Morgunblaðið - 31.12.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1995 B
POPPÁRIÐ 1995
Það orkar alltaf tvímælis að velja hvað sé best og verst þegar listir eru annars vegar,
sérstaklega í popptónlist þar sem smekkur ræður ofb meiru en faglegt mat. Ámi
Matthíasson velti fyrir sér hvaða plötur var skemmtilegast að heyra á síðasta ári,
hveijar komu mest á óvart og hveijar lifa lengur en árið.
ÍSLENSKT poppár var um margt
sérkennilegt, því flestar söluhæstu
plötur ársins eru með gömlum lög-
um og nýjum eftir erlenda flytjend-
ur þó með hafi flotið sitthvað ís-
lenskt. Á þessum lista eru ekki með
plötur þar sem íslenskir flytjendur
syngja erlend lög og innlend eftir
aðra, ekki þó til að kasta rýrð á
túlkendur, sem skipta dægurtónlist
miklu máli, heldur til að gera þeim
hærra undir höfði sem eru að reyna
að skapa eitthvað nýtt. Breiðskífa
Bjarkar, Post, hefur selst í milljón-
um eintaka og er reyndar sölu-
hæsta plata ársins hér á landi.
Debut var byltingarkenndari plata
en fölnar í samanburði við Post sem
er nánast gallalaus og batnar við
hveija hlustun. Björk kom hingað
til lands á árinu og söng á íslensku
og gaman verður að heyra lögin
af Post á íslensku á tónleikum henn-
ar í vor.
KK - Gleðifólkið Kristján Krist-
jánsson varð fyrir þvi óláni að
heltast úr
lestinni þegar
jólaslagurinn
var að heíjast
og fyrir vikið
kynntust
færri þessari
plötu en vert
er. Á Gleði-
fólkinu sannar Kristján að hann
er afbragðs gítarleikari, ekki síður
en fyrirtaks lagasmiður, textahöf-
undur og söngvari, sem allir vissu
fyrir.
Maus - Ghostsongs Árbæjarsveit-
in Maus sendi frá sér fyrirtaks
plötu snemma
hausts,
Ghostsongs,
sem átti á
brattann að
sækja líklega
vegna enskra
texta. Platan
e.r víst tekin
upp fyrir erlendan markað, en
ætti ekki að standa í Islendingum
að njóta hennar.
Botnleðja - Drullumall Botnleðja
er sennilega vinsælasta hljómsveit
landsins meðal ungmenna, fyrir
hrátt groddalegt rokkið og mein-
hæðna einfalda textana. Á plöt-
unni er
„mömmulag-
ið“ Heima er
best, sem
mikið hefur
verið spilað í
útvarpi, en
einnig önnur
ekki síðri, eins og Ferðalagið og
Þið eruð frábær.
Reptilicus - O Dúettinn Reptilicus
breyttist í tríó fyrir þessa plötu,
sem gefrn var
út ytra. Tón-
list sveitar-
innar hefur
þótt tormelt,
en bæði er að
áheyrendur
hafa nálgast
hljómsveitina
og hún nálgast þá, því 0 er sérdeil-
is áheyrileg og aðgengileg plata
með einskonar íslensku ambient-
pönki
Curver - 365 Birgir Thoroddsen,
sem kallar sig Curver hófst handa
um að gefa
út eina
snældu á
mánuði út
árið og koma
þannig á band
365 lögum.
Sem vonlegt
er sumt uppfylling á spólunum,
en á milli er að finna grúa afbragð-
slaga. Sérstaklega var vorið gott,
en ekki er síst skemmtilegt að
heyra þróun Birgis yfir árið.
Exem - Kjöttromman Exem kom
á óvart með Kjöttrommu sinni,
sem er ein
frumlegasta
plata ársins.
Ekki áttuðu
allir sig á hve
grípandi tón-
list dúetts
þeirra Þorra
Jóhannssonar
og Einars Melax var, sem er mið-
ur, því á plötunni er tónlist til
þess fallin að skemmta áheyrend-
um ekki síður en vekja þá til
umhugsunar.
Plastik - Hérna Aðalsteinn Guð-
mundsson leikur ambient tónlist
undir nafninu
Plastik. Hann
hefur áður átt
lög á safn-
diskum, en
fyrsta eigin-
lega útgáfa
hans var
snældan
Hérna sem
FIRE félagsskapurinn gaf út. Þó
hljómur á spólunni sé ekki eins
og best verður á kosið fer ekki á
milli máia að Aðalsteinn er lipur
lagasmiður og hugmyndaríkur í
útsetningum.
Blome - The Third Twin Hljóm-
sveitin Blome sendi frá sér sína
fyrstu breið-
skífu í haust,
en lét lítið á
sér kræla fyr-
ir útgáfuna
og nánast
ekkert eftir
hana. Tónlist-
in er þung-
lyndislegt popp með grípandi lag-
línum og enskum textum. Með ís-
lenskum textum hefði platan
eflaust komist ofar á lista því
margt á henni er afskaplega vel
gert.
