Morgunblaðið - 17.09.1995, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 B SUNNUDÁGUR 17. SEPTEMBER 1995
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Hringjarar
Blaðaútgáfa óskar eftir góðum hringjurum
vegna skoðanakönnunar og áskriftaöflunar.
Gott verkefni fyrir rétt fólk.
Áhugasamir hringi í síma 552-2188 eða
552-6310 kl. 9-13 á skrifstofu blaðsins.
Starf
framkvæmdastjóra
Starf framkvæmdastjóra heilsugæsju og
sjúkrahúss Vestur-Barðastrandarsýslu á
Patreksfirði er laust til umsóknar.
Vakin er athygli á 30. gr. laga nr. 97 frá
1990 um að æskilegt sé að umsækjendur
hafi menntun eða reynslu í rekstri sjúkra-
stofnunar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 25. sept-
ember 1995. Umsóknum sé skilað til for-
manns stjórnar stofnananna, Steindórs Ög-
mundssonar, Túngötu 30, 460 Tálknfirði,
sem og veitir allar upplýsingar um starfið
í síma 456 2526 eða 456 2527.
„Au pair“ óskast
Sænsk læknisfjölskylda óskar eftir barngóðri
„au pair“, sem ekki reykir, til að gæta tveggja
barna, 5 og 8 ára, og hjálpa til við heimilis-
störf, sem fyrst til júníloka 1996. Möguleiki
á sænskunámi. Er búsett rétt utan við Lund.
Skrifleg svör með meðmælum sendist til:
Ola Lindén,
Malmgatan 51,
24131 Esl0v,
Svíþjóð.
Leikskólinn Öldukot
Öldugötu 19, Reykjavík,
óskar eftir leikskólakennara eða öðru uppeld-
ismenntuðu fólki í 100% stöðu.
Öldukot er skemmtilegur tveggja deilda leik-
skóli með 5 starfandi leikskólakennurum.
Leikskólinn er staðsettur í gamla góða
vesturbænum.
Þeir, sem hafa áhuga, komi í heimsókn eða
hringi í síma 560 4359.
Leikskólastjóri.
EIllRKIDIR
IIIIlSSSIil
IIIIIIIIIII
Frá Háskóla íslands
Líffræðingur eða lyfjafræðingur óskast til
rannsóknastarfa á rannsóknastofu í lyfja-
fræði lyfsala. Um er að ræða rannsóknir á
flutningi lyfja um húð og fela rannsóknirnar
m.a. í sér vinnu með tilraunadýr. Einnig er
unnið að rannsóknum á leysanleika og stöð-
ugleika lyfja í vatni, sem og öðrum grunn-
rannsóknum í lyfjafræði. Um verkefna-
ráðningu er að ræða. Æskilegt er að
umsækjandi geti hafið störf þann 1. október.
Upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Lofts-
son, prófessor, í síma 525-4464.
Umsóknir skulu sendar til starfsmannasviðs
Háskóla íslands, aðalbyggingu, 101 Reykja-
vík, fyrir 25. september nk.
Rannsóknastofa í lyfjafræði lyfsala er
reyklaus vinnustaður.
„Au pair“
Foreldrar. Er„au pair“ lausnin við gæslu
barnanna? AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM
hefur leyfi félagsmálaráðuneytisins til milli-
göngu um „au pair“ ráðningar til landsins.
Hafið samband og fáðið nánari upplýsingar.
AuPAIR
VISTASKIPTI & NÁM
ÞÓfíSGATA 26 101 REYKJAVlK SlMI 91-6223 62 FAX 91-62 96 62
SAMSTARFSFYRIRTÆKIAUPAIR HOMESTAY USA SEM TILHEYRIR SAMTÖKUNUM
WORLD LEARNING INC. STOFNUD ÁFIID 1932
UNDIR NAFNINU THE U.S. EXPERIMENTININTERNATIONAL UVING
OG ERUEIN AF ELSTU SAMTÖKUM Á SVIDIALÞJÓDA MENNINGARSAMSKIPTA
i HEIMINUM. SEM EKKIERU REKINIHAGNADARSKYNI
OG STARFA MED LEYFIBANDARÍSKRA STJÓRNVALDA.
