Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF ITL BLAÐSINS Dýraglens NO, I PON't WANT TO DONATE TO YOUR THR.ONE.. Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Listamiðstöðin í Straumi Frá Kirsten Dolenko: Á ÓSKÖP venjulegum sunnudegi má vænta þess, að fjölmargt fólk leggi leið sína eftir gömlu heimreið- inni að Straumsbýlinu við Reykja- nesbraut. Þetta fólk er gjarnan í þeim erindagjörðum, að fá sér heilsubótargöngu um stórbrotið hraunið, sem hér um slóðir setur sitt mark á allt landslagið. Það dylst engum, að þessi staður geymir mikla og merkilega sögu, sem ekki síst markast af fjölmörgum rústum gamalla steinbæja, sem dreifast meðfram allri ströndinni. Hjón frá Hafnarfirði sem ég hitti, þar sem ég þolinmóð beið eftir því að sólin sendi skin sitt á beinagrind af gömlum báti í fjöruborðinu, höfðu komið með barnabam sitt í leit að heimili gamals bátasmiðs, sem þau höfðu kynnst fyrir mörgum árum. Nú var ekki lengur hægt að sjá nein ummerki um hvar hús hans hafði staðið, ég gat þó séð af blik- inu í augum litla drengsins, að saga gamla bátasmiðsins myndi varðveit- ast, að minnsta kosti eina kynslóð enn. Innblásturinn virðist alltaf hafa loðað við Straum, eins og sagan um litla drenginn o g gamla bátasmiðinn ber Ijóst vitni. Hugsanlega var það einmitt þetta sérkennilega og hvetjandi andrúms- loft, sem varð þess valdandi að Sverrir Ólafsson hóf einn sins liðs hið mikla verk að endurbyggja bæj- arhúsin í Straumi í þeim tilgangi að þar gætu listamenn unnið í fram- tíðinni. Mér þykir ekki ósennilegt að ætla, að hann hafi einmitt fund- ið þessa undarlegu strauma í loftinu hér. En hvernig sem þeSsum hlutum er nú varið heldur Straumur áfram að vaxa og dafna. Straumur hóf starfsemina í mikilli hógværð, með aðeins eina gestavinnustofu. í dag eru vinnustofurnar fimm talsins ásamt íbúðum fyrir jafnmarga lista- menn. Þessi starfsemi ber skýrt vitni hinni mögnuðu hefð íslensku þjóðar- innar fyrir sköpunarkrafti og aðlög- unarhæfni. Síðan 1988 hafa hvorki fleiri né færri en 455 Iistamenn frá 18 þjóð- löndum haft lengri eða skemmri dvöl í Straumi og notið þar í ríkum mæli góðs af dugnaði og atorku Sverris Ólafssonar og óviðjafnan- legrar gestrisni Hafnfirðinga. Það er ekki síst vegna skilnings bæj- arbúa í Hafnarfirði, að Straumur getur hér eftir sem hingað til boðið listamönnum allra þjóða frábæra vinnuaðstöðu og ekki síður eftir- sóknarvert og hvetjandi andrúms- loft til sköpunar. Þá hefur íslenska ríkið einnig stutt við bakið á starf- seminni og er það vel. Kvikmynda- gerðamenn, tónlistarmenn, málarar, myndhöggvarar, arkitektar, ljós- myndarar, rithöfundar o.fl. o.fl. úr hinum ýmsu heimshornum njóta aðstöðunnar í Straumi árið um kring. Þar geta þeir óáreittir ein- beitt sér óskiptir að kreíjandi verk- efnum. Sem dæmi um samsetningu listamanna í Straumi má nefna að haustið og veturinn 1995-96 eru við störf Edda Jónsdóttir myndlist- armaður og Kogga keramiklista- maður frá Islandi, Noriko Owada myndlistarmaður frá Japan, Þórir Barðdal myndhöggvari frá Islandi, Ian Hobson málari frá Kanada, Chikako Takagi myndleturskrifari frá Japan, Róbert Árni málari frá íslandi og ég, Kristen Dolenko kvik- myndagerðarmaður, ljósmyndari og rithöfundur frá Kanada. Svo sem sjá má á bókunaryfirliti forstöðu- mannsins, Sverris Ólafssonar, er fullbókað í allar vinnustofur Straums til ársloka 1997. Þetta hljóta að teljast góðar fréttir fyrir alla, sem láta sig menningu og list- ir einhverju varða, og ekki síður fyrir aðra listamenn en okkur, sem höfum nú þegar fengið að njóta verunnar í Straumi á jafn jákvæðan og uppbyggjandi hátt og raun ber vitni, því að þeirra bíður ævintýri, sem seint verður til jafnað. Muse, gyðja lærdóms og lista, lifir góðu lífi í Straumi. Fyrir hönd okkar, sem höfum fengið að njóta verunnar hér og treystum á framtíð Straums, vil ég af öllu hjarta þakka bæjaryfivöld- um í Hafnarfirði, forstöðumannin- um Sverri Ólafssyni og bæjarbúum öllum fýrir að gera þetta allt mögu- legt. Slík rausn er ekki sjálfgefin. KIRSTEN DOLENKO, kvikmyndagerðarmaður, ljósmyndari og rithöfundur í Kanada. Um veðurfarshorfur HITINN á Jan Mayen í ágúst-jan- úar bendir til þess að hafís verði lítill við landið á nýbytjuðu ári. Árið 1995 var hafísinn óverulegur eins og hitinn á Jan Mayen hafði boðað. Veturinn 1994-1995 var hins vegar kaldur hér á landi og því mátti eiga von á kali í túnum og rýrum heyskap. Sú varð líka raunin á, enda var sumarið einnig kalt. I maíbyijun í vor á svo að vera hægt að segja til um heyskaparhorfur í sumar. Síðustu 15 ár hafa verið langtum mildari á jörðinni en nokkurt jafn langt tímabil síðan víðtækar hita- mælingar hófust, og þar af var árið 1995 það hlýjasta. Þetta er í góðu samræmi við stöðuga aukningu koltvísýrings í andrúmsloftinu. En óháð hitabreytingum af þeim völd- um verða iðulega miklar hitasveiflur í hafi og lofti norðaustur af íslandi. Þær koma einna best fram í mæling- um á Spitzbergen og berast þaðan hingað til lands á fáum árum með hafstraumum. Þar hefur undanfarin ár verið nærri eins milt og var á hlýindaskeiðinu 1931-1960. Því ætti að mega vænta þess að veður- far verði hér að jafnaði fremur hlýtt til lands og sjávar næstu ár og hag- stætt landbúnaði og fiskveiðum, en eins og kunnugt er hefur verið milt og góður fiskafli í Barentshafi um nokkur misseri. PÁLL BERGÞÓRSSON, veðurfræðingur. Konungur? Nei, þú Sagði afi þinn að hann væri Kannski verður þú verður aldrei konungur. konungur? Jæja, kannski konungur. hafðirðu rétt fyrir þér. Nei, mig langar ekki til að Ieggja fram fé til konungsríkisins þíns. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta,: ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.