Morgunblaðið - 09.11.1995, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
ERLENT
Hryðjuverkin
í Frakklandi
Margir
tilræðis-
menn
hafa náðst
París. Reuter.
TEKIST hefur klekkja verulega á
ofstækisfullum múslimum í Frakk-
landi og getu þeirra til að stunda
þar hryðjuverkastarfsemi. Kom
þetta fram hjá innanríkisráðherra
landsins í gær en hann sagði, að
hættan væri þó enn fyrir hendi.
Jean-Louis Debre, innanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði, að
baráttunni gegn hryðjuverka-
mönnum yrði haldið áfram af full-
um krafti í samvinnu við lögreglu-
yfirvöld í öðrum Evrópulöndum.
Höfuðpaur í haldi
A laugardag var Alsírmaður,
Abou Fares eða Abdelkader
Benouif, handtekinn í Bretlandi
og leikur grunur á, að hann hafi
skipulagt hryðjuverkin í Frakk-
landi á síðustu mánuðum en þau
hafa orðið sjö manns að bana og
slasað 170. Hafa Frakkar farið
fram á, að honum verði haldið þar
til framsals hefur verið krafíst.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, var á fyrsta fundi hinnar
nýju ríkisstjómar í Frakklandi í
gær og þakkaði þá sérstakiega
þeim, sem unnið hafa að rannsókn
á hryðjuverkunum. Tugir manna
hafa verið handteknir og í síðustu
viku var Alsírmaðurinn Bouaiem
Bensaid tekinn í París ásamt fimm
félögum sínum. Er hann taíinn
vera einn af lykilmönnum í
sprengjuherferð Öfgamannanna.
Hvetja til
HÓFSÖM samtök Tamíla á Sri
Lanka hvöttu í gær til tafar-
lauss vopnahlés þar sem flótta-
mannavandi væri kominn úr
böndum. Sögðu þeir að ástandið
væri einungis hægt að bera
saman við Bosníu. Mjög mikið
Reuter
vopnahlés
mannfall hefði átt sér stað í
röðum óbreyttra borgara sem
hraklist hefðu undan stríðsá-
tökum. Myndin var tekin af íbú-
um þorpsins Boatta á austur-
hluta Sri Lanka þar sem þeir
höfðu leitað skjóls í skólahúsi.
Ráðgiafarþóknun til breskra þingmanna
Munu skýra frá
öllum greiðslum
London. The Daily Telegraph.
TUGIR þingmanna breska Ihalds-
flokksins studdu tiliögu stjómar-
andstöðunnar fyrr í vikunni um að
þingmönnum yrði gert skylt að
skýra frá öllum peningagreiðslum
vegna ráðgjafar fyrir einkafyrir-
tæki og þrýstihópa. Markmiðið með
tillögunni er að draga úr spillingu
og er hún í samræmi við hugmynd-
ir Nolan-nefndarinnar svonefndu.
Atkvæði féllu 322-271. Mikill
þrýstingur var af hálfu ýmissa fjöl-
miðla á þingmenn að sýna að þeir
hefðu ekkert að fela og samþykkja
því tillöguna. Sumir þingmenn ótt-
ast að kjósendur verði yfir sig
hneykslaðir er þeir sjá hve mikið
fé getur verið um að ræða enda
algengt að stjórnmálamenn geri
talsvert úr peningabasli sínu og
fórnarlund fyrir almenning.
Tímaritið Spectator telur að
þingmenn ættu einfaldlega að
leggja spilin á borðið, krefjast mun
hærri launa en hætta að næla sér
í aukatekjur og bitlinga.
Frá apríl nk. verða þingmenn að
gera fulla grein fyrir aukatekjum
sínum af áðurnefndu tagi. Það eru
einkum íhaldsþingmenn sem njóta
verulegra tekna fyrir ráðgjöf; þing-
menn Verkamannaflokksins eru
sjaldan eftirsóttir til slíkra starfa.
Það gæti þó breyst ef flokkurinn
sigrar í næstu kosningum.
Umdeildar
fyrirspurnir
Nolan-nefndinni var fyrir ári fal-
ið að kanna leiðir til að bæta sið-
ferði í stjórnsýslu og á þingi er upp
komst um nokkra íhaldsþingmenn
sem þágu greiðslur frá einkaaðilum
fyrir að bera upp ákveðnar fyrir-
spurnir á þingi.
Þingmenn samþykktu ótvírætt
bann við slíkum fyrirspurnum og
sett verður á stofn ný þingnefnd
er kanna ber mál af þessu tagi
framvegis.
Þótt John Major forsætisráðherra
hafi sett Noian-nefndina á laggirn-
ar mælti hann gegn tillögunni um
upplýsingaskylduna og er því um
ósigur fyrir hann að ræða. Ráðherr-
ar hans höfðu lagt til þá málamiðl-
un að þingmenn skyldu leggja fram
afrit af samningi um ráðgjafar-
þóknun en þeir mættu halda því
leyndu hve mikið þeir fengju greitt.
