Morgunblaðið - 14.10.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 35
FRÉTTIR
Fjölskyldulíf
okkar tíma
Endurmenntunarstofnun Há-
skólans heldur námskeið um fjöl-
skyldulíf okkar tíma; um sam-
skipti foreldra og barna og sam-
skipti hjóna mánudagskvöldið 16.
október.
Námskeiðið er einkum ætlað
feðrum og mæðrum í barnafjöl-
skyldum, sambúðarfólki og hjón-
um. Námskeiðið verður sex mánu-
dagskvöld og lýkur mánudaginn
20. nóvember.
Fjallað verður um þær breyt-
ingar sem orðið hafa á fjölskyld-
unni á síðustu áratugum og þau
áhrif sem þau hafa haft á hjóna-
band, uppeldi og kynslóða-
samksipti. Komið verður inn á lífs-
skeið íjölskyldunnar, tjáskipti,
náin tengsl og uppbyggilegar leið-
ir í gleði og sorg. I fyrirlestrinum
er byggt á fræðilegum kenningum
um fjölskyldu, foreldrahlutverk
og hjónaband og miðlað rann-
sóknarniðurstöðum um það efni.
Einnig er unnið út frá dæmum
og ráð gert fyrir rými til fyrir-
spurnar og umræðna.
Fyrirlesarar verða fjölskyldu-
fræðingarnir og félagsráðgjafarn-
ir Nanna K. Sigurðardóttir, MSW,
og dr. Sigrún Júlíusdóttir, dósent
við félagsvísindadeild Háskólans.
Skráning og allar frekari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu
Endurmenntunarstofnunar HÍ.
Friðarkapp-
hlaup fyrir
Sameinuðu
þjóðirnar
TVEGGJA-mílna kapphlaup (3,2
km) hefst á morgun, sunnudag,
kl. 14, við Ráðhús Reykjavíkur.
Þessi keppni, sem er á vegum Sri
Chinmoy- maraþonliðsins, hefur
verið haldin á hveiju ári síðan
1988 víða um heim.
Hlaupið er til heiðurs Samein-
uðu þjóðunum og hlutverki þeirra
í vaxandi friðarfjölskyldu mann-
kyns. í ár er sérstaklega verið að
halda upp á 50 ára afmæli sam-
takanna en stofndagur þeirra var
24. október 1945. Mörg hlaupin
fara fram við Sri Chinmoy friðar-
blómganir, á stöðum sem hafa
verið tileinkaðir málstað heims-
friðar s.s. í Ottawa, Reykjavík,
við Nigara-fossana og Matter-
horn. Hlaup þetta er haldið í borg-
um víðsvegar um heim og er öllum
niðurstöðum safnað saman til að
finna alþjóðlega sigurvegara í öll-
um flokkum.
Á morgun er í fyrsta sinn keppt
hér á landi og verður keppt í eftir-
töldum flokkum karla og kvenna:
49 ára og yngri (7 verðlaun),
50-59 ára (3 verðlaun) 60-69
ára (2 verðlaun) og 70 ára og
eldri (1 verðlaun).
Skráning hefst við Ráðhúsið
kl. 12 og er þátttaka ókeypis en
bolir verða til sölu á staðnum.
Teppauppboð
á Hótel Sögu
GALLERÍ Borg heldur uppboð á
Hótel Sögu sunnudaginn 15. októ-
ber kl. 20.30. Boðin verða ekta
handunnin persnesk teppi, brons-
styttur og handmálað kínverskt
postulín.
Það er algengt að persnesk
teppi séu boðin upp hjá stóru
uppboðshúsunum erlendis og hef-
ur Gallerí Borg notið aðstoðar
danska teppasérfræðingsins Willy
Sorensen frá Orient Art, sem hef-
ur áratuga reynslu af teppaupp-
boðum.
Gallerí Borg hefur boðið honum
til landsins og mun hann svara
fyrirspurnum um teppin í Gallerí
Borg við Austurvöll laugardaginn
Fuglaskoðun við Grafarvog
FUGLASKOÐANIR að vetrar-
lagi hefjast á ný með gönguferð
í kringum Grafarvog og hugað
verður að fuglum og öðru því
sem áhugavert kynni að verða
á vegi fuglaskoðara.
