Morgunblaðið - 14.10.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.10.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 15 l i I ► I I ) ) > D í I I V I I I í I I _________VIÐSKIPTI______ GM áformar smíði búa íPólIandi Varsjá. Reuter. GENERAL Motors-bifreiðafyrir- tækið hefur ákveðið að koma á fót bílaverksmiðju í Póllandi í kjölfar frétta um að GM hafi beðið lægri hlut í viðureign við Daewoo-verk- smiðjurnar í Suður-Kóreu um að taka við rekstri ríkisverksmiðjanna FSO. Deild GM í Þýzkalandi, Adam Opel AG., býðst til þess í bréfi til pólsku stjórnarinnar að leggja 400 milljónir þýzkra marka (280 millj- ónir dotlara) í áætlun um smíði 100.000 bíla á ári frá 1998 að sögn talsmanns pólska iðnaðarráðuneyt- isins. Stjómin fagnar boðinu, en kveðst þurfa nánari upplýsingar áður en formlegar samningavið- ræður geti hafizt. Sérfræðingur ráðuneytisins ger- ir ráð fyrir að Opel ráðist í að Samsung verksmiðja íBretlandi Cleveland, Englandi. Reuter. SAMSUNG, hinn kunni suður-kór- eski raftæknirisi, hefur opnað 450 milljóna punda verksmiðju á Norð- austur-England og þar fá 3.000 manns vinnu fyrir árið 2000. Kwang Ho Kim varastjórnar- formaður sagði að verksmiðjan, sem fær brezkan ríkisstyrk, yrði stökkpallur frekari útþenslu í lands- hluta, þar sem atvinnuleysi er meira en gengur og gerist. Markmiðið væri að gera verksmiðjuna að helztu framleiðslumiðstöð heims. Samsung staðfesti að fyrirtækið hygðist stofna 80 milljóna punda Evrópumiðstöð í London og þar munu 500 fá vinnu fyrir aldamót. Nýja verksmiðjan er í Billingham nálægt mynni Tees í Cleveland. Erlendir aðilar hafa ekki ráðizt í eins mikla fjárfestingu í Bretlandi síðan Nissan reisti nýja verksmiðju nálægt Sunderland 1986. Atvinnuleysi í Teeside er tæplega 50% meiri en annars staðar í Bret- landi og Samsung valdi staðinn vegna þess að framleiðslukostnaður þar er aðeins 10% hærri en í Kóreu og vegna 80 milljóna punda ríkis- styrks. Verksmiðjan er reist á 3.035 hektara landareign í eigu Sir John Hall, stjórnarformanns knatt- spyrnufélagsins Newcastle United og brautryðjanda Gateshead Metro Centre, einnar mestu verzlanamið- stöðvar Evrópu. ♦ ♦ ♦---- Swatch- mobile fær verksmiðju Strassborg. Reuter. MERCEDES-BENZ og svissneski úrframleiðandinn SMH leggja horn- stein að verksmiðju í bænum Sar- reguemines-Hambach um helgina. Þar hyggst sameignarfyrirtæki þeirra smíða bíla af gerðinni Swatchmobile, sem hafa vakið nokkrar efasemdir. Af þessu tilefni efnir sameignar- fyrirtækið, Micro Compact Car (MCC), til mikilla hátíðahalda. Mercedes, sem á 51% í MCC, og SMH hyggjast selja 200.000 „Swatchmobíla" á ári þegar þeir verða tilbúnir 1998. Bílana verður hægt að fá rafknúna eða með venju- legri vél. Þýzk blöð hafa gefið í skyn að vafasamt sé hvort orðið geti af áætluninni vegna ágreinings sam- starfsaðila. Stjórnarformenn MCC, Helmut Werner frá Mercedes og Nicolas Hayek frá SMH, verða viðstaddir hátíðahöldin til að hrekja sögusagn- ir um ósamkomulag um verkefnið. minnsta kosti hluta fjárfestingar- innar í iðnaðarbænum Mielec í Suður-Póllandi, þar sem fjárfestar fá 40% skattafrádrátt. Áður hafði GM hug á að taka við FSO-verksmiðjunum í Varsjá og gerði 340 milljóna dollara til- boð, en því var hafnað þar sem upphæðin væri ekki nógu há og gert væri ráð fyrir of mörgum upp- sögnum. GM heldur áfram að setja saman Opel Astra bíla í samvinnu við FSO og hefur lagt 20 milljónir dollara í það verkefni, þótt samningar hafi nánast tekizt við Daewoo. í ágúst skrifaði pólska stjórnin undir viljayfirlýsingu ásamt Da- ewoo um að kóresku verksmiðjurn- ar fengju 60% í sameignarfyrir- tæki, sem á að stofna á grunni FSO. Daewoo leggur 1.1 milljarð doll- ara í verksmiðjuna, sem á að smíða 220.000 farþegabíla fyrir árið 2001. Talið er að endanlegur samn- ingur verði undirritaður í október. Ákjósanlegt land Með því að komast yfir FSO í Póilandi fær Daewoo trausta fót- festu til aukinna umsvifa í Evrópu, því að Daewoo hefur þegar tekið við rekstri annarrar pólskrar bíla- smiðju, FSL. Áhugi bílaframleiðenda á Pól- landi hefur aukizt, því að þar er blómlegt efnahagslíf og stór mark- aður auk þess sem landið er vel í sveitt sett í gömlu austurblokkinni. Helzti bílaframleiðandi Póllands er Fiat Auto Poland SA, eign Fiat Auto SpA á Ítalíu, sem smíðaði rúmlega 130.000 bíla í fyrra. Ford Motor Co, Volkswagen, Mercedes Benz og Volvo setja einnig saman bíla í Póllandi. í september opnaði Ford 54 millj- óna dollara verksmiðju þar sem settir verða saman 30,000 Escort og Transit bílar á ári. Ekki verður unnið með fullum afköstum fyrr en síðar. Dalvik ff Ólafsfjörður Hrísey ý Grenivík 1 Raufarhöfn Súðavlk 1 Bolungarvík Ý ísafjörður 11 wwf Mosfellsbær 9WMW Seltjarnarnes Reykjavík fWWWWWWff fffffffffffffffffffff ffffffffffffffffffff fffffffffWWWf ffWWWWWf fffffffffffffffff ffffffffffffffff fffffffffffffff fffffffffffff ffffffff Reykjanesbær ffffffffffff Grindavík fffff fffffffffffff \Vestmannaeyjar fffffffffffffff Leikur sem breytir landsmönnum í milljónamœringa! * = Vinningshafi sem hlotið hefur eina milljón eða meira. -vertu viðbúinav vinningi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.