Morgunblaðið - 08.10.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1995 13
LISTIR
3-5 HÓPURINN er skipaður níu hljóðfæraleikurum.
Morgunblaðið/Sverrir
3-5 HÓPURINN efnir til kamm-
ertónleika á Litla sviði Borgar-
leikhússins næstkomandi þriðju-
dag klukkan 20.30. Verða þetta
fyrstu tónleikarnir í nýrri Tón-
leikaröð Leikfélags Reykjavíkur.
3-5 hópurinn er nýr af nálinni
en hann dregur nafn sitt af þess-
um tríó- og kvintettsamsetning-
um. Hópinn skipa níu góðkunnir
hljóðfæraleikarar: Elísabet Wa-
age hörpuleikari, Laufey Sig-
urðardóttir fiðluleikari, Sigur-
laug Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Sesselja Halldórsdóttir víólu-
leikari, Richard Talkowsky
sellóleikari, Asdís Arnardóttir
sellóleikari, Lovísa Fjeldsted
sellóleikari, Ólöf Sesselja Ósk-
arsdóttir sellóleikari og Guðrún
Birgisdóttir flautuleikari.
A efnisskránni kennir margra
grasa. Fyrst verður boðið upp á
Tríó fyrir fiðlu, selló og hörpu
eftir J. Ibert. Þá verður flutt
Musica Notturna a cinque op.
90 fyrir fjögur selló og hörpu
eftir L.V. Daldeu. Síðasta verkið
Fyrstu tón-
leikar 3-5
hópsins
fyrir hlé verður Divertimento
fyrir hörpu og strengjakvartett
eftir S. Natra. Að loknu hléi flyt-
ur 3-5 hópurinn verkið Voyage
au „Pays du Dentre" fyrir
flautu, fiðlu, víólu, selló og
hörpu eftir G. Pierne. Tónleik-
unum lýkur síðan á Quintette
fyrir hörpu og strengjakvartett
eftir P. Houdy.
Sjaldgæf hljóðfæraskipan
Elísabet Waage segir að þetta
sé skemmtileg blanda af róman-
tískum og nútímalegum verkum.
Verkin eru samin á árunum
1936-1984 og eru tónskáldin frá
Frakklandi, Hollandi, ísrael og
Kanada. „Við erum mjög ánægð
með þessa efnisskrá og það er
til dæmis mjög skemmtilegt að
geta flutt verk fyrir hörpu og
fjögur selló en sú hljóðfæraskip-
an er mjög sjaldgæf."
Elísabet lýkur lofsorði á fram-
tak Leikfélags Reykjavíkur.
Forvitnilegt verði að sjá hvernig
salir Borgarleikhússins reynist
sem tónleikasalir. „Við völdum
Litla sviðið. Við höldum að það
henti okkur best. Salurinn er
notalegur og síðan er nálægðin
við áheyrendur alltaf mikil-
væg.“
3-5 hópurinn var myndaður
fyrir tónleikana á þriðjudags-
kvöldið en Elísabet vonar að
framhald verði á samstarfinu.
„Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt en við höfum ekki
gert neina áætlun ennþá. Þegar
tónlistarfólkið er svona margt
er mjög erfitt að finna æfinga-
tíma sem hentar öllum. Vonandi
gefst okkur þó tækifæri til að
koma saman aftur.“
Tónlist fyrir alla hljómar á ný
NÚ hljómar Tónlist fyrir alla á ný
fjórða veturinn í röð og fyrstu þrír
tónlistarhóparnir að fara á kreik.
Enn bætast nú við skólar sem taka
þátt í Tónlist fyrir alla, fleiri nem-
endur og fleiri flytjendur. Alls munu
50 tónlistarmenn flytja á þrettánda
þúsund nemendum tónlist sína á
250 tónleikum í vetur, í Kópavogi
og Árnessýslu, á Suðurnesjum,
Vesturlandi og Vestfjörðum, auk
tónleika Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í mars á næsta ári. Strax nú
í byijun október verða 50 tónleikar,
Blásarakvintett Reykjavíkur leikur
fyrir grunn- og framhaldsskóla-
nemendur á Suðurnesjum, Sverrir
Guðjónsson, Camilla Söderberg og
Snorri Örn Snorrason flytja nem-
endum í Kópavogi tónlist sína og
flautuleikararnir Guðrún S. Birgis-
dóttir og Martial Nardeau ásamt
Pétri Jónassyni gitarleikara leika
fyrir nemendur i Borgarnesi, á
Stykkishólmi og Grundarfirði.
Veigamikill þáttur í þessu starfi
hefur verið opinbert tónleikahald í
tengslum við skólatónleika, þar sem
m.a. foreldrum gefst færi á að njóta
góðrar tónlistar með börnum sínum.
Þessir almennu tónleikar verða
sem hér segir í tengslum við skóla-
tónleikana 6.-13. október;
Grindavíkurkirkja mánudag 9.
október kl. 20. Flytjendur: Blásara-
kvintett Reykjavíkur.
