Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 40
10 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ' 90 fm íbúð fyrir 2 millj.? Ekki alveg, en þú þarft aðeins að vera með 2 millj. á milli til að kaupa 90 fm 3ja herb. íbúð í góðu fjölbýli við Hraunbæ 154. Á íbúðinni hvíla hagstæð lán upp á 4,2 millj. með greiðslubyrði 23.500 kr. á mánuði. Sævar sýnir íbúðina, sem er á 1. hæð, á milli kl. 15 og 17 í dag. Húsakaup, Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen, s. 568-2800. Blikahólar 6 - opið hús í dag milli kl. 14 og 16 verður sölusýning í þessu góða húsi. íb. er 2ja herb. 57 fm á 3. hæð (efstu) í litlu fjöl- býli. íb. er mikið endurnýjuð m.a. nýtt eldhús. Parket. T.f. þvottavél á baði. Glæsilegt útsýni. í sameign er geymsla og þvottaherb. Áhv. 1,8 millj. Verð 5,3 millj. ÁSBYRGI fasteignasala, Suðurlandsbraut 54, sími 568 2444. Frá eftirlaunadeild Félags íslenskra símamanna Munið þorrablótið í matsalnum, Landssímahúsinu við Austurvöll, föstudaginn 16. febrúar kl. 18.00. Fjölbreytt skemmtiatriði; m.a. syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir, óperusöngkona. Undirleikari Anna Guðný Guðmundsdóttir. , Áríðandi er að tilkynna þátttöku sem fyrst í símum 550-6561, 557-3630, 588-8189, 562-6875 og 551-6247. Skemmtinefndin. yógastöðin Júimstjós ÁrmúCa 15, 2. ficeð, sími 588 4200 9{œstu námsfeið Byrjendanámskeið 19. feb.-6. mars, mán./miðv. kl. 20-22. Leiðbeinandi: Guðfinna Svavarsdóttir. Vellíðunarnámskeið 27.feb.-7. mars, þri./fim. kl. 20-22. Leiðbeinandi: Kristín Norland. <\ó G A •< , Kynning á námskeiðunum fimmtudaginn 15. feb. kl. 20.00. Tréð eykur einbeitinguna. JÓGASTÖÐIN HEIMSLJOS Kripalujóga Næstu námskeið: Grunnnámskeió 13. feb. (8 skipti) þri. & fim. kl. 20.00-21.30. örfiplisslaus. Grunnnámskeið 19. feb. (8 skipti) mán. & mið. kl. 18.30-20.00. Hugleiðslutímar þri. & fim. kl. 15.30-16.00 (fyrir alla korthafa). Opnir jógatímar 4 sinnum á dag - allir velkomnir. Kripalujóga stuðlar m.a. að: Auknum líkamlegum og andlegum styrk. Koma á jafnvægi í mataræði og líkamsþyngd. Losna undan spennu og áhyggjum. Meiriháttar dansupplifun með Uriel West Uriel Wesi Helgarnámskeiö £ Yoga Studio, Hátúná 6A Helgina 16.-18. febrúar: Að losna úr viðjum kvíðans. Notaður verður dans tjáning, hljóð, teikning og slökun til að öðlast meiri gleði ogheilbrigði. Ókeypis kynningarkvöld nk. miðvikudag kl. 20.00 Frítt Jógakorí vikuna á eftir fylgir helgarnámskeiðinu. Uriel West hcfur starfað sem leiðbeinandi í 26 ár. Hann hefur haldiö námskeiö víða um BaDdaríkin, Kanada og Evrópu. Með áhuga sínum og lífsgleói hefur hann hjálpað fjölda manns að öðlast frelsi og lífsgleði. Upplýsingar og skráning: Nanna Mjóll Atladóttir, sími 567-5759. Y06AÍ STUDIO Nuddstofan í Yoga studio Nudd frá kr. 1.600 tíminn. Svæðameðfcrð frá kr. 1.700 timinn. Hátúni 6A, 105 Reykjavík, sími 511-3100 Kripalujóga - Leikfiml hugar og iíkama 1 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Kennarar, vaknið! YKKUR ber að vera á verði! Einelti er mun al- gengara en margan grunar. T.d. má nefna að ég var fórnarlamb ein- eltis, en sem betur fer hef ég jafnað mig að fullu. Hins vegar þykir mér hræðilegt að hugsa um öll þau börn sem eru að lenda í þessu núna. Ég var lögð í einelti allan barnaskólann og flest gagnfræðaskólaárin. í mínu tilfelli voru þar mest þrír strákar í mín- um bekk að verki, en stundum bættust fleiri við. Ég er vonsvikin út í kennarana sem ég hafði, en þeir hefðu átt að taka í taumana. Með þessu er ég alls ekki að ásaka kennarana fyrir þetta allt saman, og auðvitað er sökin að vissu leyti mín. Börn geta bara verið svo dul og segja jafnvel ekki foreldrum sínum. Sú staðreynd að þau skammast sín fyrir þetta atferli veldur því að þau segja ekki neitt. A þessum tíma var sjálfstraust mitt í lág- marki og ég kveið alltaf fyrir því að fara í skól- ann. Stundum langaði mig til þess að flytja burt og byrja í nýjum skóla, en það varð aldrei neitt úr því. Ég skammaðist mín fyrir þetta og jafnvel móðir mín vissi ekki af þessu. Því segi ég, að þar sem eineltið var talsvert, hafí kennarinn minn ekki komist hjá því að taka eftir því og að hann hefði átt að gera eitthvað í málinu. Það hefði skipt sköpum. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég var í 9. bekk að ég var djúpt sokkin í þunglyndi og reyndi að drepa mig. Mikið er ég fegin að ég gerði það ekki, en ég varð svo hrædd við sárs- aukann. Eftir þetta þurfti ég virkilega að taka mig á til þess að fara aftur í skólann, en ég ætlaði svo sannarlega ekki að gef- ast upp. í dag er ég ekki reið út í þá sem ollu mér þess- um sálarkvölum. Ég held því heldur ekki fram að þeir séu illgjarnar og slæmar persónur. Hins vegar fínnst mér að þeir hafi átt erfítt sjálfir, þeim hafi liðið illa og það hafi bitnað á mér. Ég trúi því að hægt sé að hjálpa þeim sem leggja aðra í einelti. Það eru þeir, sem eiga erfitt. Lengi vel fannst mér þessi lífs- reynsla vera svartur blettur á mér og mínu lífi, sem myndi alltaf htjá mig. En nú er þessi svarti blettur orðinn að perlu, og nú er ég öll af vilja gerð að segja öðrum frá reynslu minni, þeim tii hjálpar. Fórnarlamb eineltis. Samfélag’ið í nærmynd OF SJALDAN vekjum við máls á því sem vel er gert, svo hér ætla ég að gera bragarbót og tala um þáttinn Samfélagið í nærmynd sem er á dag- skrá Ríkisútvarpsins fyrir hádegisfréttir á virkum dögum. Stjómendur þátt- arins, Sigríður Amardótt- ir og Asgeir Eggertsson, em einstaklega góðir þáttagerðarmenn að mínu mati óg eiga hrós skilið. Bæði er val efnis ætíð áhugavert og einnig era þau góðir spyijendur í viðtölum sínum við fólk. Ólíkt því sem svo oft heyr- ist í fjölmiðlum í dag þar sem spyijendur grípa sí- fellt fram í fyrir viðmæ- lendum sinum, sem þá missa samhengið í því sem þeir ætluðu að segja, gefa þau fólki nægan tíma til að tjá sig en halda þeim samt við kjama málsins. Ég held að þessi sama fjölmiðlakona Sigríður Amardóttir hafí verið annar stjómandinn á þættinum í Sannleika sagt í sjónvarpinu og voru þeir þættir líka góðir og fróðlegir. Þar fengu mörg, oft ólík, sjónarmið að koma fram og fólk fékk betur að tjá sig en í annars ágætum þáttum hjá Stefáni Hafstein, Al- mannarómi á Stöð 2, þar sem honum hættir til að stuða fólk svolítið með þeim hraða sem hann keyrir þáttinn á og á sjálf- sagt að gera hann spenn- andi eða eitthvað í þá átt. Skyldi Stefán Hafstein hafa verið ofvirkur í æsku? Það er ekki öllum gefið að stjóma samtölum svo vel fari og vita ná- kvæmlega hvenær á að grípa inn í svo varla sé það merkjanlegt að sam- talinu sé stjómað. Sigríður og Asgeir, þið fáið hrós í hnappagatið frá mér fyrir góða frammistöðu. _ Haldið áfram á þessari braut. Margrét Sölvadóttir. Sjónvarpsgláp ÉG GET ekki á mér setið að láta í ljós vanþóknun mína á því efni sem ríkis- sjónvarpið býður lands- mönnum uppá. Það er með eindæmum lélegt, svo ekki sé meira sagt. Er virkilega ekki hægt að fá efni sem er menn- ingariegra? Ég vil benda á alla þessa leiðinda þætti með sömu persónunum ár eft- ir ár sem allir eru búnir að fá nóg af. Og núna koma þeir t.d. aftur með þáttinn Bráðavaktina. Hvað á þetta að þýða, ekki eru þau uppörvandi þessi ósköp, ekkert nema slys, blóð og stress. Tak- ið þetta af skjánum, fyrir alla muni — svo loksins þegar þeir koma með ís- lenskt efni, t.d. Þeyting, þá er það lágkúrulegt þegar fólk víða um land er spurt um hvernig það stjórni kynlífi sínu. Ég á ekki orð yfír hneykslun mína. Ég bara spyr, er einkalíf fólks einskis metið? Það er ekki sæm- andi að koma með slíkt í sjónvarp, er ekki tími til kominn að