Morgunblaðið - 09.08.1995, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGIAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Lokað á atvinnu-
Tvo báta rak
leyfi útlendinga
upp í fjöru
Látrum í Aðalvík.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur að mestu hætt útgáfu atvinnu-
leyfa fyrir erlent verkafólk, það er
fólk utan Evrópska efnahagssvæðis-
ins. Fá leyfi hafa verið gefin út frá
því um ríkisstjórnarskiptin í vor er
Páll Pétursson tók við félagsmála-
ráðuneytinu.
Stjórnendur fyrirtækja í fisk-
vinnslu á Vestfjörðum og víðar á
landsbyggðinni, sem gengur illa að
fá fólk til starfa, vilja fá leyfi til að
ráða erlent verkafólk. Þeir segjast
hafa reynt að ráða fólk af atvinnu-
leysisskrá en fengið lítil viðbrögð.
Þá sé misjöfn reynsla af þessu fólki
og nefnd eru dæmi um að fólk hætti
strax og það hefur öðlast réttindi til
atvinnuleysisbóta að nýju.
Gylfi Kristinsson í félagsmálaráðu-
neytinu segir að eftirlit með útgáfu
atvinnuleyfa fyrir útlendinga hafí ver-
ið stórhert í vor og fá leyfi gefin út.
Hann verður var við óánægju fisk-
verkenda, einkum á Vestfjörðum og
Snæfellsnesi en einnig á Suðumesj-
um, en segir að ráðuneytið líti svo á
að mögulegt eigi að vera að fá fólk
til starfa þegar 7.000 íslendingar séu
skráðir atvinnulausir.
■ Fá ekki fólk/C3
TVO BÁTA rak upp í fjöru
við Látra í Aðalvík á Horn-
ströndum, rétt norðan ísa-
fjarðardjúps, á mánudag. Bát-
unum hafði verið komið fyrir
á legu utar í víkinni og virðist
sem þeir hafi slitnað upp í
hvassviðrinu sem gekk yfir á
Vestfjörðum á mánudag.
Þegar gestir í Aðalvík vökn-
uðu snemma morguns blöstu
bátarnir við þeim í fjörunni
og var þegar hafist handa við
að bjarga þeim, en töluverð
hætta var á að þeir myndu
skemmast þar sem þeir skullu
saman í fjöruborðinu.
Skemmdust
títið
Fjöldi manns hóf þegar
björgunaraðgerðir og lögðust
allir á eitt að færa bátana.
Jafnframt var björgunarbát-
urinn Daníel Sigmundsson
kallaður frá ísafirði til aðstoð-
ar. Báðir bátarnir náðust á
flot lítið skemmdir.
Ijósmynd/Lögreglan á ísafirði
Ríkið ber kostnað
af varðskipi í
Smugunni
Eðlilegt
vegna eðlis
deilunnar
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að rétt hafi verið
talið að ríkið bæri kostnað af að
senda varðskip í Smuguna en ekki
útgerðir úthafsveiðiskipa vegna
þess að skipin hafi ekki átt kost á
eðlilegri þjónustu í Noregi.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur verið veitt 20 milljóna
króna aukafjárveiting til að senda
varðskip í Smuguna til tveggja
mánaða. Þegar Þorsteinn var spurð-
ur hvort ekki hefði verið eðlilegt
að útgerðirnar sjálfar bæru kostn-
aðinn en ekki skattgreiðendur svar-
aði hann: „Það er út af fyrir sig
sjónarmið. Ástæðan fyrir því að við
höfum talið rétt að senda þjónustu-
skip á þetta hafsvæði er fyrst og
fremst sú að vegna hinnar hörðu
deilu við Noreg hafa skipin ekki átt
kost á eðlilegri þjónustu í Noregi."
Ráðherrann segir ennfremur
eðlilegt að vekja upp slíkar spurn-
ingar ef samskipti landanna væru
eðlileg og hægt væri að leita þjón-
ustu í næstu höfn. „Auðvitað er það
atriði sem hlýtur að koma til álita
þegar eðlilegar aðstæður eru fyrir
hendi og slíkur ágreiningur truflar
ekki skipin í að leita þjónustu með
eðlilegum hætti,“ sagði Þorsteinn.
