Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Simi simsvari ou fa.x
AKUREYRI
Bókanir bygginganefndar aftur til bæjarráðs
Einum hótað dag-
sektum, öðrum ekki
TVEIMUR bókunum bygginga-
nefndar, þar sem samþykkt voru
hert ákvæði um byggingahraða
tveggja húsa, var vísað til bæjarráðs
til frekari umfjöllunar á fundi bæjar-
stjórnar í fyrradag.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, vakti athygli bæjarfull-
trúa á misræmi milli bókana nefnd-
arinnar, þar sem í öðru tilvikinu var
hótað að beita dagsektum en í hinu
ekki.
Annars vegar er um að ræða
byggingaframkvæmdir við Bakka-
síðu 6, en þar hafa nágrannar mót-
mælt margra ára seinagangi við
Náttúrufræðistofnun
og Náttúrugripasafn
Fluttí
Krónuna
síðla vetrar
STARFSEMI Náttúrufræðistofn-
unar íslands á Akureyri og Náttúru-
gripasafns Akureyrar verður flutt
úr núverandi húsnæði við Hafnar-
stræti 81 í nýtt hús, Krónuna, í
miðbæ Akureyrar síðari hluta vetr-
ar. Til stóð að starfsemin yrði flutt
nú í haust, í september eða október,
en húsnæðið er ekki tilbúið enn.
Hörður Kristinsson, forstöðumað-
ur Náttúrufræðistofnunar á Akur-
eyri, bjóst ekki við að starfsemin
yrði flutt fyrr en í fyrsta lagi í febr-
úar næstkomandi en nýlega var lok-
ið við að steypa upp sjöttu og efstu
hæð hússins. Enn er ekki búið að
innrétta hæðina, en þar verður Nátt-
úrufræðistofnunin til húsa auk emb-
ættis veiðistjóra.
Á fjórðu hæð hússins verður sýn-
ingarsalur Náttúrugripasafnsins auk
þess sem rannsóknarstofu og grasa-
safni Náttúrufræðistofnunar verður
komið þar fyrir.
a llBISIBJBIBIBiaiBIBfBIBlBIBIBlBiaBlgfaaBIBlBiaiBigiBlBlBiaaaiBIB/BlBIBiaiBigjBIBIBIBraiBIBlBIBlBiaBIBIBIBIBlBiaBiaaiaiagiBIBIBIBlBlBI
í
Seljendur hlutabréfa:
Umsjón með útboði:
NafnVerð hlutabréfa:
Gengi hlutabréfanna:
Sölutími:
Forkaupsréttur:
Söluaðilar:
SKINNAIÐNAÐUR HF.
Almennt hlutafjárútboð
Skinnaiðnaður hf. og Framkvæmdasjóður Akureyrar.
Kaupþing Norðurlands hf.
Heildarfjárhæð útboðs er kr. 31.250.000. Þar af eru ný hlutabréf í
Skinnaiðnaði hf. að nafnverði kr. 10.000.000.
Sölugengi hlutabréfanna er í upphafi 3,00.
Sölutími bréfanna er 9. nóvember 1995 til 9. maí 1996.
Núverandi hluthafar hafa forkaupsrétt að nýju hlutafé til 30. nóvember
1995 í hlutfalli við eign sína. Hlutabréf Framkvæmdasjóðs Akureyrar
verða hins vegar boðin almenningi strax við upphaf útboðs hinn 9.
nóvember 1995.
Kaupþing Norðurlands hf., Kaupþing hf., Fjárfestingarfélagið Skandia
hf., Handsal hf„ Landsbréf hf„ Samvinnubréf Landsbankans og
Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
Sótt hefur verið um skráningu hlutabréfa Skinnaiðnaðar hf. á
Verðbréfaþingi íslands.
Lágmarksfjárhæð í almennri sölu er 10.000 kr. að nafnverði sem
samsvarar 30.000 kr. að söluverði. Bréfin verða seld gegn staðgreiðslu.
Þó munu 120 fyrstu kaupendur hlutabréfa í eigu Framkvæmdasjóðs
Akureyrar eiga kost á að fá vaxtalaust og óverðtryggt lán fyrir allt að
75% kaupverðs til 8 mánaða, ef keypt er fyrir allt að 135.000 kr. Lánið
getur þannig orðið 101.250 kr. að hámarki. Lánið skal endurgreitt með 3
jöfnum afborgunum 15. feb„ 15. maí og 15. ágúst 1996. Kaupþing
Norðurlands hf. mun veita þessi lán.
Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og Skinnaiðnaði hf.
44 KAUPÞING
NOHDURLANDS HF
-Löggilt veröbréfafyrirtæki
Kaupvangsstræti 4 • 600 Akureyri • Sími 462 4700
Skráning:
Skilmálar sölunnar:
mMsmrnmimmisisMmsmmmsMsmsiSMsmsmsimmmmmmsmsmssMsmMmmmmmimmmaæMsmmsssMímmm.
axm
34.900
ptmn
13.900
aöainft 'Z'i 5 g\
54.900.,
ílboósve
39.900,
■■ n »®
■«íV
■■UL«i
SÆTÚNt 8 • 105 REYKJAVÍK
TAKNI' 0G T0LVUDEILD
Ö Heimilistæki hf.
SlMI 569 1500 • BEINN SlMI 569 1400 • FAX 569 1555
framkvæmdir og bent á hættuástand
sem skapast hefur af þeim sökum.
Nefndin samþykkti að húsnæðið
skuli vera fokhelt og lóð að fullu
frágengin fyrir 10. júní á næsta ári.
Fokhelt 1. desember
í hinu tilvikinu er um að ræða
byggingaframkvæmdir við lóðina
Kaupvangsstræti 1 þar sem fram-
kvæmdir hafa dregist verulega á
langinn. Samkomulag við lóðarhafa
um lok tiltekinna byggingaráfanga
hafa ekki staðist. Þar sem bygging-
arframkvæmdir hafa stöðvast um
lengri og skemmri tíma samþykkti
bygginganefnd hert ákvæði um
byggingarhraða, sem felast í því að
húsið á að vera fokhelt og lóð gróf-
jöfnuð og hreinsuð eigi síðar en 1.
desember næstkomandi og skal það
vera fullfrágengið að utan og lóð
fullfrágengin eigi síðar en 15. júní
á næsta ári. Verði ekki orðið við
þessum skilyrðum áskilur nefndin
sér rétt til þess að leggja dagsektir
á lóðarhafa.
Björn Jósef sagði eðlilegt að beita
lóðarhafa hörðu, drægju þeir úr
hömlu að ljúka framkvæmdum, en
að sínu mati væri rétt að jafnt gengi
yfir alla. Að tillögu Sigríðar Stefáns-
dóttur, Alþýðubandalagi, var bókun-
um bygginganefndar því vísað til
frekari umfjöllunar í bæjarráði.
ÚA þriðji
stærsti eig-
andi Skag-
strendings
ÚTGERÐARFÉLAG Akur-
eyringa hf. hefur keypt rúm-
lega 9% hlut í útgerðarfyrir-
tækinu Skagstrendingi hf. á
Skagaströnd og er ÚA þar
með orðið þriðji stærsti eig-
andi fyrirtækisins.
ÚA keypti nýlega 6% hlut
Sveins Ingólfssonar, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra Skag-
strendings og til viðbótar hef-
ur fyrirtækið keypt rúm 3%
af ýmsum aðilum. Fyrir þessi
hlutabréf greiðir ÚA 45-50
milljónir króna en bréfin eru
keypt á genginu 3,4.
Björgólfur Jóhannsson,
fjármálastjóri ÚA, segir kaup-
in á bréfunum í Skagstrend-
ingi góða fjárfestingu, enda
hafi fyrirtækið verið sterkt og
vel rekið í gegnum tíðina. Hins
vegar séu ekki áform á þess-
ari stundu um frekari kaup á
hlutabréfum í Skagstrendingi.
Sem fyrr segir er ÚA nú
þriðji stærsti eigandi Skag-
strendings. Höfðahreppur á
rúm 28%, Burðarás hf. um
13%, ÚA rúm 9% og Jöklar
hf. um 6%.
Handverk
og menning
INGÓLFUR Ingólfsson, lektor
við Kennaraháskóla Islands,
flytur fyrirlestur í Deiglunni í
Grófargili fimmtudagskvöldið
9. nóvember kl. 20.30.
Fyrirlestur hans nefnist „Án
þekkingar á handverkinu deyr
menningin" og er hann sá fysti
í röð fyrirlestra frá Heimilis-
iðnaðarskóla íslands. Gilfélag-
ið hefur hug á að fá fleiri fyrir-
lesara frá skólanum í vetur
sem skapar gott tækifæri fyrir
þá sem vilja auka þekkingu
sína á sviði handverks og lista.
Aðgangur að fyrý-lestrinum
er ókeypis og öllum heimill.