Morgunblaðið - 31.12.1995, Side 28
28 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
_p
i,_
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1995 29
PlirrgiiwlílWíi
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
HVERSKONAR
ÞJÓÐFÉLAG?
ARIÐ, sem nú er að renna skeið
sitt á enda, hefur að mörgu
leyti verið íslendingum hagstætt.
Efnahagsbatinn hefur haldið
áfram. Ákvörðun um að álverið í
Straumsvík verði stækkað gefur
fyrirheit um að eitthvað geti rætzt
úr atvinnuástandinu á næstu árum.
Margt bendir til að atvinnulífið
komi sterkara en áður út úr krepp-
unni, að lokinni hagræðingu og
endurskipulagningu. Samt blasir
við að framleiðni í ísienzkum fyrir-
tækjum er minni en í mörgum sam-
keppnislöndum okkar og laun eru
þess vegna lægri. Það verður vænt-
anlega verkefni næstu ára að tak-
ast á við þann vanda.
Þótt stundum hafi horft ófrið-
lega á vinnumarkaði varð niður-
staðan sú í almennum kjarasamn-
ingum að samið var um hóflegar
hækkanir, sem ekki raska þeim
efnahagslega stöðugleika, sem hér
hefur ríkt undanfarin misseri. Aug-
ijóst er að allur almenningur kýs
stöðugleikann fremur en þá óvissu,
sem fylgir innstæðulausum kaup-
hækkunum, verðbólgu og gengis-
fellingum. Okkur virðist vera að
takast að vinna okkur endanlega
út úr verðbólguhugsunarhættinum,
sem er ein grundvallarforsenda
þess að atvinnulífið hafi traustan
grundvöll.
Botnfiskafli á íslandsmiðum hef-
ur ekki verið minni í aldarfjórðung,
en sjávarútvegsfyrirtækjum hefur
tekizt að bregðast við þeim vanda
með ýmsum hætti, bæði með betri
úrvinnslu aflans og með því að
sækja á fjarlæg mið. Vaxandi út-
hafsveiðar íslendinga hafa hins
vegar haft í för með sér árekstra
við frænd- og vinaþjóðir og vonir
um að úr þeim deilum greiddist
áður en árinu lyki hafa brugðizt.
Það verður eitt mikilvægasta verk-
efni stjórnvalda á næsta ári að ná
samningum við Noreg og Rússland
um veiðar í Norðurhöfum.
Ríkisstjórnin, sem tók við völd-
um á árinu, hefur farið rólega af
stað. Hún hefur ekki ráðizt í nein-
ar róttækar breytingar. Mikilvæg-
asti árangur hennar enn sem kom-
ið er hefur verið við fjárlagagerð-
ina; ef áætlanir standast mun tak-
ast að minnka halla ríkissjóðs veru-
lega á nýja árinu og samþykkja
hallalaus fjárlög á miðju kjörtíma-
bilinu. Það skiptir öllu máli að nýta
góðærið til þess að koma jafnvægi
á fjármál ríkisins. Ekki má falla
að nýju í þá gryfju að auka útgjöld-
in í hlutfalli við auknar tekjur, sem
koma í ríkissjóð;-þvert á móti er
orðin lífsnauðsyn að draga úr
skattbyrðinni. Hún er nú orðin svo
sligandi, að hún letur fólk til vinnu
og stuðlar jafnvel að landflótta.
Systurnar alþjóðavæðing og
markaðsvæðing hafa áfram sett
nokkurn svip á þróun mála. Inn-
flutningur landbúnaðarafurða hef-
ur verið leyfður, þótt í takmörkuð-
um mæli sé. Einkavæðing ríkisfyr-
irtækja hefur þokazt áfram, þótt
hægt fari. Samkeppnisráð hefur
stuðlað að virkari og sanngjarnari
samkeppni með úrskurðum sínum
um að skilja beri samkeppnisrekst-
ur ríkisfyrirtækja frá öðrum rekstri
þeirra.
íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki
hafa haldið áfram að færa út
kvíarnar á alþjóðavettvangi og nú
er svo komið, að fyrirtæki með ís-
lenzkri eignaraðild ráða meirihlut-
anum af úthafsveiðikvóta Þýzka-
lands, fjölmennasta ríkis Evrópu-
sambandsins. Á sama tíma hafa
viðhorf til erlendrar fjárfestingar
hér á landi, þar á meðal í sjávarút-
vegi, verið að breytast. Frumvarp
hefur verið lagt fram á Álþingi,
þar sem kveðið er á um að rýmka
talsvert heimildir útiendinga til
fjárfestinga hér. Ástæða kann að
vera til að ganga enn lengra en þar
er gert, ekki sízt í ljósi fjárfestinga
okkar sjálfra í sjávarútvegi í öðrum
löndum, enda er erlend fjárfesting
ein mikilvægasta forsenda hagvaxt-
ar og þróunar í atvinnulífinu.
Þótt mál hafi almennt þróazt í
rétta átt, eru þó nokkur dæmi um
að öflugir sérhagsmunir ráði of
miklu í íslenzku samfélagi. Þar má
til dæmis nefna útfærslu GATT-
samningsins hér á landi, sem veitir
íslenzkum bændum minni sam-
keppni en efni stóðu til. Aðrar
breytingar á landbúnaðarkerfinu,
til dæmis við gerð búvörusamn-
ingsins, gengu sömuleiðis skemmra
í frjálsræðisátt en æskilegt hefði
verið, þótt vissulega miði í rétta
átt. I öðru lagi hafa engar breyt-
ingar orðið á þeirri sjávarútvegs-
stefnu, sem hér hefur verið rekin
undanfarin ár. Sjónarmiðum
þeirra, sem vilja taka upp veiði-
leyfagjald og tryggja þjóðinni
þannig afgjald af sameign hennar,
fiskimiðunum, vex augljóslega
fylgi, jafnt meðal almennings sem
á Alþingi. Enn stendur þó valda-
mikið hagsmunabandalag gegn
breytingum á þessu sviði. Loks má
nefna samkomulag forystumanna
verkalýðshreyfingar og atvinnu-
rekenda um að viðhalda óbreyttu
kerfi skyiduaðildar að lífeyrissjóð-
um, sem stuðlar fremur að því að
vernda stöðu forystumannanna
sjálfra í íslenzku fjármálalífi í
krafti fjármuna sjóðfélaga en að
tryggja hagsmuni þeirra síðar-
nefndu.
Þótt það sé yfirlýst markmið rík-
isstjórnarinnar að draga úr ríkis-
umsvifum, virðast þau vera að auk-
ast á sumum sviðum. Þannig virð-
ist sem á íslandi séu það ekki sízt
ríkisfyrirtæki, sem hagnast á fjar-
skipta- og margmiðlunarbyltingu
þeirri, sem er að eiga sér stað í
heiminum.
Á nýja árinu standa þjóð og þing
þess vegna frammi fyrir þeirri
spurningu, hvernig haga beri fram-
haldinu í ýmsum þeim málum, sem
hér hefur verið drepið á — hvort
hér eigi að halda áfram á braut
aukinnar opnunar gagnvart um-
heiminum, samkeppni og frjáls-
ræðis, eða hvort sérhagsmunir og
óskilvirkur ríkisrekstur eigi áfram
að fá að verða dragbítur á framfa-
rasóknina í íslenzku þjóðfélagi.
Kannski snýst spurningin þó ekki
um það hvort halda eigi áfram á
þessari umbótaleið, heldur hversu
hratt.
Morgunblaðið óskar lesendum
sínum og landsmönnum öllum far-
sældar á komandi ári.
-j nrt MERKUR
JLU^i.leikstjóri
hefur sagt að mesta
afrek Tjekovs hafi
verið það að skrifa
leikrit sín þannig að
persónurnar eru á
sviðinu einsog þær eru í
sjálfu.
Það er kannski þess vegna sem
Kundera kann ekki að meta þau(!)