Borgarrád Reykjavíkur heimilar skuldabréfaútboð
700 millj. til að mæta
umframkostnaði
Þriðjungs
verðmæti
úthafskarfa
ÍSLENSKU skipin hafa veitt mun
minna af úthafskarfa á þessu ári
en á því síðasta. Fá skip eru eftir
á miðunum og er veiðin enn léleg.
Þjóðhagsstofnun áætlaði að út-
flutningsverðmæti karfans yrði í
ár um 2,8 milljarðar en verðmætið
er nú aðeins um 850 milljónir kr.
íslensk skip hafa það sem af
er þessu ári veitt rúmlega 18 þús-
und tonn af úthafskarfa. Á síðasta
ári veiddust 46.500 tonn. Veiðin
hefur verið léleg langtimum sam-
an, auk þess sem frátafir urðu
vegna verkfalls sjómanna í vor.
Verðið hækkar
Gott verð hefur fengist fyrir
úthafskarfann og hefur verðið
hækkað að undanfömu. Seljendur
eru sammála um að verkfallið og
aflabrestur hafi komið í veg fyrir
verðhrun á karfanum í ár.
■ 2 milljarða vantar/C6
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Lagt a
BENEDIKT Þ. Siguijónsson frá
Kaldbak við Húsavík á forláta
hnakk, amerískan barnahnakk.
Myndin var tekin þegar hann var
að leggja á hest sinn í Hrafn-
kelsdal en þar hafði hann við-
komu með foreldrum sínum og
fleiri ferðafélögum á leiðinni frá
Húsavík og suður í Lón.
BORGARRÁÐ samþykkti í gær
að heimila allt að 700 milljóna
króna skuldabréfaútboð Reykja-
víkurborgar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
segir að þetta útboð hafi verið
ákveðið til að mæta kostnaði borg-
arinnar umfram fjárhagsáætlun,
meðal annars vegna sumarvinnu
skólafólks, aukins launakostnaðar
vegna kjarasamninga, vegna við-
halds gatna og átaksverkefna.
Skuldabréfaútboð hafi þótt væn-
legri kostur en hækkun yfirdrátt-
arheimildar í Landsbankanum eða
lántaka hjá fyrirtækjum borgar-
innar.
Ingibjörg Sólrún segir að
skuldabréfaútboðið verði til lengri
tíma, til dæmis tólf ára, en ekkert
Ýmis kostnaður
fram úr fjárhags-
áætlun borgar-
innar
hafí verið ákveðið um það enn.
„Þegar fjárhagsáætlun borgarinn-
ar var gerð ríkti óvissa um suma
liði hennar, ekki síst vegna vinnu
sumarfólks. Reykjavíkurborg hef-
ur veitt þeim atvinnu sem ekki fá
vinnu annars staðar og í ár kallar
það á 180 milljóna króna aukafjár-
veitingu," segir borgarstjóri.
„Aðrar aukafjárveitingar borg-
arráðs eru um 70 milljónir. Þá
sjáum við fyrir 100 milljóna króna
kostnaðarauka vegna kjarasamn-
inga, en enn ríkir óvissa um endan-
lega útkomu þar. Aukin fjárhags-
aðstoð Félagsmálastofnunar kall-
ar á 100 milljóna króna aukafjár-
veitingu, 50 milljónir vantar til
viðhalds gatna og 50 milljónir
vegna ýmissa átaksverkefna borg-
arinnar," segir Ingibjörg Sólrún.
Kanna niðurskurð og
lækkun á yfirdrætti
Ingibjörg Sólrún sagði að kann-
að yrði hvort einhver niðurskurður
næðist á móti þessari auknu fjár-
þörf. „Ef við náum að mæta aukn-
um kostnaði á síðari hluta ársins
þá nýtum við þessa lántöku til að
lækka yfirdrátt borgarinnar í
Landsbankanum. Hann hefur yfir-
leitt verið um 1.400 milljónir og
það er dýr lántaka.“