Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ og fjölskyldu hans í fortíð og nútíð. Það var gott að eiga hann að vini, þegar við vorum að sparka tuðr- unni á Svínatúninu forðum daga undir merkjum hverfaliðsins okkar, Fálkans. Og þótt Gísli hafi verið fádæma afkastamikill í störfum sín- um sem sagnfræðingur þá kom hann ekki í verk þeim áformum sínum að skrifa sögu Fálkans. Sú saga verður því sennilega aldrei sett á blað, þegar Gísla nýtur ekki lengur við. En kannski þarf þá sögu ekki að skrifa - hún er síung og fersk í endurminningu þeirra sem hlut áttu að máli. Eins og raunar minningamar mörgu og ljúfu um góðan dreng - Gísla Ágúst Gurin- laugsson. k Þótt Gísli sinnti fræðigrein sinni af miklum krafti allt fram á síðasta dag, lét hann sig ekki muna um það, að taka virkan þátt í ýmsum félagsmálum. Ég minnist með mik- illi hlýju og stolti formennsku hans í skólanefndinni í Hafnarfírði 1990- 1994, en þar leiddi hann fyrir hönd okkar alþýðuflokksmanna stórkost- lega uppbyggingu skólamála í sín- um heimabæ. Þekking og metnaður Gísla í þessum málaflokki skilaði sér með markvissum hætti og ár- angurinn varð einfaldlega stórbætt aðstaða fyrir nemendur og starfs- fólk í hafnfirsku skólakerfi - betri skólar. Hafnfirðingar munu njóta þessara starfa Gísla um ókomna tíð. Ennfremur lét Gísli sig mjög varða málefni íþróttahreyfingarinn- ar og þá einkanlega síns félags, FH, og lagði þar drjúga hönd að verki. Ég sakna vinar í stað. Það gera aðrir þeir íjölmörgu sem áttu þess kost að kynnast Gísla í leik og starfi. En sárust er vissulega sorgin hjá hans nánustu. Innilegustu sam- úðarkveðjur þeim til handa; til for- eldra, Sigrúnar og Gunnlaugs og tengdaforeldrá, Sæunnar og Ás- geirs. Og til Berglindar og bam- anna ungu, Ásgeirs, Sigrúnar og Sæunnar. Guð gefí dánum ró og þeim líkn sem lifa. Hann blessi minningu Gísla Ágústs Gunnlaugssonar. Guðmundur Árni Stefánsson. Haft er á orði í Svíþjóð að Upp- salir sé borg hinnar eilífu æsku. Þar breytist lítið samsetning aldurs- hópa því þangað koma til náms og rannsókna nýútskrifaðir stúdentar til að feta sig áfram á þroskabraut- inni og síðan sökkva sér í fræðin í leit að því óþekkta til að víkka sjón- deildarhringinn. Ég vann að rannsóknarverkefni við Sagnfræðistofnun Uppsalahá- skóla og sat í stjórn hennar þegar Gísli Agúst cand.mag. athugaði möguleika á að ljúka þar lokastigi háskólamenntunar, doktorsprófi. Þetta voru mér gleðifréttir og ég sannfærður um að stofnuninni bættist góður liðskraftur og síðast en ekki síst kæmi hér að reyndur fræðimaður sem yki þekkinguna á íslenskri félagssögu í samstarfs- verkefnum sagnfræðivísinda. Gísla Ágústi reyndist auðsótt að taka til starfa og hleypti hann strax nýju lífi í allt sem hann kom að. Hann var ávallt vel undirbúinn og sýndu örlátar ábendingar hans hve vel hann var að sér í síðustu rannsókn- um hvort heldur var frá Bretlandi, Þýskalandi eða Ameríku. Gísli Ág- úst var alþjóðlegur fræðimaður og lagði mikið upp úr því að gera heimi erlendra fræðimanna grein fyrir staðháttum og þjóðfélagsþróun á íslandi. Þar hafði hann margt fram að færa og umræðan komst á hærra stig við að taka einnig tillit til ís- lands. Sem fræðimaður skilur Gísli Ágúst eftir sig varanlegan skerf í þágu vísindana. I Uppsölum eignaðist ég traustan vin þar sem Gísli Ágúst var. Við hjónin fögnuðum þessum glaða au- fúsugesti. Hans jafnaðargeð var óbrigðult og því gott að deila með honum stundum. Við hjónin nutum gestrisni hans og Berglindar Ás- geirsdóttur meðan