Morgunblaðið - 14.10.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 11
vakin sérstök athygli á að ekki sé
heimilt að sérmerkja bílastæðin nema
með samþykki bæjaryfirvalda. Bæj-
arráðssamþykktin hafi fullt gildi, þó
samningur um efni hennar hafi ekki
verið gerður, þar sem forráðamenn
Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. hafi.
samþykkt efni hennar. Bærinn hafi
því greitt fyrir og keypt óheftan,
ótímabundinn aðgang að bifreiða-
geymslunni, sem væri óbeinn eignar-
réttur og meiri réttur en leiguréttur.
Það væri því misskilningur að halda
því fram að bærinn hafí bílageymsl-
una á leigu. Fram kemur að bæjar-
lögmaður telji mjög ólíklegt að gjald-
þrot myndi leiða til riftunar þinglýst-
um afnotarétti, þar sem bæjarsjóður
hafi keypt þann rétt fullu verði. Rétt-
arstaða bæjarins yrði ekki betri með
beinum eignarrétti yfir bílageymsl-
unni.
Vegna svara bæjarlögmanns ósk-
aði Jóhann G. Bergþórsson eftir að
sex spurningum yrði svarað fyrir
næsta fund bæjarráðs.
Eignarréttur
en ekki leiga
í svari bæjarritara á fundi bæjar-
ráðs 5. október segir að umferðar-
réttur bæjarins hafi verið þinglýstur
21. september vegna beiðni bæjar-
ráðs. Síðan rekur hann hvernig
greiðsiur vegna bílastæðanna hafi
farið fram og segir að sú réttar-
óvissa sem hafi skapast sé vegna
tals bæjarráðsmanna um leigu bæj-
arins á bifreiðageymslunni. Hann sé
þeirrar skoðunar að ef til gjaldþrots
komi muni skiptastjóri ekki reyna
að rifta samningnum, en ef hann
reyndi það myndi það örugglega
ekki takast, þar sem bærinn hafi
greitt fullt verð fyrir þennan rétt.
Miðað við forsendur gæti hann ekki
séð að opinn umferðarréttur væri
síðri en beinn eignarréttur.
Enn nýjar hugmyndir Jóhanns
G. Bergþórssonar
/
Það næsta sem fréttist af málefn-
um Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. er
að Eyjólfi A. Kristjánssyni lögfræð-
ingi er enn á ný falið af Jóhanni
G. Bergþórssyni að fara yfir málefni
Miðbæjar Hafnarfjarðar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var hann beðinn um að semja kaup-
samning, byggðan á nýjum hug-
myndum Jóhanns, að lausn á vanda
Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. Samn-
ingurinn hefur verið kynntur í Mið-
bæjarnefnd en ekki í bæjarráði. Ing-
var Viktorsson bæjarsjtóri og for-
ráðamenn Miðbæjar Hafnarfjarðar
hf. tóku þátt í samningsgerðinni
ásamt þeim Jóhanni og Eyjólfi, en
enginn fulltrúi minnihlutans kom
þar að.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins felur samningurinn í sér
kaup á hótelturni og er kaupverðið
rúmlega 169,1 milij., sem felst í
yfirtöku veðskuldabréfa með ábyrgð
bæjarins sem hvíla á eigninni. Enn-
fremur með yfirtöku 10 millj. króna
víxils frá 15.9. 1994, með ábyrgð
bæjarins og tryggingu með veði í
eignarhluta, en víxiilinn með áfölln-
um vöxtum er í dag rúmar 11,9
milljónir. í ljós hefur komið að bæjar-
stjóri hefur þegar gengið frá greiðslu
víxilsins. Auk þess yfirtöku gjaldfall-
inna afborgana á íjórum eingarhlut-
um vegna gatnagerðargjalda með
bæjarábyrgð að hámarki 5 millj. og
loks greiðir bærinn 24 millj. vegna
endanlegs frágangs á hótelturni.
