Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 23 Gunnvör hf. á ísafirdi er ásamt dóttur- fyrirtækjum umfangsmesta fyrirtæki á Vestfjörðum hvort heldur mælt er á mælikvarða veltu eða kvótaeignar. og heilfryst um borð. Þannig verkuð er hún svo seld til Austurlanda.“ Allur afskurður hirtur Togarinn Júlíus Geirmundsson er nú á sjöunda ári. Kristján segir engar ráðagerðir uppi um að end- umýja skipið. „Togarinn hefur reynst mjög vel. Hann getur verið 35 daga á veiðum í einu og ber um 400 tonn af frystum flökum.“ Engin mjölvinnsla er um borð í skipinu og segist Kristján ekki eiga von á að eldri fiskiskipum verði gert að koma með allt sem fellur til við vinnslu afla um borð að landi. Nýlega settum lögum þar að lútandi verði væntanlega breytt. „Við sjáum ekki að slík fjárfesting borgi sig,“ sagði Kristján. „Mjölvinnsla kostar tugi milljóna en skilar ekki nema einhverjum milljónum yfir árið.“ Afskurður úr flakavinnslunni á Júlíusi Geirmundssyni hefur verið hirtur í mörg ár. „Við höfum selt allan afskurð Bakkalág íslands hf. í Þorlákshöfn. Þeir hafa saltað af- skurðinn og selt hann til Portúgal. Það hefur verið forsenda fyrir því að koma með þetta í land því þeir hafa keypt afskurðinn á góðu verði.“ Atvinnumál og byggðaþróun á Vestíjörðum hafa verið í brenni- depli undanfarin ár. „Erfiðleikarnir hafa aðallega verið í kringum okkur ísfírðinga," sagði Kristján. „Kvótinn hefur verið að færast frá stöðunum hér í kring og hingað til ísafjarðar. Hvað varðar framtíðina veldur tapið á bolfiskvinnslunni áhyggjum. Það er mikilvægt fyrir byggðirnar að það takist að koma þessari vinnslu í gott horf. Það hefur líka verið erfítt að afla hráefnis til fiskvinnslu- húsanna. Hráefnismálin hafa verið með þeim hætti að menn hafa ekki verið aflögufærir. Bátaútgerð hefur verið að minnka hér á Isafirði en vaxið í kringum okkur. Byggðarlög- in í nágrenninu hafa verið að ná sér upp með línutvöföldun og bátum með línubeitingavélar hefur fjölgað. Jarðgöngin og það að ísafjörður og nágrannabyggðir verða eitt sveitar- félag innan skamms hlýtur að verða til þess að auka samstarf aðila í sjávarútvegi." Morgunblaðið/RAX Á VEGG hangir mynd af m.s. Gunnvöru sem strandaði í Fljótavík 1949, klukkan og loftvogin úr skipinu og mynd af konunni sem ekkert er vitað um, nema að hún hét Gunnvör. Tveir stofnendur Gunnvarar hf., þeir Jóhann og Þórður Júlíussynir, keyptu skipið á strandstað. Ein stærsta skóútsala ársins i 0 pið alla virka daga, laugardag og sunnudag frá k I . 13:00 - 18:00 Borgartúni 20 Kuldaskór, götuskór, spariskór o.fl. o.fl. o.f! Stendur aðeins í örfáa daga í vönduðu áætlunarflugi alla leió med Flugleidum og APA International Air I 2 DAGAR Á ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU VERÐI. Fá saeti laus. Staðfesta verður pöntun. Brottför 29. mars. Komið til íslands að morgni 9. apríl. Aðeins 3 vinnudagar. Þú sérð mikið af fegurð Dóminikana á þessu ferðalagi, há fjöll og gróðursæla dali.fegursta blómagróður í bland við ávaxtatré, tóbaks-, kakó- og sykurekrur. Landið sjálft hefur lítið breyst frá dögum Kólumbusar, sem sagði: „Svo fagurt land hafa augu mín aldrei litið fyrr.“ Ódýr en frábær, verðlag helmingi lægra en á öðrum eyjum Karíbahafs. Enginn annar sambærilegur vetrarstaður i boði fyrir íslendinga og jafnvel ódýrari þegar dæmið er gert upp í heild. í þessarí paradís er allt ínnifalið: Fulit faeði, allir drykkir, kennsla í sjávaríþróttum, skemmtanir og íslensk fararstjórn. Hitastig 25-28° C.sumar allt árið. JANÚARBROTTFARIRTIL PUERTO Fararstj PLATA - UPPSELDAR. FÁEIN SÆTI LAUS í LOK FEBRÚAR OG BYRJUN MARS. Brottfarir á föstudögum. orar Siglingar Hildur Björnsdóttir á hinum frábæru skipum Carnival Cruise Lines: Imagination, Sensation, Celebration. Nokkrir viðbótarklefar á sérkjörum 2 fyrir I. Pantið með góðum fyrirvara. Uppselt 30. mars. Gististaður: PUERTO PLATA VILLAGE - algjör sælureitur með öllu inniföldu og hefur aldrei verið jafn góður og nú. Það er ekki að ástæðulausu að fólk skrifar: „Þessa daga, sem ég dvaldi á Puerto Plata, fannst mér eins og ég væri í Paradis." „Besta fri okkar á ævinni!" „Mér hefði aldrei dottið i hug að hægt væri að njóta annarra eins gæða fýrir jafn lítið." Úr fréttabréfi: (ummæli farþega) „Siglingin okkar um Karabahafið á glæsiskipinu IMAGINATION var draumi líkust og ótrúlegt ævintýri. Nú eigum við náðuga daga hér í Puerto Plata og slöppum af í undurfögru umhverfi." Ingólfur Guðbrandsson FERÐASKRIFSTOFAN PRlMAi HEIMSKLUBBUR INGOLFS Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.