Morgunblaðið - 26.11.1995, Page 1
104 SÍÐUR B/C/D
271. TBL. 83.ÁRG.
SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ásdís
FROSTSTILLUR VIÐ TJÖRNINA
Serbar í Sarajevo hóta
að grípa á ný til vopna
Ilidza-hverfi i Sarajevo. Reuter.
Jarðskjálfti
á Sakhalín
Moskvu. Reuter.
MJÖG harður jarðskjálfti, um 8,5 stig á
Richter-kvarða, varð á Sakhalín-svæðinu á
Kyrrahafsströnd Rússlands seint á föstudag.
Yfirvöld segja að ekki hafi orðið tjón af völd-
um jarðhræringanna.
Séu upplýsingarnar um styrkinn réttar
hefur skjálftinn verið einn hinn harðasti í
sögunni. TASS-fréttastofan sagði að fjöldi
skjálfta hefði greinst á svæðinu og hefðu
upptökin verið um 100 km austur af eyjunni
Iturup sem er ein af Kúríleyjum. I maí varð
nokkru minni skjálfti á þessum slóðum og
fórust þá nær 2.000 manns á Sakhalín í
borginni Neftegorsk.
Japönsk yfirvöld skýrðu einnig frá skjálfta
um sama leyti á föstudag á nyrstu eyju lands-
ins, Hokkaido, en hann mældist 6,6 stig og
var ekki vitað til þess að tjón hefði orðið.
Frakkland
til varnar
ÆTLUNIN er að flytja 65.000 tonn af gijóti
úr námu í grennd við Calais í Frakklandi til
suðurstrandar Englands og verður gijótið
notað til að styrkja varnir gegn sjávarrofi
er ógnar um 400 húsum við Bulverhythe,
milli Hastings og Bexhill. Skemmdir urðu á
ströndinni þar í fyrra í óveðri.
„Við ákváðum að nota franska gijótið
vegna þess að það hentaði okkur best. Ef
við hefðum ætlað að nota heppilegt breskt
gijót hefði verið nauðsynlegat að sækja það
í námu í Somerset. Flutningabílarnir geta
ekki borið nema 22 tonn í hverri ferð og
þess vegna hefði umferð þeirra í Bulwer-
hythe orðið gríðarleg. Það er augljóst að
auðveldara er að flytja gijót sjóleiðina yfír
Ermarsund og afferma á staðnum," sagði
embættismaður er annast verkefnið. Hol-
lenskur prammi sigldi með fyrstu 1.500 tonn-
in á ströndina í vikunni.
Vill afnema
þjórféð
JARLINN af Bradford í Bretlandi hefur lagt
fram tillögu í lávarðadeildinni um að skylda
alla matstaði til að kasta fyrir róða gömlum
hefðum um þjórfé. Verður þá framvegis tek-
ið fram á verðlistum að þjórfé sé innifalið.
Séu fjórir eða færri að borða saman má fólk
þó greiða aukalega sé það ánægt með þjón-
ustuna. Jarlinn er þekktur fyrir bók sína,
Matreiðslubók sérvitringins, og á sjálfur veit-
ingastaðinn Porter’s í London þar sem ekki
er greitt þjórfé. Hann segir að fleiri myndu
bregða sér út að borða ef hefðin yrði afnumin.
Neytendasamtökn bresku hafa lengi barist
gegn þjórfénu sem þau segja að sé ekkert
annað en úreltar leifar. Aðrir segja að ekki
megi á nokkurn hátt skerða frelsi fólks til
að tjá ánægju sína með góða þjónustu.
BOSNIU-SERBAR í Sarajevo eru mjög reiðir
og örvæntingarfullir vegna þess að hverfi
þeirra eiga að verða undir stjórn ríkisstjórnar
múslima og Króata samkvæmt friðarsam-
komulaginu í Ohio. „Okkar menn hafa svikið
okkur og maðurinn frá Belgrad [Slobodan
Milosevic Serbíuforseti] gerði eingöngu það
sem þurfti til að fá refsiaðgerðunum aflétt,"
sagði háskólanemi í Ilidza-hverfi í gær.
Efnahagslegum refsiaðgerðum öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna gegn Serbíu/Svartfjalla-
landi vegna stuðnings ríkisins við þjóðbræð-
uma í Bosníu var þegar aflétt er samningarn-
ir voru í höfn.
íbúar í hverfum Serba sögðust vera fórn-
arlömb lélegrar fréttamennsku á Vesturlönd-
um er bæri keim af þeirri áráttu Bandaríkja-
manna að einfalda alla hluti, eins og gert væri
í vestrum. „Ég veit að dauðinn bíður mín hér,
þetta er spurningin um að deyja hér í Iiidza
eða í einhveijum flóttamannabúðum. Ég mun
deyja hér við að veija heimili mitt,“ sagði einn
íbúanna. Annar sagði að betra væri að hverf-
in yrðu undir vernd Frakka, Breta eða Banda-
ríkjamanna; þau mættu alls ekki komast í
hendur múslima.
Radovan Karadzic og Momcilo Krajisnik,
tveir af helstu stjórnmálaleiðtogum Bosníu-
Serba, ræddu friðarsamninginn í gær og vís-
uðu honum ekki á bug en sögðu að semja
yrði á ný um hverfi Serba í Sarajevo. Karadzic
sagði að friðargæslusveitimar sem senda á
TALNING hófst á Irlandi í gær eftir þjóðar-
atkvæðið á föstudag um tillögu þess efnis
að hjónaskilnaðir verði leyfðir og þótti flest
benda til þess um hádegið að mjótt yrði á
mununum.
Könnun blaðsins Irísh Times á föstudag
benti til þess að tillagan yrði samþykkt með
litlum mun, 46% sögðust fylgjandi henni, 42%
andvíg en aðrir voru óákveðnir eða neituðu
að svara. Fyrir mánuði voru stuðningsmenn
til Bosníu og verða undir yfirstjórn Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, gætu þurft að vera
í landinu í fimm ár til að vernda Serba á
svæðum múslima og Króata.
með 62% í könnunum en kaþólska kirkjan
hefur beitt sér af miklu harðfylgi gegn tillög-
unni að undanförnu. Ríkisstjórnin mælir hins
vegar eindregið með því að skilnaðir verði
leyfðir.
Kirkjunnar menn segja að verði skilnaðir
leyfðir muni mörg óhamingjusöm hjón þegar
grípa tækifærið og slíta samvistir. Afleiðingin
verði félagsleg upplausn og velferð barnanna
verði stefnt í voða.
■ Dani með yfirstjórn/6
Tvísýnt um úrslit í
kosningum á Irlandi
blin. Reuter.
SAMKEPPNI I
FJARSKIPTUM
ÖR FJÖTRUM
FJARLÆGÐAR
Vinariœltir
mmnsáliriimr
msamavamvúF
Á SUNNUDEGI
24
GÓÐUR í STURTU
Þú getur meira
en pú heldur B