Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Elskulegu œttingjar og vinir!
Ástarþakklœti fyrir yndislega samveru, blóm,
heillaóskir og gjafir í tilefni af 80 ára afmœli
mínu þann 28. október sl.
Ég bið Guð að blessa ykkur öll.
Ragnheiður J. Ólafsdóttir,
Selvogsbraut 23,
Þorlákshöfn.
máhrinnf nmiMftr
njrir veturinn
URTE PENSIL - GRÆNA VÖRNIN - er eitt mest
selda jurtaheilsuefnið í Danmörku.
V&M 13 vítamín — 10 steinefni og 18 amínósýrur með
SPIRULINA. Mjög vinsælt fjölvítamín, ekki síst vegna
spírulína, sem er steinefnaríkt og grennandi.
ESTER-C VÍTAMÍNIÐ er aiveg í sérflokki.
Fæst í 200 mg., 500 mg. og sem ESTER C-PLUS.
Græna vömin
Sólhattur og propolis
styrkir ónæmiskerfið.
Auk þess fjórar
þekktar jurtir, sem
hafa góð áhrif á
efnaskipti Iíkamans.
Frábær f)5Ivítamín
með Spimlina.
ESTER
f-vHomin
FEKT1V
Ester C fer sérstaklega
vel í maga og nýtist því
mun betur.
BIO-SELEN UMBOÐIÐ
Sími 557-6610.
Ábendingará mjólkiirumbúðum, nr. 19 af 60.
Aftur á bak
og áf ram
Sléttubönd eru ferkvæður
bragarháttur sem þekkist best
á því að lesa má erindin hvort
heldur sem er aftur á bak eða
áfram. Prófaðu að fara með
þessa vísu aftur á bak og taktu
eftir því hvernig merking hennar
breytist um leið:
Dóma grundar, hvergi hann
hallar réttu máli.
Sóma stundar, aldrei ann
örgu pretta táli.
íslenskan lætur að sér kveða!
MJÓLXURSAMSALAN
íslenskufrctðsla ú mjólkurumbúðúm er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar múlnefndar og Málrcektarsjóðs.
IDAG
ÞÉSSIR duglegu krakkar þau Birkir Steinn, íris
Ösp og Ragna Kristín, bjuggu til litabækur og seldu
til styrktar Flateyringum og létu ágóðann 3.150
krónur renna í landssöfnunina „Samhugur í verki“.
ÞESSIR duglegu strákar héldu nýlega basar i
Grímsbæ til styrktar Flateyringum og létu ágóðann
sem varð kr. 11.204 renna í Rauða kross Islands.
Þeir heita frá vinstri Jósep Þórhallsson og
Baldvin Jóhannesson.
Hlutaveíta
ÞESSIR duglegu strákar héldu nýlega hlutaveltu
til styrktar Flateyringum og létu ágóðann sem
varð kr. 5.690 renna til Rauða kross Islands. Þeir
heita frá vinstri Kári Logason, Ingi Bogi og Pétur
Heimisson.
VELYAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Sálfræðiaðstoð
vegna
barnamissis
VIÐ ERUM hér konur
sem leitum að áhuga-
sömum einstaklingi með
menntun til að leiða okk-
ur á braut í samtökum
fyrir foreldra sem hafa
orðið fyrir þeirri sorg og
missi að bami eða böm-
um hafi verið ráðstafað
annars staðar. Áhuga-
samur einstaklingur sem
hefur menntun og skiln-
ing á líðan okkur hafi
samband við okkur í síma
421-6202.
Dúkka keypt í
Kolaporti
UNGA konan sem keypti
handsaumaða dúkku á
200 krónur í Kolaportinu
sl. laugardag er beðin að
hafa samband við selj-
andann því fallegir skór,
sem áttu að fylgja dúkk-
unni, urðu viðskila við
hana. Síminn er
561-0528.