Þá er gert ráð fyrir að bærinn
kaupi bílakjallarann og greiði fyrir
hann tæpar 83,8 millj. með yfírtöku
10 veðskuldabréfa með bæjarábyrgð
að verðmæti 49,6 millj. með áföllnum
verðbótum og vöxtum. Að auki með
yfirtöku veðskulda með bæjarábyrgð
að verðmæti 24,5 millj. með áföllnum
vöxtum og verðbótum og loks með
yfirtöku veðskulda samkvæmt
skuldabréfi með veði í húsnæði sem
er í eigu bæjarsjóðs að upphæð 9,5
milij. með áföilnum vöxtum og verð-
bótum.
Fyrirvari er í samningnum um að
seljandi fái aflétt 51 millj. króna
veðbréfum ríkissjóðs á eigninni eða
setji fullnægjandi tryggingar. Einnig
að kaupandi nái samningi um lækkun
vaxta við eigendur veðkrafna. Loks
er tekið fram að í tengslum við samn-
inginn sé gert samkomulag sem
tryggi að ágreiningsmálum vegna
byggingarinnar sé lokið.
FRÉTTIR
Félagsmálaráðherra um þingsályktunartillögu Rannveigar Guðmundsdóttur
Ráðuneytisgögn
tillaga þingmanns
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði í umræðum á Alþingi
á fimmtudag um þingsályktunar-
tillögu um opinbera fjölskyldu-
stefnu að það væri einsdæmi að
fyrrverandi ráðherra tæki með sér
gögn sem hann hefði látið vinna
í ráðuneytinu og legði þau fram á
Alþingi undir eigin nafni, vitandi
það að núverandi félagsmálaráð-
herra hygðist leggja fram skylt
mál á þingi.
Félagsmálaráðherra sagði
þingsályktunartillöguna, sem
Rannveig Guðmundsdóttur er
fyrsti flutningsmaður að, uppfulla
af klisjum og að hún væri „væmið
kjaftæði á prenti“. Félagsmálaráð-
herra hefur skipað þriggja manna
nefnd til að vinna að undirbúningi
að opinberri stefnu í fjölskyldu-
málum og fyrir þeirri nefnd fer
Árni Gunnarsson, aðstoðarmaður
ráðherrans.
Ósmekkleg ummæli
Rannveig hugðist leggja fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp um þetta
mál fyrir kosningar síðastliðið vor
en af því varð ekki. Siv Friðleifs-
dóttir, þingkona Framsóknar-
flokksins, líkti athæfi Rannveigar
við það að starfsmaður í áhalda-
húsi tæki hjólbörur og skóflur með
sér heim þegar hann hætti störf-
um.
Rannveig sagði að málið hefði
verið undirbúið og unnið af sér
og aðstoðarmanni sínum, Braga
Guðbrandssyni, og aðrir í ráðu-
neytinu hefðu ekki komið nærri
því. Hún kallaði ummæli félags-
málaráðherra ósmekkleg. Félags-
málaráðherra spurði Rannveigu
hvort hún hefði tekið fleiri gögn
með sér úr ráðuneytinu sem hún
hygðist leggja fram sem þingskjöl
og svaraði Rannveig því neitandi.
dFullmark^)
• Prentborðar í flestar gerðir prentara.
• ISO 9002 gaeðaframleiðsla.
• Urvals verð.
J. áSTVfllDSSON HF.
Skipholfi 33, 105 Reykjavík, sími 552 3580.
BÍLASÝN1NG
Suzuki 1996
Sýnum um helgina 1996 árgerðirnar
af Suzuki Baleno og Suzuki Vitara
Vitara JLXi og Vitara V6
Einstaklega vel búnir 5 dyra jeppar
á verði frá aðeins kr. 2.148.000
Baleno 3ja og 4ra dyra vandaðir bílar í
millistærðarflokki á sérstaklega
hagstæðu verði frá aðeins
kr. 1.095.000
Komið og reynsluakið
Gerið verðsamanburð
Við leggjum áherslu á öryggið.
Nú koma allir Vitara jeppar með öryggisloftpúða (air bag)
fyrir ökumann og farþega í framsæti.
Opið laugardag og sunnudag frá 12-17
Suzuki - Afl og öryggi
$ SUZUKI
--✓///----------
SUZUKI BÍLAR HF.
SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100