Morgunblaðið - 07.11.1995, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
254. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjöldi þjóðarleiðtoga viðstaddur útför Yitzhaks Rabins, forsætisráðherra ísraels, í Jerúsalem
„Hann hefur kallað okkur
hingað í nafni friðarins
Jerúsalem. Reuter.
STRÍÐSHETJAN og friðflytjandinn
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra
ísraels, var lagður til hinstu hvíldar
í Jerúsalem í gær. Er öll ísraelska
þjóðin harmi slegin yfír fráfalli hans
og á erfitt með að skilja, að hann
skuli hafa fallið fyrir hendi landa
síns og trúbróður, sem var andvfgur
friðarsamningunum við Palestínu-
menn.
_ Tveggja mínútna þögn var um
allt ísrael og við upphaf útfararinn-
ar voru sírenur þeyttar, þær sömu
og hljóma ár hvert til minningar um
Helförina á hendur gyðingum.
Skutu sex hermenn af byssurji sín-
um við gröf Rabins til heiðurs hetj-
unni í Sex daga stríðinu, en tugir
þúsunda manna fylgdu kistunni til
grafreitsins, sem er á Herzl-fjalli í
Jerúsalem.
Afram á braut friðar
Fjöldi þjóðarleiðtoga var viðstadd-
ur útförina og í minningarorðum
sínum sögðu þeir Bill Clinton, for-
seti Bandaríkjanna, Hussein Jórdan-
íukonungur og Hosni Mubarak, for-
seti Egyptalands, að ekki væri hægt
að reisa Rabin fegurri bautastein en
að halda áfram á braut friðarins.
„Skyggnumst um og skoðum þá
mynd, sem við okkur blasir' í dag.
Leiðtogar margra ríkja í Miðaustur-
löndum og alls staðar að úr heimi
hafa safnast hér saman í dag vegna
Rabins. Við heyrum ekki lengur
hans miklu og djúpu rödd, en það
er hann, sem hefur kallað okkur
hingað í nafni friðarins," sagði Clin-
ton í minningarorðum sínum.
Þjóðhöfðingjar og fulltrúar 80
ríkja, þar á meðal sex arabaríkja,
voru 'við útförina, en af öryggis-
ástæðum sendi Yasser Arafat, leið-
togi Frelsissamtaka Palestínu-
manna, PLO, háttsetta embættis-
menn í sinn stað.
Bróðirinn í vitorði
Eytan Haber, aðstoðarmaður
Rabins og ræðuritari um 35 ára
skeið, las upp úr blóðugu söng-
kveri, sem Rabin var með þegar
Yigal Amir, 25 ára gamall lagastúd-
ent og hatursmaður friðarsamning-
anna við Palestínumenn, skaut hann
tveimur skotum. Játaði Amir á sig
verknaðinn, kvaðst hafa verið einn
af verki en farið að skipun guðs.
Að sögn ísraelsku lögreglunnar
hefur bróðir Amirs, Hagai, viður-
kennt að hafa breytt kúlunum, sem
Amir notaði, til að þær yllu sem
mestum skaða, en einnig er verið
að kanna tengsl Amirs við samtök
öfgamanna. Þá hefur verið fyrir-
skipuð opinber rannsókn á því
hvernig honum tókst að komast jafn
nærri Rabin og raun ber vitni.
Haft er eftir heimildum, að ör-
yggisgæslan hafi fyrst og fremst
miðast við að halda aröbum fjarri
Rabin en ekki gyðingum.
Sameinuð í sorginni
Dauði Rabins hefur sameinað
flesta ísraela í sorginni en sumir
ísraelskir landnemar á Vesturbakk-
anum sungu og dönsuðu til að fagna
dauða Rabins. Aðrir hörmuðu hann
og sögðust kvíða morgundeginum.
■ Rabin/20, 21 og á miðopnu
Rabin kvaddur
LEIÐTOGAR og fulltrúar 80
ríkja voru viðstaddir útför Yitz-
haks Rabins, forsætisráðherra
Israels, í Jerúsalem í gær. Næst-
ir kistu hans, talið frá vinstri,
eru Helmut Kohl, kanslari Þýska-
iands, Roman Herzog, forseti
Þýskalands, Boutros Boutros-
Ghali, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, Hosni Mubar-
ak, forseti Egyptalands, Bill Clin-
ton, forseti Bandaríkjanna, Wim
Kok, forsætisráðherra Hollands,
Beatrix Hollandsdrottning og
fyrir aftan kistuna er Shimon
Peres, sem tekið hefur við for-
sætisráðherraembættinu að fé-
laga sínum föllnum. Á minni
myndinni kveikir ísraelskur her-
maður á kerti við þinghúsið þar
sem kistan hvíldi á stalli þar til
útförin hófst.
