Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 21

Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 21 tf=3Ss-‘ Uri.\7íum matMud ú ílóöri stund Jeltsín eykur störfin Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, hefur Iengt nokkuð starfsdag sinn á sjúkrahúsinu og átti fund í gær með tveimur ráðherrum um ástandið í Tsjetsjníju. Vill stjórnin umfram allt koma í veg fyrir vand- ræði þar á síðustu vikum barátt- unnar fyrir þingkosningarnar í desember. Sergei Medvedev, talsmaður Jeltsíns, sagði, að hann hefði átt fund með Vjatsjeslav Míkhaílov, sem fer með málefni þjóðarbrota og er helsti samningamaður stjórnarinnar í Tsjetsjníju, og Ana- tólíj Kúlíkov innanríkisráðherra. Biðstaða í Tsjetsjníju Samkvæmt samningum, sem undirritaðir voru í júlí, áttu upp- reisnarmenn í Tsjetsjníju að láta vopn sín af hendi gegn því, að rússneski herinn yrði fluttur frá landinu að hluta. Að því búnu áttu að hefjast viðræður um framtíðar- stöðu landins. I þessu hefur hins. vegar ekkert gerst eftir að yfir- maður rússneska herliðsins í land- inu særðist alvarlega í sprengjutil- ræði í höfuðborginni, Grosní, snemma í október. Talsmenn Jeltsíns segja, að hann hafí tekið upp nýja vinnutil- högun og séu honum nú færð dag- lega öH skjöl, sem hann þarf að fjalla um. Jeltsín ákvað í gær, að Tatjana Paramonova skyldi láta af starfí seðlabakastjóra og skipaði í henn- ar stað einn aðstoðarmanna henn- ar, Alexander Khanddrújev. Par- amonova tók við embættinu eftir gengishrun rúblunnar í október fyrir ári en þingið hefur ekki viljað staðfesta skipun hennar. er vönduð gæðaframleiðsla er rakaþolið og umhverfisvænt er auðveldara að leggja en annað parket hefur mikið höggþol er slitsterkt og þolir mikinn umgang má slípa oftar en einu sinni og helstu byggingavöruverslanir á landsbyggðinni i morgum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.