COSPER
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
AU hörmulegu slys, sem orðið
hafa undanfarnar vikur á
þjóðvegum landsins vekja upp
margar spumingar um öryggi fólks,
sem ferðast um landið. Helgina fyr-
ir Flateyrarslysið varð mjög alvar-
legt umferðarslys í Hrútafirðinum
svo sem menn rekur minni til og
nokkrar helgar þar á undan urðu
slys þar sem fólk beið bana. Helgin
eftir Flateyrarslysið var síðan fyrsta
helgin í margar vikur sem engin
alvarleg umferðarslys urðu á land-
inu.
Ástæður þessara hörmulegu
slysa kunna að vera margar, en ein
þeirra er áreiðanlega allt of hraður
akstur á lélegu þjóðvegakerfi lands-
ins. Þjóðvegir landsins eru allt of
mjóir og einnig er undirbygging
þess varanlega slitlags, sem lagt
hefur verið á undanförnum árum
gerð af miklum vanefnum, enda
eyðileggja vegirnir á stuttum tíma
höggdeyfa bílanna, sem slitna óeðli-
lega mikið vegna mishæða sem
myndast vegna þessa lélega undir-
lags.
Hraðaksturinn er mikið vanda-
mál. Hámarkshraðinn er t.d. allt
of hár fyrir svo mjóa vegi sem raun
ber vitni. Vita menn t.d. að hann
er meiri á þjóðvegakerfinu hérlend-
is en á þjóðvegakerfinu í mörgum
ríkjum Bandaríkjanna? Þar er há-
markshraði víða 55 mílur á klukku-
stund, sem jafngildir 88 km hraða,
eða tveimur kílómetrum minni
hraða en leyfður er hérlendis. Samt
er þjóðvegakerfið í Bandaríkjunum
allt tvöfalt, þ.e.a.s. menn mæta
aldrei bifreið á sama vegi, hrað-
brautimar með 88 km hámarks-
hraða eru tvær, hvor um sig fyrir
akstur í sömu átt. Hérlendis mæt-
ast hins vegar bifreiðar í slíkri
nánd við hver aðra að aðeins skilja
nokkrir sentímetrar á milli hliðar-
spegla.
Hámarkshraðinn er sem sé allt
of hár, svo að ekki sé talað um
þann 100 km hraða, sem allir eru
að jafnaði á eðajafnvel meiri. Sum-
um kann að finnast það goðgá að
mæla með því að hámarkshraði
verði lækkaður á íslenzkum þjóð-
vegum, en setjist menn aðeins niður
og hugsi málið til enda, þá er ekk-
ert vit í svo miklum hraða, hann
er stórhættulegur, auk þess sem
hann er slítandi fyrir allt og alla
og menn geta verið orðnir að hálf-
gerðum taugaflökum, þegar í
áfangastað er komið.
XXX
ÝLEGA var birt í fréttum
skýrsla svonefndrar GATT-
nefndar um það hvernig til hefði
tekizt með gildistöku reglna í sam-
bandi við innflutning á grænmeti
og fleiri vörutegundum og var nið-
urstaða hennar að vel hefði til tekizt
o g var síðan farið nokkrum háðuleg-
um orðum um það hvernig fjöliriiðlar
hefðu fjallað um verðlagninguna,
m.a. tekið'dæmi af nokkrum „vel-
vakandi" fjölmiðlum eins og það var
orðað, sem hefðu rætt um ofurtolla
á jólatijám í viðtölum við innflutn-
ingsaðila jólatrjáa. Víkverji telur að
nefndin hafi í þessu tilfelli verið að
beina spjótum sínum að Morgun-
blaðinu með orðinu „velvakandi".
Þar hljóp þó nefndin á sig, því að
Morgunblaðið fjallaði ekki um jóla-
trén, sem blaðið spurðist fyrir um
og fékk upplýsingar að um þau gilti
vel rúmur innflutningskvóti og því
kæmi ekki til hækkunar á verði
tijánna. í Morgunblaðinu birtist því
engin frétt í þessu sambandi um
ofurtolla á jólatijám.