Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 11
Hreimurinn virkaði tilgerðarlegur,
persónan varð fyrir vikið hálfaula-
Ieg í stað þess að vera rödd skyn-
seminnar, eins og í sögu Stokers.
Bergljót Arnalds túlkaði Lucy sem
barnalega fremur en „sexí“ og því
komst hinn kynferðislegi undir-
tónn í sambandi hennar og Drak-
úla (sem aðstandendur sýningar-
innar leggja áherslu á í leikskrá
og viðtölum) illa til skila. Rósa
Guðný Þórsdóttir náði betur að
sýna togstreituna í viðbrögðum
sínum við aðdráttarafli vampír-
unnar. Samleikur Rósu Guðnýjar
og Guðmundar Haraldssonar var
hins vegar veikur, þau voru ekki
trúverðugt par. Guðmundur stóð
sig mun betur í byrjun sýningar-
innar þegar hann var fangi í kast-
ala Drakúla, en sem elskandi eig-
inmaður; í því hlutverki var hann
helst til aumingjalegur. Sunna
Borg og Aðalsteinn Bergdal voru
í nokkrum smáhlutverkum og
stóðu sig ágætlega.
Michael Scott er trúr bók-
menntaverkinu í leikgerð sinni.
Jafnvel of trúr því hann leitast við
koma miklu af söguþræðinum,
sem í skáldsögunni er í formi
bréfa, til skila með upplestri per-
sóna og með því að láta þá ávarpa
áhorfendur. Eg velti því fyrir mér
hvort ekki hefði að ósekju mátt
stytta nokkur slík atriði, því þau
virka mjög „bókmenntaleg".
Nokkur niðurskurður hefði komið
sýningunni til góða, því hún er
löng (um þrír tímar) og ekki laust
við að hún sé langdregin á köflum.
Niðurstaðan hlýtur að vera sú
að þessi sýning sé í heild ansi
mistæk. Margt er prýðisvel gert,
en ágallarnir eru of margir, þótt
sumir þeirra, eins og leikur og
samleikur, gætu batnað með tím-
anum.
Soffía Auður Birgisdóttir
MISTÆKUR
DRAKÚLA
LEIKLIST
Lcikfclag Akureyrar
DRAKÚLA
eftir Bram Stoker Leikgerð: Michael
Scott. Islensk þýðing: Þórarinn
Hjartarson og Ragnheiður Ólafsdótt-
ir. Leikstjóri: Michael Scott. Sviðs-
mynd og búningar: Paul McCauley.
Tónlist: Michael Scott. Lýsing: Mic-
haél Scott og Ingvar Björnsson. Leik-
endur: Viðar Eggertsson, Sigurður
Karlsson, Rósa Guðný Þórsdóttir,
Valdimar Örn Flygenring, Skúli
Gautason, Guðmundur Haraldsson,
Bergljót Amalds, Sunna Borg, Aðal-
steinn Bergdal og íris Tanja. Föstu-
dagur, 13. október
UNGUR írskur leikhúsmaður,
Michael Scott, á stóran þátt í
fyrstu uppsetningu Leikfélags
Akureyrar á þessum vetri. Hann
leikstýi’ir eigin leikgerð á einni
frægustu skáldsögu allra tíma:
sögunni af greifanum blóðþyrsta,
Drakúla. Að auki hannar hann
sjálfur lýsingu sýningarinnar og
sér um tónlistina. Landi hans,
Paul McCauley, á heiðurinn af
sviðsmynd og búningum, og er
umgjörðin sem þeir félagar skapa
sýningunni öll hin ágætasta. Nýt-
ing á litlu sviðinu er útsjónarsöm,
lýsingin er vel heppnuð, bæði
smart og falleg á köflum og átti
stóran þátt í að skapa viðeigandi
stemmningu á sviðinu.
Búningar voru fallegir og at-
hyglisvert að McCauley forðast
klisjur, eins og rauðar og svartar
samsetningar, sem hafa verið ráð-
andi í túlkunum á Drakúla á sviði,
tjaldi og myndverkum. Búningur
Drakúla greifa var með óvenjuleg-
um hætti, græn síð skikkjan
minnti helst á eðlu, og er gaman
að sjá slíka tilbreytingu á gamal-
grónu gervi.
Hönnun á ytri umbúnaði sýn-
ingar og leikstjórn er tvennt ólíkt,
og það sannast á þessari sýningu.
Verið getur að tungumálaerf-
iðleikar hafi átt sinn hlut í því að
veiki hlekkur sýningarinnar snýr
að leik, samleik og textaframburði
leikara. Leikararnir skila afar mis-
jöfnum leik í þessari uppfærslu.
Fyrstan má telja leikhússtjórann
í titilhlutverkinu og skemmst frá
því að segja að Viðar Eggertsson
sýnir afbragðsleik; er mátulega
sióttug, iostafull og ógnvekjandí
vampíra, ef eitthvað þá mætti
hann kannski leggja meiri áherslu
á einsemd og þjáningu persónunn-
ar. Valdimar Orn Flygenring vakti
lukku í hlutverk brjálæðingsins
Renfields og var dauðastund hans
óhugnanlegasta atriði sýningar-
innar. Hlutverk hinna þriggju
ungu manna, hr. Homwoods
(Valdimar Örn), Seward Iæknis
(Skúli Gautason) og Jonathans
Harker (Guðmundur Haraldsson)
runnu nokkuð saman, túlkun
þeirra var of keimlík, vantaði ein-
hver sérkenni í persónusköpun
hvers og eins.
Sigurð Karlsson skorti hins veg-
ar ekki sérkenni í persónu prófess-
ors Abrahams Van Helsing, sem
talar „með útlendum hreim“. En
tungutak hans var ósannfærandi.
BARNALÆKNAÞJÓNU STAN
DOMIJS MBDTCA
Frá og með 16. október 1995 hafa
eftirtaldir barnalæknar opnað stofu eða
breytt stofutíma sínum í Domus Medica.
Guðmundur Ásgeirsson
Herbert Eiríksson
Ingibjörg Georgsdóttir
Jón R. Kristinsson
Katrín Davíðsdóttir
Kristleifur Kristjánsson
Ólafur Gísli Jónsson
Steingerður Sigurbjörnsdóttir
Úlfur Agnarsson
Viðar 0. Eðvarðsson
Pórður Þórkelsson
Upplýsingar og tímapantanir
í síma 563-1010:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 11-15
Sunnudaga kl. 19-22
Ath. Gengið inn um aðaldyr frá Egilsgötu.
9510