Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 13
Skiptar skoðanir í bæjarstjórn um yfirbyggðan fótboltavöll
Verðum að hafa þor
til að prófa nýjar leiðir
Hlutafélag um reksturinn fyrirfram gjaldþrota
YFIRBYGGT hús til æfinga fyrir
knattspymumenn varð tilefni mikilta
umræðna á fundi bæjarstjómar Ak-
ureyrar á þriðjudag, en skiptar skoð-
anir em innan bæjarstjómar um á
hvern hátt best verði staðið að úrbót-
um fyrir knattspymumenn í bænum.
Formaður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, Þórarinn E. Sveinsson bæjarfull-
trúi, lagði fyrir skömmu ,fram í ráðinu
tiliögu þess efnis að stofnað verði
hlutafélag sem hefði að markmiði að
vinna að úrbótum fyrir knattspymu-
menn, t.d. með yfirbyggingu. Bæjar-
fulltrúar em ekki á eitt sáttir um
ágæti slíks hlutafélags.
Þórarinn sagðist hafa kynnt sér
þessi mál gaumgæfilega, m.a. í ná-
grannalöndum okkar þar sem víða
tíðkast að stofna til hlutafélags um
byggingu og rekstur slíkra húsa.
„Mér finnst sjálfsagt að láta á það
reyna hvort við getum farið sömu
leið,“ sagði Þórarinn, en þetta form
myndi ekki hafa í för með sér útgjöld
fyrir bæinn, „og við verðum að hafa
þor til að prófa nýjar leiðir."
Fyrirfram gjaldþrota
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæð-
isflokki, dró rr\jög í efa ágæti hug-
myndarinnar, í raun væri bara verið
að búa til hlutafélag sem fyrirfram
væri gjaldþrota nema því aðeins að
Akureyrarbær sæi um reksturinn.
Skynsamlegra væri því að bærinn
fjármagnaði bygginguna og sæi alfar-
ið um rekstur hennar. Öllum væri ljóst
að vinna þyfti að úrbótum fyrir knatt-
spyrnumenn og standa ætti myndar-
lega að þeim þegar fjárhagur bæjar-
ins leyfði.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, kvaðst fylgjandi því að
reyna nýjar leiðir í þessu máli, en hún
hefði ekki áhuga á hlutafélagi sem
Akureyrarbær ætti 95% í.
Oddur Halldórsson, Framsóknar-
flokki, taldi fullvíst að yfirbyggður
fótboltavöllur myndi bera sig, menn
þyrftu bara að sníða sér stakk eftir
vexti.
Sigfríður Þorsteinsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, sagði menn nokkuð
sammála um að næsta stórfram-
kvæmd í íþróttamálum væri að vinna
að úrbótum fyrir knattspyrnumenn,
„og ég hélt í einfeldni minni að það
mætti ræða við íþróttafélagið Þór um
að það tæki þetta að sér,“ sagði hún.
Ásgeir Guðbjartsson, útgerðarmaður
Flotkvíin er hreinasta þarfaþing
FRYSTITOGARINN Guðbjörg ÍS frá
ísafirði heldur til veiða í kvöld en
undanfarna daga hefur togarinn ver-
ið í ársskoðun hjá Slippstöðinni Odda
hf. á Akureyri. Skipið var tekið í
flotkvína og segir Ásgeir Guðbjarts-
son, útgerðarmaður og skipstjóri, að
flotkvíin sé hreinasta þarfaþing og
hún eigi örugglega eftir að skapa
mikil verkefni fyrir iðnaðarmenn á
Akureyri.
„Það þurfti m.a. að skipta um sjó-
rör sem höfðu tærst og þar sem skip-
ið er enn í ábyrgð var nauðsynlegt
að gera þetta núna. Starfsmenn
Slippstöðvarinnar stóðu sig mjög vel
og voru á ætlun með sitt verk en
hins vegar urðu tafir á afgreiðslu
efnis og varahluta frá Norðmönnum."
