Morgunblaðið - 09.11.1995, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 53
Matur og matgerð
Hnetur og
möndlur í mat
í þessum þætti fræðir
Kristín Gestsdóttir
okkur örlítið
um möndlur og
furuhnetur.
ÞEGAR við íslendingar hugsum
um möndlur er það helst í sam-
bandi við kökur og furuhnetur
þekktu Islendingar alls ekki fyrr
en hin síðari ár. Getið er um
möndlur í elstu matreiðslubókum
okkar íslendinga. Möndlur eru
notaðar í marsipan og makrónur.
í löndunum við Miðjarðarhafið
eru möndlur og furuhnetur en á
Vesturlöndum eru þær aðallega
notaðar í sætmeti alls konar. Af
möndlum eru tvær aðaltegundir,
sætar og bitrar. Bitrar möndlur
eru ekki lengur notaðar til matar-
gerðar, enda getur verið hættu-
legt eitur í þeim, en í gömlum
matreiðslubókum er oft einni bit-
urri möndlu bætt út í malaðar
sætar möndlur. Þeir sem fara til
Costa _ del Sol á Spáni sjá oft
mikið af möndlum á alls konar
mörkuðum, þar er meðal annars
mjög ljúffeng tegund, Jórdaníu-
mandlan, sem kemur þó ekki frá
Palestínu heldur frá Malaga á
Spáni. Allir þekkja möndlur en
færri þekkja furuhnetur, sem eru
smáir, aflangir hnetukjarnar,
keimlíkir möndlum en þó mýkri
undir tönn. Oft eru furuhnetur
brúnaðar fyrir notkun. Þær eru
mjög fítu- og orkuríkar og er
próteininnihald þeirra allt að
31%, þær eru viðkvæmar fyrir
þránun. Margir þekkja notkun
þeirra í spænskum saltfiskréttum
og ítalskri pestó-sósu með ba-
siliku, hvítlauk og parmesaosti.
í Mið-Austurlöndum eru þær not-
aðar til að þykkja sósu, t.d. sós-
una tarator, sem er fisksósa með
hvítlauk.
Pestó-sósa
í pestó-sósu eru notuð fersk bas-
ilikublöð, sem fást oftast í stór-
mörkuðum og víðar. Nota þarf
blandara eða matvinnslukvöm til
að búa sósuna tii.
50 g fersk basilikublöð
40 g rifinn parmesanostur
2 meðalstórir hvítlauksgeirar
25 g furuhnetur
1 dl ólífuolíag
1. Rífið blöðin af leggjum, takið
húðina af hvítlauksgeiranum, setjið
í blandara eða kvörn ásamt furu-
hnetum. Malið mjög fínt saman,
gætið þess að basilikublöðin fari
alveg í mauk.
2. Setjið parmesanost út í og
hrærið ólífuolíuna smám saman út
í. Ef þetta verður mjög þykkt má
nota meiri ólífuolíu.
3. Notið strax eða geymið í lítilli
krukku í kæliskáp. Hellið þá 1-2
msk. af ólífuolíu yfir. Geymist í
kæliskáp í eina viku.
Nota má pestó-sósuna út á pasta,
með grænmeti og inn í aflangt
smábrauð (eins og hvítlauksbrauð)
og yfir. þá er gott að hræra mjúkt
smjör saman við, einnig má nota
sósuna í lög (dressing) og bæta við
ediki og olíu. Sósunni má hella yfir
hrísgijónahringinn sem hér er upp-
skrift að.
Hrí sgrj ónahringur
með möndlum og
furuhnetum
Notið hringform.
Misjafnt er hversu mikinn vökva
hrísgijón draga í sig, það fer eftir
tegund og aldri gijónanna. Betra
er að nota smá gijón í þennan rétt,
helst þau sem seld eru í búðum sem
selja vörur frá Austurlöndum.
50 g furuhnetur
50 g afhýddar möndlur
1-2 msk ólífuolía eða önnur
matarolía
1 bolli hrísgijón
u.þ.b. 2 bollar kjúklingasoð eða
vatn og kjúklingasoðteningur.
Örlítið saffron, þræðir eða duft.
