Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 33 ! ! I 1 i I i í i i ( i ( ( ( ( ( l < ( i < ( < ( ( < ÁSLAUG VALDEMARSDÓTTIR + Áslaug Valde- marsdóttir var fædd á Húsavík 31. júlí 1933. Hún lést á Fj ór ðungssj úkra- húsinu á Akureyri 4. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Valde- mar Jósafatsson, húsgagnasmíða- meistari, Húsavík, og Árnína Kristín Jónsdóttir, Húsavík. Báðir foreldrar Ás- laugar höfðu misst fyrri maka sína þeg- ar þau giftust. Hálf- systkini Áslaugar, börn Valde- mars, voru Jón og Óli, fæddir í Noregi þar sem Valdemar bjó áður. Þeir eru báðir fallnir frá fyrir allmörgum árum. Hálf- systkini Áslaugar, börn Árnínu, eru Jón ísfjörð sem nú er látinn og Sigurpáll ísfjörð sem er enn á lífi hálfáttræður. Böm þeirra Valdemars og Árnínu auk Ás- laugar era: Hólmfríður, f. 11. september 1925; Steinunn Sig- urbjörg, f. 1. febrúar 1928, eftir- lifandi maki er Jón Bernharðs- son; og Hilmar, f. 17. janúar 1930. Bæði Hólmfríður og Hilm- ar hafa misst maka sína. Eftir að Árnína móðir barna þeirra Valdemars lést tók móðuramma þeirra, Hólmfríður Sigurpálsdóttir, að sér það hlut- verk að ala upp við hlið Valde- mars börn þeirra hjóna og koma þeim til manns. Áslaug lauk gagnfræðaprófi þeirra tíma við Gagnfræðaskóla Húsavíkur. Hún vann fyrst á Húsa- . vík við verslunar- störf þjá Pöntunar- félagi verkamanna, síðar við talsíma- störf hjá Pósti og síma, allt þar til hún gifti sig. Áslaug giftist í júní 1963 Áskeli Einarssyni, þá bæjarsljóra á Húsa- vík, síðar fram- kvæmdastjóra Sjúkrahúss Húsa- víkur. Fyrri hluta árs 1971 tók Áskell við starfi framkvæmdastjóra Fjórðungs- sambands Norðlendinga. Þá fluttu þau hjón ásamt börnum sínum til Akureyrar og hafa þau búið í Höfðahlíð 9 allar götur síðan. Börn þeirra eru: Valdemar Steinar Guðjónsson, f. 1. apríl 1956, Ólafía, f. 2. apríl 1963, og Einar, f. 23. maí 1965. Þau Ólaf- ía og Einar voru börn þeirra beggja en Valdemar er stjúpson- ur Askels. Á Akureyri vann Áslaug í fyrstu við verslunarstörf í Am- aro. Síðan um allmörg ár við símavörslu á skrifstofu iðnað- ardeildar SÍS á Akureyri. Síð- ustu árin vann hún sem skólarit- ari við Glerárskóla. Áslaug verður jarðsungin frá Aku rey rarkirkj u á morgun, mánudaginn 12. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. FALLIN er frá mágkona mín, Ás- laug Valdemarsdóttir. Áslaug var síðari eiginkona Áskels, bróður míns, og hefur þeirra samfylgd varað rúma þrjá áratugi. Þann tíma hefur heim- ih þeirra og atvinna verið á Norður- landi en flest mér tilheyrandi sunn- anlands. Skilyrði til tíðra samvista voru því ekki fyrir hendi en jafnan gagnvegir milii heimila og kynni mín af Áslaugu urðu allnokkur. Er mér ljúft að leiðarlokum að minnast hennar nokkrum orðum. Frá fyrstu tengslum hennar við fjölskyldu mína minnist ég hennar sem glaðlegrar ungrar konu með soninn sinn unga, hrein og bein og ótrauð að takast á við lífið. í heim- sókn til þeirra Áskels á Húsavík sé ég hana fyrir mér sem stolta og hamingjusama móður tveggja lítilla barna þeirra og góðan félaga eldri dóttur manns síns af fyrra hjóna- bandi. Stjúpdóttur sinni, er misst hafði móður á viðkvæmum aldri, reyndist Áslaug styrk stoð og sam- band þeirra hefur verið traust. I rúman aldarfjórðung hefur heimili þeirra hjóna staðið á Akur- eyri