Morgunblaðið - 18.10.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995 11
stundaráðs borgarinnar hefði verið
haldinn fyrr um daginn um hana.
Ahugi á að Þróttur fengi að byggja
hús undir félagsstarfsemi sína í
Laugardalnum og nýta íþrótta-
mannvirkin þar var sagður gagn-
kvæmur. Borgin fengi á móti nú-
verandi aðstöðusvæði Þróttar við
Sæviðarsund til umráða.
íbúar við Kleppsveg kvörtuðu
undan umferðarþunga á Sæbraut-
inni. Borgarstjóri sagði mjög erfitt
að færa hluta hennar sökum gamla
kirkjugarðsins í Laugamesinu. Þar
væru fornminjar sem ekki mætti
hrófla við.
íbúi lýsti áhuga sínum á 30 km
hámarkshraðasvæði við Rauðalæk,
og nokkrir spurðu um félagsmið-
stöð fyrir Lauganeshverfi. Ekki er
gert ráð fyrir byggingafram-
kvæmdum vegna hennar, en 30
km hraðasvæði eru í bígerð.
Verða heitar máltíðir í
heilsdagsskólum?
Spurt var um málefni Laugar-
nesskóla. Borgarstjóri sagði að
ekki væri á áætlun að byggja við
hann. Skólinn væri einsetinn og
það ætti eftir að ráðast á hvaða
aldri íbúar á nýju byggingasvæði
við Túnin yrðu og hvort byggja
þyrfti smábarnaskóla eða hvort
börnin færu í Laugarnesskóla.
Hugsanlega gæti Laugalækjar-
skóli komið inn í dæmið.
Fram kom áhugi íbúa á að loka
Gullteig við Sigtún meðal annars
vegna leikskólabyggingar og að
ekki væri bætandi á umferðar-
þungann við Gullteig/Hofteig.
Borgarstjóri sagði að ekki væri
hægt að loka götunni á þessum
stað en fínna mætti leiðir til að
takmarka umferðina.
Spurt var um heitar máltíðir í
heilsdagsskólum og spurði amma
nokkur sérstaklega um þær að
beiðni sex ára barnabarns. Borgar-
stjóri sagði koma til greina að
gera tilraun með heitar máltíðir í
slíkum skóla, því mörgum spurn-
ingum væri enn ósvarað, til dæmis
hver ætti að greiða fyrir matinn
og hvort allir foreldrar myndu velja
þennan kost fyrir börn sín.
Spurt var um stöðuna í samn-
ingaviðræðum ríkisins og Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga um
yfirtöku grunnskólans. Borgar-
stjóri. sagðist reikna með áfanga-
skýrslum í þessari viku um málið,
en að erfitt væri að gefa heildar-
mynd af þeim viðræðum núna.
: SIANDEX
Álinnréttingar
Hönnum og smíðum eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
|
í
<
Faxafeni 12. Sími 553 8000
FRÉTTIR
Barnalæknaþjónustan í Domus Medica opin til kl. 22 virka daga
ELLEFU barnalæknar með ýmsar
undirsérgreinar í barnalækningum
hafa opnað barnalæknaþjónustu á
fyrstu hæð Domus Medica við Eg-
ilsgötu í Reykjavík. Ólafur Gísli
Jónsson, barnalæknir og talsmaður
hópsins, segir að þjónustan sé ekki
frábrugðin venjulegri stofuþjón-
ustu að öðru leyti en því að þjónust-
an sé veitt til kl. 22 virka daga og
nokkra klukkutíma um helgar.
Læknavaktin telur að með barna-
læknaþjónustunni séu forsendur
samnings læknavaktarinnar og
samstarfsráðs heilsugæslunnar í
Reykjavík breyttar og hefur farið
fram á endurskoðun samningsins.
Ólafur Gísli sagði að með sam-
starfinu væri gamall draumur að
rætast. „Barnalækna hefur lengi
langað til að bjóða upp á lengri
stofutíma en forsendur hafa ekki
skapast fyrr en nú. Við höfum orð-
ið varir við að þörfin er fyrir hendi
og viljum mæta henni,“ sagði hann
og hann tók fram að eftir að um-
ræðan um barnalæknaþjónustuna
hefði farið af stað hefðu enn fleiri
haft samband við barnalæknana
og lýst yfír ánægju með hugmynd-
ina.
Kostnaður
Hvað kostnaðarhliðina varðaði,
sagði Ólafur Gísli að greitt væri
fyrir þjónustuna samkvæmt samn-
ingi Læknafélags íslands og
Tryggingastofnunar eða eins fyrir
venjulega stofuþjónustu. Hann
nefndi dæmi um að heildarkostnað-
ur vegna viðtals og skoðunar væri
samkvæmt samningnum 2.633 kr.
