Morgunblaðið - 29.08.1995, Blaðsíða 10
t t
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995_____________________________________
FRÉTTIR
Félagsmálanefnd gerir tillögu um úrbætur hjá Brunamálastofnun
Ráðherra segir lög-
um verða breytt
Félagsmálanefnd Alþingis sendi í gær þing-
mönnum og félagsmálaráðuneyti skýrslu
sína um málefni Brunamálastofnunar,
þar sem gerðar eru tillögur um úrbætur
_______-—--------------------->-------------
innan stofnunarinnar. Kristín Astgeirsdóttir,
formaður nefndarinnar, og Páll Pétursson
félagsmálaráðherra segja að þörf sé
á lagabreytingum.
FÉLAGSMÁLANEFND Alþingis
telur að eftir að hafa kynnt sér
málefni stofnunarinnar og það
„erfiða ástand sem þar hefur ríkt
um nokkurt skeið“ þurfi að endur-
skoða lög og reglugerðir, einkum
3. grein laga um brunamál og
brunavarnir, í þeim tilgangi að
taka af allan vafa um hlutverk
stjómar stofnunarinnar og verka-
skiptingu milli hennar og bruna-
málastjóra.
Hins vegar þurfi að greina og
taka á þeim örðugleikum sem ein-
kennt hafa samskipti stjórnar
Brunamálastofnunar og bruna-
málastjóra til að koma í veg fyrir
að sagan endurtaki sig þegar ný
stjórn tekur við. Nefndin bendir
jafnframt á nauðsyn þess að sam-
ræma reglugerð um brunamála-
skólann gildandi lögum og einnig
að brýnt sé að setja reglugerð um
innheimtu brunavarnargjalds sem
tryggingafélögin annast, sem hafi
enn ekki litið dagsins ljós þótt að
brýnt sé að svo verði, þar sem um
miklar fjárhæðir sé að ræða.
Ólíðandi ástand
vegna deilna
„Þá lýsir félagsmálanefnd yfir
áhyggjum sínum yfir því að sam-
starfsörðugleikar milli stjórnenda
ríkisstofnunar skuli hafa komist á
svo hátt stig að stjórn viðkomandi
stofnunar segi af sér störfum eins
og hún leggur sig ásamt skóla-
nefnd. Stjórnendum ber skylda til
að leysa slíkra samstarfsörðug-
leika áður en í óefni er komið og
að sinna því hlutverki sem þeim
er falið lögum samkvæmt. Það er
ólíðandi að ríkisstofnun, sem sinnir
mikilvægu öryggishlutverki, skuli
vera hálflömuð tímunum saman
vegna innri deilna.
Það er að sjálfsögðu á valdi
félagsmálaráðherra og ráðuneytis
hans að leysa vanda Brunamála-
stofnunar og að tryggja að
stjórnarhættir og samstarf verði
með eðlilegum hætti í framtíð-
inni,“ segir í skýrslunni.
Páll Pétusson félagsmálaráð-
herra segist hafa boðað lagabreyt-
ingar um málefni Brunamála-
stofnunar þegar hann kom til
starfa í vor og bent á nauðsyn
þess að skýra verkaskiptingu
stjórnar og brunamálastjóra.
Ábendingar nefndarinnar komi því
ekki á óvart en hann geri engar
athugasemdir við störf hennar.
Vonar að friður skapist
„Ég mun undirbúa það að
breyta lögunum um Brunamála-
stofnun á næsta þingi til að valds-
mörk séu skýrari. Árið 1992
breytti félagsmálanend lagafrum-
varpinu þannig að valdsmörkin
urðu óskýrari, sem er hluti af þeim
vanda sem skapaðist innan stofn-
unarinnar. Mér finnst eðlilegt að
breyta lögunum áður en reglu-
gerðin verður sett, til að reglu-
gerðin verði í samræmi við lögin
en þurfi ekki að breyta henni eftir
lagasetningu," segir Páll.
Hann kveðst vona að friður
skapist milli stjórnar og bruna-
málastjóra _með nýjum lögum.