þar sem Áskell hafði með hönd- um ábyrgðarmikið og erilsamt starf. Samhliða umönnun og umsjá heimil- is starfaði Áslaug utan veggja þess; reyndist hún farsæl í starfi og vel metin. Á heimilið að Höfðahlíð 9 var gott að koma og ánægjulegt að dvelj- ast. Húsbóndinn iðkaði samræðulist- ina og kom víða við en húsfreyjan lagði til mála á sinn sjálfstæða hátt. Heimilið var fallegt og vel um geng- ið, skipulega að öllu staðið og vel búið að sínu; Áslaug veitti gestum góðan beina og þar var í raun gesta- sæld. Það voru vissulega váleg tíðindi er veikindi hennar spurðust fyrir um það bil einu ári og einnig um þá erfiðu læknismeðferð sem viðhafa þurfti. En hún lét málið ekki á sig ganga, hélt reisn sinni og gekk að sínu meðan þrek entist. Á síðastliðnu ári áttu fjölskyldur okkar eftirminni- legar ánægjustundir saman og að gefnu tilefni sérstakar fagnaðar- stundir á Akureyri í ágústlok. Enda þótt veikindin hefðu búið um sig hélt Áslaug gleði sinni, lét sem ekk- ert væri og gaf með því endurminn- mgunni um samveruna meiri dýpt. Fram undir það allra seinasta mátti vissulega leyfa sér að vænta einhvers bata en dagarnir reyndust vera taldir því með frekar stuttum aðdraganda kom breytingin. Ekki má sköpum renna og kallinu óhlýðn- ast enginn en eftir sitja dýrmætar minningar aðstandenda um mæta konu er vel skipaði sinn sess í lífinu. Ég sé Áslaugu Valdemarsdóttur fyrir mér glæsilega á velli, háa og beinvaxna og samsvaraði sér vel; með fallegt dökkt hár og skipti vel litum í andliti. Hún klæddist jafnan vel, hafði prútt fas, var viðræðugóð og í jafnvægi. Á ævi hennar líkt og flestra skiptust á skin og skúrir en mín tilfinning er sú að gegnum þykkt og þunnt hafi hún haldið reisn sinni og með því gefið þeim sem á eftir koma verðugt eftirdæmi. Blessuð sé minning mætrar konu. Björg Einarsdóttir. Áslaug Valdemarsdóttir er látin eftir erfiða baráttu við óvæginn sjúk- dóm, sextíu og tveggja ára að aldri. Við Rannveig kynntumst Áslaugu fyrst fyrir þijátíu árum eftir að hún giftist Áskeli Einarssyni, fyrrv. mági mínum, en hann hafði þá nokkrum árum áður misst fyrri konu sína, Þórnýju Þorkelsdóttur. Þau Áslaug og Áskell bjuggu fyrstu búskaparár sín á Húsavík þar sem hann var bæjarstjóri um árabil og síðar forstöðumaður sjúkrahúss- ins. En er hann var orðinn fram- kvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga fluttust þau til Akur- eyrar og settu saman bú þar að Höfðahlíð 9. Heimili þeirra var orðlagt fyrir rausn og myndarskap og nutum við Rannveig og börn okkar þar iðulega góðrar gistivináttu á ferðalögum nyrðra í hinum rómaða höfuðstað Norðurlands. Sömuleiðis voru þau hjón ætíð aufúsugestir hér syðra á heimili okkar Rannveigar. Við eigum margar góðar minningar frá þeim samverustundum. Meginþunginn af margþættum heimilisstörfum og uppeldi barna þeirra hjóna, Ólafíu og Einars, hvíldi á herðum húsmóðurinnar. Áslaugu fór það hlutverk svo vel úr hendi að það má segja að maður hennar hafi ekki þurft að dýfa hendi í kalt vatn á heimilinu meðan hennar naut við enda var hann jafnan önnum kafinn framkvæmdastjóri við um- fangsmikil störf fyrir Fjórðungssam- band Norðlendinga meðan það var og hét. Þannig var það einnig eftir að Áslaug fór að vinna úti, sem kallað er, og þannig vildi þessi rómaða húsmóðir hafa það á sínu