Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 11 Ljósmynd/NATO SOLANA kallar friðargæzluverkefni NATO í Bosníu „tilraunastofu fyrir framtíð bandalagsins." Hér ræðir hann við einn af forystumönnum stríðandi fylkinga á Balkanskaga, Franjo Tudjman, forseta Króatíu. Til vinstri er G. Joulwan hershöfð- ingi, yfirmaður Evrópuherafla NATO. „Mikilvægasta hug- myndin, sem hefur komið fram á sein- ustu mánuðum, er að öryggissamstarf Evrópuríkja eigi sér stað innan NATO, en ekki utan þess ... Eg tel að íslenzka )jóðin ætti að líta )á breytingu já- tvæðum augum.“ nauðsyn, þau ber að varðveita og láta einsk- is ófreistað til að þau séu sem virkust. í öðru lagi er aukið samstarf og ábyrgð Evrópuríkja í varnarmálum hugtak, sem var nefnt þegar í lokayfirlýsingu leiðtogafundar NATO 1994. Að mínu áliti hefur sú mikil- væga breyting átt sér stað á undanförnum mánuðum að með breyttri afstöðu Frakk- lands hefur skapazt samkomulag um að þessi þróun eigi sér ekki stað utan NATO, heldur eigi hún heima innan NATO. Þetta er rnikilvæg afleiðing af afstöðu Frakka. I þriðja lagi mun ríkjaráðstefna Evrópu- sambandsins auðvitað takast á við nauðsyn- legar umbætur á starfsemi sambandsins, í samræmi við þá reynslu, sem við höfum hlot- ið af Maastricht-sáttmálanum. Ég tel að rík- isstjórnir ESB-ríkjanna muni skoða mjög náið samstarfið í „annarri stoð“ bandalags- ins, utanríkis- og öryggismálasamstarfið, draga ályktanir af reynslu undanfarinna ára og breyta í samræmi við það.“ VES mun tengjast ESB æ nónar -ESB-ríkin virðast líta þessi mál mismun- andi augum. Sum, til dæmis Þýzkaland, viija samruna Evrópusambandsins og Vestur- Evrópusambandsins. Önnur, einkum Bret- land, vilja að VES haldi sjálfstæði sínu sem „Evrópustoð“ NATO. Hvernig sjáið þér framtíð Vestur-Evrópusambandsins fyrir yður? „Framtíð VES er auðvitað enn óráðin að svo stöddu. Hins vegar má segja að VES eins og það er í dag, hafi mikilvægu hlut- verki að gegna. VES hefur hafizt handa um eigin hernaðaraðgerðir. Það, sem mun senni- lega gerast, er að tengsl VES og Evrópusam- bandsins verði æ nánari, á sama tíma og hlutur Evrópu í Atlantshafsbandalaginu fer vaxandi. A þessari stundu er erfitt að spá fyrir um hvernig þetta ferli mun enda, en þetta er sú tilhneiging, sem er líklegust á næstu árum. Ég ítreka að mikilvægasta hugmyndin, sem hefur komið fram á seinustu mánuðum, er að öryggissamstarf Evrópuríkja eigi sér stað innan NATO, en ekki utan þess.“ — / ræðu yðar á alþjóðlegu öryggismála- ráðstefnunni í Miinchen um síðustu helgi lögðuð þér til „sterkari tengsl stofnana NATO og Evrópusambandsins.“ Getið þér útskýrt nánar í hverju slíkt myndi felast? „Það felur einmitt í sér það, sem ég tal- aði um áðan. ESB og NATO vinna saman að mörgum viðfangsefnum í öryggismálum, til dæmis og ekki sízt að tryggingu friðar í Bosníu. Bæði bandalögin vilja íjölga aðildar- ríkjum. NATO vill takast á hendur ný verk- efni í þágu varnarhagsmuna Evrópuríkja. Evrópusambandið gengur nú í gegnum end- urskoðunarferli og öryggis- og varnarmálin verða þar tekin til skoðunar að nýju. Ég tel því að við verðum á skynsamlegan hátt að reyna að samræma starf þessara samtaka. Það verður öllum til bóta.