Walesa
boðar
þingrof
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, forseti Póllands,
herti enn kosningabaráttu sína í
gær eftir að hafa náð meira fylgi
í fyrri umferð forsetakosninganna
á sunnudag en spáð hafði verið.
Fylgi forsetans var innan við 10%
fyrir nokkrum mánuðum en hann
fékk 33,3% í fyrri umferðinni. Wal-
esa etur kappi við Aleksander
Kwasniewski, fyrrverandi komm-
únista, í síðari umferðinni og féllst
í gær á að þeir efndu til kappræðna
í beinni sjónvarpsútsendingu.
Walesa lýsti því ennfremur yfir
að ef hann næði endurkjöri 19.
nóvember yrði næsta markmið hans
að ijúfa þingið, þar sem fyrrver-
andi kommúnistar og bandamenn
þeirra eru í meirihluta.
■ Walesa fékk meira/19
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
var vjðstaddur útför Yitzhaks Rabins
fyrir íslands hönd. Davíð sagði að
þeir erlendu ráðamanna, sem þarna
voru samankomnir, hefðu haft mjög
sterka tilfinningu fyrir þessum at-
burði og hversu einstæður hann
væri. Þarna hefðu verið margir, sem
ættu ekki auðvelt með að hnika dag-
skrá sinni, en hefðu komið með hálfs
sólarhrings fyrirvara til að sýna
stuðning sinn við vilja meirihluta
ísraelsku þjóðarinnar og þessa fallna
forystumanns sérstaklega. „Maður
fann fyrir mjög sterkum tilfinning-
um, ekki síst þegar barnabarn Rab-
ins, fimmtán ára stúlka, flutti ræðu
með miklum ágætum um tilfinninga-
legt samband stúlku við afa sinn.“
„Athöfnin var afar sérstæð og
áhrifamikil og gjörólík því sem við
eigum að venjast varðandi útfarir
þó að um þjóðarleiðtoga væri að
ræða. Hún fór fram undir berum
himni, mörg þúsund
manns voru viðstaddir
og mikill viðbúnaður af
hálfu hers og lögreglu.
Engu að síður var mjög
hátíðlegur eða að
minnsta kosti tilfinn-
ingaþrunginn bragur á
athöfninni.
Það var ekki mikið
um sálmasöng en meira
um ræður, og þá jafnt
ræður ættingja og for-
ystumanna í Israel sem
erlendra stórmenna,"
sagði forsætisráðherra.
Tekst ekki að spilla
fyrir friði
Hann sagði að ef tilgangur tilræð-
ismannsins hefði verið að spilla fyrir
friði hefði það ekki tekist. „Ég held
að þessi athöfn sendi mjög sterk
skilaboð inn í þetta þjóðfélag og þessi
atburður verði frekar til
að styrkja stöðu þeirra,
sem vilja leið sátta og
friðar."
Rabin og Davíð hitt-
ust tvívegis í New York
fyrir tilviljun í síðustu
viku í kringum hátíðar-
höld vegna afmælis SÞ.
„Við settumst íjögur
saman, við Rabin ásamt
eiginkonum okkar, og
töluðum í 30-40 mínútur
þar til Jórdaníukonung-
ur kom að. Þá stóðum
við öll upp og ræddum
saman nokkra stund.
Daginn eftir vorum við
í boði hjá framkvæmda-
stjóra SÞ og töluðum mikið saman.
Ég kynntist þessum manni dálítið
öðruvísi við þessi tækifæri og gerði
mér aðra mynd af honum. Hann var
alvörugefinn en þó mjög eðlilegur í
allri framkomu, áhugasamur og ræð-
inn. Hann ræddi mjög um það, sem
honum var efst í huga, stöðuna gagn-
vart Sýrlandi og innanlands.
Hann vissi töluvert um ísland og
þekkti til þjóðar, efnahagslífs og ut-
anríkismála. Hann sýndi áhuga á að
sækja landið heim og vissi að ísland
hafði verið aðili að tillögu um að
Israel gengi í SÞ á sínum tíma.
Vegna þessara nýlegu funda var það
enn meira áfall að fá þessar fréttir
svo skömmu síðar.
Þjóðin treysti Rabin
Rabin var fyrrum, stríðshetja og
sigursæll hershöfðingi. Þjóðin treysti
á dómgreind hans og að hann myndi
ekki stefna hagsmunum hennar í
tvísýnu. Þegar hann ræddi um þessi
mál var það maður sem var búinn
að gei'a upp við sig að ein leið væri
fær og önnur ekki og hin færa yrði
farin."
Davíð Oddsson forsætisráðherra var við útför Yitzhaks Rabins
Styrkir þá er vilja sættir
Davíð Oddsson