Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 4/2-10/2 mgmSESk ► GUÐRÚN Pétursdóttir, háskólakennari og for- stöðumaður Sjávarútvegs- stofnunar Háskóla íslands, tilkynnti um síðustu helgi þá ákvörðun sína að bjóða sig fram til embættis for- seta ísiands í kosningunum í júní. ► SAUTJÁN ára piltur, Torfi Leósson, sigraði á Skákmóti Reykjavíkur. Torfi hlaut 9'A vinning af 11 mögulegum og var þetta fyrsti sigur hans á skák- móti. ► ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja niður embætti húsameistara ríkisins frá og með næstu áramótum. Sextán manna starfslið stofnunarinnar lýkur þá störfum, en hluti þeirra starfsemi, sem húsameist- ari hefur haft með höndum, verður framvegis unninn af þremur mönnum í forsætis- ráðuneytinu. ► LITHÁÍSKT skip sigldi á Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjum á mánu- dagskvöld og skemmdist þilið á um 10 metra kafla. Skarðið, sem myndaðist, náði 3-4 metra inn á bryggju og rifan náði 7 metra niður. Talið er að viðgerð kosti 5-10 milljónir króna. ► TVÆR ýtur, sem notað- ar hafa verið til að ryðja mold upp að hól í Leirdal í Kópavogi, hafa þráfaldlega bilað þegar þær nálgast hólinn. Kenna menn álfum um bilanirnar. Sex bjargað af Kofra SEX skipveijum af rækjuskipinu Kofra ÍS 41 frá Súðavík var á sunnudag bjargað um borð í skuttogarann Bessa, eftir að eldur kom upp í Kofra. Eldur- inn kom upp í vélarrúmi skipsins og fengu skipveijar ekki við neitt ráðið. Þegar þeir voru að fara frá borði varð mikil eldsprenging í skipinu og varð yfírbygging þess alelda á skammri stundu. Bessi dró Kofra til hafnar, en skipið er talið ónýtt. 10% skattur á fjár- magnstekjur NEFND um skattlagningu fjármagns- tekna mun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, leggja til að 10% skattur verði lagður á allar fjármagns- tekjur einstaklinga frá og með L jan- úar 1997, þ.e. vexti, verðbætur, afföll, gengishagnað, tekjur af hlutdeildar- skírteinum, tekjur af arði, feigu íbúðar- húsnæðis og söluhagnað. Áætlað er að skatturinn skili ríkissjóði um 500 millj- ónum árlega fyrst um sinn, en fari síð- an smám saman hækkandi, m.a. vegna bindingar vaxta. Breytt uppgjör ríkissjóðs í FRUMVARPI, sem íjármálaráðherra hefur lagt fram á þingi, er gert ráð fyrir að reikningsskil ríkisins og fjárlög verði sem mest færð til þess horfs sem er í fyrirtækjum landsins. M.a. verður gerður rekstrar- og efnahagsreikningur fyrir ríkissjóð og stofnanir hans og yfír- lit um sjóðstreymi. Fjármálaráðherra segir, að verði frumvarpið að lögum færi það íslendinga í fremstu röð þjóða hvað varði uppsetningu fjárlaga og rík- isreiknings og framkvæmd á fjármálum ríkisins. • • Oflug sprengja í London RÚMLEGA hundrað manns slösuðust þegar öflug sprengja sprakk í Isle of Dogs hverfínu í austurhluta London á föstudagskvöld. Talið var víst að írski lýðveldisherinn (IRA) hefði verið að verki og fullyrt að þar með hefðu liðs- menn hans bundið enda á vopnahléð, sem verið hefur í gildi. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjómmálaarms IRA, sagði að hleypa þyrfti auknum krafti í friðarumleitanir. John Major, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi verknaðinn, en af orðum hans þótti mega ráða að breska stjómin teldi að fámennur klofningshópur IRA væri að baki tilræðinu og því væri ekki öll von úti um friðarumleitanir á Norður- írlandi. 