Morgunblaðið - 14.10.1995, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
URVAL-UTSYN
SAMVINNUFERÐIR-LANDSYN
HEIMSFERÐIR
FERÐASKRIFSTOFAN FERÐASKRIFSTOFA
ALÍS REYKJAVÍKUR
FLUGLEIÐIR
Tegund
Selur forfallatryggingar
fyrir Tryggingu hf.
Selur forfallatryggingu frá VÍS
fyrir ferðir í áætlunarfiugi og
þeir sem kaupa alferð geta
greitt forfallagjald.
Gert ráð fyrir forfalla-
gjaldi, en það má
draga frá verði
ferðar ef fólk vill.
Selur forfalla-
tryggingu fyrir
Sjóvá-Almennar.
Þeir sem vilja geta
greitt forfailagjald fyrir
ferð I leigufiugi.
Selja forfallatryggingar
fyrir Tryggingu hf.
Verð
Hámarks-
bætur
Sjálfs-
ábyrgð
3% af verði alferðar
(pakkaferðar) eða 3,5%
af verði farseðils.
Forfallatrygging: 4,5% af
ferðakostnaði. Forfallagjald:
1.200 kr. fyrir fullorðna og 600
kr. fyrir börn.
1.200 kr.fyrir
fullorðna og 600 kr.
fyrir börn.
3,5% af verði ferðar.
1.200 kr. fyrir fullorðna |
og 600 kr. fyrir böm. j
3% af verði alferðar
(pakkaferðar) eða 3,5%
af verði farseðils.
Allur útlagður
ferðakostnaður.
Allur útlagður ferðakostnaður.
Allur útlagður
ferðakostnaður.
Allur útlagöur Allur útlagður Allur útlagður
ferðakostnaður. ferðakostnaður. ferðakostnaður.
Engin
Erigin hjá þeim sem hafa
forfallatryggingu. 1.800 kr. hjá
þeim sem greiða forfallagjald.
Engin
Engin
Engín
Engin
Forfallatrygging inni-
falin í pakkaferðum?
MÉR finnst að allir sem
kaupa dýra ferð ættu
að tryggja sig gegn for-
föllum með einhveijum
hætti,“ segir Hörður Gunnarsson,
formaður Félags ísienskra ferða-
skrifstofa. Hann segir að ný lög um
alferðir, eða pakkaferðir, sem verið
er að samræma víðast í Evrópu, fjalli
m.a. um forfallatryggingar. „Þá eru
þeir sem fara í alferð skyldaðir til
þess með lögum að tryggja sig gegn
forföllum. Þessi nýju lög viðurkenna
því þörf á almennri ódýrri tryggingu
á ferðalögum, sem er staðfesting á
því sem við höfum lengi haldið
fram.“
Skiptar skoðanir
Skoðanir á forfallagjaldi og for-
fallatryggingu hafa verið skiptar
gegnum tíðina. Vátryggingaeftirlitið
gerði t.d. athugasemd, árið 1991, við
að ferðaskrifstofur seldu forfalla-
tryggingar, enda væru þær með því
að fara inn á svið vátrygginga. Ferða-
skrifstofur kölluðu tryggingar sínar
forfallagjöld upp frá því. 1993 gerði
Verðlagsstofnun athugasemd um
ólöglegt samráð ferðaskrifstofa um
upphæð forfallagjalda og í Morgun-
blaðinu vorið 1994 var vakin athygli
á að forfallagjald væri hið sama hjá
öllum ferðaskrifstofum sem á annað
borð innheimtu það, en haft eftir
starfsfólki ferðaskrifstofa að það
væri algjör tilviljun. í skyndikönnun
sem gerð var í liðinni viku kom í ljós
að'forfallagjald er enn hið sama hjá
þeim sem innheimta það og ekki
könnuðust ferðaskrifstofumenn við
samráð nú frekar en fyrri daginn.
Líkur eru á að forfallatryggingar verði á
næsta ári innifaldar í verði pakkaferða.
Brynja Tomer kannaði framboðið og komst
m.a. að því að mestar takmarkanir eru á
tryggingum gegnum greiðslukortafyrirtæki.
FORFALLATRYGGING MEÐ GREIÐSLUKORTUM
Skilyrði
Sjálfs-
ábyrgð
Hámarks-
bætur
FARKORT og ATLASKORT mmm GULLKORT V,SA VISA og EUROLlSy
Greiða þarf einhvem hluta ferðakostnaðar með korti til að forfallatrygging gildi.
6.500 kr.
49.000 kr.
eru þrír; forfallatrygging vátrygg-
ingafélaga, sem ýmist er hægt að
kaupa hjá söluskrifstofu félagsins
eða ferðaskrifstofu, forfallagjald
sem ferðaskrifstofa innheimtir þegar
hún selur alferð, og forfallatrygging
sem greiðslukortafyrirtæki veita
korthöfum sem greiða hluta ferða-
kostnaðar með korti.
í meginatriðum er hið sama á
ferðinni í öllum tilvikum; fólk er að
tryggja sér endurgreiðslu á útlögð-
um ferðakostnaði eða hluta hans ef
það kemst ekki í fyrirhugaða ferð,
t.d. vegna andláts, líkamsmeiðsla
eða alvarlegra veikinda sem vottuð
eru af Iækni.
Skilmálar eru svipaðir, þótt trygg-
ingar sem kortafyrirtæki hafa milli-
göngu um séu augljóslega takmark-
aðri en aðrar. Þá er vert að árétta
að ferðaskrifstofur sem innheimta
forfallagjald taka sjálfar á sig
Sumarið 1994 heyrðust gagnrýn-
israddir um að ferðaskrifstofur skyld-
uðu farþega til að greiða forfalla-
gjald. í kjölfarið sendi Samkeppnis-
stofnun ferðaskrifstofum bréf þar
sem það álit stofnunarinnar kom
fram að farþega væri ekki skylt að
greiða forfallagjald. Einnig að ef for-
fallagjald ætti að vera hluti af ferð,
þyrfti það að vera innifalið í verði
hennar. í samtölum við starfsfólk á
ferðaskrifstofum í síðustu viku kom
fram að alls staðar væri farþegum í
sjálfs vald sett hvort þeir keyptu for-
fallatryggingu eða ekki, engin væri
skyldaður til að kaupa hana.
Valkostir á forfallatryggingum
©
ábyrgð og setja hver um sig eigin
skilmála. Sjálfsábyrgð er yfirleitt
engin, en Samvinnuferðir-Landsýn
gera þó ráð fyrir 1.800 kr. sjálfs-
ábyrgð við endurgreiðslu á ferða-
kostnaði í pakkaferð og í trygging-
um gegnum kortafyrirtæki er sjálfs-
ábyrgð 6.500 krónur.
Hjá Heimsferðum fengust þær
upplýsingar að gert væri ráð fyrir
forfallagjaldi í verðinu og því þyrftu
viðskiptavinir að taka sérstaklega
fram að þeir hefðu ekki áhuga á
slíkri tryggingu. Af ummælum
starfsfólks á íslenskum ferðaskrif-
stofum að dæma kaupa flestir, sem
kaupa dýrar ferðir, forfallatrygg-
ingu, en fólk virðist síður gera það
fyrir stuttar og ódýrar ferðir, t.d.
20 þúsund kr. helgarferðir.
Reglum bráðum breytt?
Hörður Gunnarsson, formaður
Félags íslenskra ferðaskrifstofa
kveðst vænta þess að í ársbyijun
1996 verði reglum um forfallatrygg-
ingar hér breytt í samræmi við þær
sem gilda í nágrannalöndum okkar.
„Um áramót gefa ferðaskrifstofur
út nýja bæklinga og ég reikna með
að þær kynni þar nýjar reglur um
þessar tryggingar. Mér finnst eðli-
legt að verð á forfallatryggingu sé
í samræmi við verð ferðar og á því
frekar von á að ferðaskrifstofur
hætti að innheimta sama forfalla-
gjald af öllum.“
Hjá Neytendasamtökunum feng-
ust þær upplýsingar að öðru hvoru
bærust fyrirspurnir um forfallagjöld
og forfallatryggingar og samtökin
hefðu haft afskipti af einu máli í
sumar. Sigríður A. Arnardóttir, lög-
fræðingur Neytendasamtakanna
sagði að tvær konur hefðu ætlað
saman í alferð til útlanda og ætlað
að deila hótelherbergi. „Önnur kon-
an komst ekki í ferðina vegna veik-
inda og hafði því rétt á endur-
greiðslu. Hin konan var aftur á
móti krafin um 30 þúsund króna
viðbótargjald vegna forfalla vinkon-
unnar og var krafan síðan lækkuð
í 15 þúsund krónur. Við höfðum
milligöngu í málinu og kröfðumst
þess að konunni yrðu endurgreiddir
þessir peningar. Málinu lyktaði með
því að það var gert, enda var engin
heimild fyrir slíkri gjaldtöku.“
l'flYGGIN'ö'
Verð
3% af ferðakostnaði 4,5% af ferðakostnaði 3,5% af ferðakostnaði 3,5% af ferðakostnaði
Hámarks- Allur útlagður Allur útlagður Allur útlagður Allur útlagður
bætur ferðakostnaður. ferðakostnaður. ferðakostnaður. ferðakostnaður.
