Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 33
um, og var þar sem annars staðar
ötull liðsmaður. Hann var skarp-
greindur og fljótur að átta sig á
stöðu mála og því ekki að undra
þó að hann væri kallaður til mikilla
trúnaðarstarfa á þeim vettvangi.
Sóknarbörn Akureyrarkirkju
hafa misst vel metinn og vinsælan
sálusorgara og sakna nú forsjár
hans og hlýrrar vináttu. Með þakk-
læti í huga og virðingu kveðjum
við séra Þórhall og biðjum honum
blessunar á eilífðarbrautum.
Eiginkonu, börnum og ástvinum
öllum sendum við innilegar samúð-
arkveðjur og biðjum góðan guð að
styrkja þau og vernda í sorg þeirra.
Guð blessi minningu mæts manns.
Guðríður Eiríksdóttir,
formaður sóknarnefndar
Akureyrarkirkju.
Kveðja frá Kór
Akureyrarkirkju
Það er þungbært þegar fólk er
kallað burt í miðri dagsins önn,
fólk sem er fullt af lífskrafti og
starfsáhuga. Þannig var um séra
Þórhall Höskuldsson, hans kall kom
skyndilega og slíkt er sársaukafullt
þeim sem næstir standa. Kór Akur-
eyrarkirkju minnist vinar og sam-
starfsmanns með þakklæti og virð-
ingu og sendir fjölskyldu séra Þór-
halls innilegar samúðarkveðjur.
Guð styrki þau og styðji í sorg
þeirra og söknuði.
Dagar mannsins eru sem grasið,
hann blómgast sem blómið á eyðimörkinni,
þegar vindur blæs á hann er hann horfinn,
og staður hans þekkir hann ekki framar.
En miskunn Drottins við þá er óttast hann
varir frá eilífð til eilífðar.
(103. Davíðssálmur)
• Fleirí minningargreinar um
Þórhall Höskuldsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
+ Tove Engil-
berts fæddist í
Kaupmannahöf n
14. janúar 1910.
Hún lést á Land-
spítalanum 1. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hennar
fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Hveiju vori fylgir sumar
Hveiju sumri fylgir haust
ÉG MINNIST Tove
með söknuði og hug-
ann fullan af þakklæti
fyrir þann ljóma sem hún gefur
bernskuminningum mínum, og æ
síðan að muna mig og gleðja á
tyllidögum.
Fagna mér og faðma í hvert sinn
er við höfum sést eða mæst. Þessi
fallega stórbrotna kona með sinn
góða faðm og hlýja bros „Ane
Magg“ eins og hún kallaðj mig.
Er ekki Ane Magg komin! Ég var
þar á dyrunum frá því ég var smát-
elpa, að heimsækja Grétu æskuvin-
konu mína og eina bamabarnið,
augastein Tove og Jóns. Ég er
reyndar borin og barnfædd líkt og
Gréta við Flókagötuna í húsi nr.
8, örfá hús á milli okkar, stutt að
fara yfir í Englaborg Flókag;ötu 17.
Birgitta og Tove urðu ekki minni
vinkonur mínar en Gréta, og vafi
á hverja var mest spennandi að
hitta, jafnt þá og til þessa dags.
Þær mæðgur tóku þátt í öllu okkar
pexi, gríni jafnt og gleði, málin
rædd og leyst. Aldursmunar kenndi
ekki á okkur fjórum við dagstofu-
borðið í Englaborg, við mauluðum
á ávöxtum eða öðru góðgæti sem
Tove ýtti að okkur, óperuaríur
hljómuðu gjarnan frá vinnustofu
málarans á efri hæð-
inni og húmorinn var
danskur. Það var mikil
gleði og sérstakur andi
í þessu húsi málarans
því andi hans sveif
yfir öllu innandyra.
Jón var ekki síður
skemmtilegur að hitta
fyrir telpustýri þó að
hann væri kóngur í
þessu ríki sínu, sem
hann vissulega var, þá
man ég hann best í
íslenskri lopapeysu
með sjóaraklút um
hálsinn á tréklossun-
um, glettinn og afalegan.
Norðurmýrin verður fyrir mér
ekki söm aftur. Tove vinkona mín
hefur kvatt þessa jarðvist. Þor-
steinsbúð ekki til lengur, Magnús
syngur ekki í fiskbúðinni sem var
við Auðarstræti, Bjössi í Mýrarbúð-
inni sem hélt uppi rammíslenskum
húmor í hverfinu en gafst loks upp
fyrir „stórmagasínunum“ og lok-
aði, strætó Njálsgata - Gunnars-
braut löngu hættur að þjónusta
Mýrina, Klambratúni var gefið nýtt
nafn. En hús málarans stendur þó
enn, nú við rætur Miklatúns, minn-
isvarði um Jón Engilberts listmál-
ara og konuna sem hvatti hann til
dáða. Tove lifði fyrir hann, en gaf
líka svo mikið af sér til annarra,
hún átti svo mikið til að gefa. Ég
vildi gera það að tillögu minni að
Flókagata 17 yrði safnhús óbreytt
og varðveitti verk listamannsins og
heimili þeirra hjóna bæjarbúum til
yndisauka. Nú er Tove vinkona
mín væntanlega kominn á lang-
þráðan ástvinafund við Jón.
Guð varðveiti minningu Tove og
Jóns.
Anna Magga (Ane Magg).
MIMMIMGAR
TOVE ENGILBERTS
fíTTU EfíFITT MíB SVEFN? UILTU BYGGJfí PIB UPP?
Slakunarspólur med tónlist og jákvæðum staðhæfingum.
Útsölustaðir: Heilsubúðin, helstu bókabúðir og hljóðfæraverslanir.
Auglýsing um
starfsleyfistillögur skv. gr. 70
í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994.
í samræmi við gr. 70 ofangreindrar reglugerðar liggja frammi til kynningar hjá .
upplýsingaþjónustunni (1. hæð) í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá mánudeginum 16.
október nk. til 10. nóvember nk., starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin fyrirtæki:
Gæludýrahúsið hf.,
Æfingasvæði fyrir Slökkvilið Reykjavíkurflugv.,
Prentsmiðja Jóns Björnssonar,
Víkur - Ós, bifreiðaverkstæði og -sprautun,
Markús ívar Hjaltested, réttingaverkstæði,
Hreinsitækni hf., bifreiðaverkstæði,
Eureka, prentsmiðja,
Vegagerð ríkisins, trésmíðaverkstæði,
Vegagerð rikisins, járnsmíða- og vélaverkstæði,
Vegagerð ríkisins, vélaverkstæði,
Einingaverksmiðjan hf., steypustöð,
Fákafeni 9, 108 Rvík.
Reykjavíkurflugvelli.
Laugavegi 168,105 Rvík.
Bíldshöfða 18, 112 Rvík.
Bíldshöfða 18, 112 Rvík.
Stórhöfða 35, 112 Rvík.
Borgartúni 29, 105 Rvík.
Stórhöfða, 112 Rvík.
Stórhöfða, 112 Rvík.
Borgartúni 5, 105 Rvík.
Breiðhöfða 10,112 Rvík.
Rétt til að gcra athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar
eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 105 Revkjavík, fyrir 13. nóvember nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Ný sendinq
frá Libra
Mikið úrval af buxna-
og pilsdrögtum.
Síðir og stuttir frakkar
í mörgum litum.
Dtmarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147