Kristín Ástgeirsdóttir segir að
nefndin hafí lokið við skýrsluna
7. júlí sl., en tafir á birtingu henn-
ar skýrist af því að hún hafi verið
til athugunar í forsætisnefnd
þingsins. Það sé sökum þess að
ekki hafi gerst áður að nefnd inn-
an þingsins nýti sér 26. grein þing-
skaparlaga er heimilar nefndum
af eigin frumkvæði að fjalla um
önnur mál en þau sem til hennar
er vísað. Því hafi vaknað spurning-
ar um hvernig ætti að fara með
skýrsluna innan þings, þegar þing
er ekki að störfum.
Tilnefninga í stjórn beðið
Kristín segir málið um margt
vandmeðfarið þar sem brunamála-
stjóri hafi ekki brotið af sér í starfi
þótt hann sé erfiður í samvinnu.
Nefndin gerir tillögur um laga-
breytingar og það sé fyrst og
fremst á valdi félagsmálaráðherra
og félagsmálaráðuneytis að taka
á málinu. Einnig komi til greina
að nefndin leggi fram frumvarp
en það yrði aldrei gert í andstöðu
við ráðuneytið.
Ráðuneytið reynir nú, að sögn
Kristínar, að skipa nýja stjórn
Brunamálastofnunar en þeir sem
skipa eiga í stjórna haldi nær allir
að sér höndum, og t.d. vilja trygg-
ingafélögin skoða nýja reglugerð
sem var tilbúin innan ráðuneytis-
ins. „Félögin vilja vita hvort eitt-
hvert gagn sé í reglugerðinni og
hvort hún megi verða til þess að
auðvelda málin, því að menn sjá
engan tilgang í að skipa nýja
stjórnarnefnd ef þessi leikur held-
ur áfram eins og hann hefur gert
í mörg ár,“ segir Kristín.
Páll segist hafa óskað eftir því
að þeir aðilar sem eiga lögum sam-
kvæmt að tilnefna fulltrúa í stjórn
Brunamálastofnunar geri það, og
hafi sumir gert það nú þegar, þar
á meðal Samband íslenskra
sveitarfélaga, og hann bíði eftir
tilnefningu annarra. Hann minnist
þess ekki að tryggingafélögin hafí
óskað eftir að sjá reglugerðardrög-
in, enda þjóni það litlum tilgangi
þar sem ljóst sé að lögum og jafn-
framt reglugerð verði breytt.
FYRIR SKÓLAFÓLKIÐ
Kvisthagi — laus
Góö 2ja herb. íb. í kj. í góöu þríb.
v/Kvisthaga. Stutt í HÍ. Áhv. 2,6 hagst.
langtlán. Laus strax. Lyklar hjá Fram-
tíðinni. Verð 5,3 millj.
Holtsgata — laus
Góð 2ja herb. íb. á jarðh. í suður í 6-íb.
húsi. Endurn. rafm. Laus strax. Verð
4,6 millj.
Fellsmúli — laus
2ja herb. íb. á jaröh. í „Hreyfilsblokk-
inni“. Laus strax. Lyklar hjá Framtíð-
inni. VerÖ 3,9 millj.
Skólavörðuh. — laus
Góð 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæö »'
tvíb. m. eérinng. GóÖ staðs. Laus
strax. Lyklar hjá Fromtíðinnl.
Verö aðeíns 3,9 millj.
Hrafnhólar — laus
2ja herb. íb. á efstu hæö í lyftuh. Fráb.
útsýni. Suðaustursv. íb. er nýl. stand-
sett. Laus strax. Lyklar á skrifst. Verö
4,3 millj.
Bollagata
Góð 3ja herb. íb. í kj. í fjórb. Rúmg.
herb. Áhv. 3,6 millj. hagst. langtíma-
lán. Verö 5,9 millj.
Álagrandi — laus
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð í góðu
fjölb. Áhv. 3,3 millj. góð langtímalán.
Laus fljótl. Verö 6,9 millj.
