Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 51
einstakrar fegurðar rósa. Með yfir-
læti virða þær fyrir sér samkeppni
hinna blómanna; fullvissar þess að
þær séu ókrýndar drottningar jurta-
ríkisins. Slíkt viðhorf hefur ei gæf-
una sem fylgisvein. Margir vilja
notfæra sér misskilning þessara
rósa, nema þær á brott úr sínu
náttúrulega umhverfh Þær verða
því sjaldan langlífar. Án þess að fá
neitt við það ráðið hafna þær oft
sem afskorin blóm í kristalvasa ein-
hvers aðdáandans. Áfallið lætur á
sér standa um stund: í nokkra daga
taka rósirnar sig vel út, sem stofu-
stáss, eru stoltar af fegurð sinni,
og baða sig í lofsyrðum eiganda
síns. Þá er komið að tímanum að
sýna sitt yfirvald. Hann gefur
nokkrum örlítinn frest í viðbót til
þess að spegla sig áfram í einfeldni
sinni og hégóma. Svo leggur hann
til atlögu: Fegurðardísirnar byija
að láta á sjá; fölna og visna, hengja
höfuð sitt máttvana á axlir hver
annarrar; andast að lokum á ókunn-
um stað. Enginn veit þetta betur
en sólin. Hún er þögult vitni þessa
ár eftir ár. Af móðurlegri um-
hyggju sendir sólin geisla sían til
jarðar; veit sem er, að ekki er öllum
gefið að þekkja sinn velgjörðar-
mann. Ef sólin fengi mál myndi hún
kannski hvísla sem svo: „Littu á
hvern dag sem gjöf til þess að vaxa
að verðleikum, sem þitt tækifæri
til þess að öðlast skilning. Lífinu
auðmýkt og virðingu síndu; samúð
sorgmæddum, umhyggju bágstödd-
um. Væntu þér lítils, gefðu sem
mest, þá mun þér ávallt farnast sem
best. Faðir minn Máni og móðir
mín Bára í bernsku mér það
kenndu. Með þeirra leyfi ég því
hvísla nú að þér.“
Já, fögur og gjöful er náttúra
jarðar, kraftaverki líkust, ef staldr-
að er við. Ár hvert fá mennirnir að
upplifa fullkomna listsköpun og
litadýrð hennar, þegar Vorið klæð-
ist brúðarskarti sínu og gengur að
eiga Bjart úr Ljósheimum. Grasið
iðjagrænt er kirkjugólfið þeirra,
blómlaukarnir brúðarvöndurinn;
ávaxtatrén hvítt höfuðdjásnið; sír-
enutrén blómfagur brúðarkjöllinn;
fuglarnir brúðarmeyjar og -sveinar;
fjölæru jurtirnar böm og barna-
börn. Ævintýrið er hér mitt á með-
al okkar, svo lengi sem við lifum
og skynjum, og glötum ekki tengsl-
um okkar við Guð. Ræktum því
garð hjartans.
Áslaug Þormóðsdóttir.
Við hjá Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana eigum margar góðar
minningar um félaga okkar Mar-
gréti Matthíasdóttur. Hún vann
mikið að félagsmálum í SFR og var
ævinlega tilbúin til að fórna tíma
sínum og kröftum til að vinna að
þeim málefnum sem henni voru
hugleikin.
Margrét starfaði sem hjúkrunar-
ritari á 33 C á Ríkisspítölum. Það
var erilsamt starf en hún var vön
að vinna þar sem margir voru sam-
an komnir, þannig að ég veit það
að þó að starfsfólk og sjúklingar
hafi verið kringum hana þá hefur
hún alltaf verið í sama góða skap-
inu. Margrét var glaðlynd kona og
hafði þá ásýnd að hún léti lítt hagg-
ast þótt eitthvað blési á móti.
Hér innan félagsins vann hún
fyrir deild hjúkrunarritara og bar
hag starfsfélaga sinna mjög fyrir
bijósti og hefði viljað sjá miklu
betri árangur af starfi sínu þar.
Eins og allir vita hefur það ekki
verið auðvelt að starfa að því að
hópur lágt launaðra kvenna fengi
leiðréttingu launa sinna og það
þarf kjarkmikð og duglegt fólk, eins
og Margrét var, til að vinna að slík-
um réttlætismálum. Margrét sá
einnig um kórinn okkar, SFR-kór-
inn. Þar er mjög samheldinn hópur
og þar veit ég að hennar er sárt
saknað eins og hjá okkur öllum sem
kynntumst henni í starfí og leik,
því stundum bráir af okkucLstétta-
baráttunni og alltaf þegar við fórum
' gróðursetningarferð þar var Mar-
grét komin til að rækta landið okk-
ar og gefa okkur af sínu góða skapi
sem hún átti svo ríkulega.