1AO „ÉG VAR MJÖG
1 U ð • áhrifagjam. Við-
kvæmnin olli þjáningu", segir
Valéry í Minnisbókum sínum um
æskuárin og umhverfí þeirra.
Ruddaskapur fjöldans vakti með
honum hrylling. Slík viðbrögð eru
vísbending um ofnæmi. Og of-
næmið er forsenda alls skáldskap-
ar.
Ég óttast fjölda. Held þeirri til-
finningu sé ekki betur lýst en í
sögu Daphne du Maurier, The
Birds. Af blindri eðlishvöt og án
tilgangs reynir mergðin að drepa
vinalega fjölskyldu, hjón með son
í smáhúsi við sjóinn og fuglarnir
reyna meira að segja að komast
niður um reykháfínn líkt og fjöl-
miðlar hafa tilhneigingu til nú um
stundir.
Du Maurier hefur skrifað afar
merkilegar skáldsögur. Mér þótti
skemmtilegt að frétta af því fyrir
nokkrum misserum að hún væri
HELGI
spjall
lífínu
enn á lífí og hefði átt
áttræðisafmæli. Ef
ég hefði þá verið
spurður hvem ég
vildi helzt hitta í
Bretlandi hefði ég
hiklaust sagt, Dapne
du Maurier(!) Hún hlýtur að hafa
verið stórkostleg kona. Hún skrif-
aði Rebekku og svo eina af uppá-
haldsskáldsögum mínum, Frænku
Rakelar, eða My cousin Rachel,
sem að öllum búningi og listræn-
um tökum minnir á Henry James.
Það eru svona sögur sem fylla
mig bjartsýni, þótt þær séu sorg-
legar. Fegursta saga sem ég hef
lesið um sorgina er einnig eftir
konu, Anne Tyler. Hún heitir
Accidental Tourist og fjallar um
hjón sem glata hvort öðm þegar
þau missa ungan son sinn.
•J Í\A EÐA ÞETTA óborgan-
xUT:»lega andrúm í Iron-
weed eftir William Kennedy(!) Við
hofum ekki séð skóginn fyrir held-
ur lágvöxnum en ágengum tijám
í næsta nágrenni. Eða skáldsaga
Toni Morrisons, Söngur Salóm-
ons... Þessi tilgerðariausu tíðindi
úr hversdagslífínu sjálfu vestur í
Bandaríkjunum, án kerfís eða
formúlu, án allra fyrirmæla eða
þjóðfélagslegra fordóma, án alls
nema réttra umbúða; svo listræns
stíls að hann er viðkvæmu efni
samboðinn. Það er sjaldgæft nú-
orðið. Afarsjaldgæft að ofnæmið
eignist listrænar umbúðir; við-
kvæminin; þjáningin; að lífið sjálft
vaxi inní list sem er mikilvæg
upplifun og endursköpun; mikil-
væg reynsla í listrænum búningi.
1 Ar É(I HEF GAMAN af
lUJ.að lesa sögur. Smásög-
ur Updikes og Cheevers eru mér
minnisstæðar. Þær eru sprottnar
úr lífinu sjálfu. Það er rótarilmur
af þeim. Og persónumar falla inní
umhverfi sitt einsog tré í lands-
lag. Það er mikilvægt. Það á að
vera samhljómur í andstæðunni.
Ég hef líka verið að lesa Oscar
Wilde. Sögur hans eru síðuren svo
gamaldags, þótt þær sæki um-
hverfi sitt í þjóðfélag skáldsins,
og það sé okkur harla framandi.
Umgerðin breytist, en innihaldið
ekki. Einstaklingurinn nú er ekk-
ert öðruvísi en í guðspjöllunum.
Eða Játningum Ágústínusar. Eru
ekki allar sömu spumingarnar á
vörum okkar og þeirra sem koma
við sögu hjá Platon? Nútímaleg-
asta sakamálasaga sem ég þekki
er A Tale of Two Cities eftir Dic-
kens. Stjórnarbyltingin franska
er vafín inní hana einsog nútíma-
atburðir hjá Ludlum, eða hvað
þeir heita.