þau bjuggu í Stokkhólmi. Þar var alltaf tekið rausnarlega á móti okkur og tíminn virtist eilífur. Samt var sífellt verið að lesa greinar og skrifa nýjar sem birtust innan tíðar í virtum tímarit- um. Gísli Ágúst var afkastamikill fræðimaður. Félagslyndi hans var einstakt og hann hvetjandi til sam- fagnaðar. Það var mér heiður að gegna hlutverki veislustjóra þegar Gísli Ágúst lauk doktorsprófi árið 1988. Hann hafði komist glæsilega á leið- arenda en fleiri áfangar voru fram- undan, nýir landvinningar biðu og Gísli Ágúst var óþreyjufullur að fá að takast á við ný verkefni. Tilfinn- ingin fyrir tímanum í borg hinnar eilífu æsku var sælustund. í öllu æðruleysi reyndi Gísli að láta andann sigra efnið í þeim veik- indum sem gerðu vart við sig. Hann hélt sínu striki í rannsóknum og kennslu og gerði sem minnst úr þeim sjúkdómi sem af mikilli óbil- gimi lét aldrei staðar numið. Gísli lét mann trúa að framtíðin væri óendanleg. Við kveðjum góðan vin rík af björtum minningum um ánægjulega samfylgd. Við hjónin færum Berglindi og börnum þeirra þremur, Ásgeiri, Sig- rúnu Ingibjörgu og Sæunni og öðr- um ástvinum innilegustu samúðar- kveðjur. Stefán F. Hjartarson. Gleði, heitir lífsins ljúfa leynipður, mjúk og sterk. Hún er máttarhjól er hreyfir heimsins mikla siprverk. (M. Joch/Schiller.) Einhvern veginn er það svo, að manni er ekki alltaf ljóst hvað það er í fari þeirra sem maður metur mest sem bregður birtu á umhverfi þeirra og þá sjálfa. Ekki fyrr en litið er um öxl. Þegar mér barst sú fregn að æskuvinur minn, Gísli Gunnlaugsson, væri látinn, var eins og blærinn af návist hans bærist til mín og minningarnar streymdu fram. Ég undraðist dálítið að mér skyldi ekki vera hugstæðast hvað hann var framúrskarandi vel gefinn og mikill fræðari; hvað honum lét sér- lega vel að miðla þekkingu til ann- arra. Ekki heldur hvað hann var góður vinur og mikill fjölskyldu- maður, hetja í erfiðum veikindum, vinnusamur og vitur. Þó var hann þetta allt, og meira til. En það var ekkert af þessu sem var ríkast í minningunni, heldur gleðin sem hann bar með sér. Frá fyrstu kynn- um okkar til síðustu funda er það þessi græskulausa gleði sem varpar ljóma á öll samskipti við hann. Ekki hávær kátína, heldur smitandi gleði yfir litbrigðum lífsins og óþrjótandi viðfangsefnum þess. Sú hugsun er áleitin, að þessi gleði hafi verið sú lífsins leynifjöður, sem gerði líf hans í erfiðum veikindum að sigurverki í augum allra sem álengdar stóðu. Við kynntumst á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd þegar ég var tíu ára gömul. Við vorum þijú á svip- uðu reki, Friðrik Garðarsson, Gísli og ég. Sumar eftir sumar, sem í minningunni eru einn samfelldur sólardagur, nutum við ævintýra sveitalífsins, áttum sameiginlegan afa, Erlend á Kálfatjörn, sem þó var ekki raunverulegur afi neins okkar og brölluðum ýmislegt sem okkur þætti ekki endilega til fyrir- myndar í dag. Frá fyrstu stund höfðum við Gísli einn vilja þegar kom að prakkarastrikum og hvers kyns uppátækjum og urðum vinir upp frá því. I nóvember síðastliðnum bar fundum okkar æskufélaganna sam- an, þegar Gunnar Erlendsson, bóndi á Kálfatjörn, var borinn til grafar. Að athöfn lokinni vorum við fýrr en varði niðursokkin í æskuminn- ingar. Við Friðrik vorum farin að ryðga í hinum ýmsu afrekum, ef til vill með vilja, en Gísli hafði engu gleymt. Hann leiddi okkur um ævin- týrastigu bemskuáranna og við skemmtum okkur öll konunglega, þótt ástæða þess að við vorum þarna saman væri ekki fagnaðar- efni. Við