1. Saxið möndlur og furuhnetur
frekar smátt. Setjið olíuna á pönnu
og brúnið möndlurnar og hneturnar
í olíunni. Gætið þess að þetta brenni
ekki en það gerist fljótt. Takið strax
af pönnunni, þær brúnast áfram
þótt hún hafí verið tekin af hellunni.
2. Setjið hrísgijón í pott ásamt
kjúklingasoði og saffron, hrærið í
þegar sýður, en hafið síðan þétt lok
á pottinum og sjóðið við vægan
hita í 12 mínútur. Hreyfið lokið
ekki en slökkvið á hellunni og látið
pottinn standa á henni í aðrar 12
mínútur.
3. Smyijið hringform, stráið
möndlunum og hnetunum í formið
og þrýstið hrísgijónunum vel ofan
á.
4. Hvolfið hrísgijónunum á fat,
setjið kjúklingasalat eða annað sal-
at t.d. með rækjum eða smokkfíski
inn í. Einnig má hella pestó-sósu
yfír.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Hraðsveitakeppni
á Austurlandi
HRAÐSVEITAKEPPNI Bridssam-
bands Austurlands var haldin í Hótel
Egilsbúð, Neskaupstað, laugardaginn
4. nóv. 1995. Gefandi verðlauna var
Síldarvinnslan hf.
Til leiks mættu 13 sveitir og urðu
úrslit sem hér segir (miðlungur 864):
Herðir hf., Egilstöðum 1007
(Pálmi, Þórarinn / Guttormur, Sig-
uijón)
Snæfellhf.,Egilsstöðum 966
Aðalsteinn Jónsson, Eskifirði , 908
Reynir Magnússon, Egilsstöðum 881
Hótel Bláfell, Breiðdalsvík 876
Loðnuvinnslan hf., Fáskrúðsfirði 871
Eldri borgarar
FIMMTUDAGINN 2. nóvember sl.
spiluðu átján pör í tveim riðlum með
yfírsetu.
A-riðill
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 122
Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 119
Ragnar Halldórsson - Hjálmar Gíslason 118
B-riðill
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 125
Unnsteinn Jónsson - Siguijón Siggeirsson 123
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 121
Meðalskoríbáðumriðlumvar 108
Sunnudaginn 5. nóvember var spil-
að í 14 og 8 para riðli.
A-riðill
Bergsveinn Breiðfjörð - Stígur Herlusen 174
ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 173
Oddur Halldórsson - Ragnar Halldórsson 167
Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsdóttir 167
Meðalskor 156
B-riðili
Gunnþórunn Erlingsd. - Álfheiður Gíslad. 99
Þorsteinn Erlingsson - Sæbjörg Jónasdóttir 99
Þorsteinn Sveinsson - Eggert Kristinsson 89
Meðalskor 84
Á sunnudaginn hefst fímm sunnu-
daga jólamót og verða veitt tólf verð-
laun sunnudaginn 17. desember.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Nú er lokið flórum umferðum af 13
í aðalsveitakeppni félagsins og mikil
keppni um efstu sæti. Spilaðir eru
tveir 16 spila leikir á kvöldi. Staða
efstu sveita er nú þessi:
Björn Þorláksson - 81
Hjörra 81
Erlingur Örn Arnarson 76
Sveinn R. Eiríksson 71
Anna ívarsdóttir 70
Aðaltvimenningur Bridsfélags
Fljótsdalshéraðs
Staðan eftir 2 kvöld af 5:
Siguijón Stefánsson - Þórarinn V. Sigurðsson 526
Hallgrimur Bergsson - Oddur Hannesson 487
Guttormur Kristmannss. - Pálmi Kristmannss. 477
Kristján Bjömsson - Þorvaldur Hjarðar 447
Aðalsteinn Hákonarson, Reynir Magnússon,
SveinbjömEgilsson 442
Sigurður Þórarinsson - Lúvísa Kristinsdóttir 435
Meðalskor eftir tvö kvöld 420
Úrslit á 2. kvöldi:
Siguijón Stefánsson - Þórarinn V. Sigurðsson 255
Guttormur Kristmannss. - Pálmi Kristmannss. 252
Hallgrímur Bergsson - Oddur Hannesson 251
Áskell Einarsson - Sigurbjöm Snæþórsson 250
Spilað er á mánudagskvöidum kl. 8
i Hótel Valaskjálf.
