Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 27
LISTIR
SIGURÐUR Bragason og Bjarni Jónatansson
Eftirtektarverðir
tónleikar ís-
lensks baritons
BORIST hefur gagnrýni um tón-
leika Sigurðar Bragasonar og
Bjarna Jónatanssonar sem þeir
héldu í september síðastliðnum í
Buenos Aires. Tónlistargagnrýn-
andinn Carlos Alberto Vera skrifar
um þá félaga:
„Hinn íslenski bariton Sigurður
Bragason bauð upp á þann seinni
af sínum snjöllu tónleikum á alþjóð-
legu nútímatónlistarhátíðinni Encu-
entros ’95. Með honum lék annar
afburða túlkandi Bjarni Jónatans-
son.
Konsert söngvarans og píanóleik-
arans var að mestu tileinkaður sí-
gildri, nútíma og þjóðlegri íslenskri
tónlist eftir helstu tónskáld þjóðar-
innar, er nú heyrðist í fyrsta skipti
í Argentínu.
Eftir Jón Leifs, einn af frum-
kvöðlum íslenskrar tónlistar, söng
söngvarinn tvö falleg lög á frum-
málinu, Máninn líður og Vögguvísu,
síðan söng hann lag frá hinu fjar-
læga austri um móður sem er að
hugga son sinn í Víetnam (Róa róa
rambinn, Jónas Tómasson yngri )
í huga mínum kyssi ég þig og strýk
hár þitt, söng Sigurður á blíðlegan
hátt í laginu Gamalt ljóð eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson. Eftir það komu
tvö lög eftir Árna Bjömsson, Rökk-
urljóð og Við dagsetur, tveir litlir
gimsteinar þar sem söngvarinn
túlkaði alla hina samanþjöppuðu
spennu og innra líf ljóðanna.
Eitt af áhrifamestu andartökum
kvöldsins kom með laginu Þótt form
þín hjúpi graflín eftir Jón Ásgeirs-
son.
Þá kom lagaflokkur eftir Atla
Heimi Sveinsson með fyndnum alle-
goríum eins og um köttinn sem
kemur frá London og heldur því
stoltur fram að hann hafi verið að
veiða mýs í höllu drottningar. Eftir
Atla Heimi söng baritonsöngvarinn
einnig lagið um stúlkuna og hið
rómantíska lag Sumarnótt. Hann
frumflutti þijú lög eftir Ríkarð Örn
Pálsson, Cesar og Rubico, Robinson
Cruso, og hið bráðfyndna Hillary á
Everest. í lokahluta tónleikanna
söng hann Canciones para ninos
eftir Terzian og eftir Jón Leifs söng
hann Söngva Sögusinfóníunnar sem
túlkaðir voru af dramatískri innlif-
un, með söng og píanóleik, tveggja
sannra listamanna.
Gerð kynningarefnis styrkt
MYNDLISTARSJ ÓÐUR íslands
hefur auglýst eftir umsóknum um
styrki til myndlistarmanna til þess
að stuðla að gerð kynningarefnis í
tengslum við myndlistarsýningar
einstaklinga á tímabilinu 1995-
1997.
Sjóðurinn var stofnaður árið
1987 og er byggður á fylgiréttar-
gjöldum sem innheimtast af öllum
þeim verkum sem seld eru á upp-
boðum eða eru endurseld í galleríum
í atvinnuskyni. Þetta er í fyrsta
skipti sem auglýst er eftir umsækj-
endum um styrki og sagði Sigur-
laug Löfdal, starfsmaður sjóðsins,
að styrkirnir, sem verða sennilega
átta og hver um 50.000 krónur,
væru einungis ætlaðir til að létta
undir með listamönnum sem ætla
að halda sýningar.
„Það þarf að semja og gefa út
heilmikið af kynningarefni þegar
sýning er haldin og allt kostar það
peninga sem getur verið erfitt fyr-
ir listamanninn að afla. Það getur
kostað á bilinu frá 50.000-
300.000 krónur að halda sýningu
og styrkurinn á að létta mönnum
þá byrði.“
' s- < l A * t I
arde;
KYMNIMG
Kynning áARDEN snyrtivörum
í Hygea Kringlunni,
dagana 9. og 10. nóvember
frákl. 13-18.
20% kynningarafsláttur.
3 nýjar tegundir af andlitsfarða
svo nú er ARDEN með 5 gerðir
af mismunandi farða. Ein þeirra
hentar þér örugglega.
Einnig nýr ilmur frá
ARDEN True Love.
Óvœntur glaðtiitigur.
H Y G E A
dnyrtivöruverjlun
Skefur þú
r • rT w r
/
i þættinum
hjá Hemma?
Fáðu þér
„Happ í Hendi"
skafmiða fyrir
föstudagskvöldið og
taktu þátt í leiknum.
Þú getur líka unnið
flBB
i^aaasKtfA
strax
• p
Fjöldi aukavirminga
dreginn út í þættinum
Skafðu fyrst og horfðu svo!
Samvliuiuterálr
Linðsýii