Sunnudaginn 15. október .
verða reyndir fuglaskoðarar
með fjarsjár til taks frá kl.
14-16.30 við pósthúsið við
Höfðabakka. Gengið verður
andsælis í kringum Grafarvog
og farið yfir Gullinbrú í lokin.
í fréttatilkynningur segir
m.a. að á leirum vogarins hafi
sést allt að 300 jaðrakanar.
Sennilegt er að þetta sé stærsti
hópur þessarar tegundar sem
sést hefur á íslenskum leirum.
Þar sem nokkuð er liðið á haust-
ið er líklegt að mikið af jaðrak-
önum séu farnir til vetrarstöðv-
anna. Aðra vaðfugla eins og
heiðlóur, sendlingar, tildrur
o.fl. má búast við að sjá í nokkr-
um mæli. Þá má búast við stokk-
öndum, rauðhöfðaöndum, urt-
öndum, toppöndum, gulöndum,
æðarfugli, hettumáfi, storm-
máfi, svartbaki, hvítmáfi o.fl.
Þá spillir aldrei hið óvænta eins
og t.d. fálki eða smyrill.
14. og sunnudaginn 15. október
kl. 12-18.
Um hundrað teppi verða boðin
upp, af öllum stærðum og gerðum
og er verðmæti þeirra allt frá
10.000 kr. upp í 300.000 kr. sem
er „fínn persneskur Tabriz“,
205x152 sm.
Sigurbjörn
biskup í Eyjum
SIGURBJÖRN Einarsson, biskup
og frú Magnea Þorkelsdóttir
heimsækja Landakirkju í Vest-
mannaeyjum um helgina. Sigur-
björn flytur erindi í safnaðarheim-
ilinu laugardaginn 14. október kl.
17 undir heitinu: Kristin hug-
leiðsla.
í erindinu leiðir Sigurbjörn
áheyrendur inn í helga dóma
bænar og íhugunar sem fylgt
hafa kristninni allar aldir og allt
til okkar daga. Heitt kaffi verður
á könnunni og gefinn kostur á
fyrirspurnum úr sal á eftir.
Á sunnudaginn 15. október
predikar Sigurbjöm og flytur
blessun við almenna guðsþjónustu
í kirkjunni. Sérstök samvera verð-
ur í boði fyrir börnin meðan á
predikun og altarisgöngu stendur
en að messu lokinni býður Kvenfé-
lag Landakirkju til messukaffis í
safnaðarheimilinu.
Útivist
Ferðaröðin
Forn frægða-
setur
BESSASTAÐIR verða heimsóttir
sunnudaginn 15. október í ferða-
röðinni Forn frægðasetur sem
Útivist stendur fyrir.
Farið verður með langferðabif-
reið frá Umferðarmiðstöðinni kl.
10.30 suður á Bessastaði. Þar
mun Einar Laxness sagnfræðing-
ur stikla á stóru um sögu Bessa-
staða og Guðmundur Ólafsson
fornleifafræðingur greina frá
fornleifarannsóknum á staðnum.
Að því loknu geta þátttakendur
valið um að fara með langferðar-
bifreiðinni til baka eða ganga
gömlu alfaraleiðina frá Bessastöð-
um yfir Garðahraun með Arnar-
nesvík og yfir Arnarneshæð að
þingstaðnum í Kópavogi og fara
með langferðabifreiðinni þaðan
eða í þriðja lagi ef gott sjóveður
og aðrar aðstæður leyfa, ganga
niður á Skansinn og láta ferja sig
yfir Skeijafjörð að Austurvör í
gamla Skildinganeslandinu og
ganga þaðan.
Göngufólk fær sérstimpluð
göngukort sem viðurkenningu
fyrir þátttöku.
Lj ósmyndasýn-
ing í Tónabæ
LJÓSMYNDASÝNING, sem hald-
in er í framhaldi af Ljósmynda-
maraþoni Tónabæjar 1995, verður
opnuð í dag, laugardaginn 14.
október, kl. 13.