Ásgeir Óskarsson - Veröld smá
og stór Ásgeir Óskarsson er lík-
lega þekkt-
astur fyrir að
berja bumbur,
en hann er
líka fyrirtaks
lagasmiður og
ágætis söngv-
ari. Þessi
fyrsta sóló-
plata hans er sennilega metnaðar-
fyllsta plata ársins og um flest
afskaplega vel heppnuð.
O TJ
I Q
• f >( rí:
i! X 0-
11 3 Q
í l
YTRA var öllu meira um að vera
en hér á landi, vestan hafs sann-
aði Wu Tang-klíkan að rappið lif-
ir enn góðu lífi þar í landi, ekki
síður en nýbylgjurokkið, en í Bret-
landi spratt fram ný bylgja sem
menn vilja kalla britpop. Þar í
landi dafnaði enn danstónlistin,
nú með nýju afbrigði sem kallað-
ist triphop, en jungle og ambient
hélt velli og vel það. Þegar Ric-
hard D. James, sem breskir fjölm-
iðlar kalla hinn nýja Mozart, kom
hingað til lands að leika á Uxa
tónleikunum á Klaustri vissu ekki
nema innvígðir hve hann var.
Plata hans undir nafninu Aphex
Twin, I Care Because You Do,
er ágæt vísbending um það hvers
vegna tónlistarspekúlantar hafa
hann í slíkum hávegum.
Tricky - Maxinquaye Bristol-tón-
listarmaðurinn Tricky kom öllum
í opna skjöldu
með afbragðs
plötu sinni þar
sem hann fór
á kostum í
nýju tónlistar-
afbrigði sem
menn vilja
kalla triphop;
rólyndisleg, þéttriðin danstónlist.
Tricky hefur heimsótt ísland og
unnið með Björk Guðmundsdóttur,
aukinheldur sem Ragnhildur Gísla-
dóttir syngur í einu lagi plötunnar
svo hánn ætti að vera Islendingum
að góðu kunnur.
Raekwon - Only Built 4 Cuban
Linx Wu Tang-klíkan hélt áfram
að endur-
skapa banda-
rískt rapp; G-
Funk og Dr.
Dre réðu ferð-
inni á síðasta
ári, en Aust-
urstrand-
arrappið náði
yfirhöndinni á þessu. Rapp Raekw-
ons er myrkt og tónlistin úr smiðju
RZA hæfir því einkar vel.
Goldie - Timeless Á dansgólfinu
hefur jungle ráðið mestu, að
minnsta kosti
meðal ung-
menna. Það
getur verið
þunglamalegt
og vélrænt, en
Goldie er bylt-
ingarmaður í
jungle og á
fyrstu breiðskífu sinni jók hann við
formið og gerði úr tónlist fyrir
heila ekki síður en hjarta.
David Bowie - Outside David
Bowie sannaði með Outside að
sögur af and-
láti hans eru
stórlega ýkt-
ar, því platan
minnti á
margt það
besta sem
hann hefur
sent frá sér
áður. I ljósi Outside tók svo marg-
ur plötuna þar á undan, Black Tie
White Noise, til endurskoðunar og
áttaði sig á því að hún var ekki
síður góð.
Smashing Pumpkins - Mellon
Collie & the Infinite Sadness
Bandaríska
nýbylgjusveit-
in Smashing
Pumpkins sló
í gegn 1993
með breið-
skífu sem átti
að verða síð-
asta plata
hennar. Að sögn leiðtoga sveitar-
innar og lagasmiðs, Billys Corg-
ans, átti þessi tvöfalda plata að
draga úr vinsældum sveitarinnar
sem mistókst hrapallega.
Pulp - A Different Class Á með-
an Blur og Oasis slógust um hvor
væri vinsælli
sló Pulp þeim
báðum við og
gaf út eina
skemmtileg-
ustu popp-
skífu ársins.
Tónlist Pulp
er fjölbreytt-
ari og áhuagverðari en flest það
sem hinar sveitirnar liafa sent frá
sér og Jarvis Cocker er einn
skemmtilegasti textasmiður í
bresku poppi.
Coldcut - Journeys by DJ Það
þótti ekki merkileg iðja að vera
plötusnúður
áður fyrr, en
í danstónlist-
inni skiptir
miklu að vera
fimur að
flétta saman
og ter.gja lög,
ekki síður en
velja saman þekkta takta og
óþekkta en ekki síður góða. Coldc-
ut dúettinn setti saman skotheldan
70 mínútna pakka af danstónlist.
Genius/GZA - Liquid Swords
Enn ein Wu Tang plata, en fjórar
slíkar komu
út á árinu, all-
ar fyrirtak.
RZA er við
stjómvölinn í
tónlistinni
eins og jafnan
og ýmsir gest-
ir koma við
sögu. Aðalatriðið er þó rapp Genius
sem er eins beitt og sverðin sem
hann kennir plötuna við.
Buju Banton - ’til Shiloh Buju
Banton vakti fyrst athygli fyrir
heimskulegar
yfirlýsingar
sínar um sam-
kynhneigða
og lengi vel
virtist sem
tónlistarferli
hans væri lok-
ið fyrir vikið.
’til Shiloh er aftur á móti afbragðs
plata, nútímalegt ragga með sterk-
um rastafari- og reggíáhrifum.