Morgunblaðið - 15.10.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 15
Mecklenburg-Vorpommern er
eitt af nýju sambandsríkjunum.
Um þetta svæði sagði Otto von
Bismarck, járnkanslarinn, sem
sameinaði Þýskaland árið 1871,
að þangað myndi hann flýja þegar
byltingin yrði vegna þess að þar
gerðist allt einni öld síðar en ann-
ars staðar í Evrópu.
Nú virðist biðin hins vegar ekki
ætla verða svo löng. í Rostock rísa
skipasmíðastöðvar og í höfuðborg
landsins, Schwerin, er alls staðar
verið að byggja.
Ernst-Jiirgen Walberg, einn
stjórnenda norður-þýska útvarps-
ins (NDR) í Mecklenburg-
Vorpommern, fluttist til Schwerin
frá Vestur-Þýskalandi skömmu
eftir sameininguna og hann sagði
að sér væri orðið um megn að
hlusta á fagurgala stjórnmála-
mannanna. Þeir töluðu um „land
í blóma“ (blúhende Landschaften),
en málið væri ekki svo einfalt. Enn
væri breitt bil milli Vestur- og
Austur-Þjóðveija.
Ekki gert upp við
fortíðina
Walberg kvaðst þeirrar hyggju
að ekki hafi verið gert upp við
fortíðina, við tæplega hálfrar aldar
sögu Þýska alþýðulýðveldisins.
Hann ákvað að gera þáttaröð
undir heitinu „Rifjað upp fyrir
framtíðina“ og bjóst við að áhugi
yrði á því að senda þáttinn út um
allt Þýskaland. Það var öðru nær.
Engin útvarpsstöð í vesturhluta
Þýskalands sýndi þáttunum
áhuga.
Walberg lét gera skoðanakönn-
un meðal hlustenda í Mecklen-
burg-Vorpommern um það hveijir
hefðu áhuga á slíkri þáttaröð og
niðurstaðan var sú að flestir þeir,
sem hefðu náð árangri í sameinuðu
Þýskalandi, hvort sem það væri í
krafti menntunar eða viðskipta,
voru þeirrar hyggju að komið
væri nóg. Þeir, sem hafa borið
minna úr býtum og eru ómenntað-
ir, og það eru, að sögn Walbergs,
yfirleitt þeir sömu og stóðu í
neðstu þrepum þjóðfélagsins í al-
þýðulýðveldinu, voru hins vegar
ákafir stuðningsmenn þess að
bijóta fortíðina til mergjar.
Undirtektir viðmælenda Wal-
bergs hafa verið misjafnar. Sumir
eru óðfúsir til að tala. Aðrir þegja
þunnu hljóði. Það fer eftir því
hvaða hlutverki þeir gegndu. Fórn-
arlömb yfirvalda alþýðulýðveldis-
ins eru ekki enn laus við óttann.
„Ástæðan fyrir þögninni er sú
að þegar þetta fólk vantar vega-
bréf þarf það að leita til sömu
embættismannanna og neituðu því
um vegabréfsáritun áður en múr-
inn féll,“ sagði Walberg. „Sömu
embættismennimir og héldu uppi
hinni kommúnísku yfirbyggingu
sitja enn.“
Örlög einstaklinga
Walberg leyfði ofanrituðum að
heyra viðtal við 68 ára gamlan
mann, sem eitt sinn laumaði upp-
lýsingum til Vestur-Berlínar og
dreifði bæklingum í austrinu.
Hann var handtekinn í Greifswald
árið 1952 og dæmdur í tólf ára
fangelsi. Að því loknu sætti hann
tíu ára „yfirbótarrefsingu“
(SúhnemaBnahmen), sem fólst í
því að í áratug eftir að hann var
laus úr fangelsi mátti hann ekkert
farartæki eiga, ekki einu sinni
reiðhjól. Hann mátti ekki vinna
sér inn meira en 150 austur-þýsk
mörk á mánuði, aðeins búa í eins
herbergis íbúð og ekki fara lengra
en tíu kílómetra frá heimili sínu.
„Fjörutíu ár eru liðin frá þessum
atburðum og áður hefur hann rak-
ið þetta allt saman fyrir mér, ró-
lega og málefnalega,“ sagði Wal-
berg. „En þegar þessi maður situr
fyrir framan hljóðnemann og rifjar
upp renna tárin niður vanga hans.
Af og til sýpur hann hveljur. Þeg-
ar ég býð honum að gera hlé á
viðtalinu eða hætta við hristir
hann höfuðið og segir lágt: „Ég
ARKITEKTAR sameiningarinnar: Lothar de Maiziére og Wolf-
gang Scháuble gátu að vonum fundið skipulagi samruna Aust-
ur- og Vestur-Þýskalands fátt til foráttu.
vil segja frá núna, annars geri ég
það aldrei“.“
Þessi maður er aðeins einn af
þeim milljónum, sem gera þurfa
upp við fortíðina. Þeir eru hins
vegar sýnu fleiri, sem vilja gleyma.
Magnleysi verkfæra
réttarríkisins
Peter Bender, sem átti stóran
þátt í að móta austurstefnu Willys
Brandts, skrifar nú bók um það
hvort til sé þýsk saga eftirstríðsár-
anna. Hann sagði Morgunblaðinu
að eitt af því, sem gerði það vand-
kvæðum bundið að gera upp reikn-
ingana við fortíðina væri að „verk-
færi réttarríkisins eru ekki til þess
fallin að fást við þessa hluti“.
„Fyrst þannig stendur á þarf
að einbeita sér að þeim, sem þjáð-
ust í Þýska alþýðulýðveldinu,“
sagði Bender. „Það hefur allt of
lítið verið gert af því.“
Það er ljóst að austurhluti
Þýskalands mun brátt ná vestur-
hlutanum í efnahagsmálum, þótt
enn séu ýmis vandamál óleyst. Af
uppgjöri Þjóðveija við nasismann
má hins vegar vera ljóst að arf-
leifð alþýðulýðveldisins verður
ekki auðveldlega særð á braut. í
nýlegri skoðanakönnun tímaritsins
Der Spiegel var lögð fram sú full-
yrðing að þótt múrinn væri fall-
inn, stækkaði hann í höfði fólks.
67 af hundraði kváðust geta tekið
undir þá fullyrðingu. Næstu ára-
tugina munu margir fylgjast
grannt með því með hvaða hætti
þessi innri átök hafa áhrif á fram-
göngu Þjóðveija í alþjóðamálum.
mm mnm i
Ert þú að tapa réttindum?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1995:
Almennur lífeyrissjóður iðnaðarmanna
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lifeyrissjóður framreiðslumanna
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vesturlands
Lifeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Lifeyrissjóður matreiðslumanna
Lifeyrissjóður rafiðnaðarmanna
Lifeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lifeyrissjóður Vestmannaeyinga
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
FAIR ÞU EKKI YFIRLIT,
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyris-
sjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við
viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist.
Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI • MAKALÍFEYRI • BARNALÍFEYRI • ÖRORKULÍFEYRI
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar
innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits, ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi
lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi, innan sömu tímaniarka, leggja lífeyrissjóði til
afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega,
er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessarra að
því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.