„Við eigum
rétt á einkalífi11
Ljóst er að tekið verður á auka-
tekjum þingmanna með gerbreytt-
um hætti framvegis en málið olli
hörðum deilum innbyrðis meðal
þingmanna íhaldsflokksins og
miklu ljölmiðlafári. Einn liðsmanna
þingflokksins, David Wilshire,
sagðist vera orðinn „dauðþreyttur
á að vera kallaður gerspilltur ræf-
ill“.
Sir Edward Heath, fyrrverandi
forsætisráðherra, á nú sæti í lá-
varðadeildinni. Hann sakaði Verka-
mannaflokkinn um að vilja varpa
ljósi á fé fyrir ráðgjöf eingöngu
vegna þess að þingmenn hans væru
sjálfir fullir af öfund og græðgi.
Almenningur ætti rétt á því að vita
hve há laun þingmenn fengju en
ekkert fram yfir það. „Við eigum
rétt á einkalífi," sagði hann.
>
>
>
i
i
i
I
i
Ættingjar morðingja Rabins biðja um fyrirgefningu
Ráðherra óttast fleiri pólitísk morð
Jerúsalem. Reuter.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA ísraels
óttast að fleiri tilræði geti fylgt í
kjölfar morðsins á Yitzhak Rabin
forsætisráðherra á laugardag. „Það
er mikil hætta á að alvarleg röskun
verði á lögum og reglu - jafnvel
svo að annað pólitískt morð verði
framið,“ sagði ráðherrann, Michael
Ben-Yair, í viðtali við dagblaðið
Haaretz sem birtist í gær. Ættingj-
ar morðingja Rabins báðu ekkju
hans fyrirgefningar á ódæðinu í
bréfí sem þeir sendu á þriðjudag.
Ungur, öfgafullur gyðingur, Yig-
al Amir, sem barist hefur á móti
friðarsamningunum við Palestínu-
menn, myrti Rabin í Tel Aviv og
segist ekki iðrast verksins.
Ben-Yair sagði marga halda því
fram að morðið á Rabin gæti orðið
til að vekja fólk til umhugsunar um
ofbeldishættuna og draga þannig
úr henni. Hann teldi sjálfur að um
óskhyggju gæti verið að ræða.
„Þetta morð getur valdið því að
annar maður, með sömu skoðanir
og morðinginn, drýgi annað póli-
tískt morð, á sama hátt og sjálfsvíg
eins hefur áhrif á annað fólk með
ákveðin persónueinkenni,“ sagði
ráðherrann.
„Höfuð okkar
hulin af skömm“
Enn er verið að kanna hvort bróð-
ir Amirs átti aðild að tilræðinu en
þeir eiga sex yngri systkin. Að sögn
Haaretz fékk Leah Rabin, ekkja
forsætisráðherrans, bréf frá for-
eldrum og systkinum Amirs þar sem
hún og öll þjóðin eru beðin fyrir-
gefningar á verknaðinum.
„Þetta hryllilega morð var ægi-
legt áfall fyrir þjóð ísraels og okk-
ur,“ segir í bréfínu. „Það skók und-
irstöður menningar og gilda sem
við innrættum börnum okkar, ástar
á þjóð ísraels, gagnkvæmrar virð-
ingar meðal manna, ástar á landinu
og gyðinglegra gilda.
Full sektarkenndar, syrgjandi og
höfuð okkar hulin af skömm, biðjum
við frú Rabin, fjölskyldu hennar og
alla þjóð ísraels um fyrirgefningu
og lýsum því yfír að við erum and-
víg öllu ofbeldi".
Prentara- »
verkfall >
- íParís
París. Reuter.
SKÆRUVERKFALL prentara olli
því, að flest Parísarblöðin komu
ekki út í gær. Urðu margir að láta
. sér nægja að lesa um uppstokkun-
ina á frönsku stjórninni á ensku í jj
International Herald Tribune. k
Til verkfallsins var boðað vegna P
áætlana um fækkun prentara í 9
prentsmiðjum blaðanna og bitnaði
það mest á stóru blöðunum eins og
Le Figaro og Liberation en fjár-
málablaðið L’Agefi og íþróttablaðið
L’Equipe komu út.
• Á bifreiöaverkstæðum þar sem félagsmenn okkar starfa eru
þeir klæddir sérstökum vinnufatnaöi meö merki Bíliönafélagsins.
• Merkiö tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka
og hefur aögang aö endurmenntun á sinu sérsviði.
• Láttu ekki bílinn þinn í hendurnar
:
I
l
i
i
i
[
i
\r
á hverjum sem er. Það gæti orðið þér dýrt.