Morgunblaðið - 14.10.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.10.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 1.300.000 kr „YFIR/UNDIR" leiknum LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 7 FRÉTTIR Alþjóðlegur dagur hvíta stafsins á morgun ÍVIUI gunuictuiu/ t*UrKUll HELGI Hjörvar, framkvæmdastjóri, Ragnar Magnússon, formaður, og Halldór Sævar Guðbergs- son, ritari Blindrafélagsins (t.h.), sem unnið hefur að undirbúningi dagsins, kynntu dagskrána. Með gleraugunum fremst á myndinni gefst sjáandi kostur á að setja sig í spor blindra. Ráðherra gengur með blindum BLINDRAFÉLAG íslands efnir til göngu og dagskrár í Reykjavík í til- efni af alþjóðlegum degi hvíta stafs- ins sunnudaginn 15. október. Með bundið fyrir augu fer Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, fyrir hópi göngumanna frá Hlemmi kl. 14 áleið- is niður á Ingólfstorg. Páll hefur skipað starfshóp til að móta heildarstefnu í málefnum blindra og sjónskertra. Nefndina skipa fulltrúi Blindrafélagsins, ráð- herra og stjórnarnefnd um málefni fatlaðra. Ragnar Magnússon, formaður Blindrafélagsins, sagði að samþykkt hefði verið að efna til alþjóðlegs bar- áttudags blindra á heimsþingi blindra árið 1981. Dagurinn væri kenndur við hvíta stafinn og væri hann alþjóð- legt tákn blindra um allan heim. Fram kom að hvíti stafurinn væri hvort tveggja í senn þreifistafur og merkis- stafur blindra og sjónskertra. Sjón- skertir einkenndu sig stundum með því að bera hann samanbrotinn í hendi í umferðinni. Með því væri athygli Andlát ÞÓRAR- INN GUÐ- MUNDSSON ÞÓRARINN Guðmundsson hús- gagnabólstrari lést aðfaranótt síð- astliðins fimmtudags á Edenvale- spítala í Jóhann- esarborg í Suð- ur-Afríku. Bana- mein hans var krabbamein. Þórarinn, sem fæddur var 9. júní 1936, og því á 60. aldursári, hafði verið bú- settur í Suður- Afríku síðastlið- in 28 ár. Þar rak hann eigið fyrir- tæki. Hann lætur eftir sig sambýlis- konu og fjögur uppkomin börn. Blab allra landsmanna! vegfarenda vakin á því að blindur eða sjónskertur væri á ferðinni í umferð- inni. Hrósaði Ragnar vegfarendum sérstaklega fyrir hversu oft þeir byðu blindum og sjónskertum aðstoð sína. Halldpr Sævar Guðbergsson, sem hefur unnið að undirbúningi dagsins, minnti á að í hittifyrra hefði Her- mann Gunnarsson, sjónvarpsmaður, gengið með blindum niður Laugaveg- inn. I fyrra hefði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, slegist í hópinn og Páll Pétursson, félags- málaráðherra, ætlaði að fara fyrir göngunni frá Hlemmi niður á Ing- ólfstorg á sunnudaginn. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fullorðna Þegar komið verður niður á Ing- ólfstorg hefst skipulögð dagskrá, m.a. verða flutt stutt ávörp, börn fá tækifæri til að leika sér í leiktækjum á torginu og almenningi gefst kostur á að spreyta sig á því að nota hvíta stafinn með bundið fyrir augu. Á Kaffi Reykjavík verða veitingar seld- ar gegn vægu verði og hljórnsveitin Islandica leikur nokkur lög. í Hinu húsinu (gamla Geysishúsinu) verður efnt til kynningar á starfsemi Blindrafélagsins, Blindrabókasafns íslands og Sjónstöðvar íslands. Á sama stað fá gestir tækifæri til að lesa Morgunblaðið með hjálp tölvu og hljóðgervils. Blindrafélagið hefur í tilefni dags- ins fengið leyfi til að flytja norskan blindrahund til landsins. Blindum og sjónskertum gefst kostur á að æfa sig á honum í hátíðarsal MH í dag, laugardag, kl. 15.30. Lögreglan vill í tilefni af alþjóðleg- um degi hvíta stafsins vekja sérstaka athygli ökumanna á þeirri skyldu í umferðarlögunum að aka ávallt nægilega hægt miðað við aðstæður þegar ökutæki nálgast aldraðan eða fatlaðan vegfaranda eða vegfaranda sem ber auðkenni sjónskertra. Jafn- framt er minnt á þau ákvæði umferð- arlaganna þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að leggja bílum á gangstéttir eða fyrir göngustíga. - kjarni málsins! FRAMKVÆMDASTJÓRI KAUPMANNASAMTOK ÍSLANDS óska að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri samtakanna. Leitað er að kröftugum og framtakssömum einstaklingi, helst með háskólamenntun.sem nýtist í þetta starf. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á íslensku viðskiptalífi og hafa fylgst vel með og kynnt sér þær breytingar er orðið hafa í alþjóða viðskiptum og munu verða á íslensku viðskiptalífi, m.a. vegna GATT samkomulags og ESB. Vegna erlendra samskipta er góð tungumálakunnátta nauðsynleg. Viðkomandi þarf að geta tjáð sig vel í ræðu og riti. Launakjör samningsatriði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Guðna jónssonar, Háteigsvegi 7, og skal umsóknum skilað á sama stað. Umsóknarfrestur er til 18. október. GUÐNITÓNSSON RÁPCilÖF & RÁDNINGARhlÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22 DOMINO S PIZZA m SIMI 58-12345 Grensásvegi 11 • Höfðabakka 1 • Garðatorgi 7 Munið Domino's tilboðið: Þú kaupir eina pizzu og færð aðra fría ef þú ert með BINGÓLOTTOMIÐA. Nú getur þú einnig keypt miða hjá Domino's. Gildir okki um hoimsondingarl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.