189 farast í flugslysi 189 manns létu lífið þegar farþegaþota af gerðinni Boeing 757 fórst skömmu eftir flugtak frá Puerto Plata í Dómin- íkanska lýðveldinu aðfaranótt miðviku- dags. Vélin var á leið til Þýskalands og þar í landi hefur hafíst mikil um- ræða um það hvort minni gaumur sé gefínn að öryggi í leiguflugi en áætlun- arflugi. Frásögnum um tildrög slyssins bar ekki saman. Flugmálastjóri Dómin- íkanska lýðveldisins sagði að tilkynnt hefði verið um bilun, en majór, sem tók þátt í rannsókn slyssins, sagði að flug- menn þotunnar hefðu engar vísbend- ingar gefíð um erfiðleika um borð. Talið var að vélin hefði farist vegna bilunar eða mannlegra mistaka. BOSNÍU-Serbar til- kynntu á fimmtudag að þeir væru hættir öllum sam- skiptum við fulltrúa NATO- herliðsins í Bosníu vegna handtöku tveggja serb- neskra foringja, sem Bos- níustjórn ætlar að sækja til saka fyrir stríðsglæpi. Ótt- ast er að þetta mál geti grafið undan friðarsamn- ingunum um Bosniu. ► EKKERT dregur úr spennu milli Tævan og Kína. Greint var frá því að Kínverjar hygðust hefja 400 þúsund manna heræfingar, sem ættu að standa i mán- uð, skammt frá Tævan. Bandaríkjastjórn skoraði á stjómvöld í Kína og Tævan að sýna stillingu. Þ- FÆREYINGAR hafa ákveðið að hverfa frá kvóta- kerfi við fiskveiðar og taka í staðinn upp sóknarstýr- ingpi, sem byggð verður á ákveðnum fjölda veiðidaga og friðun veiðisvæða. Landsstjórnin hefur ekki tekið formlega afstöðu og gera þarf breytingar á lög- um, en ekki er talið að það standi í vegi fyrir fram- kvæmdinni. ► MIKLIR kuldar voru beggja vegna Atlantsála í síðustu viku. í Bandaríkjun- um náði frostið alla leið suður til Flórída og á norð- vesturströndinni kom til mikilla flóða þegar hlánaði. I Oregon-ríki var óskað eft- ir neyðaraðstoð vegna mestu flóða í þijá mánuði. ► STJÓRNVÓLD í Mar- okkó og á Spáni hafa sam- þykkt áætlun um að tengja Evrópu og Afríku með tveimur 27 km löngum göngum fyrir járnbrautar- lestir undir Njörvasund. Ráðgert er að hefja fram- kvæmdirnar á næsta ári. FRÉTTIR Ríkisstjórnin fjallar um neyðaraðstoð íslendinga Langtímaaðstoð í Bosníu verði verkleg RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að framlag íslendinga til uppbyggingar í Bosníu Hersegóvínu verði fjárstyrk- ur vegna neyðarástands og verkleg aðstoð í tengslum við endurreisnará- ætlun á árunum 1996 til 1999. Fjög- urra manna nefnd undir forsæti Hilmars Þórs Hilmarssonar, hefur verið falið að móta hugmyndir um hvernig best verði staðið að verklegu aðstoðinni. íslendingar hafa veitt tæpum 100 milljónum til uppbygg- ingar.í Palestínu. Jón Egilsson, skrif- stofustjóri alþjóðaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins, telur að aðstoðin við langtímauppbyggingu í Bosníu Her- segóvínu verði tæpast minni. Jón sagði að ríkisstjómin hefði fjallað um framlag íslendinga til uppbyggingarinnar á fundi sínum á föstudagsmorgun. „íslendingar gáfu vilyrði fyrir því að fé yrði veitt til bráðaaðstoðar á alþjóðlegum fundi í Brússel í desember. Ríkisstjómin hefur gert tillögu um hvað upphæðin verður há og er gert ráð fyrir að styrkurinn verði sendur út fyrir vor- ið,“ sagði Jón. Hann sagði að tillagan yrði ekki kynnt fyrr en áðumefnd nefnd um framlag íslendinga til uppbyggingar- innar hefði fjallað um hana. Aðal- verkefni nefndarinnar er að skipu- leggja framkvæmd framlags íslend- inga fyrir framlagsráðstefnu í mars. „Ríkisstjómin hefur ákveðið að um verklega aðstoð verði að ræða. Nefndin ákveður svo á hvaða sviðum boðin verður fram aðstoð. En hún gæti t.a.m. falist í því að íslendingar færu út með tæki og tól til að vinna að lagningu vega, brúarsmíði, bygg- ingu skóla eða verkefnum í tengslum við orku eða fjarskipti. Hér yrði um sýnilega viðvera og vinnu við skil- greind verkefni að ræða,“ sagði Jón. Hann sagði að væntanlega yrði leitað tii verktaka um framkvæmdimar og ekki væri enn hægt að segja til um umfang verksins. íslendingar verði í alþjóðlegxi lögregluliði Á ríkisstjómarfundinum var því til viðbótar fjaliað um möguleikann á því að íslendingar tæku þátt í alþjóð- legu starfí á öðrum sviðum. „Ég get nefnt að til greina komi að íslending- ar sendi mannafla til að vera með í nýstofnuðu alþjóðlegu lögregluliði, til að vinna skrifstofustörf í tengslum við uppbygginguna eða undirbúa kosningar," sagði Jón. Hann sagði að jafnframt hefði verið staðfest að áfram yrði læknalið í fyrrum Jú- góslvaíu eins og verið hefði. Jón sagði að þrátt fyrir að tekist hefði að koma