heimili. Það var ekki laust við að ég öfund- aði Áskel stundum dálítið af því, er við vorum nyrðra, hversu billega, eins og stundum er sagt, hann slapp við heimilisstörfín. Áslaug var greind kona og vel verki farin, ötul bæði heima og heim- an. Síðustu árin sem hún lifði var hún ritari í Glerárskóla og undi þar vel hag sínum. Mér er kunnugt um það að hún var vinsæl og vel metin fyrir störf sín í þeim skóla. Sém fyrr segir var ekki í kot vís- að að koma til Áslaugar og Áskels á hið smekklega og hlýlega heimili þeirra að Höfðahlíð. Það sem ein- kenndi Áslaugu heitna öðru fremur, að mér fannst, var gestrisni, góðvild og hæverska í framkomu. Hún hafði einstakt lag á því að taka á móti gestum og gangandi og láta þá finna hve velkomnir þeir væru og ekki var farið í manngreinarálit. Húsmóður- hlutverkinu er lítið hampað nú á dögum og ekki veittar orður fyrir, ef svo væri hefði Áslaug heitin átt tilnefningu skilið. Fyrir nokkrum árum bar mig óvænt að garði þar nyrðra hjá þeim hjónum ásamt vini mínum úr Reykjavík, sem aðeins þekkti þau af afspurn. Móttökurnar sem við fengum hjá þeim Áslaugu og Áskeli urðu þessum vini mínum ógleyman- legar og hefur hann oft haft orð á því síðan af hve mikilli rausn hafi verið veitt á þessu heimili; hve ánægjulegt hafi verið að dvelja þar þessa kvöldstund og njóta ágætra veitinga húsmóðurinnar og dóttur hennar, Ólafíu, spjalla við þær og fjölfróðan húsbóndann og dóttur- dóttur hans Þórnýju frá Húsavík sem ber nafn systur minnar. Áslaugu og Áskeli varð tveggja barna auðið og þau eru nú bæði uppkomin. Ólafía dóttir þeirra er snyrtifræðingur og sonurinn Einar er nemandi í stjórnunarfræðum (gæðastjórnun) í Háskólanum á Akureyri og býr sig nú undir loka- próf þar. Þau sýndu móður sinni mikla umhyggju eftir að hún veikt- ist. Ólafía bar þó hita og þunga dagsins, ef svo má segja, og var móður sinni og föður mikil hjálpar- hella þegar hún tók við heimilisstörf- unum af Áslaugu sem var hvíldar þurfi í erfiðum veikindum. Og dætur Áskels af fyrra hjónabandi - Stein- unn sem heitir í höfuðið á Steinunni Símonardóttur langömmu okkar systkina og Ása Birna sem alin er upp af nöfnu sinni, Önnu Birnu syst- ur minni og Geir Sigurðssyni, manni hennar - þær hlupu undir bagga þegar á þurfti að halda. Það sama má segja um son Áslaugar, Valde- mar Guðjónsson, sem er togarasjó- maður og kvæntur maður á Akur- eyri. Hann á litla hnátu sem heitir Áslaug og var augasteinn ömmu sinnar. Síst af öllu grunaði mig fyrir réttu ári, er Áskell sendi mér ágæta af- mæliskveðju, að endadægur Áslaug- ar yrði svo fljótt. Einu sinni enn verður oss dauðlegum mönnum sú vanmáttuga spurn á vörum hví for- sjónin hrífí svo skyndilega brott mæta konu, rétt rúmlega sextuga, frá. ástvinum og ættingjum. Fátt verður um svör. Vegir al- mættisins eru órannsakanlegir og þar við situr. Áskell, mágur minn, á nú um sárt að binda. Hann hefur misst tvær eiginkonur á lífsleiðinni. Þær eru báðar horfnar af sjónarsviðinu og hlutu svipuð örlög. Hann situr einn eftir ásamt börnum sínum tveim i Höfðahlíðinni. Líf hans hefur nú annan lit en áður og söknuðurinn er sár. En það er huggun harmi gegn að ljúfar minningar um látinn ástvin lifa og lýsa upp ævikvöldið. Við Rannveig og börn okkar kveðjum Áslaugu Valdemarsdóttur, þökkum samfylgdina og sendum Áskeli og börnum þeirra kærar kveðjur. Ingólfur A. Þorkelsson. • Fleiri minningargreinar um Áslmigu Valdemarsdóttur bíða birtingar ogmunu birtast í blað- inu næstu daga. KRISTMUNDUR ANTON (TONI) JÓNASSSON Kristmundur Anton Jónasson fæddist 21. desem- ber 1929 í Reykja- vik. Hann lést í Reykjavík 3. febrúar síðastliðinn. Anton var sonur hjónanna Jónasar Jóhanns Kristmundssonar og Maríu Magnúsdótt- ur. Systkini Antons voru Magnús Ingvar, f. 7.2.1934, og Sóley, f. 5.10. 