Borgarneskirkja miðvikudag 11.
október kl. 20.00. Flytjendur: Guð-
rún S. Birgisdóttir og Martial
Nardeau, flautur, og Pétur Jónas-
son, gítar.
Ytri-Njarðvíkurkirkj a fimmtudag
12. október kl. 20.00. Flytjendur:
Blásarakvintett Reykjavíkur.
Stykkishólmskirkja fimmtudag
12. október kl. 20.00. Flytjendur:
Guðrún S. Birgisdóttir og Martial
Nardeau flautuleikarar og Pétur
Jónasson gítarleikari.
Digraneskirkja laugardag 14.
október kl. 17.00. Flytjendur:
Sverrir Guðjónsson kontratenór.
Camilla Söderberg, blokkflautur,
og Snorri Örn Snorrason, lúta.
Auk hópanna þriggja sem hér
er nefndir taka þessir þátt í Tónlist
fyrir alla í vetur: Tjarnarkvartett-
inn, Djasskvartett Reykjavíkur,
Hljómskálakvintettinn, Bernardel-
kvartettinn, Hrólfur Vagnsson
harmóníkuleikari og Pétur Grétar
Grétarsson slagverksleikari, söng-
konurnar Ágústa S. Ágústsdóttir
og Harpa Harðardóttir ásamt
Kristni Erni Kristinssyni píanóleik-
ara; Guðni Franzson klarinettuleik-
ari, Gunnar Kvaran sellóleikari og
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari
og blásarakvintett skipaður Hall-
fríði Ólafsdóttur, sem leikur á
flautu^ Hólmfriði Þóroddsdóttur,
óbó, Ármanni Helgasyni, klarinett,
Brjáni Ingasyni, fagott, og Emil
Friðfinnsyni, horn.
Leirlist
MYNPLIST
Stöðlakot
LEIRLIST
Margrét Salóme Guimarsdóttír. Opið
frá 14-18 alla daga til 15. október.
Aðgangur ókeypis.
ÞÆR eru óneitanlega dugmiklar
valkyijurnar sem standa að Art
Hún, því ekki er ýkja langt síðan
þær sýndu í Listhúsi í Laugardal,
og nú hefur ein þeirra, Margrét
Salóme Gunnarsdóttir, opnað sína
fyrstu einkasýningu í Stöðlakoti.
Jafnframt geta áhugasamir nálgast
gripi listakvennanna og myndverk
í hinu glæsilega húsi þeirra að
Stangarhyl.
Margrét Salome er öðru fremur
þekkt fyrir stór og ábúðarmikil
verk, þar sem blái liturinn og
skreytið eru í öndvegi, og þótt hún
rói á svipuð mið núna eru formin
í verkum hennar mun efnismeiri og
jarðbundnari, svo sem við gestinum
blasir um leið og hann gengur inn
í hið vinalega listhús. Þar taka á
móti honum sex íhvolf ker á stalli
og ytra byrði þeirra er grófara og
upprunalegra en áður hefur sést til
listakonunnar. Tilhneiginguna til
skreytisins hefur hún jafnframt
flutt yfir á innra byrði þeirra, sem
telst um sumt sérstæður gjörning-
ur.
Sjálf uppsetningin verður sterk-
ari og óvenjulegri við þessa innsetn-
ingu í rýmið, en aftur á móti er
erfiðara að gera sér grein fyrir
formrænum styrk hvers fyrir sig.
Kerunum sem öll nefnast „Dýpt“
er svo trúlega síður ætlað nytsemis-
hlutverk en að standa ein og sér,
og vega þannig salt á milli hins
hagnýta og að vera frístandandi
myndverk. Er komið er niður stig-
ann að ofan blasir miðsvegar við
stakt ker á hvítum stalli og tekur
sig mun betur út. Háir og aflangir
stjakar, sem bera réttilega samheit-
ið „Drangar“ virka meira sem hlut-
ir notagildis, en teljast þó mun nær
skúlptúrhugtakinu.
En svo eru á sýningunni nokkur
verk sem nefnast „Tónbrot“ og sem
eru ekkert annað en hreint og ótví-
rætt skúlptúrform, en bera þó meira
svip af því að vera mótuð af leirlist-
arkonu en myndhöggvara, því hér
skortir nokkuð á ótvíræða mótunar-
lega undirstöðu. Er um að ræða
fiðluform, sem gerandinn með-
höndlar mjög fijálslega, en dregur
þó fram heildarform hljóðfærisins,
þótt stundum.sé það einungis hálf-
mótað og sveigt. Hér höfðuðu verk-
in niðri, „Þögn“ (5) og „Minning"
(15) einkum til mín fyrir hina möttu
og jafnframt fögru áferð brennda
leirsins.
