Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 10
10 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SAMKEPPNI
í FJARSKIPTUM
Stórstíg þróun er að verða í fjarskiptamálum heimsins, svo
stórtæk að henni hefur verið líkt við byltingu. Ný tækni og aukin
samkeppni í fjarskiptum knýja þessa þróun. Guðni Einarsson hef-
ur kynnt sér í hverju fj arskiptabyltingin er fólgin og hver áhrif
hennar kunna að verða. Fleiri greinar um ný viðhorf í íjarskiptum
munu birtast í Morgunblaðinu næstu daga.
Ahrifa fjarskiptabylting-
arinnar mun gæta um
allan heim. Ný tækni
upphefur hindranir
fjarlægðarinnar og
tengir útkjálka heimsins hringiðu
atburða. Þessi breyting kann að
verða ein sú afdrifaríkasta sem
mannkynið hefur gengið í gegnum
til þessa. Alheimsþorpið er að verða
að veruleika. Fáum ætti að vera
meiri akkur í þvílíkri breytingu en
þjóðum sem búa utan alfaravega,
líkt og íslendingar. Fáir velkjast í
vafa um að það muni skipta sköpum
um samkeppnisstöðu íslands á al-
þjóðamarkaði og lífskjör hér á landi
á komandi árum hvort og þá hvern-
ig okkur tekst að höndla kosti fjar-
skiptabyltingarinnar.
Ferskir vindar blása um fjar-
skiptaheiminn beggja vegna Atl-
antshafsins og víðar. Gamalgróin
og virðuleg símafélög ganga í end-
urnýjun lífdaga með breyttu eignar-
haldi og uppstokkun, nýir aðilar
ryðjast inn á markaði í krafti nýj-
unga og hagkvæmni. Rekstrarum-
hverfið er að breytast og íjölþjóðleg
símafélög leita logandi ljósi að
ónumdum svæðum í fjarskipta-
landslaginu sem vænlegt er að gefa
. gaum.
Drifkraftur
efnahagsþróunar
Á FJARSKIPTAÖLD
IWIUNU TÍMABELTI
JARÐAR VERÐA
HELSTA HINDRUIMIN í
VEGI GREIÐRA SAM-
SKIPTA JARÐARBÚA,
EN HVORKI SÍMA-
KOSTNAÐUR NÉ FJAR-
LÆGÐIR Á MILLI
| HEIMSÁLFA.
Því er spáð að á næstu árum
muni síma- eða fjarskiptakostnaður
lækka til mikilla muna; það verði
ekki mikið dýrara að hringja heims-
álfa í milli en í næsta hús. Hag-
kvæmari dreifikerfi og stóraukin
fjarskiptaumferð munu stuðla að
þróun í þá átt að símafyrirtæki
hætti að krefjast greiðslu fyrir
fjölda og lengd símtala en afli tekna
þess í stað með föstu áskriftar-
gjaldi notenda.
í lok september síðastliðins birti
tímaritið The Economist ítarlega
umfjöllun um fjarskiptabyltinguna.
í leiðara blaðsins er getum leitt að
því að áhrif þess að fjarlægðir
hætta að skipta máli í verðlagningu
fjarskipta kunni að verða einn helsti
drifkraftur efnahagsþróunar heims-
ins næstu hálfa öldina eða svo.
Þessu hafí raunar verið spáð áður,
en nú sé byltingin hafin. Tvénnt
muni ýta undir þessi áhrif lækkunar
fjarskiptakostnaðar. Annað sé auk-
in geta og færanleiki símtækja, hitt
samtenging heimsins í eitt fjar-
skiptanet.
ísland er liður í þróuninni
Símtæki verða sífellt fullkomnari
tæknilega en jafnframt handhægari
og meðfærilegri. Þetta sést greini-
lega í þróun farsíma. Hér á landi
eru nú starfrækt tvö farsímakerfi,
NMT og GSM, en handvirki bílsím-
inn er aflagður. Árið 1998 verður
gangsett alþjóðlegt gervihnatta-
símakerfi, Iridium, í eigu Motorola
í Bandaríkjunum. Skotið verður á
loft 66 gervihnöttum sem símnot-
endur eiga að geta náð milliliða-
lausu sambandi við, jafnt á norður-
pólnum, í heimsborgum og í myrk-
viðum Áfríku. Nú er unnið að því
að setja upp eftirlitsstöð á vegum
Iridium við Snjóholt, um 10 km
norðan við Egilsstaði. Þessi stöð er
ein af fjórum í heiminum sem eiga
að fylgjast með gervihnattaskotum
og sporgöngu gervihnatta Iridium
um jörðu. Fyrirtækið gerir ráð fyrir
að fá 1,5 milljónir viðskiptavina á
næstu þremur árum eftir að þjón-
usta þess hefst í desember 1998.