Ef ekki væri framvísað afsláttar-
korti kæmu 1.773 kr í hlut sjúkl-
ings og 860 kr. í hlut Trygginga-
stofnunar. Með afsláttarkorti lækk-
ar kostnaður sjúklings í 591 kr.
og kostnaður Tryggingastofunar
hækkar í 2.042 kr.
Afsláttarkort er gefið út eftir
að kostnaður vegna læknisþjónustu
barna undir 16 ára aldri í sömu
fjölskyldu er orðinn 6.000 kr. frá
áramótum. Kostnaðurinn getur
verið vegna heimsókna til læknis
Læknavaktin vill
endurskoðun sam-
starfssamnings
eða á slysavarðstofu,
myndatöku eða blóðprufu
svo eitthvað sé nefnt.
Eftir venjubundinn
stofutíma verður veitt
þjónusta til 22 á virkum
dögum, milli kl. 11 og 15
á laugardögum, og milli
kl. 19 og 22 á sunnudög-
um. Ólafur tók fram að
veitt væri stofuþjónusta en
ekki þjónusta slysavarð-
stofu. Hann sagði að betra
væri að hringja áður en
komið væri utan venjulegs
stofutíma. Ekki væri hins
vegar um skilyrði að ræða
og áhersla væri lögð á að
sjúklingar þyrftu ekki að
bíða lengi eftir að þeim
væri sinnt.
Ólafur1 Gísli sagði að
barnalæknarnir kæmu úr
ýmsum áttum. Flestir
hefðu starfað hér á Iandi í
nokkur ár. Aðrir væru hins
vegar nýkomnir erlendis
frá. Allir verða barnalækn-
arnir með stofur á fyrstu hæð
Domus Medica og verður gengið
inn í húsið um aðaldyr. Húsnæðið
hefur verið endurnýjað og verður
kaffistofa á annarri hæð.
Vaktþjónusta ekki
breyttur stofutími
Katrín Fjeldsted, formaður Fé-
lags heimilislækna, sagði að heimil-
islæknar gætu ekki skiiið auglýs-
ingu frá barnalæknaþjónustinni
öðruvísi en að verið væri að bjóða
vaktþjónustu enda væru læknar á
vakt utan venjulegs stofutíma.
Vaktþjónustu hefði hingað til verið
sinnt með tvennum hætti. Annars
vegar af heimilislæknum á höfuð-
borgarsvæðinu í gegnum lækna-
vaktina og hins vegar af vakthaf-
andi sérfræðingum á spítölunum.
Ekki hefði heyrst annað en að full-
nægjandi þjónustu væri sinnt með
þeim hætti. Ef hins vegar nauðsyn-
legt þætti að bæta við nýjum aðila
ætti að skoða þjónustu hans í sam-
hengi við aðra vaktþjónustu í bæn-
um en ekki fara að eins og gert
væri nú, þ.e. bæta henni aðeins við
núverandi þjónustu.
Magnús R. Jónasson, læknir og
vaktstjóri á læknavaktinni, sagði
að í gildi væri samningur við sam-
starfsráð heilsugæslunnar í
Reykjavík vegna þjónustunnar til
1. mars árið 1996. Með nýjum þjón-
ustuaðila, barnalæknaþjónustunni,
hefðu forsendur samningsins hins
vegar breyst með þeim afleiðingum
að læknavaktin hefði farið fram á
að samningurinn væri endurskoð-
aður nú þegar. Ekki sagði Magnús
að svar hefði borist við erindinu,
enda væri það nýlegt, en hann bjóst
við að viðræður um endurskoðun
samningsins hæfust fljótlega.
Magnús sagði að eftir að sam-
þykki Tryggingastofnunar hefði
lagið fyrir og ljóst varð að ráðu-
neytið treysti sér ekki til að gera
neitt hefði eðlilega komið fram
spurning um framhaldið. „Eigum
við von á því að þjónustan vindi
upp á sig? Að háls-, nef- og eyrna-
læknar, kvensjúkdómalæknar,
gigtlæknar og hjartalæknar, hver
verði með sína vakt úti í bæ, og
þá væri fáránleikinn orðinn full-
kominn,“ sagði Magnús óg minnti
á að með þjónustunni væri verið
að ganga þvert á ákvæði í reglu-
gerðum um að fyrstu samskipti
sjúklinga ættu að vera við heimilis-
og heilsugæslulækna. Aðspurður
sagði Magnús að læknavaktin hefði
mjög vel ráðið við að þjónusta sitt
svæði og ekki væri þörf fyrir aðra
vaktþjónustu á því.