ARSINS 1995 VERÐUR
minnst fyrir margar
sakir. Að mörgu leyti
var þetta ár friðar eða
kannski öllu fremur
stríðsþreytu. Eftir
margra ára átök
standa vonir til að tek-
ist hafi að binda enda á stríðsátök músl-
ima, Króata og Serba í fyrrverandi Júgó-
slavíu. í Mið-Austurlöndum hefur friðar-
þróunin haldið áfram hægt og sígandi og
Palestínumenn tekið við stjórn hernumdra
svæða á Vesturbakkanum og Gaza. Átök
þau er geisað hafa í lýðveldum fyrrum
Sovétríkjanna, s.s. Tsjetsjníju og Az-
erbajdzhan, virðast í rénun þó varasamt
geti reynst að halda því fram að þeim sé
lokið. Jafnvel í Afríku hefur mátt sjá vísi
þess að langvarandi átök, í Sómalíu, Líber-
íu og víðar, kunni að vera í rénun.
Framlenging sáttmálans um bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna og sú mikla
reiði er kjarnorkutilraunir Frakka hafa
vakið í heiminum er kannski ekki síst til
marks um augljósan vilja til að snúa baki
við því vígbúnaðarkapphlaupi er til
skamms tíma setti mark sitt á heimsmál-
in. Það skýtur þó vissulega skökku við að
kjarnorkutilraunir Kínveija séu ekki
dæmdar á sama mælikvarða og tilraunir
Frakka. Forseti Frakklands hefur þó heit-
ið því að engar frekari tilraunir verði gerð-
ar er þessari lotu er lokið og stefnir í að
samkomulag um algjört bann við kjarn-
orkutilraunum taki gildi árið 1996.
Á því ári, sem nú er að ijúka, hafa
Bandaríkin axlað forystuhlutverk sitt í
heimsmálum, með afgerandi hætti á sama
tíma og pólítísk ólga og óvissa dregur stöð-
ugt úr áhrifum'Rússa á alþjóðavettvangi.
Sameinuðu þjóðirnar, er fögnuðu hálfrar
aldar afmæli sínu, hafa einnig neyðst til
að horfast í augu við veruleikann og draga
úr þeim háleitu markmiðum um framtíðar-
hlutverk sitt, sem einkennt hafa umræðu
undanfarinna missera.
Á vissan hátt má segja að á þessu ári
hafi byijað að hilla undir ákveðinn stöðug-
leika á ný eftir það umrót er einkennt
hefur heimsmálin eftir fall Berlínarmúrs-
ins, lok kalda stríðsins og endalok Sovét-
ríkjanna. Svo virðist sem þróun mála í
Evrópu sé að færast í fastari skorður en
verið hefur á undanförnum árum.
Friðurí
Bosníu
REYKJAVÍKURBRÉF
Laugardagur 30. desember
löndum á sviði efnahags- og viðskiptamála
lofar góðu. Miklar líkur virðast á því að á
nýju ári nái ísraelar og Sýrlendingar sam-
an um friðarsamning milli ríkjanna.
Bandaríkjastjórn kom einnig mikið við
sögu í friðarferlinu á Norður-írlandi og
sá mikli þrýstingur sem lagður var á deilu-
aðila af þeirra hálfu, fyrir Irlandsheimsókn
Bills Clintons Bandaríkjaforseta, kom
skriði á viðræðurnar á ný. Þar með væri
einhverri hatrömmustu deilu í Vestur-Evr-
ópu eftir stríð lokið.
ósátt við að þetta fyrrum risaveldi skuli
nú gegna aukahlutverki á sviði alþjóða-
mála. Veikindi Borís Jeltsíns Rússlandsfor-
seta og bágur efnahagur hafa dregið enn
frekar úr áhrifamætti Rússlands.