“ Breytingin jákvæð fyrir íslendinga — Frá íslenzkum sjónarhóli hefur umræð- an um aukið evrópskt varnarsamstarf ýmis áhyggjuefni í för með sér. ísland treystir á Bandaríkin um varnir sínar og þótt það sé Evrópuríki á það hvorki fulla aðild að VES né aðild að Evrópusambandinu. Getur ísland orðið fullgildur félagi í Evrópustoð NATO? „Það er skiljanlegt að íslendingar hafi velt þessum hlutum fyrir sér. Sem fullgilt aðildarríki NATO hefur ísland hins vegar enn ríkari ástæðu en áður til að hafa ekki áhyggjur af þróun tengsla og samskipta Evrópusambandsins og NATO. Eins og ég sagði áður, hefur orðið breyting, að mínu mati í mjög jákvæða átt. Ég tel að íslenzka þjóðin ætti að líta þá breytingu jákvæðum augum.“ — Almennt talað hefur staða íslands breytzt með því að kalda stríðinu lauk. Hern- aðarlegt mikilvægi Islands veitir landinu sennilega ekki sömu. áhrif og áður og það er ekki víst að sama tillit sé tekið til sjónar- miða þess á alþjóðavettvangi. Hvert er yðar mat á stöðu og hlutverki íslands innan NATO? „ísland heldur áfram að gegna mjög mikil- vægu hlutverki. Það hefur í rauninni ekki breytzt í tímans rás. Þvert á móti tel ég að mikilvægi íslands í innra skipulagi banda- lagsins sé algert grundvallaratriði. Það er ekki hægt að ímynda sér að NATO gæti virkað sem skyldi, án þeirra möguleika sem staða íslands býður upp á hvað varðar upp- byggingu innra varnarskipulags þess. Ég tel því að mikilvægi Islands hafi langt frá því minnkað, heldur hefur það aukizt ef eitthvað er.“ — Engu að síður hafa Bandaríkin fækkað mjög í liði sínu og dregið saman varnarvið- búnað á íslandi á undanförnum tveimur árum. Nú eru aðeins íjórar F-15 orrustuþot- ur eftir í Keflavíkurstöðinni, og sumir halda því fram að það sé varla nema málamynda- herafli. Teljið þér að varnarhagsmunir ís- lands séu iryggðir? Er jafnvel hugsanlegt að til frekari samdráttar komi? „Sá varnarviðbúnaður og fjöldi hermanna, sem nauðsynlegt er talið að liafa á íslandi, er vel skilgreindur. Heimurinn er öruggari í dag en í gær og það hefur ekki eingöngu * Iþágu Evrópu • JAVIER Solana fæddist í Madríd árið 1942. Foreldrar hans voru á bandi Iýðveldissinna í borgarastyrj- öldinni, en sjálfur hefur hann sagt frá því að ættin hafi verið klofin á milli málstaðar lýðveldissinna og þjóðernissinna. Solana gekk ungur í Sósíalistaflokkinn, á meðan hann var ennþá bannaður. • SOLANA lagði stund á nám í eðlisfræði við Complutense-háskól- ann í Madríd, en var rekinn úr skól- anum eftir að hafa tekið þátt í mót- mælaaðgerðum vinstrisinna. Hann hélt áfram námi í Englandi, fékk Fulbright-styrk og lauk doktorsnámi í Bandaríkjunum. • HANN kom heim til Spánar og fékk prófessorsstöðu við gamla há- skólann sinn í Madríd. Hann þykir frábær eðlisfræðingur og hefur skrifað 30 fræðibækur, einkum um eðlisfræði fastra efna. • ENGU að síður söðlaði hann um árið 1977 og var kjörinn á þing fyr- ir Sósíalistaflokkinn. í upphafi sljórnmálaferils síns var Solana ein- dreginn andstæðingur aðildar Spán- ar að Atlantshafsbandalaginu. Hann — og flokkur hans — hafa síðan skipt um skoðun. Solana segir, aðspurður um þetta, að aðeins forhertir íhalds- menn breyti ekki skoðunum sínum með tímanum. • HANN settist í ríkissljórn 1982 sem menningarmálaráðherra