skipta um starfslið sem þessu stjómar. Konur! Látið ekki hafa ykkur að fíflum. Anna Einarsdóttir, Kiðafelli, Kjós. Víkveiji skrifar... AHUGI erlendra fjárfesta á fyrirtækjarekstri hér á landi hefur lengi verið lítill. Hvers- vegna? Víkverji las nýverið grein eftir Jón Óskar Þorsteinsson hag- fræðing í Fjármálatíðindum um erlenda fjárfestingu. Engin leið er að rekja hana hér sem vert væri. Þar er m.a. drepið á nokkur nei- kvæð atriði í augum erlendra fjár- festa. í fyrsta lagi órói í íslenzkum vinnumarkaði. „í samanburði við 20 önnur OECD-lönd töpuðust hvergi fleiri vinnudagar á síðasta áratug en á íslandi..." Í annan stað óstöðugt gengi. „Gengi ís- lenzku krónunnar hefur á síðustu 20 árum verið fellt 29 sinnum...“ í þriðja lagi er arðsemi fyrirtækja hér á landi afar lág. „I saman- burði Hannesar G. Sigurðssonar (1994) á arðsemi fyrirtækja á ís- landi og í 12 öðrum OECD-löndum kom í ljós að arðsemin er lang- lægst á íslandi. A árunum 1987 til 95 var arðsemi eigin fjár á ís- landi um 0,7%, en að meðaltali 11% í hinum OECD-löndunum . .. Á íslandi var hagnaður sem hlut- fall af tekjum 0,2% að meðaltali á móti 5% að meðaltali í samanburð- arlöndunum." Ef vel tekst til getur rétt erlend fjárfesting aukið og styrkt velsæld landsmanna. Að mati Víkveija er tímabært að öll framsækin þjóðfé- lagsöfl sameinist um að gera fyrir- tækjarekstur á íslandi aðlaðandi kost, bæði fyrir hérlenda og er- lenda fjárfesta. xxx BÍLLINN gegnir þungavigtar- hlutverki í stóru og strj álbýlu landi okkar. Eða svo hlýtur Vík- veiji að álykta með hliðsjón af bifreiðaeign landsmanna. I fróð- legri grein Valdimars Kristinsson- ar, „Samgöngur og ferðamál", sem birt er í Fjármálatíðindum, segir m.a., að árið 1994 hafi 440 bifreiðar verið á hveija 1.000 íbúa, eða 2,27 íbúar á hvern fólksbíl. í Bandaríkjunum, þar sem bif- reiðaeign er mest, eru 1,8 íbúar um hvern fólksbíl, 1,9 á Italíu og sama hlutfall í Kanada. Ástralir, Nýsjálendingar og Svisslendingar eru á svipuðu róli og íslendingar með bifreiðaeign - aðrir hafa af minnu að státa. Árið 1994 voru 131.840 bifreið- ar í landinu: 116.243 fólksbifreið- ar, 1.249 almenningsbifreiðar og 14.348 vörubifreiðar. Á þremur áratugum, 1950 til 1980, tvö- faldaðist bifreiðaeign landsmanna á hveijum áratug, en síðan hefur dregið úr hlutfallslegri aukningu. Fyrir 40 árum, árið 1955, voru 15.600 bifreiðar í landinu samtals. Nú eru þær níu sinnum fleiri. Þess- ar tölur tala sínu máli. En Valdi- mar segir í grein sinni: „ er bíla- fjöldinn væntanlega búinn að ná mettunarstigi...11 VALDIMAR Kristinsson og at- hyglisverð grein um byggða- mál í Fjármálatíðindum. I texta um búsetuþróun í landinu segir: „Önnur breyting, sem lítill gaumur er gefínn, er sú hvernig íslenzka þjóðin hefur smám saman verið að færa sig meira yfir á jarð- skjálftahættusvæði landsins. Lauslega áætlað bjuggu um 57% þjóðarinnar á slíkum svæðum 1920, en um 82% 1994, enda eru nær allir fólksfjölgunarstaðir á þeim svæðum.“ Síðar í sömu grein segir: „Við norðanverðan Leirárvog, á leiðinni milli Akraness og Borgar- ness, er að finna flest það sem hæfa myndi bæ eða borg. Jarð- myndun er þar tiltölulega traust, að því er bezt er vitað, og jarðveg- ur sennilega heppilegur fyrir byggingar. Vannýtt hitaveita er í nágrenninu, sem síðar má efla eftir þörfum og eflaust gnægð af góðu, köldu vatni. Útivistarsvæði í nágrenninu eru bæði falleg og fjölbreytileg. Stutt er í hafnir bæði við Akranes og Grundar- tanga og áætlað er að grafa göng undir Hvalfjörð, sem tryggja munu tengsl við höfuðborgarsvæðið. Þessi nýja „Akraborg" hlyti því ýmislegt í vöggugjöf.“ Þetta er nýstárleg og skemmti- leg hugsýn hjá höfundi sem reynd- ar hittir oftast naglann vel á höf- uðið í skrifum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.