Verðlaunaafhending verður kl.
14, en þá mun dómari keppninn-
ar, Ragnar Axelsson, afhenta
verðlaun. Maraþonið var styrkt
af Morgunblaðinu, Ilford og Beco.
Sýningin stendur til kl. 17 og
er einnig á mánudag og þriðju-
dag. Sýningin er öllum opin og
eru allir hvattir til að mæta og
sjá hvað unglingar eru að viðhaf-
ast í dag.
Dagur harm-
onikunnar
HARMONIKUFÉLAG Reykjavík-
ur stendur fyrir fjölskyldu-
skemmtun í Danshúsinu í
Glæsibæ við Álfheima sunnudag-
inn 15. október kl. 15.
Fram koma m.a. Karl Jóna-
tansson, Garðar Olgeirsson frá
Hellisholtum, tríó þeirra Ulrics
Falkner, Sigríðar Norquist og
Lýðs Benediktssonar auk Létt-
sveitar Harmonikufélags Reykja-
víkur.
Eftir kaffihlé gefst gestum
kostur á að stíga dans undir harm-
onikutónlist Léttsveitar HR.
Kaffisala
Kvenfélags
Karlakórs
Reykjavíkur
KVENFÉLAG Karlakórs Reykja-
víkur verður með kaffisölu í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14, sunnu-
daginn 15. október. Húsið verður
opnað kl. 14.
Við kaffihlaðborðið mun Karla-
kór Reykjavíkur syngja nokkur
lög.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu
Ríkið aflétti
sköttum af al-
menningsvögnum
Á AÐALFUNDI Sambands sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
var ítrekuð áskorun til ríkisvalds-
ins um að aflétta sköttum og öðr-
um álögum á almenningssam-
göngur í landinu. Tekjur ríkisins
af starfsemi Strætisvagna Reykja-
víkur og Almenningsvagna séu
rúmar 110 milljónir á ári, eða um
10% af heildargjöldum fyrirtækj-
anna.
Fundurinn samþykkt enn frem-
ur að beina þeim tilmælum til
aðildarsveitarfélaga að þau sam-
ræmdu reglur um ferðaþjónustu
fatlaðra, svo sem þjónustutíma,
þjónustusvæði, aðgengi, forgangs-
röðun og gjaldtöku. Lagt er til að
sérstakur samráðshópur sveitarfé-
laganna verði skipaður og honum
falið að vinna tillögur að samræm-
ingu.
Aukin fjárveiting til löggæslu
Samþykkt var að halda áfram
vinnu tillagna um samstarf sveit-
arfélaganna í málefnum grunn-
skólans og að skipuð verði nefnd
um þá vinnu. Fundurinn skoraði á
þingmenn Reykjavíkur- og
Reykjaneskjördæma að beita sér
fyrir auknum fjárveitingum til lög-
gæslu á höfuðborgarsvæðinu. íbú-
um hafi fjölgað um 8% frá árinu
1989 en á sama tímabili hafi fjár-
veitingar til löggæslu lækkað um
15% að raungildi. Á sama tíma
eru kröfur til lögreglumanna
auknar, verksvið þeirra víkkað og
tíðni afbrota hefur vaxið. Afleið-
ingin sé lakara eftirlit með afbrot-
um og glæpum og minna öryggi
fyrir almenna borgara.
Tekjuskerðing verði bætt
Fundurinn beinir því til ríkis-
stjórnar og Alþingis að sveitarfé-
lögunum verði bætt tekjuskerðing-
in, sem ríkisstjórnin tók ákvörðun
um í tengslum við gerð kjarasamn-
inga fyrr á árinu með því að heim-
ila frádrátt frá tekjum við álagn-
ingu skatta framlög launþega í
lífeyrissjóð. Er þess krafist að
sveitarfélögum verði bætt tekju-
skerðingin með því að auka hlut-
deild útsvars á kostnað tekju-
skatts.