Bridsfélag SÁÁ
Laugardaginn 4. nóvember fór fram
hin árlega silfurstiga sveitakeppni fé-
lagsins. Alls spiluðu 13 sveitir 6 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Staðan var
æsispennandi fyrir síðustu umferðina.
Sveitir Ólafs, Guðlaugar og Hjörru
voru með 92 stig og sveit Gísla með
91. Ólafur vann Hjörru 25-4 og Gísli
vann Guðlaugu 18-12. Sveit Páls Þórs
skaust upp í 3. sætið með góðum sigri.
Sveit Ólafs Steinasonar 117
(Ólafur Steinason, Guðjón Bragason, Sigfmnur
Snorrason og Sveinn R. Þorvaldsson)
SveitGíslaÞórarinssonar 109
(Gísli Þórarinsson, Þórður Sigurðsson, Helgi Helga-
son og Kristján Már Gunnarsson)
SveitPálsÞórBergssonar 105
(Páll Þór Bergsson, Siguijón Helgason, Dan Hans-
son, Hjálmar Pálsson og Jacqui McGreal)
’SveitGuðlaugarJónsdóttur 104
Sveit Hjörru 96
Sveit Vilhjálms Sigurðssonar 96
JGP-mótið á Suðurnesjum
Lokið er fjórum umferðum af 9 í JGP-
minningarmótinu hjá Bridsféiagi Suð-
umesja. Sveit ofanritaðs fékk fullt hús
stiga síðasta spilakvöld og tók foryst-
una í mótinu, hefir hlotið 88 stig.
Staða efstu sveita er annars þessi:
Guðfinnur KE 82
Garðar Garðarsson 67
Svala Pálsdóttir 62
Siguijón Jónsson 58
Spilaðir eru tveir 14 spila leikir á
kvöldi. Spilað er í Hótel Kristínu á
mánudagskvöldum kl. 19.45.
Umboðsmenn
Akureyrí. Radlónaust
Akranes. Htjómsýn, Byoglngahúsið
Blönduós, Kí Hónvetninga
Bolungarvík, Lautið
Borgarnes. Kf Borgtiróinga
Búóardalur. Elnar SteJánsson
Djúpivogur. K A S.K.
Drangsnes. K< Steingrimstjaröar
Egilsstaöir, KfHéraðsbúa
Esklljórður, Ells Guónason
Fáskröösfjöröur, Helgilngason
Flateyrl. B|Örgvin Þóröarson
Grindavík, Ralborg
Grundatjöróur, Guðni Hallgrimsson
Hafnarfj., Raftókjav. Skúta Þórss., Ralmætti
Hella, Mostell
Hellisandur, Blómsturvellír
Hólmavlk, Kf Steingrímsfjarðar
Húsavík, Kf Plngeylnga, Bókav. f>. Stefánss.
Hvammstangi. Kf Vestur- Húnvetninga
Hvolsvötlur. Kt Rangæinga
Höln Hornatiröi, KAS.K.
isatjöróuf, Póilinn
Neskaupsstaður, VerstuninVfk
Óiatsfjóróur, Valberg, Radíóvinnustofan
Patreksfjöróur, Ratbúö Jónasar
Reyöarfjóröur. Kf Héraösbúa
Sauðárkróki, Kf Skagfirðinga
Selloss, Rafsel
Siglufjörður, Aðalbúðin
Vestmanneyjar, Eyjaradíó
Þoriákshöfn, Rás
Þórshöfn. Kf langnesinga
Vopnafjörður, Kt Vopnfirðinga
VíkMýrdal, KfÁmesinga
WHIRPOOL
ÞV0TTAVÉL AWG729
• 120 - 900 snúninga vinda
• 21 prógramm, þ.á.m.
sérstakt ullarprógram
• Sparnaðarrofi
• 2 stuttkerfi
• Þyngdarskynjari
• Mjög hljóðlát
Verð:
65.600
AWG727 800 snúninga
Verð: 59.000
ryiawaa-MrUi
L h JPl.V'JPll.fflTTl
Norska neytendablaðið
Forbruker valdi þessa
þvottavél "BEST I TEST"
sem þýðir að þú færð
afbragðs vöru fyrir
lágmarks pening.
TIL ALLT AÐ 38 MÁNAÐA
Heimilistæki hf
SÆTÚN 8 SÍMI 568 1500
Umboðsmenn um land allt.