Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D
256. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Powell útilokar þátt-
forsetakosningum
Reuter
COLIN og Alma Powell greina frá ákvörðun sinni
á blaðamannafundi.
Afrísk börn
Átök
kostuðu
500.000
lífið
AImljnii. Reutcr.
VOPNUÐ átök víðs vegar um
Afríku hafa beint eða óbeint
leitt til dauða 500.000 bama í
álfunni á þessu ári, að sögn
Grace Machel, formanns starfs-
hóps á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, sem kannar áhrif vopnaðs
ófriðar á afdrif barna.
Að sögn Machel, sem er ekkja
Samora Machels fyrrverandi
forseta Mozambique, dóu bömin
vegna skorts á heilbrigðisþjón-
ustu, matar- og vatnsskorts.
Allt megi þetta rekja til stríðsá-
taka í álfunni. Hún segir heilar
kynslóðir afrískra barna vaxa
upp við hatur og stríðshörmung-
ar og ekki þekkja annað.
Grace Machei hélt því fram,
að fimm milljónir barna hefðu
orðið fyrir barðinu á stríðsátök-
um í Afríku á þessu ári, ýmist
sem flóttamenn eða þau hafi
verið yfirgefin eða væra munað-
arlaus.
tökuí
Alexandría í Virginíuríki. Reuter.
COLIN Powell, fyrrum yfirmaður
bandaríska heraflans, tilkynnti í
gærkvöldi að hann hygði ekki á
þátttöku í forsetakosningunum á
næsta ári. Hann sagði ástæðuna
vera að hann hefði ekki nægan
eldmóð til að taka þátt í stjórn-
málabaráttunni. Powell útilokaði
þátttöku í kosningabaráttunni á
síðari stigum og sagðist einnig
útiloka að gefa kost á sér sem
varaforseti. Hann væri hins vegar
nýgenginn í Repúblikanaflokkinn
og myndi á næstunni starfa innan
vébanda hans.
„Stjórnmálalíf krefst köllunar
sem ég hef ekki ennþá ... Ég get
ekki tekið skrefið til fulls. Ég verð
ekki forsetaframbjóðandi né heldur
mun ég gefa kost á mér í neinum
öðrum kosningum árið 1996,“
sagði Powell í yfirlýsingu sem hann
las upp á fréttamannafundi á hót-
eli í borginni Alexandríu í Virginíu-
ríki.
Miklar vangaveltur hafa verið um
hugsanlegt framboð Powells, sem
er 58 ára gamall, á síðustu mánuð-
um. Hann lét af störfum sem for-
maður bandaríska herráðsins árið
1993 og var fyrsti blökkumaðurinn,
er gegndi því embætti. Skoðana-
kannanir bentu til mikils fylgis við
framboð hans og að hann væri sá
eini er gæti keppt við Bob Dole,
leiðtoga repúblikana í öldungadeild-
inni, um útnefningu flokksins. Þá
væri hann líklegasti frambjóðandi
Repúblikanaflokksins til að vinna
sigur á Bill Clinton, forseta.
Stuðningsmenn vonsviknir
Dole er nú talinn líklegastur til
að verða forsetaefni repúblikana.
Mikilla vonbrigða gætti meðal
stuðningsmanna Powells en hægri-
sinnaðir repúblikanar voru ánægðir
með þessa ákvörðun en þeir hafa
gagnrýnt hann fyrir yfirlýsingar um
velferðarmál og fóstureyðingar.
Alma, eiginkona Powells, var með
honum á blaðamannafundinum og
sagði hann þau hafa tekið endanlega
ákvörðun um málið á mánudags-
kvöld. A síðustu tveimur vikum hafí
hann margsinnis skipt um skoðun
en þetta Væri lokaniðurstaðan.
Leitt hefur verið getum að því
að Alma Powell hafi haft miklar
áhyggjur af að maður hennar kynni
að verða skotmark tilræðismanna
gæfí hann kost á sér í embætti
forseta og að morðið á Rabin, for-
sætisráðherra ísraels, hafi haft
mikil áhrif á þau. Hún neitaði því
ekki að hún hefði miklar áhyggjur
af öryggi eiginmannsins, en sagði
þetta mál ekki hafa ráðið úrslitum.
Poweli útilokaði ekki að hann
myndi gefa kost á sér sem fram-
bjóðandi í forsetakosningunum árið
2000 en sagðist ekki vilja hefja
umræðuna um framboðsmál sín á
ný.
Reuter
Æ£M:?
Vilja hraða frið-
arviðræðum
Damaskus. Reuter.
SÝRLENDINGAR sögðust í gær
vera reiðubúnir að hraða tilraunum
til að koma á friði í Mið-Austurlönd-
um. Það væri eina jákvæða svarið
við morðinu á Yitzhak Rabin, forsæt-
isráðherra ísraels.
