Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 15
-þí
saga!
in
Arthagasalurinn á Hótel Sögu hefur verið færður í nýjan búning þar sem
áherslan er lögð á bjart umhverfi og léttleika í innréttingum. Hótel Saga stóð
fyrir samkeppni um nafn á salinn og bárust yfir 2000 tillögur. Fyrir valinu
varð nafnið Sunnusalur og er höfundur þess Jenný Magnúsdóttir.
Um leið og við óskum vinningshafanum
til hamingju viljum við færa öllum sem tóku þátt í samkeppninni bestu þakkir.
Sunnusalur er fullbúinn veislusalur sem tekur allt að 180 manns í sæti og hentar vel fyrir
árshátíðir, brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, útskriftarafmæli og önnur samkvæmi. Fullkomið
ljósa- og hljóðkerfi gerir hann einnig að afar góðum kosti fyrir morgun- og hádegisverða-
fundi. A Hótel Sögu býr starfsfólkið yfir mikilli reynslu og fagþekkingu og aðstoðar eftir
þörfum við undirbúning og skipulagningu á veislum auk þess sem það sér um að
útvega skemmtikrafta, tónlistarfólk og annað sem þarf í samkvæmið, sé þess óskað.
Hafið samband, þegar vanda á til veislunnar veitum við úrvals þjónustu á sanngjömu verði.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk í söludeild Hótel Sögu í síma 552 9900
Glœsilegur veislusalur
lítur dagsins Ijós: