Morgunblaðið - 29.08.1995, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Listasumar-Akureyrarbær
Garðyrkjufélag Akureyrar
Afmælishald í
söfnum bæjarins
NÚ ER Listasumar ’95 brátt á enda
en lok þess hafa verið miðuð við af-
mæli Akureyrarbæjar 29. ágúst.
Ýmislegt verður gert til að minnast
afmælisins og ber þar helst að nefna
afhjúpun styttu af Jóni Sveinssyni,
Nonna, við Nonnahús. Þá verða flest
söfn bæjarins opin eins og undanfar-
in ár og aðgangur ókeypis.
Minjasafnið verður opið kl. 11-17
og 20-23. í tilefni dagsins verður
flutt söngvaka í kirkju safnsins en
söngvökurnar voru fluttar á Listas-
umri nú í sumar og í fyrra við mikl-
ár vinsældir.
Nonnahús verður opið kl. 10-17
og klukkan 17 verður styttan af
Nonna afhjúpuð.
Davíðshús verður opið kl. 15-17
og kl. 20.30 verður þar flutt dagskrá
um Davíð Stefánsson.
Deiglan er opin kl. 11-18. Þar
stendur nú yfír sýning írskra og ís-
lenskra listamanna á gjömingum,
myndböndum og hljóðverkum. Þeir
eru Amanda Dunsmore, Dougal
McKenzie, Sean Taylor, Hannes Lár-
usson, Hildur Jónsdóttir, Magnús
Pálsson og Valborg S. Ingólfsdóttir
sem sýnir myndverkið Þijár tillögur
að sveitaferðum með nesti.
í Ketilhúsinu er hluti skúlptúr-
sýningarinnar sem staðið hefur á
Akureyri í ágúst og verður nú brátt
tekin niður. Það fer því hver að verða
síðastur að fá sér gönguferð um
svæðin þar sem verkunum er komið
fyrir. Hægt er að nálgast kort í
Deiglunni, Ketilhúsinu, Minjasafninu
og víðar.
TIMBURPALLARNIR í Háagerði 3 vöktu sérstaka athygli nefndarinnar.
Harður árekstur við Hlíðarbæ
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
EINS og sjá má er bíllinn handónýtur og nánast kraftaverk
að ökumaðurinn skyldi stíga út úr flakinu.
Ók undir kyrrstæðan heyvagn
urinn sá sitt ráð óvænna að sveigja
aftur inn á hægri vegarhelming
og lenti þá undir heyvagninum auk
þess sem bíllinn sem kom á móti
rakst utan í hlið bílgins.
Bíllinn sem skall á heyvagninum
er gjörónýtur. Ökumaðurinn tvi-
kjálkabrotnaði og var fluttur á
sjúkrahús en miðað við hve aðkom-
an var ljót þótti mikil mildi að hann
skyldi ekki slasast meira. Ekki urðu
slys á fólki í hinum bílnum.
MJÖG harður árekstur varð við
Hlíðarbæ norðan Akureyrar laust
fyrir kl. 14.30 síðastliðinn laugar-
dag. Þá lenti fólksbíll undir hey-
vagni og gjöreyðilagðist en öku-
maðurinn þótti sleppa ótrúlega vei
miðað við aðstæður.
Að sögn lögregluvarðstjóra ætl-
aði ökumaðurinn að fara fram úr
heyvagninum sem var kyrrstæður
á veginum með sprungið dekk. Þá
kom annar bíll á móti og ökumað-
GARÐASKOÐUNARNEFNDá
vegum Garðyrkjufélags Akur-
eyrar hefur nú ákveðið hvaða
garðar í bænum hljóta viður-
kenninggr árið 1995, en slíkar
viðurkenningar eru veittar ann-
að hvert ár. Með þessu framtaki
vill Garðyrkjufélagið hvetja
bæjarbúa til að stuðla að fegrun
bæjarins.
Eftirtaldir einkagarðar
hljóta viðurkenningu Garð-
yrkjufélags Akureyrar að þessu
sinni: Bakkasíða 3; eigendur
Unnar Arnórsson og Hugrún
Marta Magnúsdóttir. Duggu-
fjara 8; eigendur Bessi Skírnis-
son og Eiríksína Þorsteinsdótt-
ir. Háagerði 3; eigendur Hauk-
ur Tryggvason og Steinunn
Jónsdóttir. Þingvallastræti 20;
eigendur Krislján Jónsson og
fjölskylda.
Auk þess ákvað nefndin að
veita Hafnarstræti 92 viður-
kenningu en þar eru fyrirtækin
Bautinn, Smiðjan, ísbúðin og
Herrabúðin til húsa. Eigandi
hússins er Hafnarstræti 92 hf.
í garðaskoðunarnefnd sátu
Rebekka Sigurðardóttir, Arni
Steinar Jóhannsson og Ingi-
Handmenntakennarar í framhaldsskólum
Fagfélag stofnað til að
standa vörð um verkmenntir
SÍÐASTLIÐINN föstudag komu
fata- og textílkennarar í fram-
haldsskólum landsins saman til
fundar í Punktinum á Akureyri í
þeim tilgangi að stofna formlegt
félag starfandi kennara í þessum
greinum. Undirbúningsfundur
hafði áður verið haldinn og fulitrú-
ar hópsins fóru á fund Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra
tií að vekja athygli á stöðu greinar-
innar innan skólakerfisins.
Á stofnfundi félagsins kom
fram að handmenntakennsla í
framhaldsskólum hafi ekki fengið
mikið rými innan um „bóknáms-
pressu“ undanfarinna ára og að
markmið félagsins væri að efla veg
fagsins innan framhaldsskólanna.
Að sögn Sigrúnar Ingibjargar
Arnardóttur handmenntakennara
var talin rík þörf á því að stofna
félag kennara í fata- og textílgerð
í framhaldsskólunum en hún sagði
að félagið yrði þó ekki í neinni
samkeppni við félag handavinnu-
kennara í grunnskólunum heldur
væri lögð áhersla á samvinnu.
„Handmenntakennslan hefur
verið á niðurleið hér á landi og
við höfum dregist langt aftur úr
öðrum Norðurlandaþjóðum. Við
búum við þær aðstæður að hafa
of marga nemendur saman í einu
og of stuttan tíma. Það er ekki
raunhæft að ná viðunandi árangri
við þessar aðstæður því hand-
menntir krefjast mikillar einstakl-
ingskennslu og markmið okkar er
að það verði ekki fleiri en 8 nem-
endur í hverjum hópi,“ sagði Sig-
rún.
Verknám jafn nauðsyn-
legt og bóknám
í ályktunum stofnfundarins er
hin mikla kennsluskerðing sem
orðið hefur á handmenntakennslu
í grunnskólunum hörmuð og talið
er tímabært að gera úttekt á
kennslu verkmennta fyrr og nú.
Því er fagnað að víða um land eru
að myndast sprotar í
atvinnuskapandi verkefnum í
handverki, sem er bæði nýsköpun
og nytjaiist og tilraun tii að
endurvekja og nýta
menningararfleifð okkar. Minnt
er á að nauðsynlegt sé að
samræma námsefni í þessum
greinum í hinum ýmsu
framhaldsskólum og því beint til
menntamálaráðuneytisins að beita
sér fyrir úrbótum með aðstoð
fagfólks.
Sigrún gat þess að nú væri
komin upp umræða um nauðsyn
þess að efla verkmenntakennslu í
framhaldsskólunum en þau orð
vildi hún sjá í verki. Það væri talið
dýrt að kenna verkmenntir,
hóparnir væru fámennari og því
ekki eins góð nýting á
kennsluhúsnæði, en hún sagði að
slíkar úrtöluraddir mættu ekki
kæfa málið. Verknám væri jafn
nauðsynlegt og bóknám og
tölvufræðsla þegar horft væri til
framtíðar og þar gætu margir
fundið rétta hillu í lífinu.
Undirbúningshópurinn hlýddi á
fyrirlestur hjá fínnska
textílhönnuðinum Sirrka Könönen
og sat námskeið í silkimálun um
helgina þegar búið var að ganga
frá stofnun félagsins. Sigrún sagði
að ætlunin væri að hittast aftur á
námskeiði á Laugarvatni í vetur
og halda þá uppbyggingu félagsins
áfram.
Fegurstu
garðarn-
ir valdir
björg Eyfells. Að sögn Rebekku
var áherslan lögð á nýja garða
í þetta skipti en að tveimur
árum liðnum mun sérstaklega
verða horft til gamalla og gró-
inna garða, heildstæðra og fal-
legra gatna, frágangs lóða við
fyrirtæki og útileiksvæða
barna.
Niðurstöður
garðaskoðunarnefndar
Bakkasíða 3. Vel hefur tekist
til að samhæfa garð og hús.
Aðkoma sérstaklega falleg.
Garðurinn er allur mjög vel
hirtur og sérstaka athygli
nefndarinnar vakti matjurta-
garður og smekklegir safnkass-
ar fyrir garðaúrgang.
Duggufjara 8: Fallega upp-
byggður nýr garður í gömlu
hverfi. Val á grjóti og notkun
þess vakti sérstaka athygli
nefndarinnar. Skemmtilegar
tjarnir setja svip á garðinn og
samspil garðsins við tjarnar-
svæðið í innbænum er athyglis-
vert.
Háagerði 3: Vel hirtur og
fallegur garður. Urval trjáa og
runna og frábær útiaðstaða fyr-
ir fjölskylduna á timburpöllum
vakti sérstaka athygli nefndar-
innar. Skemmtilegar lausnir
varðandi hæðarmun á lóðinni.
Þingvallástræti 20: Nýupp-
gerður garður í gömlu hverfi.
Garðurinn er sérstaklega vel
hirtur og athyglisverðir blóma-
kassar á áberandi stað gleðja
augað.
Hafnarstræti 92: Nýuppgert
og endurbætt hús í fallegu um-
hverfi. Þrátt fyrir takmarkaða
möguleika vegna plássleysis
hafa umhverfismálin verið leyst
á mjög smekklegan hátt með
hellulögnum og gróðurbeðum.
Allur frágangur er fyrirtækjum
á miðbæjarsvæðinu til eftir-
breytni.
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
BAKKASÍÐA 3. Aðkoman þykir afar falleg.