Morgunblaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 45
FÓLK í FRÉTTUM
Reuter
Fyrstu tón-
leikarnir
HLJÓMSVEITIN Bjakk kom í
fyrsta skipti fram opinberlega á
dögunum er hún hélt tónleika í
Samkomuhúsinu í Borgarnesi.
Hljómsveitina skipa þrír piltar
úr Borgarfirði sem hafa æft saman
síðustu mánuði, Halldór Hólm
Kristjánsson gítarleikari sem sést
hér næstur á myndinni, Bjarni
Helgason bassaleikari og Orri
Sveinn Jónsson trommuleikari.
Með þeim á sviðinu er Finnur
Jónsson gestasöngvari.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Julia, Danny
og Bill
►CLINTON Bandaríkjaforseti
tekur hér í hönd leikkonunnar
Juliu Roberts, sem er þekktust
fyrir Ieik sinn í myndinni „Pretty
Woman“. Danny Glover. sem lék
í „Leíhal 'Weapon“-myndunum,
horfir á forsetann og klappar.
Myndin er tekin í gær við athöfn
sem haldin var í tilefni af því að
eitt ár var liðið síðan Iýðræði var
komið á á Haiti.
REDFORD ásamt Bar-
bru Streisand árið 1973.
Redford
lætur
undan
►LEIKARINN geðþekki
Robert Redford hefur loks-
ins samþykkt að ævisaga
hans sé skráð. Breskt út-
gáfufyrirtæki, Macmillan,
hefur boðið útgáfuréttinn
upp og öll helstu útgáfu-
fyrirtæki Bandaríkjanna
bítast um bitann.
Redford, sem aðeins hef-
ur veitt þrjú stór viðtöl um
ævina, hefur ekki viljað
ræða einkalíf sitt opinber-
lega hingað til. Honum leist
að sögn Reuter-fréttastof-
unnar illa á hugmyndina í
fyrstu, en sannfærðist um
ágæti liennar eftir að hafa
lesið verk væntanlegs höf-
undar, Michaels Feeney
Callan. Ráðgert er að ævi-
sagan komi út í nóvember
1996.
Hefst 23. okt
8 viknafiUémmðíuMWiifieu)
• Þjálfun 3-5x í viku
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabæklingur aöj
fitulitlu fæði
• Mappa m. fróðleik og
upplýsingum
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Frítt 3ja mán. kort fyrir
þær 5 samvískusömustu!
kg
6
Kuöldhópar • Nlorgunhópur
Daghópur • Barnagæsla
Hefur misst:
6 kg.
Hefur misst:
18 kg.
Framhaldshópur
-fyrir allar þær sem hafa verið
áður á námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsiuefni. Mikið aðhald.
iÞcw fiafja aUwt fxvúð
d fitumenttðíu nániófieið
Þær hafa misst aukafitu af líkamanum
og haldið þeim árangri. Flestar ná að
missa 5-10 aukakíló og læra að halda
þeim árangri. Komdu og vertu með á
þessu frábæra námskeiði. Það er ekki að
ástæðulausu að námskeiðin okkar hafa
verið fullbókuð frá upphafi. Við störfum
af fagmennsku og þú nærð árangri!
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVlK S. 533-3355