Miðborgin — laus
Falleg og mikið endurn. 3ja herb. íb. á
2. hæð í góðu steinh. Parket. Laus
strax. Verö aöeins 5.350 þús.
Brávallagata
Á þessum vinsæla staö, björt og
góö 3ja herb. íb. 85 fm á 3. hæð
í góðu þríb. Nýl. rafm. og tafla.
Verö 6,5 millj.
Skúlagata — ódýr
Góö 3ja herb. íb. á 4. hæð í góðu steinh.
Nýl. þak. LAUS STRAX. Verð aðeins
4,9 millj.
NÝTT Á SÖLUSKRÁ
Huldubraut — Kóp. Vorum að fá í sölu nýtt parhús á tveimur hæðum, 260
fm meö innb. bílskúr. Húsiö er mjög skemmtilega hannaö. Arinn í 9tofu. Áhv. 6,8
millj. húsbr. Bein sala eða skipti á ódýrari eign. Verö 12,5 millj.
Keilugrandi — 4ra herb. Mjög falleg og vel umgengin 4ra herb. íb. um
100 fm á 2. hæö í góöu fjölb. ásamt stæði í bílskýli. Tvennar svalir. Parket. Flísar á
baði. Hús nýlega málaö. Sanngj. verð 8,9 millj.
Vesturbær — gott verð. Góö 5 herb. íb. á efstu hæö í fjölb. sem er nýl.*
viðg. og málað. Stofa, 4 svefnh. Áhv. byggsj. 3,0 millj. Bein sala eða skipti á ódýr-
ari eign. Hagst. verð 6,9 millj.
Bogahlíð — laus. Mjög falleg 3ja herb. íb. á 3. hæö í fjölb. sem nýl. hefur
veriö íekið í gegn aö utan og málaö. Ný falleg eldhúsinnr. Suðvestursv. og útsýni.
Laus strax. Lækkaö verö 6,9 millj.
Nokkuð um meinlaus
útbrot í lófum og iljum
NOKKUÐ hefur verið um að fólk
leitaði til Læknavaktarinnar í
Reykjavík með börn sem eru með
útbrot í munni, lófum og á iljum.
Að sögn Magnúsar R. Jónassonar,
yfirlæknis á Heilsugæslustöðinni í
Fossvogi, er sjúkdómurinn meinlaus
og sýnist oft meiri en hann í raun-
inni er.
Að sögn Sigurðar Björnssonar,
smitsjúkdómalæknis, eru útbrotin af
völdum veira, aðallega tveggja
skyldra tegunda, Coxsachie A16 og
Enteroveiru 71. Sjúkdómurinn hefur
ekki hlotið íslenskt heiti en á ensku
kallast hann „Hand, foot and mouth
disease". Einkenni hans eru vatns-
kenndar blöðrur í lófum, á iljum og
í munni.
Sigurður segir að sjúkdómurinn
sé ekki óalgengur, hann stingi sér
niður af og til en venjulega verði
ekki faraldur. Hann smiti aðallega
við snertingu og sé frekar léttvæg-
ur. Engin meðferð sé til við honum
en hann gangi yfir á nokkrum dögum.
Sefhf,
ém
Fasteignamiðlun
Siguröur Óskarsson lögg. fasteignasali
Suðurlandsbraut 16
símar 588 0150
og 588 0140
Fax 588 0140 ÍÉLAGlffASTEIGNASAlA
ÓDÝRAR ÍBÚÐIR
Rofabær
Miklabraut
Hringbraut
Víðimelur
Vallarás
Öldugata
Sólvallagata
Ránargata
Austurströnd
Kleppsvegur
Álftamýri
53 fm 2. hæð 2 herb.
67 fm 3. hæð 4 herb.
62 fm 2. hæð 3 herb.
78 fm k. 2 herb.
54 fm 5. hæð 2 herb.
66 fm 4. hæð 4 herb.
53 fm 2. hæð 2 herb.
58 fm 1. hæð 3 herb.
67 fm 4. hæð 2 herb.
83 fm 4. hæð 5 herb.
68 4. hæð 3 herb.
2,8 áhv. 4,9 millj. laus
2,0 áhv. 4,7 millj.
