Morgunblaðið - 21.10.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 17
Reynslusögur
Ókunnur maður flutti
lögheimilið heim til mín
Ef annarra manna póst-
ur fer að berast inn um
bréfalúgu er rétt að
kanna strax hvort ein-
hver hafí ranglega flutt
lögheimili sitt.
Brynja Tomer
ræddi við mann sem
hafði „huldumann“
skráðan heima hjá sér
í meira en ár.
um úr húsi, þótt það hafí bara
verið á pappírum.“
Ætti hvorki að vera flókið né
tímafrekt
Skúli Guðmundsson skrifstofu-
stjóri þjóðskrár segir að mistök
hafí valdið því að svo langan tíma
tók að leiðrétta þennan flutning.
„Um leið og starfsfólk Hagstofu
áttaði sig á mistökunum voru þau
leiðrétt. Það er sem betur fer afar
sjaldgæft að menn skrái sig hjá
húseigendum án þess að þeir viti
af því. Ef annarra manna póstur
fer að berast, ráðlegg ég fólki að
gera Hagstofu strax viðvart, svo
hægt sé að bregðast við því.“
Sigurður Helgi Guðjónsson,
formaður Húseigendafélagsins
segir að reglur laga um skráning-
ar og tilkynningar séu skýrar.
„Það getur verið til ama og óþæg-
inda ef huldufólk skráir sig heima
hjá manni. Við því er fátt annað
að gera en fá leiðréttingu hjá
Hagstofunni. Á það hvorki að
vera flókið né tímafrekt að reka
slíkt huldufólk af höndum sér.
Fyrirmæli laganna miða við að
menn séu rétt skráðir svo hægt
sé að ná í þá, bæði hvað varðar
réttindi þeirra og skyldur. Það eru
fyrst og fremst opinberir hags-
munir að menn séu skráðir á
ákveðinn stað. Séu menn í feluleik
að þessu leyti er það yfírleitt þátt-
ur í einhvetju öðru ólöglegu at-
hæfi. Rangar eða falsaðar tilkynn-
ingar eru refsiverðar og varða
sektum eða þyngri refsingu ef
önnur brot koma við sögu.“
TTÚSEIGENDUM ber að til-
I I kynna til Hagstofu þegar
einhver flytur á heimili
þeirra, hvort sem það er leigjandi
eða annar. Sama skylda hvílir
reyndar á öllum þeim sem flytja
og er kveðið á um þetta í lögheim-
ilislögum og lögum um tilkynn-
ingu aðsetursskipta.
Sumir hunsa þessi lög og láta
hjá líða að tilkynna búsetuskipti
og mun algengasta ástæðan vera
að einhveijir hagsmunir eru í húfí,
t.d. barnabætur eða pláss fyrir
barn á leikskóla. Færri gerast svo
djarfír að skrá lögheimili sitt hjá
fólki án vitundar þess eða sam-
þykkis, en það kemur þó fyrir
endrum og eins. Heimilisfaðir í
Reykjavík, sem varð fyrir því að
ókunnur maður flutti lögheimili
sitt heim til hans, án þess að flytja
þangað, líkir þessu við að hafa
draug á heimilinu.
Skriffinnskan byrjar
„Þegar skattskýrslur voru
bomar í hús í upphafí ársins fylgdi
aukaskýrsla á nafni manns sem
enginn úr fjölskyldunni kannaðist
við,“ segir maðurinn og kveðst
hafa haft samband manntalsskrif-
stofu Reykjavíkurborgar nokkru
síðar. „Þar var mér var
sagt að þessi maður
hefði átt lögheimili hjá
mér í næstum því ár og
ég þyrfti að fylla út
eyðublað til að fá mann-
inn fluttan. Það gerði
ég og fór einnig á Hag-
stofuna þar sem starfs-
fólkið fann tilkynningu frá huldu-
manninum sem með eigin hendi
fýllti út og undirritaði flutning
lögheimilis heim til mín. í tölvum
Hagstofunnar kom í ljós að þessi
maður hafði víða verið skráður
með lögheimili á síðustu árum,
oftar en ekki „óstaðsettur í hús“
eins og það er kallað þegar menn
hafa ekki fastan dvalarstað."
Gluggapóstur frá banka
Segist heimilisfaðirinn hafa
dregið þá ályktun að um einhvem
vandræðapésa væri að ræða, sem
falsaði upplýsingar um búsetu til
að fá bætur úr félagslega kerfínu.
„Á Hagstofunni var mér sagt að
reynt yrði að ná í manninn og svo
yrði lögheimili hans flutt án þess
að við yrðum fyrir frekara ónæði.
Nú í haust, mörgum mánuðum
síðar, kom gluggaumslag frá
banka inn um lúguna hjá okkur,
stílað á vininn. Að mér læddist
slæmur grunur og stóðst því ekki
freistinguna að opna umslagið,
þótt samviskan segði mér að gera
það ekki. „Debetkortið þitt er til-
búið til afhendingar," stóð í bréf-
inu og þá hætti mér að lítast á
blikuna. Ég fór í útibúið til að
vara starfsfólkið við og kanna
hvort maðurinn væri
kominn með skilríki á
þessu falsaða heimilis-
fangi. Þar kom í ljós
að vinurinn var að sjálf-
sögðu búinn að ná í
kortið og var enn
skráður hjá mér enda
hafði tilkynningin verið
send út samkvæmt þjóðskrá.“
Ekki hægt að ná í
huldumanninn
Enn var skundað á Hagstofu
Islands, þar sem heimilisfaðirinn
segir að fátt hafí verið um svör
hjá afgreiðslufólkinu. „Mér var
sagt að líklega hefði ekíci náðst í
manninn og það væri ástæðan
fyrir því að hann væri enn skráð-
ur með lögheimili á þessum stað.
Aftur var undirrituð brottflutn-
ingstilkynning og þegar ég kann-
aði málið mánuði seinna hafði lög-
heimili huldumannsins loks verið
flutt heiman frá mér. Þessi maður
olli mér engu öðru en óþægindum,
en ég ímynda mér að hægt sé að
gera fólki grikk með því að falsa
upplýsingar af þessu tagi og mér
fínnst óþægilegt að vita af því að
alls konar lýður geti skráð sig
heima hjá manni, án þess að mað-
ur hafí hugmynd um það. Einnig
finnst mér með ólíkindum hversu
langan tíma tók að koma mannin-
Svona felu-
leikur tengist
oftast öðru
ólöglegu
athæfi.