Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Fjármögnun samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu og Vestfjörðum lokið
3,4 milljarðar
teknir að láni
SEÐLABANKI íslands hefur fyrir
hönd ríkissjóðs gengið að tilboði
Evrópska flárfsst'ngarbankans
(EIB) um lán að fjárhæð 40 milljón-
ir ekna (ECU) sem jafngildir 3,4
milljörðum króna. Lánsfénu verður
varið til að fjármagna framkvæmdir
á vegum Vegagerðar ríkisins við
samgöngumannvirki á höfuðborgar-
svæðinu og Vestfjarðagöng. Þetta
er síðari hluti fjármögnunar fram-
kvæmdanna en fyrr á árinu tók ríkis-
sjóður 3 milljarða lán hjá Norræna
fjárfestingarbankanum vegna þeirra.
Áætlaður kostnaður við endurbæt-
ur á samgönguæðum inn í höfuð-
borgina er rúmlega 2 milljarðar
króna og er gert ráð fyrir að þeim
ljúki í áföngum á næstu tveimur
árum. Framkvæmdir við Vestfjarða-
göngin eru komin vel á veg og er
stefnt að því að ljúka þeim á næsta
ári. Jarðgöngin eru rúmlega 9 kíló-
metra löng og er gert ráð fyrir að
heildarkostnaður við gerð þeirra
verði tæplega 4 milljarðar króna.
Að sögn Ólafs ísleifssonar, fram-
kvæmdastjóra alþjóðasviðs Seðla-
bankans, er lánið til 10 ára, en vaxta-
kjör munu ráðast af markaðsskilyrð-
um þegar lánsféð verður greitt út.
Ólafur sagði að Evrópski fjárfesting-
arbankinn nyti mjög sterkrar stöðu
á fjármálamörkuðum og vænta
mætti þess að sú staða endprspeglað-
ist í kjörum lánsins.
Evrópski fjárfestingarbankinn var
stofnaður í kjölfar undirritunar Róm-
arsáttmálans árið 1958 og veitir fjár-
festingarlán í samræmi við markmið
Evrópusambandsins, einkum til verk-
efna á sviði byggðaþróunar, sam-
gangna, ijarskipta, orkuflutninga,
umhverfismála o.fl. Þá veitir bankinn
ián á grundvelli sameiginlegrar áætl-
unar ESB og EFTA um að auka
hagvöxt og atvinnu á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Lánið er hið fyrsta sem
bankinn veitir vegna verkefna hér á
landi. Birgir ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri undirritaði láns-
samninginn fyrir hönd ríkissjóðs.
Nýtt fyrirtæki stofnað
um Digital-umboðið
EIGENDUR Örtölvutækni hf. hafa
ákveðið að skipta félaginu upp í tvö
rekstrarfélög. Þannig mun nýtt fyrir-
tæki formlega taka við Digital-
umboðinu í dag og verður ráðinn að
því sérstakur framkvæmdastjóri.
Ekki liggur endanlega fyrir hvernig
öðrum rekstri Örtölvutækni verður
háttað en unnið er að endurskipu-
lagningu hans.
Forráðamenn Örtölvutækni hafa
að undanfömu leitað leiða til að koma
rekstrinum á réttan kjöl. Fyrirtækið
mátti þola mikið tap á árinu 1993
og hefur fjárhagsstaðan verið þung
allar götur síðan. Niðurstaðan hefur
orðið sú að aðskiija Digital-umboðið
frá öðrum rekstri og var tillaga þar
að lútandi samþykkt á fundi hluthafa
í síðustu viku. „Það var ekki inn í
myndinni hjá okkur að hlaupast frá
vandanum með því að setja fyrirtæk-
ið í gjaldþrot heldur ákváðum við að
takast á við vandann," sagði Karl
Wemersson, framkvæmdastjóri Ör-
tölvutækni, í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagði að lagt yrði fram veru-
legt hlutafé í hið nýja félag um Dig-
ital-umboðið og fengi það aðstöðu á
þriðju hæð í Skeifunni 17 þar sem
Örtölvutækni hefur verið til húsa.