2,7 áhv. 5,0 millj. laus
4,0 áhv. 5,0 millj.
2,4 áhv. 5,0 millj. lyfta
3,1 áhv. 5,2 millj. laus
5,4 millj. laus
2,5 áhv. 5,7 millj.
3,8 áhv. 6,5 millj. bílskýli/lyfta
2,3 áhv. 6,5 millj.
6,5 millj. laus
MORGUNBLAÐIÐ
Kennarar
í 10. bekk
semji ekki
samræmdu
prófin
UMBOÐSMAÐUR bama, Þór-
hildur Líndal, hefur sent frá sér
álitsgerð þar sem þeirri tillögu
er beint til menntamálaráðherra
að í reglugerð um fyrirkomulag
og framkvæmd samræmdra
prófa verði kveðið á um að
kennarar sem hafa með hönd-
um kennslu í 10. bekk grunn-
skóla megi ekki á sama tíma
taka þátt í gerð samræmdra
prófa.
Forsaga málsins er sú að 9.
maí sl. barst Þórhildi bréfleg
ábending frá nemanda í 10.
bekk um að gerð og fram-
kvæmd samræmdra prófa væri
ekki í samræmi við ákvæði
stjórnsýslulaga nr. 37/1993,
sem mælir svo fyrir að allir
skuli vera jafnir fyrir lögum.
Við athugun málsins kom í ljós
að starfandi kennarar 10.
bekkjar grunnskóla hafa tekið
þátt í undirbúningi og samn-
ingu samræmdra prófa. Hins
vegar er rétt að taka fram að
kennarar fara ekki yfir úrlausn-
ir nemenda sinna, né sitja þeir
yfir þeim í prófinu.
„Við munum að sjálfsögðu
hafa álitsgerðina til hliðsjónar
við ákvarðanir í þessu máli,“
sagði Bjöm Bjarnason mennta-
málaráðherra. „Við fögnum
þessu áliti og teljum að það sé
mjög gagnlegt að fá ábendingar
frá umboðsmanni bama um mál
eins og þetta. Við munum reyna
að fara eftir þeim í verki, eftir
því sem efni leyfa. Við höfum
þó ekki tekið endanlega afstöðu
í málinu ennþá.“
Friðarkerti
olli eldi
ELDUR kviknaði á svölum
timburhúss við Bakkastíg að-
faranótt sunnudags og reyndist
sökudólgurinn vera friðarkerti,
sem staðið hafði á plaststóli á
svölunum. Nágrannar héldu
eldinum í skefjum þar til lög-
regla kom á vettvang.
Nágrannarnir sáu eldinn,
stukku til og reyndu að slökkva.
Þegar lögreglan kom á staðinn
logaði í svalagólfi, handriði og
upp eftir súlum í svalagólf hæð-
arinnar fyrir ofan. Lögreglu-
mennirnir slökktu eldinn með
handslökkvitæki.
Húsráðandi vaknaði eftir að
slökkvistarfi lauk. Hann kvaðst
hafa verið með logandi friðar-
kerti á plaststóli á svölunum
og hafði kertið brætt sig í gegn-
um plastið með þessum afleið-
ingum.
Þrír umsækj-
endur hættu
við vegna
lágra launa
STAÐA við heimspekideild Há-
skóla íslands var nýlega aug-
lýst laus til umsóknar á alþjóða-
vettvangi. 24 umsóknir bárust,
en af þeim ijórum umsækjend-
um sem dómnefndin taldi hæf-
asta hafa þrír dregið umsóknir
sínar til baka. Allir þrír nefndu
lág laun íslenskra háskólakenn-
ara sem ástæðu, segir í ályktun
heimspekideildar Háskólans.
Heimspekideild telur ástæðu
til að vekja athygli á því að
launakjör þau sem boðin eru
kennurum við Háskóla íslands
gera skólanum illfært að keppa
um hæfustu starfsmenn og lýs-
ir áhyggjum sínum yfir afleið-
ingum þess fyrir framtíð
menntunar í landinu.
4-