Engin leið er að sjá fyrir hvemig stjórn
Rússlands verður skipuð eftir kosningamar
á næsta ári. En þrátt fyrir allt hefur efna-
hagslegur og pólitískur stöðugleiki farið
vaxandi. Deiluaðilar í rússneskum stjóm-
málum virðast hafa fallist á að takast á
samkvæmt lýðræðislegum leikreglum í
meginatriðum en ekki með vopnaskaki.
í NÓVEMBER
náðist samkomulag
milli forseta Bosn-
íu, Króatíu og Serb-
íu um frið f Bosníu.
Stríðið á Balkanskaga er hið blóðugasta
í Evrópu frá lokum síðari heimsstyijaldar-
innar, hefur kostað 250 þúsund manns líf-
ið, og allar tilraunir umheimsins til að
miðla málum höfðu mnnið út í sandinn.
Sameinuðu þjóðirnar, er tekið höfðu að
sér friðargæslu í Bosníu, urðu að lokum
að viðurkenna að það verkefni var þeim
ofviða. Atlantshafsbandalagið hefur tekið
við þessu friðarhlutverki og það blasir nú
við öllum að bandalagið er ekki síður frið-
arbandalag en öryggis- og varnarbandalag
aðildarríkjanna.
Eftir að kalda stríðinu lauk viðruðu
margir hugmyndir um að SÞ myndu taka
að sér það hlutverk að gæta friðar í heimin-
um og ganga á milli stríðandi fylkinga
þegar þess gerðist þörf. í átökunum á
Balkanskaga komu takmörk Sameinuðu
þjóðanna hins vegar greinilega í ljós.
Það var ekki fyrr en Bandaríkjastjórn
fór að hafa virk afskipti af friðarviðræðun-
um og samþykkti að senda fjölmennt her-
lið til Bosníu, að skriður komst á viðræð-
urnar.
Sömuleiðis er ljóst að það er afskiptum
Bandaríkjanna á undanförnum tveimur
árum að þakka að friðarhorfur eru bjart-
ari nú fyrir botni Miðjarðarhafs en verið
hefur í marga áratugi. ísraelar og arabísk-
ar nágrannaþjóðir þeirra, að Sýrlendingum
undanskildum, hafa sæst og vísir að um-
fangsmiklu samstarfi ríkja í Mið-Austur-
Tómarúmið
fyllt
SVO VIRÐIST SEM
Bandaríkin muni á
næstu árum fylla
það tómarúm er
myndaðist eftir að
togstreitu risaveldanna tveggja lauk með
upplausn annars þeirra. Þetta mikilvæga
hlutverk Bandaríkjanna kom hvað skýrast
í ljós í Bosníuviðræðunum.
Það ríkir þó ekki sátt um þetta hlutverk
hvorki innan Bandaríkjanna né utan.
Framan af forsetaferli sínum virtist Clint-
on vilja forðast alþjóðlegar skuldbindingar
af hálfu Bandaríkjanna og má segja að
breyting hafí ekki orðið á fyrr en með
afskiptunum af málefnum Haítí árið 1994.
Haítí hefur þó ávallt verið innan áhrifa-
svæðis Bandaríkjanna og eðlismunur er á
afskiptum af deilu þar og í austurhluta
Evrópu.
Búast má við harðnandi átökum um
framtíðarhlutverk Bandaríkjanna á kom-
andi ári og benda deilur milli forseta og
þings í kjölfar friðarsamkomulagsins til að
þetta mál setji sterkan svip á kosningabar-
áttuna fyrir forsetakosningamar árið 1996.
Nokkur ríki innan Evrópusambandsins
hafa ekki viljað sætta sig við forystuhlut-
verk Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi.
ESB-ríkjunum hefur hins vegar ekki tekist
að samræma stefnu sína á sannfærandi
hátt, líkt og greinilega kom í ljós meðan
á Bosníudeilunni stóð, og takmarkaður
pólitískur vilji virðist vera fyrir hendi til
að breyta því í náinni framtíð. Eftir því
sem aðildarríkjum sambandsins fjölgar
má gera ráð fyrir að erfiðara verði að fínna
sameiginlega pólitíska snertifleti í við-
kvæmum málum á borð við Bosníu.
