Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 21
tf=3Ss-‘
Uri.\7íum matMud
ú ílóöri stund
Jeltsín
eykur
störfin
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
hefur Iengt nokkuð starfsdag sinn
á sjúkrahúsinu og átti fund í gær
með tveimur ráðherrum um
ástandið í Tsjetsjníju. Vill stjórnin
umfram allt koma í veg fyrir vand-
ræði þar á síðustu vikum barátt-
unnar fyrir þingkosningarnar í
desember.
Sergei Medvedev, talsmaður
Jeltsíns, sagði, að hann hefði átt
fund með Vjatsjeslav Míkhaílov,
sem fer með málefni þjóðarbrota
og er helsti samningamaður
stjórnarinnar í Tsjetsjníju, og Ana-
tólíj Kúlíkov innanríkisráðherra.
Biðstaða í Tsjetsjníju
Samkvæmt samningum, sem
undirritaðir voru í júlí, áttu upp-
reisnarmenn í Tsjetsjníju að láta
vopn sín af hendi gegn því, að
rússneski herinn yrði fluttur frá
landinu að hluta. Að því búnu áttu
að hefjast viðræður um framtíðar-
stöðu landins. I þessu hefur hins.
vegar ekkert gerst eftir að yfir-
maður rússneska herliðsins í land-
inu særðist alvarlega í sprengjutil-
ræði í höfuðborginni, Grosní,
snemma í október.
Talsmenn Jeltsíns segja, að
hann hafí tekið upp nýja vinnutil-
högun og séu honum nú færð dag-
lega öH skjöl, sem hann þarf að
fjalla um.
Jeltsín ákvað í gær, að Tatjana
Paramonova skyldi láta af starfí
seðlabakastjóra og skipaði í henn-
ar stað einn aðstoðarmanna henn-
ar, Alexander Khanddrújev. Par-
amonova tók við embættinu eftir
gengishrun rúblunnar í október
fyrir ári en þingið hefur ekki viljað
staðfesta skipun hennar.
er vönduð gæðaframleiðsla
er rakaþolið og umhverfisvænt
er auðveldara að leggja en annað parket
hefur mikið höggþol
er slitsterkt og þolir mikinn umgang
má slípa oftar en einu sinni
og helstu byggingavöruverslanir
á landsbyggðinni
i morgum