á friði í fyrram Júgóslv- íu yæri ástandið í landinu mjög erf- itt. Hann nefndi í því sambandi að 2 milljónir manna væru á flótta, 200.000 hefðu særst og 250.000 lát- ist. Einn þriðji allrar heilbrigðisþjón- ustu er í lamasessi og helmingur skólastarfs. Meðaltekur hafa lækkað um tvo þriðju á fímm ára tímabili og níu af hveijum tíu hafa treyst á mann- úðaraðstoð frá alþjóðlegum stofnun- um á síðustu misseram. Jón sagði að þegar hefði verið haf- ist handa við neyðaraðstoð og mikil aðstoð væri í boði. Því væri mikið verk fyrir höndum hjá Karl Bildt, yfírmanni uppbyggingarstarfsins, að skipuleggja hana í samvinnu við heimamenn. Á ríkisstjómarfundinum var samþykkt að beiðnir frá alþjóða- stofnunum um tölulegar upplýsingar frá íslenskum stofnunum færa í gegn- um Hagstofnuna til að tryggt væri að Islands væri geti í alþjóðlegum skýrslum. Hátíð Sam- vinnuferða OPIÐ hús er á skrifstofum Sam- vinnuferða-Landsýnar og hjá umboðsmönnum um allt land í dag, sunnudag, í tilefni af út- komu ferðabæklings ferðaskrif- stofunnar. Ferðaskrifstofan heldur hátíð í miðborg Reykjavíkur í dag. Listamenn skemmta og veiting- ar verða á tilboðsverði. Morgunblaðiö/Ásdis Tjaldanesheimilið eignast bifreið TJALDANESHEIMILIÐ, sem er heimili fyrir fatlaða og þroska- hefta, átti á síðastliðnu ári 30 ára afmæli. Af því tilefni gaf For- eldra- og styrktarfélag heimilisins vönduð húsgöng i borðstofu og setustofu aðalhúss. Þá þegar fór stjórn FST að huga að kaupum á bifreið fyrir vistmenn heimilisins en hana hef- ur lengi vantað. I nóvember 1995 festi stjórnin kaup á 12 manna bifreið af gerð- inni Ford Econoline. Hingað kom hún um miðjan janúar og var þá hafist handa með að koma fyrir búnaði fyrir hjólastóla, síma o.fi. Hjólbarðar fyrir vetrar- og sumar- akstur voru látnir fylgja ásamt ýmsu fieira. Margir stuðnings- menn komu hér við sögu og voru þessir helstir: Lionsklúbburinn Þór Reylqavík, Brimborg hf., ís- lenskir aðalverktakar sf., Eim- skipafélag íslands, Dekkjahúsið og nokkrir einstaklingar. í frétt frá FST þakkar stjórnin öllum þessum fyrirtækjum og einstakl- ingum fyrir ómetanlega hjálp. Bifreiðin afheiit Á hátíðarfundi að Tjaldanesi í gær, laugardaginn 10. febrúar, var bifreiðin afhent vistmönnum heimilisins af formanni stjórnar FST, Láru Halldórsdóttur. Við gjöfinni tók Þór G. Þórarinsson, framkvæmdastjóri skrifstofu mál- efna fatlaðra á Reykjanesi, sem heimilið heyrir undir. Hann af- henti síðan nýráðnum forstöðu- manni, Gyðu Vigfúsdóttur, bif- reiðina til umsjár og notkunar fyrir vistmennina eftir þeim regl- um sem gefendur höfðu ákveðið. Stjórn FST er nú þannig skip- uð: Lára Hansdóttir formaður, Páll Marteinsson gjaldkeri, Þóra Kjartanz ritari, Hanne Hintze og Sigrún Theodórsdóttir. Varamenn eru: Ellen Ólafsdóttir og Þor- steinn Sigurðsson, en hann hefur verið stjórnarformaður mörg und- anfarin ár. Ungmenni handtekin á Akureyri Amfetamín og E-töflur RANNSÓKNARLÖGREGLAN á Ak- ureyri fór á föstudag fram á viku gæsluvarðhald yfír þremur ung- mennum, sem grunuð era um fíkni- efnamisferli. Þau voru handtekin á fimmtudag og við húsleit fundust 12 grömm af amfetarníni, 20 grömm af hassi og tæki og tól til neyslu fíkni- efna. Síðar á fimmtudag var fjórði aðili málsins handtekinn. Um kvöldið var einum sleppt, en hinum þremur haldið eftir vegna rannsóknar máls- ins, enda talið að auðgunarbrot tengdust a.m.k, einum þeirra. Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi hjá rannsóknarlögreglunni, segir að þar sem málið hafí ekki verið talið að fullu upplýst um miðjan dag á föstudag, hafi verið farið fram á gæsluvarðhald í eina viku yfír ung- mennunum þremur. Um svipað leyti var svo fimmti aðili máisins handtek- inn. Sá situr inni og er málið enn i rannsókn. Auk þess sem hald var lagt á áðurnefnd fíkniefni fékkst við yfirheyrslu lögreglunnar viðurkenn- mg á neyslu E-töflu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.