Ásgeir hefur skipt töluvert við
Slippstöðina í gegnum tíðina en einn-
ig látið vinna verk fyrir sig erlendis.
Hann telur að íslenskir iðnaðarmenn
séu fullfærir um að vinna þau verk
sem þarf að vinna fyrir íslenska fiski-
skipaflotann og að ekki þurfi að fara
með verkefni erlendis.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Nýsveinum afhent
prófskírteini
ELLEFU nýsveinar í húsa-
smíði fengu afhent prófskír-
teini sín við athöfn á veitinga-
húsinu Fiðlaranum nýlega,
Guðmundur Ómar Guð-
mundsson formaður Félags
byggingamanna í Eyjafirði
sagði m.a. í ávarpi sínu til ný-
sveina að mikilvægt væri að
efla gildi verkmenntunar í
landinu og brýndi fyrir þeim
að sjást ætti á handverki þeirra
að námið sem þeir stunduðu
hafi verið þeim einhvers virði.
„Starf iðnaðarmanna var mik-
ið virðingarstarf fyrr á öldinni
og litið var upp til þeirra af
því handbragðið bar þeim gott
vitni. Gott handbragð er enn
mjög mikilvægt," sagði Guð-
mundur.
A myndinni eru frá vinstri
Guðmundur Ómar, þá ný-
sveinarnir Steinmar Rögn-
valdsson, Valþór Brynjarsson
og Elvar Vignisson í fremri
röðinni, en í þeirri aftari eru
Jóhann Jóhannsson, Heiðar
Jónsson, Sigmar Kárason og
Hermann G. Jónsson. Þá Guð-
mundur S. Jóhannsson próf-
meistari og Hólmsteinn Snæ-
dal prófdómari. Fjóra ný-
sveina vantaði við afhendingu
skírteina, þá Þórhall Krist-
jánsson, Frey Aðalgeirsson,
Guðna Þór Ragnarsson og
Jónas Aðalsteinsson.
iriháttar til
Ný
DICKIES-sending
komin
Buxur 3.900 kr.
Skyrtur 2.500 kr.
Ulpur 6.900 kr.
Pantanir
óskast sóttar.
Munið
útsölumarkað
í kjallaranum
Buxur frá 500 kr.
Skyrtur frá 500 kr.
Skórfrá 1.000 kr.
Gallabuxur frá
1.000 kr.
Bolir frá 300 kr.
Afmæiskaka
+ kaffi kr. 150,
KOOKAI — DIESEL — METHOD — WORKS — STICKY FINGERS — SHELLY S — DESTROY
Dömudeild Herradeild
, Kookai peysur 5.500 nú 3.900. Köflóttar skyrtur 3.900 nú 1.900.
|91|VI| k Kookai rúllukragabolir nú 1.500. Þykkar rúllukragapeysur 6.500 nú 3.900,
L Best Montana peysur 4.500 nú 2.900. Lambsullar peysur 3.900 nú 1.900.
Best Montana skyrtur 5.500 nú 3.900. Síðir ullarjakkar 12.900 nú 9.900.
Iim mB Eternal nælon jakkar 10.900 nú 6.900. Flauels bolir 4.900 nú 2.500.
m Síðar Mohair rúllukragapeysur 3.900 nú 2.500. Hermannaklossar 8.900 nú 5.900.
llwtÁi F uPPreimaði.r gönguskór 5.900 nú 3.900. Vinnuskyrtur nú 2.500.
lUOvi ' Destroy skór 7.900 nú 4.900. Reimaðir ökklaskór 5.900 nú 3.900.
Blússur 4.900 nú 2.900. Gallabuxur 3.500.
Gallabuxur 3.500 Jakkaföt tilboð frá 9.900.
Dpið 10-16 laugardaga.
Opið 13-17 sunnudaga
(í Kringlunni).
Góðar vörur
á vægu verði
Verið velkomin