggjandi aBar gerðir al söðidskinnum fyrir báru og traplsu í öllum Btum. Stöðvar leka og bætir lestu þakelnisins Hátún 6a 105 Reyk]avík P.O.Box 1026 121 Reykjavík Sími 561 0606 Fax 561 0600 Undur Egyptalands 7. september kr. 99.600 Fáðu ferðaáe®ttun senða v Kaíró - pýramídarnir - sigling á Níl - Luxor - Aswan Stórkostleg ævintýraferð til Egyptalands, vöggu heimsmenningarinnar, þar sem þú kynnist umhverfi og menningarverðmætum Faraóanna, sem eiga sér engan líka í mannkynssögunni. Töfrar Kaíró við góðan aðbúnað á góðu 4 stjörnu hóteli og ævintýrasigling á ánni Níl með íslenskum fararstjóra Heimsferða allan tímann. 8 dagar í Egyptalandi og 7 dagar á Spáni kr. 99.600 HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562-4600.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.