Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Friðarsamkomulag Israela og Palestínumanna Athyglin bein- ist að stöðu Jerúsalem Blendnar tilfinningar einkenndu afstöðu * ______________________________ Israela til nýafstaðinna kosninga Palestínu- manna. Sigrún Birna Birnisdóttir í Jerú- salem gallar um viðkvæmasta deiluefnið; framtíðarstöðu þeirrar helgu borgar. NÚ þegar fyrstu almennu kosningar palestínsku þjóðarinnar eru afstaðn- ar, beinist athygli manna að deilu- málum sem leysa verður eigi að tryggja viðgang friðarferlisins í Mið-Austurlöndum. Kosningarn- ar, sem voru liður í friðarsam- komulagi ísraela og Palestínu- manna, drógu að sér heimsat- hygli en ætla má að staða hinnar heilögu Jerúsalemborgar verði nú víða ofarlega á baugi. Kosningar Palestínumanna komu af stað miklu tilfinninga- legu umróti hér í ísrael. Sem dæmi um andstöðuna má nefna að sá áfangi Oslóarsamn- ingsins sem laut að kosningunum var ekki samþykktur af ísraelska þinginu fyrr en nokkrum dögum fyrir kosningarnar enda beitti stjórnarandstaðan málþófi til að tefja afgreiðsluna sem mest. Þótt Israelsstjórn hafi að lokum komið samningnum í gegn um þingið hafa Palestínumenn ásak- ■að stjórnvöld um að beita brögð- um til að komast hjá því að standa við sinn þátt samkomulagsins t.d. með því að handtaka menn fyrir litlar sem engar sakir nokkrum dögum áður en þau áttu að leysa fanga úr haldi og telja þá síðan með í fangakvótanum. Einnig hefur forsetinn valdið usla með því að neita að náða fanga sem úthellt hafa blóði gyðinga, jafnvel þótt um náðun þeirra hafi verið samið. Stöðugt í brennidepli Auk þess sem kosningarnar hafa varpað ljósi á blendnar til- finningar ísraela til samkomu- lagsins og til friðarviðræðna yfir- Morgunblaðið/Jóhanna Kristjónsdóttir FRÁ Jerúsalem. leitt hafa þær enn á ný beint at- hygli manna að viðkvæmasta deilumálinu, hinni heilögu Jerú- salem. Þótt formlegar umræður um framtíðarstöðu borgarinnar eiga ekki að hefjast fyrr en í þriðja áfanga samningaviðræðnanna þ.e. eftir að báðar þjóðirnar hafa gengið til kosninga eru umræður um stöðu borgarinnar í stöðugum brennidepli. Á árunum 1948-1967 var borginni skipt á milli Jórdana og ísraela með virgirðingu en frá því Israelar náðu allri borginni á sitt vald í 6 daga stríðinu árið 1967 hefur þessari heilögu borg þriggja trúarbragða verið óformlega skipt í vestur og austurborg þar sem gyðingar búa í vestri en Palest- ínumenn í austri. Palestínumenn PALESTÍNSKAR konur í biðröð á kjörstað í fyrstu frjálsu kosn- ingunum sem fram fóru 20. fyrra mánaðar. Reuler PAT Buchanan var sigur- reifur er hann kom fram á blaðamannafundi í Des Moines í Iowa eftir sigurinn í Louisiana. viðskiptum, þjóðernishyggju og kristilegum áherslum. Meðal bar- áttumála hans má nefna að hann vill að Bandaríkin hætti þátttöku í NAFTA-samstarfinu, segji sig úr Alþjóðaviðskiptastofnuninni, beiti Japani og Kínverja viðskiptalegum refsiaðgerðum til að þurrka út halla á viðskiptum við þá og reki Samein- uðu þjóðimar frá New York. Þrátt fyrir að hann búi í glæsilegu úthverfi Washington og lifi og hrær- ist í heimi stjórnmálamanna og blaðamanna hefur honum tekist að kynna sig sem utangarðsmann er gagnrýnir „þá þarna í Washington". Buchanan vakti fyrst verulega athygli er hann fór fram gegn Ge- orge Bush þáverandi forseta í for- MILLJARÐAMÆRINGURINN Steve Forbes ekur nú um Iowa í sérstakri rútu til að vinna sér fylgi. kosningum árið 1992 og fékk tölu- vert fylgi í upphafi. Fæstir fréttaský- rendur áttu hins vegar von á því að Buchanan myndi gegna áberandi hlutverki í forkosningunum nú. Hann fékk hins vegar mikið fylgi í óbindandi skoðanakönnun meðal repúblikana í Alaska fyrir skömmu sem styrkti stöðu hans nokkuð fyrir kjörfundinn í Iowa á mánudag og baráttuna í New Hampshire, þar sern fyrstu mikilvægu forkosningarnar fara fram 20. febrúar. Flestir tóku ekki þátt Dole, Forbes og fjórir aðrir fraJH' bjóðendur tóku ekki þátt í Louisiána þar sem að þeir vildu virða þá hefð að fyrsti kjörfundurinn og forkosn- ingar væru í Iowa og New Hamp' Repúblikanar halda kjörfund í Iowa á mánudag Buchanan komínn í baráttuna Signr Pat Buchanans á kjörfundi repúblikana í Louisiana kom flestum í opna skjöldu. Á mánudag verður haldinn kjörfundur í Iowa og ekki er talið útilokað að Buchanan muni fá þar töluvert fylgi. D ÁLKAHÖFUNDURINN Pat Buchanan er ótvíræður leið- togi kristilegra hægri- manna í Bandaríkjunum eftir óvænt- an sigur sinn á kjörfundi í Louisiana á þriðjudag og kemur sterkur til baráttunnar í Iowa, þar sem repú- blikanar halda kjörfund á mánudag. Það eru þó fáir sem telja að hann eigi raunhæfa möguleika á að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana- flokksins í forsetakosningunum í haust. Þrátt fyrir að sex af níu frambjóð- endum repúblikana, þeirra á meðal Bob Dole, forseti öldungadeildarinn- ar, og auðkýfingurinn Steve Forbes hafi ekki tekið þátt í kjörfundinum í Louisiana gætu áhrif sigurs Buch- anans orðið veruleg. Ekki síst eru úrslitin mikið áfall fyrir Phil Gramm, öldungadeildar- þingmann frá Texas, og íhaldsmann- inn Alan Keyes. Hafði Gramm gert sér vonir um sigur í Louisiana enda voru það stuðningsmenn hans sem höfðu knúið það í gegn að fyrstu forkosningarnar yrðu haldnar í Lou- isiana. Töldu þeir hann öruggan um sigur í þessu íhaldssama nágranna- ríki Texas. Telja má Iíklegt að Gramm, sem varið hefur rúmlega 100 milljónum króna í kosningabaráttu sína, muni hætta baráttunni sökum fjárskorts, nái hann ekki óvænt góðum árangri í Iowa. Vill harða verndarstefnu Buchanan fékk rúmlega 60% at- kvæða í Louisiana en stefnuskrá hans einkennist af verndarstefnu í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.