rifjuðum upp bátsferð sem farin var í óleyfi, keppni í heysátu- gerð, söguna um mannýga kálfinn, dýrlegar réttarferðir og sitthvað sem hvorki verður sagt frá né fært í letur. Þetta var sannkölluð sólskins- stund, en um leið blandin trega. Við endurlifðum lífsgleði æskuár- anna, þar sem Gísli var helsta upp- sprettan og gleðigjafinn. í kringum hann var alltaf gaman. Nú var hann merktur erfiðum veikindum, en þó var lífsfjörið á vissan hátt meira en hjá okkur hinum. Þrátt fyrir skerta tjáningargetu var það hann sem stýrði þessum umræðum og enn var hann í hlutverki gefand- ans. Enginn skemmti sér betur og hló innilegar en hann þennan nóv- emberdag. Þótt Gísli væri vel af guði gerð- ur, var skaparinn ekki síður örlátur á vaxtarskilyrði hæfileikanna. í for- eldrahúsum bjó hann við ástríki, hvatningu og stuðning sem aldrei brást. I þessari fjölskyldu er ein- stakt mannkostafólk. Á sínum tíma var mér nokkuð í mun _að Gísli kvæntist konu sem væri honum samboðin og gladdist mjög þegar ég mætti honum með Berglindi Ásgeirsdóttur upp á arminn. Berg- lind var skólasystir mín og svo óvenjulega skörp og hæfileikarík að ég hafði lengi verið sannfærð um að hún hlyti að ná langt. Það gekk eftir. Hitt gat ég ekki séð fyrir, að þrátt fyrir háa stöðu og verðskuldaða virðingu fyrir störf sín, myndi hún rísa hæst sem vinur mannsins síns, eiginkona og móðir. Á kveðjustund þakka ég af hjarta lærdómsríka og skemmtilega sam- fylgd og bið Gísla Gunnlaugssyni guðs blessunar. Ástvinum hans öllum votta ég einlæga og innilega samúð. Linda Rós Michaelsdóttir. + Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG GÍSLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Skeljagranda 2, Reykjavfk, lést á heimili sínu 5. febrúar. Jarðarför- in hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinn- ar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Krabbameinsfélags- ins. Jón Alexandersson, Auður Elísdóttir, Jóhann Amundason, Erna Elísdóttir, Hannes Elfsson, Elfsa Elfsdóttir, Elfn Jónsdóttir, Ágústa Jónsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Óskar Óskarsson, Þórhildur Hjaltadóttir, Pétur Hjaltason, Erlendur Halldórsson, Jóhannes Þ. Guðbjartsson, Magnús J. Harðarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, elskuleg JÚLÍA ÓSK GUÐNADÓTTIR, er látin. Jarðarför hennar hefur farið fram. Ástvinir Júlíu þakka læknum og hjúkrun- arfólki á Skjóli góða umönnun, samúð, hlýhug og virðingu henni sýnda. Helgi H. Sigurðsson, Edda Sigrún Ólafsdóttir, Sigurður Jónas Sigurðsson, Steinunn Árnadóttir, Jóhanna G. Sigurðardóttir, Gunnar J. Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTMUNDUR ANTON JÓNASSON (Toni) framreiðslumaður, Vesturgötu 73, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 12. febrúar kl. 15.00. Örlygur Antonsson, Jónas Antonsson, Ómar Antonsson, Edda Antonsdóttir, Anton Ingibjartur Antonsson, Steinberg Antonsson, Hreiðar Hálfdán Antonsson, Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, Guðjón Pálmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sonja Sigurðardóttir, Kristín Gfsladóttir, Eva Dóra Hrafnkelsdóttir, Amanda Sherell Antonsson, Jarðarför konu minnar, móður og stjúpmóður okkar, ÁSLAUGAR VALDEMARSDÓTTUR, Höfðahlíð 9, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju mánudag- inn 12. febrúar 1996 kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Áskell Einarsson, Valdemar Steinar Guðjónsson, Ólafía Áskelsdóttir, Einar Áskelsson, Guðrún Askelsdóttir, Steinunn Áskelsdóttir, Ása