og sat síðan óslitið í stjórn þar til hann tók við embætti framkvæmdastjóra NATO. Hann varð utanríkisráðherra 1992. Solana var álitinn líklegasti arftaki Felipes Gonzalez sem leiðtogi Sósíalistaflokksins. • SOLANA hefur lagt mikla áherzlu á aukinn samruna Evrópu- ríkja og meðal annars unnið að nán- ari samvinnu ESB-ríkjanna í örygg- is- og varnarmálum. Hann hefur jafnframt góð tengsl vestur um haf við ýmsa ráðamenn í Bandaríkjunum og var einn helzti höfundur „Atlants- hafsstefnuskrárinnar", sem kveður á um margvíslegt samstarf Banda- ríkjanna og ESB og var undirrituð í Madríd á siðasta ári, er Solana fór með formennsku í ráðherraráði ESB. • ÞEGAR framkvæmdastjórinn er spurður hvers vegna hann hafi fórn- að tækifæri til að taka við forystu spænska Sósíalistaflokksins til að gerast framkvæmastjóri NATO, seg- ir hann að honum hafi runnið blóðið til skyldunnar — en tekur fram að hann líti ekki svo á að stjórnmála- ferli hans á Spáni sé lokið. „Ég lít á mig sem þjón almennings, í mínu eigin landi, og í Evrópu. Það er starf mitt og ef menn líta á sig sem Evr- ópumann, eins og ég geri, verða þeir að vera tilbúnir að þróa hæfi- leika sína frekar í þágu Evrópu og um leið í þágu lands síns. Það eru tvær hliðar á sama máli. Menn verða að vera viðbúnir — ef þeir vilja búa í heimi, sem rennur í auknum mæli saman í eina heild, verða þeir að vera reiðubúnir tií að starfa að þeirri hugsjón, jafnt heima fyrir sem í al- þjóðlegum stofnunum.“ verið dregið úr herafla á íslandi, heldur alls staðar. Eitt vil ég að komi skýrt fram: Sú aðstaða, sem ísland getur boðið upp á, er ómetanleg fyrir'öryggi Evrópu." Höldum áfram á braut stækkunar NATO — Það hefur verið gagnrýnt að undirbún- ingur að stækkun NATO til austurs gangi hægt fyrir sig. Sömuleiðis virðast Rússar ekki sætta sig við stækkun frekar en áður og líta ennþá á hana sem ógnun við sig. Teljið þér að NATO gæti þurft að velja á milli stækkunar og vinsámlegra samskipta við Rússland, eða er hægt að ná báðum markmiðum? „Við verðum að vinna að því að hvort tveggja geti orðið að veruleika. Stækkun NATO hefur þegar verið ákveðin. NATO er opið bandalag og við höfum haldið áfram á þeirri braut, sem var mörkuð árið 1994 og enn frekar staðfest á síðasta ári. Á þessu ári höfum við þegar hafið samræður við samstarfsríki okkar í Friðarsamstarfmu. Þetta mun halda áfram fram eftir árinu og í árslok munum við geta metið árangurinn af viðræðum við einstök ríki. Þá tökum við ákvörðun um framhaldið. En við höfum ekki hægt á okkur, við höfum haldið bæði hraðan- um og stefnunni. Við viljum að sjálfsögðu hafa eins góð samskipti og mögulegt er við Rússland og við reynum allt til þess. Rússland er mikil- vægt land og mikilvægt samstarfsríki okk- ar. Rússar hafa lagt sitt af mörkum við frið- argæzluna í Bosníu, þeirra hermenn eru við hlið okkar manna. Við sjáum enga ástæðu til þess að reyna ekki að halda sem beztum tengslum við Rússland. Ég mun heimsækja Moskvu á næstunni og reyna að miðla hug- myndum okkar til Rússa.