Morgunblaðið - 15.10.1995, Qupperneq 56
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
© 550 7472
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Uppsögn
samninga
hjá Baldri
Eingöngu vilja-
yfirlýsing, segir
formaður VSI
SAMÞYKKT var samhljóða á fé-
lagsfundi _ í Verkalýðsfélaginu
Baldri á ísafirði í gær að segja
upp kjarasamningum frá og með
næstu áramótum. Um 80-90
manns sátu fundinn.
Samninganefnd félagsins var
falið að annast kröfugerð og
samningaumleitanir við viðsemj-
endur í samráði við önnur verka-
-lýðsfélög.
Olafur B. Ólafsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
segir að þarna sé fyrst og fremst
um að ræða viljayfirlýsingu félags-
ins og hafi hún ekkert með upp-
sögn samningsins sem slíks að
gera. „Forsendurnar eru skil-
greindar í samningunum frá í
febrúar og það er á borði launa-
nefndar að meta hvort að þær
standist," segir Ólafur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Útséð um að Stálbræðslan í Hafnarfirði verði seld innlendum aðilum
Enskur aðili reynir
sölu í Asíulöndum
Morgunblaðið/Ásdís
JAFNT og þétt gengur á gamla brotajárnshauginn á verksmiðju-
lóð stálbræðslunnar í Hafnarfirði. Nú eru eftir 14.500 tonn af
járni en voru 33 þúsund tonn fyrir tvemur árum.
BUNAÐARBANKINN og Iðnþró-
unarsjóður, eigendur stálverk-
smiðju Islenska stálfélagsins í
Kapelluhrauni, sem hefur staðið
ónotuð frá gjaldþroti félagsins
haustið 1991, hafa gert samkomu-
lag við enskt fyrirtæki um að það
taki að sér að selja stálbræðsluna
til erlendra kaupenda til niðurrifs
Að sögn Sveins Magnússonar,
starfsmanns brotajárnsvinnslunn-
ar Furu hf., er nú talið að tilraun-
ir til að selja verksmiðjuna til
áframhaldandi starfsemi hér á
landi séu fullreyndar.
Hefur enska fyrirtækið einka-
sölurétt til eins árs og hefur eink-
um augastað á hugsanlegum
kaupendum í Kína, Kóreu og á
Indlandi.
Rúm 40 þús. tonn brotajárns
flutt úr landi frá 1993
Fura hefur frá árinu 1993 unn-
ið hráefni úr brotajárnshaugnum
á verksmiðjulóðinni í málmtætara
og jafnframt tekið á móti hráefni
til vinnslu. Hefur stálið aðallega
verið flutt á markaði á Spáni þar
sem fengist hefur gott verð, að
sögn Sveins. Eru nú aðeins eftir
um 14.500 tonn í brotajárns-
haugnum á verksmiðjulóðinni en
þar höfðu safnast upp 33 þúsund
tonn af brotajárni þegar Fura
keypti aðstöðuna. Búið er að skipa
út rúmlega 40 þúsund tonnum af
brotajárni og tæplega 4.000 tonn-
um af góðmálmum á undanförnum
rúmum tveimur árum.
Fura gerir samning
við Sorpu
Þá hefur Fura gert samning við
Sorpu um að Sorpa opni gáma-
stöðvar sínar fyrir fyrirtækjum
sem geta framvegis losað sig þar
við brotajárn án gjaldskyldu og
er járnið síðan flutt til vinnslu á
athafnasvæði Furu.
Tók samkomulag þetta gildi 1.
október en það þýðir að Fura er
nú komin með átta útibú til mót-
töku á brotajárni á gámastöðvum
víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu,
að sögn Sveins.
Myndavélar á gatnamót
STARFSMENN Reykjavíkur-
borgar eru þessa dagana að
ljúka við að setja upp við fimm
gatnamót í borginni búnað
fyrir myndavélar sem ætlunin
er að taki myndir af bílum
sem aka yfir á móti rauðu
ljósi. Lögregla mun annast
rekstur myndavélanna en
óvíst er hvenær þær verða
teknar í notkun.
Að sögn Sigurðar I. Skarp-
héðinssonar gatnamálastjóra
hefur fjárfesting í þessum
myndavélum kostað Reykja-
víkurborg 8-9 milljónir
króna. Við gatnamótin fimm
verða settir 12 kassar. Mynda-
vélum verður komið fyrir í
nokkrum þeirra en útilokað
er að sjá hvar myndavélarnar
verða hverju sinni.
Myndavélarnar munu taka
myndir af skráningarnúmeri
þeirra bíla sem aka yfir gatna-
mótin eftir að rautt ljós kvikn-
ar. Ætlunin er að myndirnar
verði notaðar sem sönnunar-
gögn og að brotlegir verði
sektaðir á grundvelli mynd-
anna.
Að sögn Ómars Smára Ar-
mannssonar er enn unnið að
gerð reglna fyrir lögregluna
um notkun þessara sönnunar-
gagna og notkun myndavél-
anna.
Myndavélarnar gætu verið
við eftirtalin gatnamót: Mikla-
braut/Kringlumýrarbraut,
Miklabraut/ Grensás vegur,
Kringlumýrarbraut/Suður-
landsbraut, Bústaðaveg-
ur/RéttarhoItsvegur og
Reykjanesbraut/Smiðjuveg-
ur.
Barist um
bitann
ÞAÐ er hart barist um hvern
bita þegar slegið er upp veislu
fyrir múkkann sem fylgir fiski-
skipum jafnan langt á haf út.
Um leið og slógi og afskurði er
fleygt frá borði birtast flokkar
af þessum sísvanga fugli utan
úr buskanum. Múkkinn er vinur
sjómanna og styttir þeim oft
stundir í tilbreytingarleysi
hversdagsins en þegar að fæðu-
öfluninni kemur hverfur mein-
leysislegt yfirbragðið. Myndin
er tekin þegar aðgerð stóð yfir
í skuttogaranum Ottó N. Þor-
lákssyni, skipi Granda hf.
Islenskur
læknir til
Tuzla
HALLDÓR Baldursson bæklunar-
læknir er á förum til Tuzla í Bosn-
íu 25. október næstkomandi, en
þar mun hann starfa í sex mánuði
á sjúkrahúsi norsku friðargæslu-
herdeildarinnar í Tuzla.
Halldór gekk í norska herinn
fyrir tæpum tveimur mánuðum
vegna þátttöku í þessu verkefni
og ber hann titilinn major. Hann
hefur verið við þjálfun í Noregi frá
því í byijun september.
Samkomulag um þátttöku Is-
lendinganna í starfsemi norsku
friðargæsluherdeildarinnar í Tuzla
var undirritað í byijun ársins 1994.
Tveir íslenskir læknar, Júlíus
Gestsson og Máni Fjalarsson, og
Stefán Alfreðsson, hjúkrunarfræð-
ingur, fóru síðan til starfa í Tuzla
í sex mánuði síðar það ár.