Morgunblaðið - 31.12.1995, Side 32
32 B SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
hæfni íslenskra fyrirtækja gagnvart
erlendum keppinautum en það er
ekki síður mikilvægt að huga að
samkeppninni hér innanlands. Inn-
an bæði heildsölu- og smásöluversl-
unar gætir æ ríkari tilhneigingar
til samþjöppunar og/eða samstarfs.
Þetta er þróun sem er engan veginn
einskorðuð við ísland heldur afleið-
ing harðnandi samkeppni til að
auka. hagkvæmni. Dæmi um slíkt
skipulagt samstarf um innkaup
og/eða markaðsfærslu er t.d. Baug-
ur hf. (Hagkaup + Bónus) og nú
nýlega Búr hf. (ýmis kaupfélög +
Nóatún). Líklegt má telja að þessu
ferli sé alls ekki lokið þannig að
erfitt verði fyrir einstakar verslanir
að komast af án aðildar að hlið-
stæðu samstarfi. Blómleg verslun
þrífst best ef fjölbreytileikinn er
mikill og því er mikilvægt að sam-
þjöppunin verði hófleg. Besta
trygging okkar fyrir góðu, hag-
stæðu vöruúrvali er að nægileg fjöl-
breytni sé á markaðnum þannig að
lítil vel rekin fyrirtæki nái að vaxa
og veita hinum stærri heilbrigða
samkeppni. En lítil fyrirtæki eru
jafnframt viðkvæmust fyrir óhóf-
legum álögum og flóknu reglu-
verki. Enn og aftur þarf að ítreka
að leikreglumar þurfa og eiga að
vera einfaldar því þá geta litlu fyrir-
tækin eins og t.d. bóksalar betur
svarað samkeppni stórmarkaðanna
þegar þeir selja þeirra sérvöm á
eða undir kostnaðarverði til að laða
að sér viðskipti.
Samkeppni í verslun er gífurlega
hörð og felst ekki eingöngu í sam-
keppni um verð heldur einnig í þjón-
ustu svo sem opnunartíma o.fl.
Langur afgreiðslutími er kostnaðar-
auki, sem kemur fram í hærra vöru-
verði og jafnframt sem álag á
starfsfólkið. Vonandi ná verslunar-
og þjónustufyrirtæki því að rata á
hóflegan meðalveg í þessum efnum.
Til að allrar sanngirni sé gætt er
þörf á að neytendur, fjölmiðlar og
yfirvöld vegi þetta allt saman, þann-
ig að samanburðurinn taki mið af
verði og GÆÐUM vöru jafnt sem
þjónustu.
Islenskir verslunarmenn eru
hlynntir eðlilegu eftirliti en best er
þegar innra eftirlit fyrirtækjanna
er virkt. Til að ná langtíma árangri
í þessum efnum sem og meiri hag-
kvæmni þarf að stórefla menntun
og því er það sérstakt ánægjuefni
að nú hillir undir að skipuleg verk-
menntabraut fyrir verðandi verslun-
arfólk verði að veruleika í Borgar-
holtsskóla í Reykjavík. Þar er þegar
ákveðið að Fræðslumiðstöð bíl-
greina verði til húsa skv. sérstökum
samstarfssamningi Bílgreinasam-
bandsins og menntamálaráðuneyt-
is. Betri menntun auðveldar fyrir-
tækjum að fá vottun skoðunarfyrir-
tækja um starfsemi sína sem leiðir
til meiri aga í rekstri og um leið
sparnaðar á eftirliti hins opinbera.
Í þessu skyni hafa t.d. aðilar innan
Félags íslenskra stórkaupmanna
rekið skoðunarstofu fyrir fisk-
vinnslu og Fræðslumiðstöð bíl-
greina og Bílgreinasambandið hafa
haldið fjölmörg námskeið m.a. til
B-faggildingar í bifreiðaskoðun og
vegna gæðaátaks fyrir smurstöðvar
svo eitthvað sé nefnt.
Líkt og víkingar til forna stendur
verslunin og fellur með eigin
ákvörðunum. Verslun nýtur engra
opinberra styrkja og hefur engan
áhuga á slíku, en ætlast til að fá
sams konar rekstrarskilyrði og aðr-
ar atvinnugreinar þannig að sömu
leikreglur gildi fyrir alla. Nú bendir
margt til að næsta ár verði þjóðinni
hagstætt og því er það mikilvægt
að við getum stjómað góðærinu í
þetta sinn. Það hefur löngum verið
veikleiki okkar að kunna okkur
ekki hóf í velgengni. Við verðum
að hugsa til framtíðar, skapa okkur
varasjóði, í mannauði með betri
menntun, í betra starfsumhverfi
fyrir íslensk fyrirtæki og í stærri
fiskistofnum í sjó. Að lokum vil ég
óska landsmönnum öllum farsældar
á komandi ári.
ATVINNUA UGL YSINGAR
Auglýsing
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir eftir-
talin störf laus til umsóknar:
1. Ræstingu/umsjón á Garðvegi 1, Fræða-
setrinu.
2. Húsverði í íþróttamiðstöðina Sandgerði.
3. Tómstundafulltrúa, sem verður fram-
kvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs.
Umsóknarfrestur er til 27. janúar 1996.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
bæjarfélagsins, Tjarnargötu 4.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma
423 7555 milli kl. 10.00-12.00 alla
virka daga.
Bæjarstjórinn íSandgerði,
Sigurður ValurÁsbjarnarson.
Ilisimatusarfik
Háskóli Grænlands
Aðjúnkt/lektor
Stjórnsýsludeild Grænlandsháskóla auglýsir
til umsóknar stöðu aðjúkts/lektors í hag-
fræði. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji
störf 1. apríl 1996 eða síðar á árinu.