Styrkur sýningarinnar felst ótví-
rætt í því, að Margrét Salómé vinn-
ur af meiri formrænum krafti, hef-
ur nálgast náttúrulega eiginleika
leirsins, og er því öllu jarðbundnari
í listsköpun sinni en áður.
Bragi Ásgeirsson
Það er allt á floti
KVIKMYNPIR
Iláskólabíó,
Bí ó hö11 i n ,
Borgarbíó Akurcyri
VATNAVERÖLD(WAT-
ERWORLD) + +Vi
Leikstjóri Kevin Reynolds. Kvik-
myndatökustjóri Dean Semler. Tón-
list James Newton Howard. Aðalleik-
endur Kevin Costner, Dennis Hopp-
er, Jeanne Tripplehom, Tina Major-
ino. Bandarísk. Universal 1995.
FÁAR myndir hafa fengið jafn-
mikið, og oftar neikvætt umtal og
Vatnaveröld enda gekk á ýmsu á
meðan tökur stóðu yfir. Hún nýtur
þess vafasama heiðurs að vera dýr-
asta mynd kvikmyndasögunnar,
ólánið elti kvikmyndagerðina, risa-
vaxnar sviðsmyndir uppá milljónir
dala sukku til botns, leikstjórinn,
Kevin Reynolds, var rekinn, svo
mætti lengi telja. Það kemur svo á
daginn að Kevinarnir hafa gert
hressilega afþreyingu sem er betri
en maður þorði að vona. Okkur er
skellt inní framandi, forvitnilega
framtíðarveröld þar sem hafið er
umhverfis og allt um kring. Menn
eru búnir að fordjarfa Jörðinni svo
hún liggur undir vatni en sögur
herma að þurrlendi sé að finna en
enginn veit hvar. Lykillinn skráður
í húðflúri á unglingsstúlku.
Ævintýralegur efnisþráður en
samtölin eru furðulega veikbyggð
miðað við allan fjáarausturinn. Sem
betur fer eru stór nöfn hér innan-
borðs, kvikmyndatökustjórinn Dean
Semler, sem vann með Costner við
gerð Dansar við úlfa og tónlistar-
maðurinn James Newton Howard.
Báðir þessir frábæru listamenn eiga
bestu þættina í Vátnsveröld. Hins-
vegar er leikurinn upp og ofan.
Costner siglir lygnan sjó í heldur
léttu hlutverki einfarans „Sæfara",
stökkbreytts (er komihn með tálkn)
skipstjóra á tvíbytnu sem verður
þungamiðja atburðarrásarinnar. Je-
anne Tripplehorn er glæsileg kona
en afleit leikkona og Dennis Hopper
stendur sig lítið skár í enn einu
óþokkahlutverkinu.
Þrátt fyrir bærilegan árangur og
góðan á sumum sviðum vefst það
þó tæpast fyrir neinum að hér hefur
verið mikið bruðlað með fé. Nokkrar
sviðsmyndir hafa greinilega kostað
aurinn sinn annars kemur maður
ekki auga á hvað orðið hefur af á
annað hundrað milljónum dala.
Sæbjörn Valdimarsson
Útgáfuröðin Pottþétt
SPOR hf. og Skífan hf. hafa sam-
starf um útgáfu nýrrar útgáfuraðar.
Nafn útgáfunnar er „Pottþétt" og
er áætlað að hún komi út u.þ.b. árs-
íjórðungslega auk þess sem úrval
laga hvers árs kemur út í nóvember-
lok hvert ár, sem sagt fimm útgáfur
á ári. Það sem eftir lifir þessa árs
munu koma út „Pottþétt 1“ og „Pott-
þétt 2“ auk þess sem úrval ársins
kemur út á „Pottþétt 95“. Fyrirtæk-
in munu skiptast á um að sjá um
dreifingu útgáfanna og hefur það
komið í hlut Spors hf. að sjá um
fyrstu útgáfuna.
I kynningu segir: „Útgáfu safn-
platna, sem innihalda vinsælustu
lögin á hveijum tíma, hefur vaxið
fiskur um hrygg að undanförnu og
hefur þróunin orðið sú að í flestum
löndum Evrópu hafa slíkar útgáfur
jafnan náð metsölu. Safnplötur eiga
langmestan þátt í því að veruleg
aukning hefur orðið á sölu hljóm-
platna í Evrópu undanfarin ár og
er það von útgefendanna að með
útgáfu á „Pottþétt" röðinni verði
einnig stigið afgerandi skref í þá átt
hér á landi.“
Okkar árlega
BORÐDUKA UTSALA
hefst mánudag - Opnum kL 9.00
Straufríir matar- og kaffidúkar, allar stæröir -
Kínverskir handunnir dúkar - Blúndudúkar -
Flauelsdúkar - Jóladúkar smáir og stórir
Ódýr, straufrí borðdúkaefni 6
UppsetningaSúðin, Hverfisgötu 74,
sími 552 5270.