Símtalið á að kosta 3 Bandaríkja-
dali mínútan og gengið er út frá
því að fyrirtækið beri sig áður en
það eignast milljónasta viðskipta-
vininn.
Fjarskiptanet um allan heim
Jarðarbúar, sem taldir eru um
5,6 milljarðar, nota nú um 600
milljón símtæki. í þróunarlöndum
eru um það bil tíu sinnum fleiri um
hvert símtæki en á meðal auðugra
þjóða. Þetta kann þó að breytast
hratt því víða í hinum fátækari lönd-
um er unnið ötullega að uppbygg-
ingu fjarskiptaþjónustu. Fjarskipta-
net hinna einstöku þjóðríkja eru
tengd saman í alþjóða fjarskipta-
netið sem að sönnu er stærsta
mannvirki heimsins. Til að greiða
fyrir sem mestum notum af ijar-
skiptanetinu sjá forystumenn efna-
meiri landa beinan hag af því að
byggja upp fjarskiptakerfi í þróun-
arlöndum.
Símfýrirtæki og kapalsjónvarps-
félög víða um heim leggja mikið fé
í að auka bandvídd dreifikerfa
sinna. Tilgangurinn er að geta
dreift meiri og umfangsmeiri upp-
lýsingum til viðskiptavina. Eftir því
sem stafræn tækni er meira nýtt
til gagnaflutninga og flutningsgeta
dreifikerfa eykst styttist bilið á
milli símtækja, sjónvarpa og tölva.
Þegar þessum þremur tækjum er
slegið í eina heild opnast ótæmandi
möguleikar á gagnvirkri margmiðl-
un og þjónustu. Hægt er að njóta
samskiptakosta símans, vinnslu-
getu og minnis tölvunnar og afþrey-
ingargildis sjónvarpsins.
Upplýsingaþjóðfélagið
Þessi þríeini samruni er grunnur-
inn að upplýsingahraðbraut um all-
an heim. A1 Gore, varaforseti
Bandaríkjanna, fjallaði um upplýs-
inganet heimsins (Global Informati-
on Infrastructure eða GII) á þróunr
arráðstefnu um fjarskipti á heims-
vísu í mars 1994. Hann skilgreindi
þetta upplýsinganet sem „upplýs-
inganet um alla jörð sem miðlar
boðum og myndum með ljóshraða
frá stærstu borgum til minnstu
þorpa í hverri álfu“. Á nefndri ráð-
stefnu voru settar fram fimm meg-
inforsendur til að greiða fyrir upp-
byggingu þessarar alþjóðlegu upp-
lýsingaveitu: Fjárfesting einkaað-
ila, samkeppni, sveigjanlegar regl-
ur, jafn aðgangur fyrir alla og ótak-
mörkuð, almenn þjónusta.
í febrúar sl. bauð Evrópusam-
bandið ráðherrum iðnríkjanna sjö
(G7) til fundar í Brussel um upplýs-
ingaþjóðfélagið. Þátttökuríkin tóku
vel í að opna markaði fyrir sam-
keppni til að ryðja margmiðlun
framtíðarinnar braut. Rætt var um
framfarir í upplýsingatækni og fjar-
skiptum og lagt mat á kosti þeirra
fyrir iðnríkin og ekki síður þróunar-
löndin.
Ráðherrarnir ákváðu að hafist
yrði handa við ellefu sjálfsbæð verk-
efni og sammæltust um átta megin-
reglur til að hrinda í framkvæmd
þeirri sameiginlegu sýn að greiða
upplýsingaþjóðfélaginu leið um all-
an heim.
Meginreglurnar eru: Að stuðla
að kröftugri samkeppni; hvetja til
fjárfestingar einkaaðila; skilgreina
sveigjanlegar reglur; veita opinn
aðgang að netkerfum; tryggja al-
hliða þjónustu og aðgang að henni;
hvetja til jafnrar samkeppnisstöðu;
stuðla að fjölbreytni í efnisvali; við-
urkenna þörfína á víðtæku sam-
starfi um allan heim með sérstakri
áherslu á þróunarlönd.
AMU SE-verkefnið
Islendingar eru virkir þátttak-
endur í þeirri þróunarvinnu sem