Innan Rússlands eru einnig sterk öfl
Ný áhrifa-
svæði
MÓTUN NÝRRA
áhrifasvæða í Evr-
ópu er farin að taka
á sig skýrari mynd.
Ekki hefur verið
fallist á þá kröfu Rússa að falla frá fjölg-
un aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins
þó svo að ekki hafi enn verið tekin ákvörð-
un um hvenær af henni verði og hvaða ríkj-
um verði veitt aðild að bandalaginu. Þá
mátti merkja á leiðtogafundi Evrópusam-
bandsins í Madrid í desember að líklega
verður ekki öðmm ríkjum í austurhluta
Evrópu en Póllandi, Tékklandi og Ungveija-
landi veitt aðild að sambandinu næsta ára-
tuginn og mun þá væntanlega gegna sama
mSi um aðild að NATO.
Helsta áhyggjuefnið í þessu sambandi er
framtíð Eystrasaltsríkjanna. Þau hafa áður
orðið leiksoppur í valdabaráttu stórvelda og
sjá nú fram á, að það gæti gerzt á ný.
Norðurlöndin hafa lagt rnikla áherslu á að-
ild Eystrasaltsríkjanna að samfélagi vest-
rænna þjóða en hætta er á, að önnur ríki
og stærri verði reiðubúin til að fóma þeim
í því valdatafli sem nú á sér stað í Evrópu.
Skipting álfunnar í áhrifasvæði kann
þó að hafa minni áhrif en fyrr á öldinni.
Þó að Eystrasaltsríkin og önnur ríki í Mið-
Evrópu lendi utan Evrópusambandsins og
Atlantshafsbandalagsins mun ekkert járn-
tjald rísa á ný. Það verða ekki frekari
hömlur á ferðafrelsi eða viðskiptum.
Efnaliagsleg skil eru sífellt að verða
óskýrari í heiminum. Alþjóðlegir viðskipta-
samningar á borð við GATT og myndun
viðskiptasvæða á borð við EES, NAFTA
og áform Evrópusambandsríkjanna um
sameiginlegan gjaldmiðil má smám saman
FRA ÞINGVOLLUM
út mikilvægi landamæra. Það kann að
vera kostur að tilheyra ákveðnu pólitísku
svæði en það skiptir ekki lengur sköpum
fyrir íbúa og efnahag einstakra ríkjg.
Eftir því sem efnahagskerfi ríkja Vest-
urlanda verða samtvinnaðri eykst nauðsyn
þess að ríki taki mið af því sem er að
gerast í kringum þau við töku efnahags-
legra ákvarðana. Islendingar hafa likt og
aðrar þjóðir komist að því að hagkerfi
þeirra er ekki einangrað fyrirbæri heldur
hluti af stærri heild.
Þetta hefur í vaxandi mæli knúið stjórn-
völd til að horfast í augu við uppsafnaðan
vanda fyrri ára. Kostnaður við velferðar-
þjónustu er í flestum Evrópuríkjum kominn
langt út fyrir þann ramma er efnahagur
ríkjanna stendur undir. Ekki hefur heldur
verið hugað nægilega vel að fjármögnun
þeirra lífeyrisskuldbindinga sem hafa verið
að hlaðast upp.
Lengi vel var hægt að slá þessum vanda
á frest með gengisfellingum, vaxtabreyt-
ingum, lántöku og aukinni skattheimtu.
Þeir tímar eru nú liðnir. Skattheimta hefur
náð hámarki sínu í flestum ríkjum Vestur-
landa og ríki Evrópusambandsins geta
ekki lengur notað gengisbreytingar sem
hagstjórnartæki vegna áformanna um
efnahagslegan og peningalegan samruna.
Því verða menn að horfast í augu við kerf-
islægan vanda sem hefur verið að hlaðast
upp. Ríki geta ekki lengur leyft sér þann
munað að slá lán og samræming á al-
mennu viðskipta- og tollaumhverfi kemur
í veg fyrir að hægt sé endalaust að leggja
nýjar byrðar á atvinnulíf og almenning.