Ætlast er til að sá sem ráðinn verður stundi
rannsóknir á efnahags- og samfélagsmálum
á Grænlandi, kerini á sviði hagfræði, tölfræði
og upplýsingatækni á BA- og MA-stigi og
taki þátt í stjórnunarstörfum. Nemendur
Háskóla Grænlands tala grænlensku og
dönsku, en kennsla fer fram á dönsku.
Rannsóknaáherslur og rannsóknareynsla á
sviði þróunar- og byggðahagfræði er æski-
leg, en ekki forsenda ráðningar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
ítarlega skýrslu um námsferil sinn, starfsfer-
il og fræðistörf, kennslu á háskólastigi, rit-
smíðar og rannsóknir ásamt eintökum af
fræðilegum ritum sínum, sem þeir óska eftir
að tekið verði tillit til við hæfnismat. Öll gögn
skulu vera í þremur eintökum.
Umsóknir verða dæmdar af nefnd sérfræð-
inga, sem útnefndir verða af dönskum há-
skólum ásamt Háskóla Grænlands.
Niðurstöður dómnefndar verða sendar öllum
umsækjendum.
Ráðningarskilmálar
Laun og ráðningarskilmálar, þ.m.t. ferða-
styrkir vegna leyfa og flutninga, eru sam-
kvæmt launasamningum Heimastjórnar
Grænlands og viðkomandi launþegasamtaka.
Byrjunarlaun eru háð menntun og reynslu og
liggja á bilinu frá 240.000-300.000 ísl. kr.
Réttur til húsnæðis samkvæmt gildandi
reglum.
Nánari upplýsingar veitir dr. ívar Jónsson,
forstöðumaður Stjórnsýsludeildar Háskóla
Grænlands (sími +299 24711/29002,
fax +299 24711).
Umsóknir sendist í flugpósti til rektors:
llisimatusarfik, att. Rektor, P.O. Box 279,
DK-3900 Nuuk,
og berist háskólanum í síðasta lagi fimmtu-
daginn 1. febrúar 1996.
Rafeindavirkja
vantar til starfa á nýstofnað verkstæði versl-
unarinnar Hljómsýnar á Akranesi.
Reynsla áskilin. Góðir tekjumöguleikar.
Svör sendist í pósthólf 122, 300 Akranes
fyrir 6. janúar nk.
Vélstjóri
á frystitogara
Vélstjóra vantar á frystitogarann Sindra
(aðalvél 2000 kW), sem gerður er út frá
Vestmannaeyjum.
Upplýsingar í síma 481 3400.
Melurhf.,
Hafnargötu 2,
900 Vestmannaeyjum.
EINKARITARI
ENSKA/FRANSKA
FYRIRTÆKIÐ er eitt af öflugri
innflutningsfyrirtækjum landsins staðsett í
Reykjavík.
STARFIÐ felst í innlendum og erlendum
bréfaskriftum á ensku og frönsku m.a., ásamt
almennri tölvuvinnslu, vistun skjala,
undirbúningi funda auk annarra krefjandi
verkefna.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu
með góða íslensku- og enskukunnáttu í töluðu
og rituðu máli auk þess að vera vel talandi á
franskri tungu. Áhersla er lögð sjálfstæð og
fagleg vinnubrögð, örugga og þægilega
framkomu ásamt lipurð í mannlegum
samskiptum og áreiðanleika í hvívetna.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með 9.
janúar n.k. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á
skrifstofunni, sem opin er frá kl.10-16, en
viðtalstímar eru frá 10-13.
Starfsráðningar ehf
Mörkinni 3 ■ 108 Reykjavík
Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3044
CuSný HarSardóttir
Skíðaskálinn
Hveradöluni
Óskum eftir að ráða:
- Yfirmatreiðslumann.
- Matreiðslumenn.
- Matreiðslu- og framreiðslunema.
Leitum að áhugasömu og jákvæðu fólki til að
starfa með okkur á skemmtilegum vinnustað.
Skriflegar umsóknir sendist afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Fjöllin - 7646“, fyrir 10. jan. nk.
Frekari upplýsingar veittar í síma 567 2020
eða 587 2336 á milli kl. 18 og 20 nk. þriðjud.,
fimmtud. og föstud. (Guðmundur).
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk á leikskólann
Vesturborg, Hagamel 55.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri
í síma 551 7665.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552-7277.
JHM ALTECH ehf.
Vélaverkfræðingur og sölustjóri
JHM ALTECH ehf. er fyrirtæki sem starfar
á sviði hönnunar og sölu tækja til álvera í
samvinnu við sérhæfð innlend og erlend
verkfræði- og framleiðslufyrirtæki. Vegna
nýlegra sölusamninga og aukinna verkefna
óskar JHM ALTECH ehf. eftir að ráða véla-
verkfræðing og sölustjóra til starfa.
Vélaverkfræðingur:
Starf vélaverkfræðings felst í hönnun, til-
boðsgerð og eftirliti með framleiðslu og upp-
setningu tæknibúnaðar. Reynsla af hönnun
vélbúnaðar með tölvuteikningu er nauðsyn-
leg. Einnig er æskilegt að viðkomandi hafi
starfsreynslu á alþjóðavettvangi.
Sölustjóri:
Starf sölustjóra felst í markaðssetningu, til-
boðsgerð og sölu stjórnbúnað og fram-
leiðslutækja til álvera um allan heim. Alþjóð-
leg reynsla af markaðssetningu tæknibúnað-
ar er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Sölustjóri 534“ eða „Vélaverkfræðingur
533“ fyrir 13. janúar nk.