Tekið af sérfræðingum
Katrín minnti á að barnalækn-
arnir væru að taka einingar, þ.e.
greiðslur fyrir tiltekin læknisverk,
frá sérfræðingum. Sérfræðingar
hefðu gert samkomulag við Trygg-
ingastofnun um einingarnar fyrr á
árinu og 'gilti samningurinn fram
til áramóta. Aðeins væri hægt að
fjölga einingunum ef skipulögð
væri ný vaktþjónusta. Barnalækn-
arnir væru í klípu enda skilgreindu
þeir þjónustuna sína sem breytingu
á stofutíma en ekki sem nýja þjón-
ustu.
FYRIRTÆKJASALA
Skipholti 50b \/1' 2.hæd
Tt 5519400
Opið YÍrka daga kl. 9-18.
Opið simnudaga kl. 14-17.
í dag auglýsum við aðeins lítíð sýnishorn af þeim
ijölda fýrirtækja, sem við erum með á söluskrá.
Hringdu eða líttu við á Fyrirtækjasölu Hóls
í dag og kynntu þér Qölmörg tækii'æri
tíl eigin atvinnurekstrar.
O Prentsmiðja. Vorum að fá í einkasölu litla rótgróna prentsmiöju,
vel tækjum búna. Traustir og góðir viðskiptavinir. 15012.
• Söluturn - matvara. Vorum að fá til sölu glæsilegan söluturn sem
staðsettur er við mikla umferðargötu í Reykjavík. Myndbönd -
matvara - sælgæti er uppistaðan í þessum rekstri. Langur og
góður húsaleigusamningur. 10002.
• Pizza - heimsending. Fyrirtæki, sém hefur náð góðri markaðsh-
lutdeild í pizzu-heimsendingum, enda með bragðmiklar og góðar
pÍZZUr. 13029.
• Ritfangaverslun. Spennandi bóka-, ritfanga- og gjafavöi-uverslun
í stóru hverfí í Reykjavík. Góð álagning. 12006.
• Hárgreiðslustofa. Góð hárgreiðslustofa í fjölmennu hverfi í
Reykjavík til sölu. Þrír stólar og allt sem til þarf til aö gera fall-
egt fallegi'a. 21000.
• Veitingasala. Á góöum stað er til sölu veitingastarfsemi sem byg-
gir á sölu á heitum mat í hádegi og kaffísölu. Gott eldhús og góð
aðstaða. 13020.
O Tölvuverslun. Heildsala og smásala á hugbúnaði, bæði leikjum
og fræðsluefni. Þessi verslun leggur áherslu á góða þjónustu við
viðskiptavini sína. Góð álagning. 12003.
© Framköllun með meiru. Gott framköllunarfyrirtæki ásamt ver-
slun á góðum stað vestur í bæ. Nú fer góður tími í hönd. Góð
vinnuaðstaða. 10001.
• Veitingastaður í Borgarnesi. Ef þú vilt eignast fallegan veitin-
gastað í rómantísku umhverfi, þá er þetta rétti staöurinn. í
nági-enninu er ein stærsta sumarbústaðabyggð á íslandi og ekki
skemmir að bráðum koma blessuð göngin...i3008.
• Norðlendingar athugið! Á Akureyri vorum við að fá í sölu
athyglisverða verslun með matvöru, sælgæti, myndbönd oggrill-
mat. Góður húsaleigusamningur. Nú er ekkert annað en að drífa
sig af stað og gerast sjálfstæður atvinnurekandi. 10051.
• Knattborðsstofa. Vorum að fá til sölu átta borða billjarðstofu með
góðum borðum og frábærri aðstöðu. Mikið af föstum viðskip-
tavinum. Hvernig væri að gera áhugamálið aö aðalstarfi, ég
bara spyr! 10011.
• Vöruflutningafyrirtæki. Vöruflutningar frá Reykjavík ????? Um
þetta fyrirtæki fáið þið allar upplýsingar á Hóli. Ekki spuming,
bara koma, ekki hringja. Takk fyrir, sjáumst! 10019.
• Austurlenskur matsölustaður. Einn af þeim þekktari sem
sérhæfir sig í austurlenskri matargerð. Mikið af fóstum viðskip-
tavinum. Já, hvers vegna ekki að spreyta sig. 13005.
• Myndbandaleiga - söluturn. Nýlegur söluturn og myndban-
daleiga á góðum stað í Kópávogi til sölu. Hagstæð innkaup á myn-
dböndum. Gott húsnæði. 11001.
• Ert þú að leita að stöndugu fyrirtæki? Erum með í sölu afar
vel rekiö fyrirtæki, þar sem afkoman er í meira lagi góð. Hér er
alltaf eitthvað að gerast. Líttu við á Hóli og fáðu allar upplýsin-
gar um sjoppuna sem allir eru að tala um!iooo7.
©Tölvufyrirtaeki. Innflutningsfyrirtæki í tölvugeiranum óskar eftir
samstarfsaðila með fjármagn. Um er að ræða innflutning á tölvum
o.m.fl. Mjög spennandi verkefni í örum vexti tölvuheimsins.16018.