Loks var samþykkt að beina
þeim eindregnu tilmælum til Sam-
bands ísl. sveitarfélaga að við end-
urskoðun tekjustofna sveitarfé-
laga vegna flutnings grunnskól-
anna til þeirra og nýrra úthlutun-
arreglna Jöfnunarsjóðs verði fullt
tillit tekið til mismunandi stöðu
■sveitarfélaga vegna einsetningar í
grunnskólum.
Nýr formaður
Þroskahjálpar
LANDSÞING Landssamtakanna
Þroskahjálpar var haldið að Hótel
Sögu 6.-8. október sl. Á lands-
þinginu lét Ásta B. Þorsteinsdóttir
af formennsku eftir 8 ár. Nýr for-
maður samtakanna er Guðmundur
Ragnarsson, Reykjavík.
Samhliða landsþinginu var
haldin ráðstefna með yfirskriftina
„Unglingar með fötlun og fjöl-
skyldan". Auk þess héldu um-
ræðuhópar Þroskahjálpar, sem
skipaðir eru þroskaheftu fólki, ráð-
stefnu um liðveislu og upplýsingar
á auðskildu máli. Sérstakur gestur
þingsins var Henning Furulund frá
Noregi. Henning er þroskaheftur
og flutti mjög fróðlegan fyrirlestur
um nauðsyn þess við miðlun upp-
lýsinga til almennings að sérþarfir
þroskaheftra væru hafðar í huga.
Hann skoðaði einnig nokkrar
stofnanir og þjónustufyrirtæki
með tilliti til þess hversu auðvelt
væri fyrir þroskaheftan mann að
skilja upplýsingar þeirra. Niður-
staða hans var t.d. sú að leiða-
kerfi Strætisvagna Reykjavíkur
væri íílskiljanlegt.
Á þinginu var samþykkt ályktun
þar sem því er harðlega mótmælt
að 133 milljónir af eyrnarmerktum
tekjustofni framkvæmdasjóðs fatl-
aðra renni í ríkissjóð. Einnig voru
■ HEIMSKRINGLAN, Háskóla-
bíó og Sambíóin stóðu fyrir „Wat-
erworld"- og AIWA-leik í Heims-
kringlunni vikuna 29. september til
6. október. Fleiri hundruð manns
tóku þátt í leiknum þar sem þátttak-
endur gátu unnið „Waterworld“-boli
og AIWA-ferðageislaspilara. Ingólf-
ur Þorsteinsson nemi á þriðja ári
í Verslunarskólanum datt í lukku-
pottinn og hlaut geislaspilarann.
samþykkt harðorð mótmæli gegn
því að fjárhæð bóta almanna-
trygginga skuli nú alfarið vera háð
geðþóttaákvörðunum Alþingis en
ekki tengd við verðlag eða kaup-
gjald í landinu.
Því var fagnað að nokkur sveit-
arfélög hafa lýst áhuga á því að
yfírtaka þjónustu fatlaðra. Jafn-
framt var þeirri skoðun lýst að
grundvöllur þess að vel takist til
við tilfærsluna sé að nægjanlegt
fjármagn verði tryggt. Einnig var
fagnað lokun vistheimilisins Sól-
borgar á Akureyri og einnig því
að útskriftir væru hafnar af Kópa-
vogshæli.
I menntamálum var lýst yfír
stuðningi við tillögur um úrbætur
á námstilboðum fyrir fatlaða í
framhaldsskólum og skorað á Al-
þingi að tryggja nægjanlegt ^ár-
magn til að framkvæma tillöguna.
Landsþingið samþykkti að beina
þeim eindregnu tilmælum til
rekstraraðila stofnana fyrir fatl-
aða að sjá til þess að þeir sem þar
dvelja séu slysátryggðir. Að lokum
var harmað að ekki var tekið tillit
til óska samtaka fatlaðra um að
tryggt væri með afgerandi hætti
í mannréttindakafla stjórnarskrár
íslands að ekki mætti mismuna
fólki með fötlun á neinn hátt.
-leikur að læra!
5
------------------------.... 03
Vinningstölur 13. okt. 1995
10*12»16*19*20823*28
lildri úrslit á sipsvara 568 1511