“ —Hvað segið þér um þá gagnrýni, sem hefur til dæmis heyrzt nýlega frá Václav Havel, forseta Tékkóslóvakíu, að með því að hika við stækkun NATO séu Vesturíönd að skapa tómarúm í öryggismálum í Mið- og Austur-Evrópu, sem Rússar muni þá óhjákvæmilega reyna að fylla? „Það er ekki um neitt hik að ræða. Ákvörð- unin um stækkun hefur verið tekin og við höldum okkar striki, á því hefur ekki orðið nein breyting." Öll ríkin verðskulda sömu vernd — Er um að ræða „fyrstu og aðra deild“ hugsanlegra aðildarríkja? Er til dæmis mögu- legt að Visegrad-ríkin yrðu tekin inn í fyrsta skammti en Eystrasaltsríkin látin bíða, eins og þau óttast mjög? „Nei, það er engin fyrsta eða önnur deild. Þetta er spurning um það hversu undirbúin einstök ríki eru til að ganga í hernaðarbanda- lag. Þetta er ekki eins og að ganga í fótboltaklúbb. Menn verða að vera tilbúnir að takast á hendur sameiginlega ábyrgð. Ég vil ekki skipta löndum niður í flokka. Þau verðskulda öll að fá sömu vernd og til- heyra þannig sama flokki." Við hvaða ákvörðunum má þá búast á ráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í desember, þar sem ætlunin er að ákveða framhald stækkunaráforma? „Það væri ekki skynsamlegt af mér að gefa yfirlýsingar um það núna. Við munum vinna með þeim ríkjum, sem hafa áhuga, til ársloka. Fram að þeim tíma er ekki hægt að segja fyrir um hver ákvörðunin verður.“ Miðjarðarhafssvæðið og öryggi Evrópu — Á undanförnum árum hefur NATO í auknum mæli beint athygli sinni að Miðjarð- arhafssvæðinu og þeim hættum, sem beinast að bandalaginu úr suðri. Mynduð þér taka undir ummæli forvera yðar, Willy Claes, um að NATO geti stafað jafnmikil ógn af her- skáum múslimum og því gerði af Sovétkommúnismanum áður? „Ég er lítið fyrir samanburð af þessu tagi og vil fara varlega í að fjalla um hvað sé „ógn“ og hvað sé „hætta“ eða áhættuþátt- ur. Ég kem sjálfur frá Miðjarðarhafsríki og síðustu tvö árin hef ég unnið að því að koma á samstarfi Evrópusambandsins og ríkjanna í Norður-Afríku. Ég veit að þessi ríki eru viðkvæm fyrir því hvernig við högum orðum okkar. Þetta eru lönd, sem geta átt bjarta framtíð fyrir sér. Þau vilja leggja sitt af mörkum til þess að tryggja öryggi Miðjarðar- hafssvæðisins og vilja ræða við Atlantshafs- bandalagið með reglulegum hætti. Ég mun stuðla að slíkum tengslum, og raunar er vís- ir að þeim kominn á nú þegar. Á árunum 1994 og 1995 höfum við komið á reglulegum fundum með sex Miðjarðarhafsríkjum og ég held að sú vinna sé unnin í þágu góðs mál- staðar. Stöðugleiki og öryggi Miðjarðarhafs- svæðisins mun styrkja öryggi Evrópu.“ Bandalag helgað friði Líkast til verðið þér við stjórnvöl Atlants- hafsbandalagsins um aldamótin. Hver er framtíðarsýn yðar á hlutverk NATO á nýrri öld? „Því er ekki auðvelt að lýsa í fáum orðum. Ég sé fyrir mér bandalag, sem er helgað friði, reiðubúið til að takast ný verkefni á hendur, sem viðheldur vinsamlegum sam- skiptum við mörg ríki og sem varðveitir sterk tengsl milli Evrópu og Ameríku, sem ég tel vera grundvöll Atlantshafsbandalagsins. Áður en 'öldin er á enda munum við þurfa að laga bandalagið að nýjum verkefnum. Eins og ég sagði í upphafí, tel ég að reynsl- an, sem við öðlumst með samstarfinu um friðargæzlu í Bosníu, þar sem við erum nú í forystu fyrir samfylkingu í þágu friðar, muni reynast mjög mikilvæg er við skilgrein- um getu bandalagsins í framtíðinni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.