Aðlögun þessi er sársaukafull og póli-
tískt viðkvæm þar sem aðhaldsaðgerðir,
sem gripið er til nú, skila ekki árangri
fyrr en að nokkrum árum liðnum. Áhrifa-
miklir hópar hafa einnig hag af því að
ríkjandi ástandi sé ekki breytt og eru reiðu-
búnir að grípa til róttækra aðgerða líkt
og kom fram í Frakklandi í vetur.
Skil milli ríkja eru einnig að þurrkast
út á fleiri sviðum. Eitt helsta tískuorð líð-
andi árs hefur verið margmiðlun og hafa
íslendingar kynnst þeim möguleikum sem
alnetið og gervihnattasjónvarp bjóða upp
á. Þessi þróun hefur orðið hægt og síg-
andi en nú er svo komið að margmiðlunin
er að verða almenningseign í hinum vest-
ræna heimi. Upplýsingar af öllu tagi flæða
Morgunblaðið/RAX
stjórnlaust milli ríkja óháð landamærum.
Stjómvöld geta ekki lengur skammtað
upplýsingar og stjórnað flæði þeirra til
almennings.
Þeir möguleikar sem margmiðlunin býð-
ur upp á eru nær óþijótandi og gífurleg
þróun á eftir að eiga sér stað á þessu sviði
á næstu árum.
Þessi þróun nær þó einungis til hluta
heimsbyggðarinnar. Meirihluti mannkyns
hefur aldrei heyrt á margmiðlun minnst
og jafnvel í iðnríkjum Vesturlanda er þátt-
taka í fjölmiðlunarbyltingunni einskorðuð
við þá er hafa aðgang að og þekkingu á
nauðsynlegum tölvubúnaði og afnot af
móttökubúnaði fyrir gervihnattasendingar.
EN ÞÓ AÐ MILLI-
Ósfnin að ríkjasamskipti hafi
. ® verið friðvænlegri
mnan en um langt skeið
hefur komið greini-
lega í ljós á árinu hversu berskjölduð iðn-
ríkin em fyrir árásum lítt skipulagðra
öfgahópa.
Bylgja hermdarverka gekk yfír Vestur-
lönd á áttunda og níunda áratugnum en
úr henni dró eftir að hryðjuverkasamtök
misstu þann bakhjarl er þau höfðu átt hjá
Sovétríkjunum og leppríkjum þeirra í aust-
urhluta Evrópu og Mið-Austurlöndum.
Hryðjuverk þess tíma voru í raun hluti af
kalda stríðinu og hugmyndafræðilegri tog-
streitu austurs og vesturs eða þá einangr-
uðum deilum líkt og á Norður-írlandi.
Hryðjuverk ársins 1995 hafa verið af
öðmm toga. Öfgakennd trúarsamtök
gerðu ítrekaðar gasárásir á opinbera staði
í Japan og mannskæð sprengjuárás á
stjórnsýslubyggingu í Oklahoma reyndist
verk lítt þekktra neðanjarðarsamtaka.
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels,
var veginn af heittrúuðum gyðingi er vildi
koma höggi á friðarviðræður ísraela og
Palestínumanna og heittrúaðir alsírskir
múslimar efndu til sprengjuherferðar í
Frakklandi, er hófst síðastliðið sumar.
Nær útilokað er að koma alfarið í veg
fyrir hermdarverk af þessu tagi. Hin opna
þjóðfélagsgerð lýðræðisríkja gerir þau ber-
skjölduð gagnvart árásum af þessu tagi.
Á því verður væntanlega ekki breyting á
. komandi ámm.
„Svo virðist sem
Bandaríkin muni
á næstu árum
fylla það tóma-
rúm er myndaðist
eftir að togstreitu
risaveldanna
tveggja lauk með
upplausn annars
þeirra. Þetta mik-
ilvæga hlutverk
Bandaríkjanna
kom hvað skýrast
í Ijós í Bosníuvið-
ræðunum.“