„Digital-umboðinu er ætlað að þjóna
kröfuhörðum viðskiptavinum sem
hafa mikla þörf fyrir þjónustu. Versl-
unin mun hins vegar sinna minni
fyrirtækjum og heimilum sem eru
að leita að einstökum hlutum í tölvu-
kerfi, einkatölvum, prenturum,
rekstrarvömm o.fl,“ sagði Karl.
Morgunblaðið/Þorkell
BYGGING Höfðabakkabrúar í Reykjavík stendur nú yfir.
Byggingavöruverslanir
4-11 % stað-
greiðsluafsláttur
SAMKEPPNI virðist fara harðn-
andi á byggingavörumarkaðnum og
nú bjóða tvær stærstu bygginga-
vöruverslanirnar, BYKO hf. og
Húsasmiðjan hf., viðskiptavinum
sínum afslátt, sem kemur til viðbót-
ar hefðbundnum staðgreiðsluaf-
slætti.
Húsasmiðjan veitir nú 4% stað-
greiðsluafslátt en BYKO 5%. Með
því að stofna reikning fá viðskipta-
vinir að auki 2-6% viðbótarafslátt
sem færist síðan sem inneign á við-
skiptareikning í árslok.
Ef heildarviðskipti viðskiptavinar
hafa numið 0-200 þúsund krónum
á árinu veitir BYKO þannig 7%
afslátt samtals en Húsasmiðjan 8%.
Nemi viðskiptin 200-500 þúsund
krónum nemur afslátturinn samtals
9% hjá báðum fyrirtækjum. Nemi
viðskiptin hins vegar meira en hálfri
milljón króna á ári veitir Húsasmiðj-
an samtals 10% afslátt en BYKO
11%.
Afsláttarkerfi fyrirtækjanna eru
svipuð og munurinn liggur helst í
því að hjá BYKO er ætlast til þess
að menn framvísi korti þegar við-
skiptin eiga sér stað en það er þó
ekki skilyrði. Hjá Húsásmiðjunni fá
menn hins vegar sérstakt viðskipta-
númer sem þeir nefna þegar við-
skiptin eiga sér stað.
BYKO hóf útgáfu viðskiptakorta
í maí síðastliðnum og segir Jón
Helgi Guðmundsson, forstjóri fyrir-
tækisins, að þessari nýjung hafi
verið vel tekið af viðskiptavinum.
„Viðskiptakortin eru aðallega ætluð
fyrir einstaklinga og fjölskyldur
sem vilja njóta betri staðgreiðslukj-
ara en flest fyrirtæki kjósa að vera
í reikningsviðskiptum."
Húsasmiðjan hefur boðið við-
skiptavinum sínum sérstaka stað-
greiðslureikninga í nokkur ár. Jón
Snorrason, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, segir að þeir njóti vax-
andi vinsælda enda sé hagkvæmni
þess fyrir heimili að staðgreiða vör-
ur og efni með þessum hætti óum-
deild. Þá sé það ekki síður athyglis-
vert að fyrirtæki virðist nú einnig
notfæra sér kosti staðgreiðsluvið-
skipta í auknum mæli.
Uppstokkun
hjá Sony
Ólafur Jóhann Ólafsson vísar fréttum
um veika stöðu sína á bug
BANDARISKA tíma-
ritið Forbes greinir frá
því í síðasta tölublaði
að framundan séu
miklar skipulagsbreyt-
ingar hjá útgáfufyrir-
tækinu Sony Electronic
Publishing Company,
sem Ólafur Jóhann Ól-
afsson stýrir.
í greininni er það
jafnframt gefið í skyn
að staða Ólafs sem for-
stjóra kunni að vera
veik og segir blaðið að
átök á milli Sony í
Bandaríkjunum annars
vegar og Sony í Evrópu
og Japan hins vegar
kristallist í þessum breytingum. Ól-
afur njóti stuðnings Michaels Schul-
hofs, yfirmanns Sony í Bandaríkjun-
um, en Steve Race, framkvæmda-
stjóri Sony Computer Entertain-
ment, sem nefndur er sem hugsan-
legur eftirmaður Ólafs, sé í náðinni
hjá yfirmönnum Sony í Japan.