Birna Áskelsdóttir. Hetja er fallin í valinn. Gísli Ágúst Gunnlaugssson, samkennari minn og vinur, lést á heimili sínu aðfaranótt 3. febrúar síðastliðinn. Dauði hans kom í kjölfar lang- vinnra og erfíðra veikinda; ljóst var fyrir löngu að hveiju stefndi. Eigi að síður veldur andlátið sorg. Gísli Ágúst var í hlutastarfi hjá sagnfræðistofnun í nokkur ár að loknu cand. mag. prófi í sagnfræði 1979 og var samtímis stundakenn- ari við Háskóla íslands. Hann var við doktorsnám í Svíþjóð 1984-1988 og kom heim með doktorsgráðu 1988. Hann var stundakennari í sagnfræði 1988-1989, en lektor og síðar dósent, fyrst í tímabundinni og síðar fastri stöðu, frá 1989. Kennslan fórst honum sérstaklega vel úr hendi og hann sameinaði í henni ótvíræða fræðimannshæfni, fjölbreytt þekkingarsvið, góða frá- sagnarlist og mikla ljúfmennsku. Fáir kennarar við Háskóla íslands hafa verið jafn ástsælir með nem- endum og Gísli Ágúst Gunnlaugs- son. Breytti hér engu um að hann var metnaðargjarn og því kröfu- harður. En kröfuharðastur var hann ávallt við sjálfan sig á öllum sviðum. Þegar ég veiktist og þurfti að fara á sjúkrahús fyrirvaralaust vor- ið 1989 hringdi ég frá sjúkrahúsinu í Gísla Ágúst og bað hann að taka við kennslu minni það sem eftir lifði vormisserisins. Umyrðalaust varð hann strax við beiðni minni og lauk kennslunni í námskeiðinu með sóma fyrir sig, mig og nemendur okkar. Við samkennarar Gísla Ágústs vissum ekki í upphafi um þau veik- indi sem hann greindist með árið 1990. Hann bar ávallt harm sinn í hljóði. Smám saman komu í ljós hrörnunareinkenni sjúkdómsins miskunnarlausa. En eins og hetju sæmir barðist Gísli Ágúst hvern dag. Til hinstu stundar hélt hann skynseminni og dómgreindinni óbrenglaðri. En vöðvaaflið þvarr smám saman. Hann jók vinnu sína í fræðunum og í afköstum var hann síðustu árin orðinn hvað fremstur meðal sagnfræðinga. Duglegur var hann alltaf en aldrei eins og þá. Það var verkefni mitt sem skorar- formanns í sagnfræði við Háskóla Islands að skipuleggja kennslu næsta vetrar snemma á þessu ári. Fyrstur fastráðinna sagnfræði- kennara til að skila mér ítarlegri skýrslu um væntanlega kennslu var Gísli Ágúst Gunnlaugsson. Daginn fyrir andlát sitt, föstudaginn 2. febrúar, mætti hann til vinnu þótt fárveikur væri. Barist skyldi til hinstu stundar. í vinnu sinni á undanförnum árum naut Gísli Ágúst ómetanlegr- ar aðstoðar Ólafar Garðarsdóttur. Hún var allt í senn nemandi hans, aðstoðarmaður og samstarfsmaður við fræðirannsókir, hjúkrunarkona, vinur í daglegri baráttu og allra síðasta árið var hún túlkur hans. Einnig var náið samstarf með Gísla Ágústi og Lofti Guttormssyni, pró- fessor í sagnfræði, sem kom þeim báðum vel. Fjölskylda Gísla Ágústs stóð eins og klettur við hlið hans alla tíð og sú hlýja sem hann naut heima fyrir hjálpaði honum í baráttunni. Berg- lind Ásgeirsdóttir og börnin ykkar Gísla, Ásgeir, Sigrún Ingibjörg og Sæunn litla: 011 hafið þið gert mik- ið. Missir ykkar er stór. Þjóðskáldið Þorsteinn Erlingsson orti þessa vísu skömmu fyrir dauða sinn árið 1914: Nú opnar fángið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um bijóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þymar, síðari hluti.) Ævi Gísla Ágústs er okkur eftir- lifendum öllum góð áminning um það hve mikils virði lífið er. Hver dagur er sérstök gjöf sem okkur ber að varðveita. Gísli Gunnarsson. • Fleiri minningargrcinar um Gísla Ágvst Gunnlaugsson bíðn birtingar ogmunu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.