Parouq al-Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands, sagði á blaðamanna-
fundi með Malcolm Rifkind, utanrík-
isráðherra Bretlands, að hraða bæri
friðarferlinu til að koma í veg fyrir
aukna spennu og ofbeldi í þessum
heimshluta.
Shara sagði Sýrlendinga reiðubúna
til friðarviðræðna þrátt fyrir morðið
á Rabin og hvatti stjórn ísraels til
að reyna að ná samningum við Sýr-
lendinga.
Rifkind sagði að á fundi með Assad
Sýrlandsforseta hefði Assad einnig
lagt mikla áherslu á að vilji væri til
að ljúka friðarviðræðunum við ísraela
og að hann væri reiðubúinn að hraða
þeim. Breski utanríkisráðherrann
sagðist vera þeirrar skoðunar að mik-
ill vilji væri fyrir samningum jafnt í
ísrael sem Sýrlandi.
Yossi Beilin, efnahagsmálaráð-
herra ísrael, sagðist hneykslaður á
þeim ummælum Shara að morðið á
Rabin gæti haft eitthvað gott í för
með sér. Hann sagði að Sýrlendingar
gætu ekki átt von á því að breyting
yrði á stefnu ísraela í samningavið-
ræðunum, haldið yrði áfram á sömu
braut.
Leiðtogi öfgasamtaka í haldi
Opinber rannsóknarnefnd skipuð
vegna tilræðisins gegn Rabin
Rússar taka
þátt í frið-
argæslunni
S AMKOMULAG hefur tekist um
áætlun, sem auðveldar Rússum að
taka þátt í fjölþjóðlegu friðar-
gæsluliði í Bosniu verði samið um
frið. Skýrðu vamarmálaráðherrar
Bandarikjanna og Rússlands frá
því að loknum fundi í Brussel í gær.
Rússneska friðargæsluliðið
verður ekki undir stjóm NATO
þrátt fyrir fyrri kröfur bandalags-
ins þar að lútandi. A myndinni má
sjá hermenn úr sérsveitum bosn-
íska sljórnarhersins á eftirlitsferð
um hæðimar í kringum Sarajevo.
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKA lögreglan handtók í gær
Avishai Raviv, formann Eyal, her-
skárra öfgasamtaka gyðinga. Er
Raviv granaður um að hafa átt aðild
að samsæri um að myrða Yitzhak
Rabin, forsætisráðherra ísraels. Rab-
in var ráðinn af dögum á laugardags-
kvöld. Raviv játaði við yfirheyrslur
að hafa heyrt skólafélaga sinn Yigal
Amir ræða um að hann hefði i hyggju
að myrða forsætisráðherrann. Hann
hefði þó ekki tekið það alvarlega.
Neitaði hann allri aðild að morðinu
og sagði handtökuna pólitíska. Dóm-
ari ákvað hins vegar að hann skyldi
hnepptur í sjö daga gæsluvarðhals
þar sem ástæða væri til að ætla að
hann hefði átt aðild að samsæri.
ísraelsstjóm skipaði í gær opinbera
nefnd til að rannsaka morðið á Yitz-
hak Rabin og verður Aharon Barak,
forseti hæstaréttar landsins, beðinn
um að skipa í nefndina. Shmuel Hol-
lander, ritari stjórnarinnar, sagði á
blaðamannafundi að Shimon Peres,
starfandi forsætisráðherra, hefði á
ríkisstjómarfundi heitið að vernda
málfrelsi en grípa samt til aðgerða
gegn hópum öfgasinna.
Á ríkisstjómarfundinum var kynnt
skýrsla frá Shin Bet, innanríkisleyni-
þjónustu ísraels, um hvemig Yigal
Ámir, 25 ára gömlum laganema, tókst
að smjúga í gegn um þéttriðið net
lífvarða Rabins og skjóta þremur
skotum. Þetta er í fyrsta skipti í 47
ára sögu Israels sem stjórnmálaleið-
togi er myrtur. Ekki var greint frá
innihaldi skýrslunnar en heimildir inn-
an ísraelsku leyniþjónustunnar herma
að ýmsir hnökrar varðandi öryggis-
gæslu hefðu komið í ljós við rannsókn-
ina. Yfírmaður lífvarðasveita Shin Bet
sagði í gær af sér embætti og þrír
starsmenn leyniþjónustunnar voru
leystir frá störfum.
Nefndin mun fara ofan í saumana
á því hvað gerðist og jafnframt gera
tillögur um hvemig standa beri að
öryggisráðstöfunum vegna háttsettra
einstaklinga í framtíðinni.
Þá stendur til að herða allar að-
gerðir gegn öfgamönnum og hefur
þeim tilmælum verið komið til fjöl-
miðla að skoðunum öfgasinna verði
ekki komið á framfæri.
■ Ættingjar morðingja.../20