Stendur sjálfur að
breytingunuin
Ólafur sagði í sam-
tali við Morgunblaðið
að þessar tilgátur
væru úr lausu lofti
gripnar. Hann segir
það rétt að fyrir dyrum
standi uppstokkun hjá
Sony Electronic Publ-
ishing Company, en
hann standi sjálfur
fyrir henni og það sé
kolrangt að staða hans
sé eitthvað veik. „Ég
er að stokka upp þau
fyrirtæki sem ég
stjórna og þar er bæði
um að ræða breytingar á hlutverki
þeirra og færslur á milli þeirra svo
og nafnbreytingar. Þessar breyt-
ingar munu ná til Bandaríkjanna
og Evrópu og verður tilkynnt form-
lega um þær síðar í þessari viku
eða upphafi þeirrar næstu.“
Walt Disn-
ey kaupir
ABC
Burbank, Kaliforníu. Rcuter.
WALT Disney-fyrirtækið mun
kaupa Capital Cities/ABC fyrir
19 milljarða dollara og þar með
verður nýju stórveldi komið á
fót í skemmtana- og fjölmiðla-
heiminum.
Kaupin koma á óvart í Holly-
wood og Wall Street. Tekjur
fyrirtækjanna í fyrra námu til
samans um 16.5 milljörðum
dollara.
Capital Cities er eigandi
ABC-sjónvarpsins og verður al-
gerlega í eigu Disneys.
Einnig samið um CBS
Á sama tíma er hermt að
samkomulag sé á næsta leiti í
viðræðum um sameiningu CBS-
sjónvarpsins og Westinghouse
Electric. Talið hafði verið að
Disney væri einn bjóðenda í
CBS.
Hið sameinaða fyrirtæki fær
nafnið The Walt Disney Comp-
any og verður undir forystu
Michaels Eisners, stjórnarform-
anns Disneys og CEO. Forstjóri
Capital Cities, Thomas Murphy,
tekur sæti í stjórn Disneys.
Hlutabréf í
Qantas seljast
grimmt
Sydney. Reuter.
QANTAS-flugfélagið í Ástralíu
hefur byijað vel síðan því var
breytt í hlutafélag og bréf í því
seldust á mánudag á 16% yfir-
verði, sem hefur fært mörgum
þeim sem keyptu hlut í félaginu
skjótfenginn gróða.
Hlutabréf í Qantas seldust við
opnun á 2,32 Ástralíudali, 32
senta hærra verði en ákveðið
var á laugardag, en lækkuðu
síðan í um 2,17 ástralska doll-
ara.
Margir þeirra sem seldu voru
smáfjárfestar, sem fengu í sinn
hlut 265 milljónir hlutabréfa af
740 milljónum, sem ríkisstjórnin
bauð.
Ástralíustjórn seldi 75% hlut
sinn í Qantas og aflaði sér 1.45
milljarða Ástralíudollara með
útgáfu hlutabréfanna. British
Airways hefur átt 25% í félaginu
síðan 1993. Það var stofnað
fyrir 75 árum og er 10. stærsta
flugfélag heims miðað við far-
þegafjölda.
Smáfjárfestar keyptu hluta-
bréf í Qantas með afslætti á
1,90 Ástralíudollara og hafa
hagnazt vel.
Spá 6,6%
fjölgun á
farþegum
Brusscl. Reuter.
FARÞEGAFLUG á leiðum inn-
an Evrópu mun aukast um 6,6%
á ári til 1999 og líkur eru að
það tvöfaldist á 11 árum og
samkeppni harðni.
Samkvæmt gögnum sam-
bands evrópskra flugfélaga,
AEA, er spáð 6,9% aukningu
1995 og 6,4% 1998 og 1999.
Á næstu fímm árum til 1999
má búast við stöðugri aukningu
við tiltölulega hagstæð efna-
hsleg skilyrði og áframhaldandi
lækkun fargjalda að sögn AEA.
Gert er ráð fyrir að fjölgun
farþega verði í tæpu meðallagi
í Bretlandi og Frakkland vegna
áhrifa Ermarsundsgangnanna.
Farþegum aðildarfélaga AEA
ijölgaði um 6% júní miðað við
sama tíma í fyrra.
Aukningin var mest á leiðum
til Austur-Asíu, 7,6%, en á leið-
um yfir Norður-Atlantshaf var
aukningin 5,8%. Flugfragt jókst
um 5.4%.