Markaðsmál
- starfsmannamál
Vantar þig jákvæðan, reynslumikinn
og færan starfskraft?
Ung kona, með víðtæka menntun og góða
starfsreynslu á sviði markaðs- og starfs-
mannamála, mikla reynslu í sölu, samskiptum
við viðskiptavini og góða tungumálakunnáttu,
óskar eftir krefjandi og áhugaverðu starfi.
Vinsamlegast sendið upplýsingar til af-
greiðslu Mbl., merktar: „IS - 1111“, fyrir
22. september.
Öllum tilboðum verður svarað.
► MARKAÐSSTJÓRI
Lyfjafræðingur - Lífefnafræðingur
- eða skyld menntun.
Óskum eftir ad ráða áhugasaman starfsmann í krefjandi
sölu- og markaðsstarf hjá lyfjafyrirtæki í örum vexti.
Megin starfssvið
»- Kynning á lyfjum
»- Samskipti við lækna og lyfjafræðinga
► Yfirumsjón með heildsölu og innflutningi
*- Tilboðsgerð vegna útboða á lyfjum
*- Gerð markaðs og söluáætlana
»- Umsjón með gerð kynningarefnis
Viðkomandi þarf að hafa metnað og frumkvæði til að
taka þátt í uppbyggingu og þróun fyrirtækisins, sam-
skipta- og skipulagshæfileika og löngun til að takast á
við krefjandi verkefni.
Nánari upplýsirtgar aðeins veittar hjá Benjamín Axel
Ámasyni ráðningastjóra Ábendis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspumir sem
trvnaðarmál.
Vinsamlegast sæklð um sem fyrst, en I síðasta lagi fyrir
hádegi 25. september nk. á eyðublöðum sem liggja
frammi á skrifslofu okkar.
A B- <5 r^J>í
Tamningamenn
Bændasamtök íslands óska eftir reyndum
tamningamönnum í 5-12 mánuði að stóð-
hestastöðinni, Gunnarsholti.
Umsóknarfrestur er til 25. september nk.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Bænda-
samtaka íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg,
107 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell Karlsson
á kvöldin í síma 483-4507.
Kvensjúkdómalæknir
Sjúkrahús Vestmannaeyja óskar að ráða
kvensjúkdómalækni sem fyrst.
Um er að ræða 75% stöðu ásamt bakvöktum
og er það ný staða.
Umsóknarfrestur er til 30. september 1995.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 481 1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
HAGKAUF
Starfsmaður í bakarí
Óskum eftir að ráða starfsmann í bakarí all-
an daginn. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á
staðnum, ekki í síma, 18. september milli
kl. 9 og 12.
Hagkaup,
Kjörgarði.
Deildarstjóri
- útibússtjóri
Við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins eru tvær
stöður lausar til umsóknar:
• Staða deildarstjóra á almennri efnafræði-
deild. Umsækjandi þarf að hafa lokið fram-
haldsnámi í efnafræði eða hafa sambærilega
menntun.
• Staða útibússtjóra í Vestmannaeyjum.
Umsækjandi þarf að hafa lokið prófi í efna-
fræði, örverufræði, matvælafræði eða skyld-
um greinum.
Upplýsingar um menntun, fyrri störf og rit-
störf sendist stofnuninni fyrir 27. þessa
mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri
í síma 562 0240.
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
Mosfellsbær
Félagsmálastofnun
Mosfellsbæjar
óskar eftir starfsfólki til að annast liðveislu
við fatlaða og tilsjón í barnaverndarmálum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
vinnu með börnum og ungmennum.
Um er að ræða hlutastörf og vinnutími getur
verið breytilegur.
Nánari upplýsingar veita yfirmaður fjöl-
skyldudeildar og félagsmálastjóri í síma
566 8666 kl. 10.00 til 10.30 virka daga.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Félags-
málastofnun, Þverholti 3.
Félagsmálastjóri.