Sjálfs-
ábyrgð
Alhugas.
Engin
Engin
Engin
Engin
Tryggingu þarf að kaupa innan viku frá því farseðill var
Tryggingu þarf að kaupa Tryggingu þarf að kaupa Tryggingu þarf að kaupa
sama dag og farseðil, og 14 dögum fyrir brottför. keyptur. Hægt er að kaupa tryggingu fram að bnottför. sama dag og farseðil, og 14 dögum fyrir brottför. sama dag og farseðil, og 14 dögum fyrir brottför.
Sölusýning á húsgögnum um helgina
Eftirlíkingar
af indverskum
antikhúsgögnum
„EFTIRLIKINGAR af gömlum
húsgögnum úr gegnheilum viði
eiga mikium vinsældum að
fagna, sérstaklega meðal ungs
fólks. Slík húsgögn eru yfirleitt
fremur dýr og því leitaði ég leiða
til að bjóða þau á lægra verði
en tíðkast í verslunum," segir
Margrét Kjartansdóttir, sem ný-
verið stofnaði innflutningsfyrir-
tækið Míra.
Til þess að sleppa við kostnað
af verslunarrekstri og ýmiss kon-
ar milliliðum flytur Margrét hús-
gögnin inn í gámum frá Indlandi
og hyggst selja þau á sölusýning-
um. Fyrsti gámurinn er kominn,
sölusýning var á Grand Hotel í
gær og heldur áfram í dag, laug-
ardag frá kl. 10-19 og á morgun,
sunnudag kl. 12-18. Þar verða
einnig seldir tágastólar á sér-
stöku tilboðsverði; ef stóll er
keyptur á 3.900 kr. fæst annar
með í kaupbæti.
Hagstætt verð
„Ég ætla að gera stórinnkaup
nokkrum sinnum á ári og selja
hverja sendingu á sérstökum
sölusýningum. Með þessu fyrir-
komulagi get ég boðið húsgögnin
í LITLU fjallaþorpi á Indlandi vinna 1500 menn á vöktum allan
sólarhringinn við að handsmíða húsgögn svipuð þeim sem smíðuð
voru fyrir 2000 árum.
á hagstæðu verði. Ég býst við
að margir noti tækifærið því
antikhúsgögn eru mjög eftirsótt
umþessar mundir.“
A sölusýningunni verða borð,
kommóður, bekkir, stólar og
fleira úr seasam-viði, sem rækt-
aður eru á Suður-Indlandi. Hús-
gögnin eru handunnin og því
engin tvö eins.
Margrét segir að húsgögnin
séu listasmiðar, sem eigi sér 2000
ára sögu. Sex fjölskyldur í litlu
fjallaþorpi á Indlandi auðguðust
mjög á að rækta ópíum, sem þær
síðan seldu til Kína í skiptum
fyrir gull. Vegna auðæfanna hóp-
uðust handverksmenn til þorps-
ins því þeir fengu nóg að gera
við að smíða og skera út listmuni
til að prýða hallir fjölskyldn-
anna. Eftir að ópíum var bannað
í Kína varð ríkidæmið að engu,
fjölskyldurnar fluttu burt og
handverksmennirnir leituðu sér
lífsviðurværis annars staðar. Um
aldamótin var Johri-fjölskyldan
ein eftir ásamt nokkrum verka-
mönnum sem bjuggu við bág
kjör. Arið 1971 vænkaðist hagur-
inn þegar bandarískur ferðamað-
ur heillaðist af útskornu listmun-
unum og flutti með sér heim.
Gömul og snjáð
í kjölfarið ákvað Johri að
framleiða eftirlíkingar af gömlu
húsgögnunum frá gullaldarárun-
um og hefja útflutning. Arið 1988
unnu 11 handverksmenn hjá hon-
um, en núna er eftirspurnin slík
að 1500 menn vinna á vöktum
allan sólarhringinn við að smiða
húsgögn, sem aðallega eru seld
til Bandaríkjanna og Bretlands.
Margrét segir að húsgögnin
hafi lítillega breyst í aldanna
rás. „Utskurðurinn er minni en
áður. Vesturlandabúar kjósa yf-
irleitt einfaldari húsgögn, þó
þeir vilji að þau líti út fyrir að
vera gömul og snjáð.“