1935, d. 8.8. 1974. Kristmundur var kvæntur Helgu Svölu Nielsen, þau skildu, seinni kona hans var Kristín Símonía Ottósdóttir, þau sjkildu. Kristin átti fyrir soninn Ásmund B. Þórðarson og dótt- urina Guðrúnu Benediktsdóttur sem urðu stjúpböm Antons. Böra Antons: Örlygur, f. 19.5. 1947, Jónas, f. 17.7. 1950, Ómar, f. 15.8. 1953, Anton, f. 1.11. 1975, Stein- berg, f. 2.2. 1977, Hreiðar Hálfdán, f. 9.9. 1981, Edda, f. 24.4. 1963. Anton hóf störf sem framreiðslu- maður 14 ára, starf- aði fyrst á Hótel Borg 1944 hjá Han- sen, síðar í Tjarnar- kaffi 1947-51. Anton nam til framleiðslu- manns í Tjarnar- kaffi, starfaði síðar í Lidó, á Hótel Sögu og á Hótel Holti, var yfirþjónn á Hótel Loftleiðum og rak Nýgrill hf. í Breiðholti en vann síðastliðin 12 ár i mötu- neyti hjá verktakafyrirtækinu Völur hf. Útför Antons fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. • Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) María Antonia og Anita Sonja. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN S. BERGMANN, Suðurgötu 10, Keflavfk, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 13. febrúar kl. 14.00. Halldóra Árnadóttir, Hörður Bergmann, Dórothea Einarsdóttir, Árni Bergmann, Lena Bergmann, Stefán Bergmann, Helga Hrönn Þórhallsdóttir, Jóhann J. Bergmann, barnabörn og barnabarnabörn. MÉR BRÁ þegar mamma hringdi í mig og sagði að afí minn væri dá- inn. Eg vildi ekki trúa því og fór að gráta, svo spurði ég mömmu strax um pabba því afi var honum allt. Pabba leið náttúrlega ekki vel eins og okkur hinum. Pabbi og afi voru miklir vinir. Pabbi og mamma stóðu sig eins og hetjur í að hjálpa afa í gegnum veikindi sín. Afi var góður maður og alltaf hress og skemmtilegur. Hann var vinur vina sinna, ég man þegar hann kom til pabba ein jólin, það voru fyrstu jólin dóttur minnar. Þá sagði hann: „Þessi stelpa er greinilega í ættinni því það er svo sterkur svipur á stelpunni." Ég gat þá a.m.k. gefíð honum eitt langafabarn, honum afa mínum sem mér þótti svo vænt um. Ég veit að afa líður vel núna, þann- ig að við dóttir mín ætlum að kveðja þig, afi, með fallegum sálmi. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför RÍKHARÐS ÓTTARS ÞÓRARINSSONAR, frabakka 18, Reykjavik. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjör- gæsludeildar Landspítalans. Kristín Br. Kristmundsdóttir, Kristín Bjarney Ólafsdóttir, Kristmundur Breiðfjörð Bjarnason, Kristmundur Br. Rikharðsson, Erna Sylvía Árnadóttir, Kristín Ósk Ríkharðsdóttir, Gunnar Þór Högnason, María Erla Ríkharðsdóttir og barnabörn. Lokað Aðalskrifstofa félagsmálaráðuneytisins í Hafnar- húsinu verður lokuð frá kl. 12.30 mánudaginn 12. febrúar 1996 vegna jarðarfarar GÍSLA AGÚSTS GUNNLAUGSSONAR, sagnfræðings. Félagsmálaráðuneytið, 9.febrúar 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.