Sigríður Kristinsdóttir,
formaður SFR.
+
Móðursystir mín,
SIGURLEIF HALLGRÍMSDÓTTIR
sjúkraþjálfari,
Eskihlíð 6,
er látin.
Fyrir hönd vandamanna,
Andrea Oddsteinsdóttir.
Sambýliskona mín,
BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR,
Mýrarholtil,
Ólafsvík,
andaðist föstudaginn 3. nóvember sl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. nóvember
kl. 13.30.
Stefán Pétursson,
móðir og systkini.
+
Konan mín og móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1B,
Kópavogi,
er lést þann 4. nóvember, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 10.30.
Blóm afþökkuð, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess.
Björn Jónsson og börnin.
+
Elskulegur eiginmaður minn,
RAGNAR KRÚGER,
Skólagerði 34,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30.
+
Ástkær eiginmaður minn og bróðir, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
sr. RÖGNVALDUR FINNBOGASON,
verður jarðsunginn í Borgarneskirkju föstudaginn 10. nóvember
kl. 13.30. Jarðsett verður að Staðastað.
Kristín R. Thorlacius,
Sesselja Finnbogadóttir, Jón Finnbogason,
Hildur Rögnvaldsdóttir, Páll Benediktsson,
Þrándur Rögnvaldsson, Sigríður Þórarinsdóttir,
Áslaug Th. Rögnvaldsdóttir, Sven Aschberg,
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, Árni Þór Vésteinsson,
Ragnhildur Rögnvaldsdóttir, Markús Gunnarsson,
Sigurður Th. Rögnvaldsson, Nanna Lind Svavarsdóttir,
Finnbogi Rögnvaldsson, Sæbjörg Kristmannsdóttir,
Örnólfur Rögnvaidsson, Magnea Þóra Einarsdóttir,
Ólafur Rögnvaldsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞURÍÐUR EINARSDÓTTIR
frá Leysingjastöðum
í Dalasýslu,
Vesturbergi 90,
lést í Borgarspítalanum 29. október sl.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Einar Valdimarsson, Unnur Ásmundsdóttir,
Ólafur Valdimarsson, Jenný B. Ingólfsdóttir,
Sigurdís Valdimarsdóttir, Aðalsteinn Eyjólfsson,
Signý Halldóra Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ásabraut 2,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 14.00.
Auðunn Karlsson,
María Auðunsdóttir, Hallgri'mur Kristmundsson,
Sigríður Auðunsdóttir, Reynald Þorvaldsson,
Helga Auðunsdóttir, Garðar Brynjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN HÚNFJÖRÐ JÓNASSON
frá Hvammstanga,
Fannafold 22,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 15.00.
Helga Ágústsdóttir,
Bára Jónsdóttir, Magnús Einarsson,
Marsý Jónsdóttir, Sævar Sigurgeirsson,
Svandís Jónsdóttir, Leif Österby,
Ástríður Jónsdóttir, Svein Inge Stolen,
afa- og langafabörn.
Ingibjörg Kruger
og börnin.
+
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR VIÐAR JÓNSSON
rafvirkjameistari,
Langholtsvegi 31,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 15.00.
Lúsinda Árnadóttir,
Sigrún Lára Hauksdóttir,
Sverrir Viðar Hauksson, Brynja Arnardóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HULDUBALDURSDÓTTUR,
Dalvík.
Baldur Sigurðsson, Stefam'a Ármannsdóttir,
Birgir Sigurðsson,
Örn Sigurðsson, Rósa Jóhannsdóttir,
Verna Sigurðardóttir, Kristján Þórhallsson,
Gísli Sigurðsson, Birna Tobíasdóttir,
Steinþór Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar kveðjur og þakkir sendum við öllum þeim stóra hópi
ættingja og vina, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við skyndi-
legt andlát foreldra okkar,
GEIRÞRÚÐAR S. FRIÐRIKSDÓTTUR
og
GUNNLAUGS P. KRISTJANSSONAR,
Flateyri.
Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölmörgu, sem aðstoðuðu við
björgun og leit eftir þetta hörmulega slys.
Við sendum Flateyringum öllum innilegar kveðjur og vonum að
mannlífið þar komist sem fyrst aftur í eðlilegt horf.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabet Alla Gunnlaugsdóttir, Gísli Valtýsson,
Ardís Gunnlaugsdóttir, Bergmann Ólafsson,
Kristín Gunnlaugsdóttir, Pétur S. Þórðarson,
Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Finnbogason,
María K. Gunnlaugsdóttir, Þorbergur Dagbjartsson,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Valur N. Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.